27.3.2008 | 14:33
Sjúbbsjúbbsjarei
Það sem ykkur finnst eðliegt að sjá hjá fimm ára þarf mér ekki að finnast eðlilegt einsog hjá henni Þuríði minni sem verðu nota bene 6 ára 20.maí.
Að upplifa að sjá barnið sitt brosa, gráta, rífast, frekjast, fara í fílu, skríkja af gleði í bíó, borða á sig gat af páskaeggjum, synda einsog selur í sundi (svona næstum því), skella á eftir sér hurðum þegar það er skammað, stríða, vera hitalaust í rúma viku og svo er ég ö-a að gleyma einhverju en þetta finnst ykkur eðlilegt að sjá hjá heilbrigðu barni en ekki okkur. En við fengum samt að upplifa þetta allt saman um páskana hjá hetjunni minni sem er búin að vera súper hress síðan þá, þvílík og önnur eins hamingja sem við finnum. Hún er svo hress og er farin að borða einsog pabbi sinn ehe og þá er nú mikið sagt. T.d. á páskadag þá fékk hún tvö páskaegg (takk Steinunn og Nói og Siríus) og það varð að opna þau bæði í einu setja þau í poka og svo dröslaðist hún með þetta hvert sem hún fór. Við komum t.d að henni uppí rúminu okkar, undir sæng og át eitt stk páskaegg sem okkur fannst bara fyndið og GAMAN. Svo í lokin var hún farin að ná í páskaegg systkina sinna og reyna lauma þeim ofan í poka sinn thíhí og ekki voru allir sáttir með það. Þannig í dag og síðustu daga hefur Þuríður mín verið í sína besta formi og það gerist ekki betra.
Allt gott að frétta sem sagt nema ég þurfti að ná í ODdnýju perluna mína í leikskólann í dag því hún er orðin lasin, hefur ekki sofið neitt síðustu nætur vegna verkja í eyrum þannig hún var send með Þuríði uppá spítala í morgun og er komin á pensilín og sömu sögu er að segja af honum Theodóri mínum sem er líka á pensilíni en það vegna bólgu í auga. Oddný mín er alveg að fíla þetta, var bara glöð að fá að fara heim og fá að knúsast með mömmu sinni.
Núna teljum við Oddný mín Erla perla niður dagana í mömmu-helgarinnar okkar sem eru nákvæmlega tvær vikur í, jíhaaaa!! Það verður reyndar hjá henni mömmu-, ömmu og frænku-helgi sem hún getur ekki beðið eftir og ég ekki heldur. Baaaaaaaaaaara gaman!
Ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir frá páskunum en ég er ekki að meika þetta myndakerfi í dag þannig það verður bara að bíða til betri tíma.
Knús í krús
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndisleg færsla frá fallegri fjölskyldu. Lífið er dásamlegt
Ljós og bæn til ykkar kæra fjölskylda
4 barna mamman
4 barna mamman (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 14:37
Mikið er yndislegt að lesa þessa færslu. Þuríður orðin matargat sem skellir hurðum og er hitalaus FRÁÁÁÁBBÆÆRRT. Þetta eru bestu fréttir sem ég hef fengið í dag. Ég var reyndar áðan að frétta af íbúð sem við getum kannski fengið í næsta mánuði, en við erum búin að selja ofan af okkur húsið og erum ekki með neitt tryggt ennþá. Íbúðarfréttirnar blika bara eins og skot þegar batafréttir af hetjunni birtast. Guð veri með ykkur öllum. Haltu áfram að úða í þig og skella hurðum Þuríður Arna. Fríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.3.2008 kl. 14:41
Dásamlegar fréttir og nú heimtum við bara áframhaldandi sælu!
Ylfa Mist Helgadóttir, 27.3.2008 kl. 14:46
Knús til þín elsku Áslug mín
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.3.2008 kl. 14:56
Sorrý það átti að vera Áslaug mín
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.3.2008 kl. 14:57
Yndislegast ;)
KNÚÚÚS
Elsa Nielsen, 27.3.2008 kl. 14:58
æðislegt að lesa alveg :D
Knús á ykkur, vonandi losnið þið við eyrnabólgur og augnbólgur sem fyrst :)
Lilja Kópavogi (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 15:13
Til hamingju með gleðina og lætin, fýluna og hurðaskellina :)
Vonandi helst þetta hjá litlu hetjunni
Hlýir straumar til ykkar kæra fjölskylda
Ásgerður (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 15:19
mikið er það gott að Þuríður fekk að njóta þess að borða páskaegg ,,vonandi batnar ykkur fljótt..leiðinleg þessi flensa
lady, 27.3.2008 kl. 15:40
já það eru svo sannarlegu "sjálfsögðu" hlutirnir sem skipta mestu máli þegar öllu er á botninn hvolft.......... fékk brosfiðring í hjartað við að lesa bloggið hérna fyrir ofan og vona að litlu dýrin (ef þau má kalla svo) jafni sig fljótt af flensunni :)
kveðja I
Inger E (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 15:45
Til hamingju med thetta bara ædislegt ad lesa.
baráttu og kærleikskvedjur frá dk
María Guðmundsdóttir, 27.3.2008 kl. 15:49
Mikið ofboðslega er gott að heyra hvað hún hefur verið hress um páskana. Svona lítil sæt skotta á að njóta þess að borða páskaegg og hafa það gott með fjölskyldunni sinni. Vonandi endist þetta tímabil sem lengst.
Sigrún Þórisdóttir (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 16:00
Yndislegar fréttir ;) Mikið er gaman að heyra þetta, nú er bara að hugsa jákvætt og senda Þuríði alla aukaorku svo hún haldi áfram að vera svona hress ;) Vonandi skellir hún á ykkur hurðum sem allra lengst litla rúsínan, bara krúttlegt ;)
Gígja ókunnug (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 18:02
Takk, Ásaug fyrir þessa frábæru færslu. Þessar fréttir af hetjunni þinni, er ég búin að bíða lengi eftir. Vonandi er þetta, það sem koma SKAL, með hækkandi sól. Yndislegt. Kærleikskveðjur
Sólveig (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 18:17
Yndislegt að heyra þetta (eða öllu heldur sjá það skrifað á tölvuna!)
Knús og kram til ykkar og ég bið þann sem ÖLLU ræður, að Þuríði haldi áfram að batna.
Guð veri með ykkur alla daga.
Ása (ókunnug) (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 18:56
Frábært að heyra!
Ég hef lesið síðuna lengi en aldrei kvittað-dauðskammast mín fyrir að vera slíkur laumupúki! En Áslaug, ég var með þér í Ármúla í "gamla dag"- hehehehe, enda eldgamlar....
...vona að málin ykkar séu aðeins upp á við núna
Kveðja Krissa
Kristborg Bóel Steindórsdóttir, 27.3.2008 kl. 20:24
Kveðja
Halldór Jóhannsson (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 22:24
Elsku snúllan, þessar frábæru fréttir björguðu algjörlega mínum degi Yndislegast bara, get ekki sagt neitt annað. Njótið lífsins saman kæra fjölskylda á hvern þann veg sem ykkur hentar best
Jóhanna (ókunnug) (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 22:27
vaaá hvað það bjargaði deginum hjá mér að lesa þetta! :):)
Katrín (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 03:58
Frábært að heyra að skvísan sé að braggast....samgleðst innilega! Gangi ykkur vel áfram...
Björk (ókunnug) (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 10:05
Yndislegt að lesa þetta og upplifa enn og aftur hversu einstök þú ert í þínum aðstæðum.
Sendi ykkur öllum kærleikskveðjur frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 14:12
Frábært að Þuríður var svona hress um páskana, þetta hefur greinilega verið margföld hátíð hjá ykkur. Vona að lyfin dugi á systkinin, þið hafið greinilega fengið allan pakkann um helgina, gleði og kátínu, veikindi sem jafna sig vonandi fljótlega og ég vona svo sannarlega að Þuríði haldi áfram að líða vel.
Helga Magnúsdóttir, 28.3.2008 kl. 14:56
frábærar fréttir
Guðrún Jóhannesdóttir, 28.3.2008 kl. 14:56
Bara yndislegt
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 28.3.2008 kl. 14:58
Yes!!! Frábærar fréttir!!!
knún
Guðrú
Guðrún (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 15:23
Elsku Þuríður mín,gaman að heyra að allt gengur svona glimrandi vel og þú áttir góða páska...vona að svo verði áfram..bið að heilsa mömmu og ég hitti hana í næstu viku..knús og góða helgi elskan
Björk töffari (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 15:36
Yndislegar fréttir. Bið Guð að geyma ykkur elsku fjölskylda.Kærleikskveðjur og góða helgi.
Kristín (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 16:32
Til lukku með allan gauraganginn...og von um að svo verði áfram..Hafið það gott..
Agnes Ólöf Thorarensen, 29.3.2008 kl. 14:42
FRÁBÆRT að heyra að þið hafið haft góða páska. Hún hefði nú alveg getað komið hingað og fengið afgang af páskaeggjum. Gaurarnir mínir voru nú ekkert rosalega duglegir við átið
Knús og kram.
Bergdís Rósantsdóttir, 30.3.2008 kl. 19:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.