19.12.2011 | 10:58
Fyrir ári síðan...
Ástandið á minni elskulegustu er bara svipað og síðustu daga nema mér finnst ég sjá að lömunin sé að koma aftur þannig mín ætlar að hitta einhverja lækna uppá spítala á morgun þar sem ég neita að minnka steraskammtinn á miðvikudaginn ef þetta er raunin. Jú hún er algjörlega orku- og kraftlaus, það er ca klukkutíminn sem hún dugar en svo verður hún að leggjast fyrir og hvíla sig aðeins. Við kíktum einmitt á jólasýninguna í Smáralindinni áðan og eftir tuttugu mín þá vildi Maístjarnan mín fara því henni leið bara ekkert of vel þarna. Mikill hávaði og áreiti er eitthvað sem fer ekki vel í hana þannig núna liggur hún uppí rúmi sofandi.
Ég var á vaktinni í nótt með henni og það var ræs um tvö og við fórum þá að sjálfsögðu fram til að fá eitthvað gott í gogginn og svo var horft á teiknimyndir í tvo tíma eða þegar Maístjarnan mín var tilbúin að fara aftur uppí rúm að hvíla sig.
Já þetta eru virkilega erfiðir dagar hjá henni og manni líður ofsalega illa að horfa á hana einsog hún er, hún skilur að sjálfsögðu ekkert í því afhverju henni líður svona.
Á þessum tíma fyrir ári, var engin tilhlökkun í Maístjörnunni minni fyrir jólunum þá meina ég ENGIN! Hún kvaldist bara og leið hræðilega illa, það var í fyrsta sinn sem ég sá hana gráta af kvölum og kvarta undan verkjum við mig. Þá grét ég líka mikið með henni, þetta er eitthvað sem mig langar ALDREI aftur að upplifa með henni. Versti vetur sem ég hef upplifað með henni.
Í dag ári síðar er hún endalaust spennt fyrir öllu, síðasti skóladagurinn hjá henni fyrir jólafrí er í dag og hún gæti ekki verið spenntari fyrir jólafríinu. Líka fyrir ári síðan kom sveinki í heimsókn til okkar og hún var svo kvalin, vildi ekki sjá hann einsog hún er mikil jólasveinastelpa og dýrkar allt sem tengist jólunum en hún var brjáluð í skapinu og vildi bara vera inní herbergi, sofa og allir að láta sig í friði. Þess vegna ákvað ég að panta aftur jólasveininn sem ætlar að mæta til okkar á fimmtudaginn og þau systkinin vita að sjálfsögðu ekkert, hann mun bara mæta á svæðið og gleðja þau með nærveru sinni, söng og gleði. Ég gæti ekki verið spenntari!! Þetta er svo skemmtilegur tími þegar öllum líður vel á heimilinu.
Skyrgámur kom einmitt í nótt og Theodór vildi gefa honum skyr sem var að sjálfsögðu sett í gluggann ásamt skeið og tusku því Hinrik minn hafði áhyggjur að hann myndi subba útum allt og hann vildi að hann gæti þurkað upp eftir sig. Skyrið kláraðist auðvidað og tuskan var öll útötuð af skyri, þetta fannst þeim ótrúlega skemmtilegt.
Stefnir sem sagt í góð jól hjá okkur..... Bara gaman!!
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Njótið, njótið og njótið....þið eigið það sko öll skilið.
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 19.12.2011 kl. 17:48
Góðir bræðurnir:)
Já elskulega fjölsk....njótið jólanna í botn....
Svo kominn tími á það...
Knús....
Halldór Jóh (IP-tala skráð) 19.12.2011 kl. 18:30
Kæra fjölskylda .. sendi ykkur hugheilar jólakveðju ..með ósk um allt það besta sem guð getur gefið....Þið eigið það svo sannalega skilið ..og mammman sérstaklega ...
Hrafnhildur Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 19.12.2011 kl. 23:53
Falleg færsla, svo hrein og bein og kennir okkur hinum svo margt sem lesum. Njótið þessa yndislega tíma, ég sakna jólasveinastússins á mínu heimili, bréfanna og laum um nætur - þetta er besti tími ársins. Tendra ljósin og bæn mín er fyrir ykkur
kærleikskveðja frá 4 barna mömmunni
4 barna mamman (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 12:27
Mikið er gaman að sjá þetta.
Gleðileg jól.
Kveðja,
I.
Ingibjörg (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 18:53
Guðrún unnur þórsdóttir, 21.12.2011 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.