21.11.2007 | 09:22
Þetta er skítt
Þá er eitthvað komið úr prufunum hennar Þuríðar minnar Örnu sem við tókum í gærmorgun, hvursu mikið á að reyna á þennan kropp? Það fannst eitthvað en við vitum ekki alveg hvað eða ég ætla ekkert að fara koma með einhverjar "ágiskanir" frá doktorunum fyrr en þetta er komið 100% í ljós. Það þarf víst einhvern sérfræðing í þettta dæmi og væntanlega þarf hetjan mín að fara í fleiri test, taka blóð og svona. Vonandi heyrum við meira í dag um þetta mál en það er oft erfitt að ná í þessa sérfræðinga? Skil ekki afhverju það er oft svona erfitt, ég meina eru þeir ekki að vinna uppá spítala og á þá ekki að vera auðvelt að ná í þá?
Hetjunni minni langar annars að fara fá mömmu-dag og að sjálfsögðu fær hún hann, ætlum að knúsast saman á föstudaginn. Þurfum nefnilega líka að stússast aðeins, ætlum að fara skila hjólastólnum hennar og fá almennilega kerru handa henni þar sem við eigum ekki neina stóra handa henni en við fáum það allt í gegnum TR. Jeij þeir gera þó eitthvað fyrir mann. Okkur finnst hjólastóllinn ekki vera nógu góður fyrir hana þar sem hún er oft fljót að þreytast og þá þarf hún að leggja sig en það er ekki hægt í stólnum. Þurfum að fá eitthvað sem hún getur "notið þess" að vera í og þarf að geta hvílt þreyttan kropp.
Hún á dáltið erfitt þessa dagana og mér finnst erfitt að senda hana á leikskólann. Henni langar svo að vera bara kúra með mömmu sinni en þar sem ég er að fara í próf verð ég að senda hana þangað fyrst að hún hefur orku í það en búin að lofa þeim systrum að eftir 5.des verða kanski nokkrir mömmu-dagar fyrir þær. Hún er líka frekar þreytt, æjhi þetta er skítt. Þetta allt saman tekur svo mikið á þennan litla kropp og það er erfitt, þetta er erfiðast í heimi. Mikið vildi ég að ég ætti eina ósk. Ótrúlega sárt að geta ekkert gert nema bara bíða og sjá. Bwaaaaahhhhh!!
Ætli ég haldi ekki bara áfram að bíða. Er núna að bíða eftir næstu niðurstöðum og væntanlega fleiri rannsóknum. Hvað er málið með allar þessar biðir í þessum "brannsa"? Hvernig er hægt að láta fólk bíða svona? Óþolandi!!
Hérna er svo hetjurnar mínar tvær í tívolíi á Spáni sem er þeirra uppáhald, ef Þuríður mín fengi að ráða þá myndi hún búa í tívolíi eheh!! Sjáið líka hvað þær eru kátar báðar tvær, aukabarnið lengst til vinstri er bara einhver sem við þekkjum ekki. Svoooo gaman að sjá þær svona kátar og hressar sem er því miður ekki alltof oft.
Eigið góðan dag......
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 4870799
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hef fylgst með ykkur undanfarið og mikið sem ég dáist af styrk ykkar allra! Ég vona að það gangi allt vel hjá ykkur og sendi alla mína engla til ykkar kæra fjölskylda
Guðný Drífa Snæland, 21.11.2007 kl. 09:52
Sæl,
Það er alltaf gott að vita af því að það er fólk út um allt að hugsa fallega til ykkar allra, sérstaklega til hennar Þuríðar Örnu, fallegu hetjunni ykkar sem er svo ótrúlega dugleg að það eru ekki til nein orð til að lýsa því.
Margrét
Margrét (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 09:54
Hversu mikið skal leggja á eina litla stúlku. Þeirri spurningu er erfitt að svara. Vonandi er ekki neitt verulega slæmt að gerast núna (allir puttar í kross) Ó ég bið Guð um góðar fréttir. Hvað eru veraldleg vandamál á móti svona skelfilegun hlutum eins og krabbameini í litlu barni. Guð blessi ykkur öll Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.11.2007 kl. 10:23
Fallega fjölskylda
Æi hvað það er sárt að lesa hvað þetta er allt erfitt og óþolandi að þið þurfið að bíða og bíða, biðin er alltaf svo erfið.
Mig langar til að biðja alla sem koma hér inn að kveikja nú nokkur ljós fyrir litlu hetjuna og fara með bæn til handa ykkur. Þið þurfið alla aukakrafta núna og við sem fylgjumst hér með, með virðingu og aðdáun yfir dugnaði ykkar við getum sameinast í að tendra ljós og senda ykkur kærleik.
Gangi ykkur vel elskurnar og guð veri með ykkur, með kærleik
4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 11:30
æi elsku krakkar mínir, mikið er þetta allt erfitt, knús og bænir mínar til ykkar allra.
Guðrún Jóhannesdóttir, 21.11.2007 kl. 12:20
Kæra Áslaug
Guð gefi þér æðruleysi til að takast á við þessa hluti og hjálpi þér að taka því sem að höndum ber. Njóttu góðu daganna í botn, vertu ekki að eyða orkunni þinni í að kvíða fyrir því ókomna.
Mundu að þakka fyrir það góða sem þú hefur og haltu í vonina.
Ég þekki þig ekki en hef fylgst með lengi. Það er átakanlegt að finna hve þreytt þú ert orðin og úthaldið þitt er greinilega að fjara út. Ég bið Guð að styrkja þig og gefa þér allt sem þú þarft til að halda þessari baráttu áfram.
Þuríður Arna verður áfram bænabarnið mitt og ég vil hvetja alla til að lyfta allri fjölskyldunni upp í bæn til Drottins sem er enginn hlutur um megn.
Við skiljum ekki alltaf hvers vegna svona erfiðleikar eru lagðir á fólk en við sem fylgjum Honum þiggjum styrk til að komast í gegnum þá. "Þótt ég fari í gegnum dimman dal..." stendur í Sálmum Davíðs, hann segir ekki að hann stoppi í dalnum, hann fer í gegnum hann, mundu það kæra systir.
Arna (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 12:24
Svona bið nýstir fólk að innan Guð gefi ykkur kjark til að takast á við þetta. Það er mikið lagt á litlu sálina og ykkur öll. Þið verðið áfram í bænum mínum.
Kristín (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 12:35
hæ hæ sæta mín ;) hlakka til að hitta þig á laugardaginn :) knús og koss og súper dúper strauma á ykkur
Þórunn Eva , 21.11.2007 kl. 16:51
Ég vona að allt kemur betri úr blóðprufum og það .Biðja á fullu fyrir ykkur öll.Hafið það sem best .Guð gæta og styrkja ykkur öll líka Besta kveðja Dee
Dolores (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 16:58
Halló elsku yndislega fjölskylda.
Við biðjum til guðs á hverjum degi fyrir henni yndislegu og frábæru Þuríði Örnu og ykkar allra hinna sem eruð henni næst og þurfið að ganga í gegnum þetta allt saman. Það er alveg ömurlegt að þið gátuð ekki fengið að hafa þessu góðu frétt hjá ykkur og sjá kraftaverkin gerast. En vonandi breyta blóðprufurnar þessu aftur í gott. Ef við trúum ekki saman á kraftaverk fyrir þessa lita hetju fyrir hvað eigum við þá að lifa. Farið vel með ykkur. Knús og kossar. Kv. Kristín Amelía
Kristín Amelía (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 18:04
Hæhæ
KNÚS á línuna , hugsum til ykkar .
Dagrún (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 18:07
Knús og jákvæðir straumar til ykkar.Kveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 22:39
Elsku fallega litla Þuríður Arna ég fæ nú bara tár í augun að lesa þetta litla hjarta, megi guð almáttugur gæta þín og gefa þér heilsu og fjölskildu þinni styrk, Ég er að hugsa um að það eru að koma rúm 4000 manns daglega inn á síðuna, margt smátt gerir eitt stórt,,, Hvernig væri það að við tækjum okkur saman og leggðum þó ekki væri nema 500 kr hvert, inn á elskuna litlu svo hún geti farið í tívolí :) 500x4000 eru 2 mill...fyrirgefið framhleypnina en ég bara varð. kær kveðja ókunnug móðir
Sigga (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 22:44
Vonandi gengur allt vel hjá ykkur, og engar meiri neikvæðar útkomur.
Litla krúsin ykkar er í öllum mínum bænum.
Gunna (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 22:51
Ég er sammála. Mig langar að koma Þuríði litlu í Tívolí með systkinum sínum!!!! Upplyfting fyrir fjöslkylduna! Getum við það ekki kæru bloggvinir Slaugu og hennar fjölskyldu? Getum við ekki sent fjölskylduna aðeins úr skammdegisdrunganum í janúar/ febrúar í tívolíferð???
Hverjir eru með?
Ylfa Mist Helgadóttir, 22.11.2007 kl. 00:10
Já það verður ég sem skal byrja með glöðu :) ég tók reiknisnúmerið af bls sem stendur höfundur, það er 525-14-102022 kt 200502-2130. Munið kæru bloggvinir að það er engin upphæð lítil :) því að þetta gæti orðið þó nokkuð, nú stöndum við saman og gefum elsku litlu Þuríði Örnu og fjölskyldu hennar jólagjöf :)
Sigga (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 08:35
Hæ,
Frábær hugmynd!
Mér er sönn ánægja að láta ykkur vita að ég hef þegar greitt inn á reikninginn og hvet alla þá sem inná síðuna kíkja að gera hið sama. Sameiginlega getum við létt undir með Þuríði Örnu og hennar fjölskyldu.
Áfram svo, koma svo!
Margrét (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 08:54
Búin að leggja inn :)
Sigga (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 09:10
Heyr heyr frábær hugmynd og koma nú allir með!!!! Við getum þetta
allir sem kíkja hér við, margt smátt gerir eitt stórt
Ætla að skella mér í heimabankann núna!
Tendra líka ljós!
með kærleik 4 barna mamman
4 barna mamma (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 09:29
Búin að leggja inn sætu og vá hvað þetta var flott hugmynd :)
Þórunn Eva , 22.11.2007 kl. 10:22
Frábært framtak, ég hef sent á vinagrúppu mína á netpósti og það stendur ekki á viðbrögðunum, það eru allir að leggja inn í þessum töluðu orðum. Gangi ykkur sem allra allra best.
Jólaknús frá öllum sem eru að leggja inn hjá ykkur í töluðum orðum...
Kristbjörg (ókunnug) (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 11:50
Vá Áslaug mín - það eru allir með ykkur í huganum :) Þetta er frábært framtak - ég legg inn núna!! Knúúúús
Elsa Nielsen, 22.11.2007 kl. 12:56
Æ síðast þegar ég las bloggið hjá þér varstu svo glöð, vildi að það héldist þannig. Það er ótrúlegt hvað þið eruð sterk öll, vona að þetta sé ekki neitt til að bæta á áhyggjur ykkar. Gangi ykkur vel.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 22.11.2007 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.