22.11.2007 | 13:30
Misskilin?
Æjhi ég fékk alveg sjokk þegar ég las kommentin mín, ætlaði reyndar ekkert að blogga í dag þar sem orkan er ekki alveg til staðar en fannst þurfa þess eftir að ég las kommentin frá ykkur. Til að byrja með langar mig að senda ykkur endalaus knús og þúsund þakkir fyrir fallegar hugsanir, maður verður oft orðlaus yfir því hvað maður býr á góðu landi.
Enn það er eitt sem ég held að þið hafið misskilið, sko kúkalabbinn hjá Þuríði minni er ekkert að dreifa sér ef þið hélduð það (allavega ekki svo við vitum). Mig langaði bara ekkert að tala um það hvað væri að hrjá hana þessa dagana fyrr en það væri komið 100% á hreint, stundum kanski segir maður of mikið, allt sem maður hugsar og talar aðeins í kringum hlutina.
Hún er í smá rannsóknum þessa dagana vegna þess hún var farin að hegða sér öðruvísi en hún hefur gert og mín var farin að hafa áhyggjur af henni útaf því og að sjálfsögðu kanna læknarnir allt sem hrjáir hana. Ég hélt kanski að hún væri með blöðrubólgu sem væri kanski bara besta lausnin en það er víst ekki en það fannst eitthvað í þvaginu hjá henni sem átti ekki að finnast þannig hún þarf meiri rannsóknir. Blóðprufur? Hitta sérfræðing? Þetta munum við vita allt eftir helgi þegar við erum búin að vinna rannsóknavinnuna okkar fyrir læknanna en við þurfum að "rannsaka" smávegis fyrir þá. Vonandi kemur það í ljós eftir helgi hvað er að hrjá hana sem er reyndar ekki alveg nógu gott.
Annars voru myndirnar frá síðustu myndatökum hjá henni að fara til læknis okkar í Boston (skurðlækninn) en hann er búinn að vera bíða eftir þeim frá síðustu myndatökum. Ekkert viljað vinna í þessu fyrr en hann fær þessar í hendurnar. Það er nefnilega ekki hægt að gera aðra aðgerð nema æxlið minnki X mikið, við erum reyndar ekkert bjartsýn á að það sé búið að minnka það mikið að það verði hægt en aldrei að segja aldrei. Hún er alltaf að koma á óvart. Læknirinn hefur líka alltaf talað um það að það væri best að gera þá aðgerð fyrir sex ára aldurinn og það eru nú bara sirka hálft ár í það. Við vitum líka að við getum treyst þessum lækni 100%, ef hann segist ekki geta gert aðgerð þá trúum við honum og ef hann segist geta það þá vitum við að það yrði áhættunnar virði því hann gerir ekkert sem gæti skaðað hana. Hann er ekkert einsog sumir læknar í Ameríkunni sem gera aðgerð BARA til að gera aðgerð og hugsa ekkert um hvort það geti skaða einstaklinginn eðurei. En þessar fréttir fáum við væntanlega í næstu viku.
Er ekki í miklu bloggstuði þessa dagana en langaði bara að koma þessu frá mér.
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku Áslaug´
Þú ert ekkert misskilin, okkur langar bara til að gleðja ykkur þið eruð flottust, duglegust, algjörar hetjur, eigið allt gott skilið og við lítum upp til ykkar dag hvern með virðingu og vinsemd
Vona að allir séu duglegir að leggja þessari fallegu fjölskyldu lið við getum allt ef við ætlum okkur það !
kærleikskveðja 4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 13:58
Elsku fjölskylda . Sendi mínar bestu kærleikskveðjur til ykkar. Þið eruð svo sterk og dugleg.
Kristín (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 14:07
hæ hæ sæta mín koss og knús :)
Þórunn Eva , 22.11.2007 kl. 14:49
Nei enginn misskilningur á ferðinni. Alltaf gott að geta lagt hönd á bagga.
Það er ekki svo mikið sem hægt er gera varðandi langanir fólks sem stendur í erfiðum aðstæðum, svo sem langvarandi veikindi barns.
O hvað væri gaman ef þið gætum komist í vetur.
Gangi ykkur svo vel í rannsóknum, og vonandi finnst fljótt hvað er að hrjá litlu snúlluna ykkar núna svo hægt sé að kippa því í lag.
eigið góðan dag í frosthörkunni.
Gunna (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 15:27
Elskurnar, auðvitað er þetta ekki neitt. Kannski smá viðkvæmni út af lyfjunum, trúi ekki öðru. Trúi engu öðru en henni batni og það að fullu
Sigga Gulludóttir (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 15:44
Það er gott að heyra að þetta er ekki nýr angi af krabbalabba sem er að angra hana Þuríði. Vonandi gengur vel að finna lausn á málinu og laga það. Það verður óneitanlega spennandi að heyra frá Boston. Æxlið hefur minnkað og svo er bara að krossa puttana. Mikið skil ég vel að bloggstuðið sé ekki alltaf heima. Þið eruð frábær og Guð blessi ykkur Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.11.2007 kl. 15:47
Sæl kæra fjölskylda.
Gangi ykkur vel í þessum rannsóknum.
Guð blessi ykkur
Kær Kveðja
Silla Karen
Silla Karen (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 16:23
Enginn misskilningur á ferðinni :) Bara gert til að létta aðeins undir með ykkur líka, get alveg ímyndað mér að þetta sé mjög erfitt allt saman, svo það þurfi ekki að vera að hafa alltaf peninga áhyggjur líka. Ég vona svo heitt að fólk sjái sér fært að leggja smávegis inn á elsku Þuríði Örnu, og Áslaug þó það væri ekki annað en að létta undir fyrir jólunum :) kærleiks kveðjur
Sigga (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 17:53
Elsku Áslaug og fjölskylda. Ég vona að allir hjálpist að við að leggja inn á ykkur, það er ótrúlega fljótt að safnast saman. Sendi þér og ykkur mín bestu knús og góðar hugsanir og kveðjur.
Bestu kveðjur, Stella A. (búin að leggja inn og vona að tívolíferð verði að raunveruleika).
Stella A. (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 22:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.