Leita í fréttum mbl.is

Þoli ekki október mánuð

Mikið verð ég fegin þegar þessi mánuður verður búinn, allt það slæma sem tengist veikindum Þuríðar minnar hefur byrjað í þessum mánuði og allar þær slæmu fréttir sem við höfum fengið hafa komi í þessum mánuði.  Aaaargghh!!  ....og hetjan mín er líka núna ógeðslega þreytt og leið, vildi bara knúsast í morgun þegar hún vaknaði.  Ótrúlega leiðinlegt alltaf að sjá hana þegar hún fer í þetta "ástand" og hugurinn fer líka alltaf afstað. 

Er alveg að fara ná í hana í skólann og ætla að reyna gleðja hana aðeins, henni finnst ekki leiðinlegt þegar við tvær gerum e-ð saman.  Þarf ekki mikið til, til að gleðja hana. Ætli maður skreppi ekki líka með hana og hin á Sveppa bíómyndina um helgina og kanski eina sundferð þá ætti hún kanski aðeins að taka gleðina á ný.Sideways  Verðum með "partý" í kvöld og þegar ég tilkynnti börnunum að það ætti að vera fiskur í matinn á "partýkvöldinu" þá vissi ég ekki hvert þau ætluðu "mamma maður borðar ekki fisk á partýkvöldi" hehe þannig maturinn mun breytast í pizzu.

Eigið góða helgi kæru lesendur, njótið hennar einsog ég ætla að gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Thakka fyrir óskir um góda helgi.  Ég svara med thví ad óska thér og thinni fjölskyldu gódrar helgi og gódu gengi almennt í veröldinni um aldur og aevi.

Einnig vona ég og óska ad eitthvad sérstaklega gott bídi thín í naestu framtíd.

Vona ad thid öll njótid thess ad borda pizzu í kvöld.  PARTY TIME!!

Meyvant (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 14:26

2 identicon

hvernig datt þér í hug að hafa pizzu á partýkvöldið? hehehe ;)

en þau eru meiri krúttin, vilja hafa þetta bara alvöru greinilega... 

en þið eruð duglegust án nokkurs efa, góða skemmtun í kvöld :)

inga ókunnug (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 14:39

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Bið Guð um að þessi október verið ykkur öllum góður. Bíddu, fiskur í partýi, það hefur sko ekki verið inn hingað til. Það er ákveðinn fýlingur í því að fá pitzu. Mikið skil ég blessuð krílin. Góða helgi og góða skemmtun á Sveppamyndinni.      = magastrengir.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.10.2009 kl. 23:24

4 identicon

haha að bjóð uppá fisk  í partý , hefði líka mótmælt   eigið góða helgi

kærleikskveðjur

Dagrún (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 00:53

5 identicon

huxa til ykkar.. og vildi bara skilja eftir mig slóð ;o)

kær kveðja, Aldís

Aldís (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 02:24

6 Smámynd: Aprílrós

Kærleiksknús og ljós til ykkar í okt ;) eins og alla aðra mánuði

Aprílrós, 3.10.2009 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband