Leita í fréttum mbl.is

Þuríður Arna

Þuríður Arna mín er þreytt þessa dagana, þarf að sofa mikið og er mjöööög fljót að þreytast.  Veit ekki alveg afhverju því hún ætti að vera farin að venjast stækkuninni af krabbalyfjunum sem var stækkað fyrir tveim vikum eða svo.  Er að fara með smá í ræktun frá henni í fyrramálið uppá spítala því við erum ekki alveg ánægð með stöðuna hjá henni sambandi við eitt og þá verður að sjálfsögðu allt tjekkað og skoðað vel hjá hetjunni minni.  Vona bara að allt komi vel út, krossa alla putta og tær.

Á erfitt með einbeita mér að lærdómnum þessa dagana sem er kanski ekki alveg nógu gott því það er alveg að nálgast próf sem ég hef kanski engar áhyggjur af en vill bara fá tíurnar mínar en ekki áttur.  Blush  Er líka farin að vera ofsalega þreytt "aftur" og það fer ofsalega í mig en ég held að það sé ö-a núna því ég hef smá áhyggjur af hetjunni minni sem mér finnst alltaf vera grennast meira og meira sem hún má ekki við.  Æjhi þessar breytingar á henni síðustu daga eða viku(r).

Er svo tóm þessa dagana, þrái svo margt sem ég veit að ég fæ ekki.  Finnst þetta bara svo ósanngjarnt og erfitt.  Fengum líka slæmar fréttir á föstudaginn, hetjan sem ég var búin að biðja ykkur að biðja fyrir dó eftir hetjulega baráttu af krabba kúkalabba.  Alltof margir sem falla fyrir þessu andskota (afsakið) bæði ungir og gamlir og mér finnst það ótrúlega erfitt og verður alltaf erfiðara og erfiðara, það er aldrei hægt að venjast að lifa í þessu litla þjóðfélagi sem við lifum í.  Megið kveikja á kerti fyrir fjölskyldu þessa unga drengs sem dó, endilega notið kertasíðuna hennar Þuríðar minnar Örnu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

knús og kram á ykkur

kveðja Guðrún

´Guðrún (Boston) (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 21:57

2 identicon

 Sendi ykkur og fjölskyldu ungu hetjunnar og kærleikskveðjur.Guð blessi alla.Kveðja

Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 22:11

3 identicon

Þið eruð með í bænum mínum, Guð gefi ykkur styrk og blessi ykkur.

Kristín (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 22:27

4 Smámynd: Þórunn Eva

knús og koss sæta mín og vonandi kemur allt vel út úr ræktuninni... samhryggist þér með litla vin ykkar að austan....

vonandi fer þér að líða aðeins betur koss og knús enn og aftur... sem betur fer fær maður aldrei nóg af knúsum og kossum...

þín vinkona

Þórunn Eva , 19.11.2007 kl. 22:36

5 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það er erfitt tímabil hjá þér, enn og aftur og því ekkert óeðlilegt þó þér fallist hendur á stundum. Þannig myndi öllum líða í þínum sporum, þið standið ykkur eins og hetjur!

Þú mátti hins vegar til með að slaka á kröfunum til sjálfrar þín. 80% þykir ÁGÆTT hjá þeim sem eru í námi, það er SUPER í þeim kringumstæðum sem þú ert. Eins og ein sagði við mig þegar ég þurfti að sætta mig við minna en tíuna; slakaðu á kröfunum og njóttu þess sem þú ert að gera

Gangi ykkur sem best á morgun, vonandi er þessi uppákoma eitthvað sem má bæta, þó það þurfi sýklalyfin til.

Farðu umfram allt vel með þig

Baráttukveðjur

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 19.11.2007 kl. 23:09

6 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Knús og kossar til ykkar þið eruð hetjur.

Gangi ykkur vel á morgun.

Bestu kveðjur Ingigerður. 

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 20.11.2007 kl. 00:31

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er oft stutt milli gleði og sorgar í þessu lífi. Ég vott öllum aðstandendur hetjunnar föllnu, mína dýpstu samúð. Óttinn er mikill orkuþjófur og hann er svo stutt undan hjá okkur öllum. Bið Guð um að bata fyrir Þuríði Örnu og að slappleikinn hennar sé af "góðum" ástæðum. Englarnir vaki yfir ykkur öllumFríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.11.2007 kl. 04:11

8 identicon

Sæl og blessuð,

                            var að lesa yfir bloggfærslurnar fyrir síðusta dagar og er bara rósalega glöð að sjá að það gengur vel hjá ykkur míðað við allt sem er að gerast.Það er sorglegt að heyra að svo margir ungir sem gamlir er að missa barátunni með krabba rabba, en hún Þúríður er algjört kraftaverk og það er kveikt á kerti dags daglega hér heima fyrir og farið með bænir alltaf 6.45 am á hverju morgni fyrir hana og fyrir allir sem er í baráttu með krabbameinið og bara sem þarf á hjálp að halda.Ég er samála þvi að einhver uppi er greinilega að hjálpa litla hetjunna.Það er frábært að þér gengur vel í náminu og það er rétt óskandi að það verður bara allt gott sem kemur héðan í frá til ykkar.Eigðu góðan dag og knús til ykkar öllu þið eruð frábært folk öll sömul.Guð geymið ykkur og styrkja .Kær kveðja Dee

Dolores (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 08:47

9 identicon

Sæl aftur,

                   ég gleymdi að óska ykkur góðs gengis á morgun með það sem kemur úr ræktunni.Mig langar líka að votta fjölskylda Tómasar innilega samúðar kveðja .Kær kveðja Dee

Dolores (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband