12.3.2007 | 09:33
Helgarfréttir
Þó Þuríður var að slappast á fimtudag og var slappari á föstudag ákváðum við eftir mikin umhugsunarfrest að fara með fólkinu mínu í sveitina. Mamma og pabbi voru búin að leigja bústað fyrir hele familíen sem sagt þau, okkur systkinin, maka og börn fyrir langa löngu og við vorum búin að vera hrikalega spennt að fara og gera ekki neitt eða kanski borða góðan mat, spila, fara í pottinn, út að leika, borða ennþá meira og njóta þess bara að vera saman. Við sjáum engan veginn eftir því að hafa farið, það var ótrúlega gaman, rólegt og fínt.
Þuríður var slöpp um helgina, búin að sofa mikið eða sofnaði um hálf átta í gærkveldi og ég vakti hana núna um níu því ég hafði smá áhyggjur af henni. Hún byrjaði á því að kvarta undan maganum sínum og vildi fara á klósettið að gubba en það tókst ekki, alltaf þegar hún byrjar að sofa svona og kvarta fæ ég hrikalega í magann. Er þetta að byrja aftur fer ég að hugsa? Andskotans, djöfulsins en vonandi ekki samt. Hún fór að sjálfsögðu ekki á leikskólan í dag en ef hún hressist í dag fær hún að fara á leiksýninguna á leikskólanum á morgun en ekkert meira.
Mér finnst ég vera eitthvað svo dauf þessa dagana, veit ekki alveg afhverju? Jújú ástæðurnar geta verið margar en svo er það bara þreytan sem er að fara með mig, maður þarf líka að reyna vera kátur allan daginn en það er nú BARA fyrir börnin mín (Óskar minn skilur þetta), reyna að vera skemtileg og gera eitthvað skemtilegt með þeim en finnst það líka ofsalega erfitt sérstaklega þegar ég horfi á hetjuna mína og hún skilur ekkert. Hún er að taka inn tonn af lyfjum einsog ekkert sé sjálfsagðara, það er einsog ég sé að gefa henni nammi þegar hún gleypir þetta og svo veit maður aldrei hvernig henni líður sem mér finnst erfiðast.
Ég hefði aldrei getað trúað þessu að barnið mitt myndi geta orðið svona veikt þegar ég fékk hana fyrst í fangið fyrir tæpum fimm árum, litla lukkutröllið mitt einsog ég hef alltaf kallað hana. Hún fæddist með svo mikið hár, fór í sína fyrstu klippingu þriggja mánaða, ég man hvað mömmu fannst gaman að taka húfuna af henni til að sýna öllum hárið hennar eheh!! En núna er hárið hennar að koma aftur, það er svona líka þykkt og svo mjúkt fólki finnst svo gaman að renna í gegnum það því það er svo mjúkt ehe!! Hárið sem hún missti eftir geislan í des á hliðunum er líka að koma aftur æjhi þá getur hún kanski farið að fá teygju í hárið sem henni langar svo að fá alveg eins og systir sín.
Annars sýnist mér hún vera að hressast aftur, samt erfitt að segja en ég held það samt.
Ég ætla að reyna að hugsa um komandi helgi þegar við Skari ætlum að senda ÖLL börnin í pössun í nokkrar nætur og njóta þess að vera saman og gera eitthvað skemtilegt saman. Skari fékk nefnilega svo skemtilega jólagjöf síðustu jól sem við ætlum að nota næstu helgi. Ég ætla allavega að reyna vera spennt en finnst það samt erfitt ef hún fer ekki að hressast en það er vonandi í áttina.
Farin að knúsa Þuríði mína og Theodór minn en Oddný mín fór að sjálfsögðu á leikskólan.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æi hvað þetta er hrikalega erfitt kæra Áslaug :'( ég vildi að þið fengjuð eitt stykki kraftaverk fyrir litlu hetjuna ykkar. Yndislegt að helgin skyldi vera góð og frábært að þið drifuð ykkur, fjölskyldan er svo mikils virði og það finnur maður svo vel í erfiðleikum. Strax farin að hlakka til helgarinnar fyrir ykkar hönd, haldið okkur í smáspennu :) það er bara gaman. Ég bið fyrir ykkur öllum og svo á hele famelijan kerti hérna upp á Skaga í stofunni hjá mér sem ég brenni með ósk um kraftaverk.
Guð veri með ykkur öllum vinan
Skagakveðjur
Gunna Olískella
Gunna (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 09:49
Gott hjá ykkur að halda ykkar striki og fara með fjölskyldunni í bústaðinn. Vonandi ferð hetjunni okkar að líða betur því þá líður öllum í kringum hana svo miklu betur. Hafið það sem allra best og góða skemmtun um næstu helgi. Kveðja Mæja
María Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 10:02
Það er alltaf svo gaman að skreppa í bústað og komast aðeins út úr hversdagsleikanum. Sendi ykkur Þuríði góða orku og kveiki á kerti í glugganum í dag fyrir litlu dömuna. Eins og venjulega.
ylfa (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 11:03
Vildi að það væri eitthvað sem maður gæti gert fyrir ykkur! Hugsa sterkt til ykkar og vonandi fer hún að hressast greyið litla! Njótið helgarinnar og hlúið að hvort öðru!! Bestu kveðjur!
Katrin Ösp (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 11:20
Kæra Áslaug.
Æ, mikið var gott að þið gátuð skellt ykkur í bústaðinn þrátt fyrir allt. Mér finnst þið svo dugleg og dáist alveg af því hvað þið eruð dugleg hvað styrkur ykkar er mikill. Ég get með engu móti sett mig í spor ykkar. Það getur ekki verið auðvelt að horfa upp á barnið sitt svona veikt og geta ekkert gert nema haldið í vonina. Þið hjónin megið sko vera alveg rosalega stollt af ykkur fyrir dugnað, ótrúlegum styrk og jákvæðni. Þið eruð sannkallaðar hetjur og hugsið svo rosalega vel um börnin, það sér maður á skrifunum. Vona svo innilega að guð sendi ykkur kraftaverk fyrir Þuríði litlu. Megi guð vaka yfir ykkur og færa ykkur birtu og il og jákvæð svör . Þið eruð dýrmætir englar og ég óska ykkur alls hins besta . Kveðja frá Siggu Ásgeirsd.
Sigga Ásgeirsd. (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 20:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.