30.12.2011 | 12:56
Blómarósin mín fagnar snjókomunni
Blómarósinni minni finnst alls ekki slæmt að vera búin að fá allan þennan snjó enda líka úti frá morgni til kvölds, byggjandi snjóhús eða leika sér á sleðanum sínum. En við fjölskyldan skelltum okkur í Breiðholtsbrekkuna þriðja í jólum, röltum efst uppí skíðabrekkuna og skelltum okkur í keppni niður sem var æðislega gaman. Maístjarnan mín reyndar harðneitaði að koma með okkur en eftir smá tíma höfðum við foreldrarnir að snúa henni og hún naut sín í tæpan klukkutíma en þá var hún komin með nóg en það er ofsalega erfitt fyrir okkur þessa dagana að fá hana til að gera eitthvað með okkur. Hún er bara endalaust þreytt, já eða það er bara mjög "þungt" yfir henni. Þó svo það séu ennþá nokkrir dagar eftir að jólafríinu hennar er hún strax farin að neita að fara í skólann. Ég vona samt að hún njóti dagsins á morgun sem er hennar/okkar uppáhalds tími og horfa á allar sprengjurnar en við skelltum okkur í gær og keyptum nokkrar sprengjur, Blómarósin mín var nú ekkert sátt með það hvað við keyptum lítið þar sem hún vill helst vera alla nóttina að sprengja. En við mæðgur fjárfestum í minnsta barnapakkanum sem við ætlum að sprengja saman (ég sprengi það að sjálfsögðu) milli átta og níu um kvöldið en ég er vön að fara þá út með börnin og sprengja litlar sprengjur fyrir þau og við skemmtum okkur saman. Elska þá stund með þeim. Verst hvað Gull-drengurinn (5ára) minn er ennþá skíthræddur við þessi læti....
Á morgun kveðjum við árið 2011 sem var okkur frekar erfitt og ætlum að byrja árið 2012 eða 10.janúar'12 og fá góðar fréttir af Maístjörnunni minni en þá eru næstu rannsóknir hennar. Nýtum árið 2012 til að byggja okkur upp og safna orku en við erum löll öngu orðin bensínlaus..... Þráum bara "venjulegt" líf án veikinda, mikið væri líf okkar fullkomið ef við fengjum svoleiðis.
Gleðilegt ár kæru lesendur, bestu þakkir fyrir falleg komment og tölvupósta þetta gefur okkur ofsalega mikið.
XOXO
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegt ár og knús til ykkar allra
Guðrún unnur þórsdóttir, 30.12.2011 kl. 14:50
Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda og takk fyrir að deila ykkar sigrum og sorgum með okkur öllum! Megi nýja árið færa ykkur orku, gleði og góð tíðindi, þið eigið það svo sannarlega skilið:-)
Vigdís (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 16:22
Gleðilegt ár fallega fjölskylda. Ég er viss um að nýtt ár verði gæfuríkt hjá ykkur.
Kveðja - Helga
Helga (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 16:36
Elsku Áslaug og stórfjölskylda.
Bestu óskir til ykkar um gleðilegt 2012.
Vona innilega að allar ykkar óskir rætist á komandi ári.
Kærar keðjur
Þorgerður.
Þorgerður (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 16:37
Gleðilegt ár elskurnar mínar. Megi það næsta vera gæfuríkt og að sjálfsögðu hugsa ég til ykkar :*
Dagný (ókunnug) (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 22:05
Megi allar ykkar óskir rætast á nýju ári.
Sjöfn (ókunnug) (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 23:24
Kæra fjölskylda
Vona að árið 2012 verði heillaríkt og gott fyrir ykkur, þið eruð yndisleg!!
Kv, Benný
Benný Ósk (IP-tala skráð) 1.1.2012 kl. 11:06
Gleðilegt ár :)
Ragnheiður , 1.1.2012 kl. 20:14
Elsku þið öll. Þið eruð í bænum mínum. Vona svo að þið farið að lifa venjulegu lífi með venjulegum áhyggjum. Mikið búið að leggja á ykkar ungu fjölskyldu. Megi árið 2012 verða ykkar.
Berglind Hafþórsdóttir (IP-tala skráð) 2.1.2012 kl. 02:56
Gleðilegt ár kæra fjölskylda.
Megi það verða gott og gæfuríkt :)
Hanna (IP-tala skráð) 2.1.2012 kl. 19:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.