Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
14.2.2007 | 12:30
Vika í niðurstöður
Ég var að átta mig á því í gær að þá væri vika í myndatökurnar hjá Þuríði minni og í dag er vika þanga til við förum á fund með læknum Þuríðar minnar og fáum að vita hvernig æxlinu líður. Þetta er ótrúlega erfið bið, einsog alltaf hugsar maður það versta en vonar það besta.
Síðustu tvær vikur hefur Þuríði minni ekki liðið vel og þá hugsar maður að sjálfsögðu það versta og hrædd um að þetta sé núna allt farið á versta veg en læknarnir sögðu við okkur að þetta gætu verið eftirmálar frá geislameðferðinni sem kláraðist föstudeginum fyrir jól en geta samt ekkert sagt. Í dag held ég í vonina að þetta var allt saman geislameðferðin því Þuríður mín getur farið í leikskólan í þvílíku "stuði". Það er rosalegur munur á henni frá því í síðustu viku að hálfa væri miklu meir en nóg, hún getur allavega notið sín aðeins í leikskólanum þó hún sofi kanski í tvo tíma af tímanum sem hún er á leikskólanum er æðislegt. Jújú hún er alveg þreytt yfir daginn og þyrfti að taka sér tvo lúra en þá er allt annað að sjá barnið og þá líka léttir svo mikið yfir manni. Líðan mín eltir alfarið líðan hennar Þuríar minnar, þannig mér líður betur núna en tvær síðustu vikur sem er æðislegt.
Hjá Dísunni var æðislegt, ekkert stress bara rólegheit og gaman. Að sjálfsögðu var regnhlífin keypt og fótboltabúningurinn sem er þvílíkt að slá í gegn á heimilinu, ohh mæ god hvað þær voru ánægðar með þetta. Oddný Erla er sveiflandi regnhlífinni um alla íbúð og er að leika Skoppu og Skrítlu og Þuríður mín hleypur um alla íbúð og bíður eftir því að strákarnir (Ari Steinn og Sindri Snær) bjóði henni með sér á æfingu eheh. Bara fyndnar!!
Annars langaði mig að nefna að ég er alfarið búin að loka heimasíðu krakkana þar að segja það er engin með lykilorð og ég veit ekki hvað ég ætla að gera með þessa síðu. Þegar ég breytti síðast um lykilorð var ég að vonast til að ég þyrfti ALDREI að gera það aftur því ég hélt að ég gæti treyst fólkinu sem fengi það en það væri ekki niðrí kringlu að dreifa því. Ástæðan fyrir því að ég lokaði síðunni fyrst var alvarleg sem ég ætla ekkert að fara nánar útí, ég ætlaði mér aldrei að loka henni alveg því mér fannst gaman að fá pepp frá ykkur en bara hafa myndasíðuna lokaða. En eftir að ég lokaði henni langaði mig þá að hafa hana bara opna fyrir vini, ættingja og fólk sem tengist okkur á annan hátt því þar ætlaði ég líka að skrifa eitthvað sem mig langaði ekki að skrifa fyrir alla.
Ég ætlaði að fara skrifa inná hana afhverju ég þurfti að loka henni en bara fyrir fólkið "mitt" en þá tók ég eftir því að það er bara búið að vera dreifa lykilorðinu sem ég er ekki að fíla, ég hélt að ég gæti treyst fólki fyrir þessum "litla" hlut. Þegar fólk biður mig um eitthvað þá er hægt að treysta mér 150% hvort sem það eru stórir eða litlir hlutir þannig ég á frekar erfitt með að hafa hana opna. Kanski mun ég loka henni alveg og senda bara vinum mínum og ættingjum slóðina af nýjustu myndum sem við ætlum kanski bara að hafa hjá símanum? Ég veit það ekki, hef ekkert ákveðið þannig það þýðir ekkert fyrir ykkur að biðja um lykilorðið allavega ekki fyrr en ég veit hvað ég ætla að gera. Það geta nefnilega komið viðkvæmar myndir á síðuna sem mig langar ekki að allir sjái og svo finnst mér heldur ekkert fólki koma við hvað við erum að gera og hvernig öll fjölskyldan líti út þó við séum alveg rosalega falleg.
Jújú einhverjir eiga eftir að vera fúlir svona er það bara, það þarf bara einn til, til að skemma fyrir öllum hinum því verr og miður en samt eiginlega helst fyrir mér.
Takk fyrir mig í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
13.2.2007 | 08:08
Mætt á svæðið
Mætt í sveitina, skrifa fréttir síðar þar sem ég þarf að knúsa litla krulluhaus, stelpurnar farnar á leikskólan og ég farin héðan.
Hasta la vista babes.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.2.2007 | 21:43
Kvedja frá Dísinni
Við systur hofum það ofsalega gott hér hjá Dísinni og fjölskyldu. Videogláp, nammiát, nudd, snemma að sofa, sofa út, Zzzzzz!! Sem gengur reyndar misvel eheh er von ad vakna nokkrum sinnum á nóttinni þannig mín vaknar nokkrum sinnum en hef það yndislega gott en hlakka samt til ad hitta liðið mitt annað kvöld.
Kveðja frá Dísinni
Slauga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
8.2.2007 | 17:19
Allt í himnalagi....?
Ég hef allt sem skiptir máli
frið í sálu mér og trú.
Ég vil ekki nokkru breyta hér.
Lífið er í lagi.
Svo lengi sem ég hef þig hjá mér.
Þuríður mín er hressari í dag en síðustu tvær vikur, hún vakir meira en hún er vön að gera sem er alveg æðislegt. Ég meina hún er ekkert súperhress, maður sér alveg að barnið mitt er ekkert alheilbrigt. Þið vitið augun sem eru mjög þreytuleg, hún haltrar og sama lömunin í hendinni hennar sem lafir bara niður en hún er samt svo mikið að reyna nota hana.
Fórum á fund í gær með læknunum okkar, þeir geta náttúrlega ekkert sagt hvort þetta séu geislarnir sem eru ennþá að hrjá hana sem mig langar að trúa eða hvort henni sé að versna. Jú þeir hafa áhyggjur af allri þessari lömun sem getur bent til stækkunar og að sjálfsögðu þreytu en við verðum víst bara að bíða til 21.febrúar þegar við förum á næsta fund en þá koma niðurstöðurnar út myndatökunum. Ég þoli ekki að þurfa bíða svona þetta fer alveg með sálarhliðina hjá manni.
Jámm við vorum líka rædd þá sérstaklega ég, ég þarf víst að gera eitthvað fyrir mig og við Skari fyrir okkur. Æjhi við þurfum bara að leita meiri aðstoðar sem manni finnst alveg ofsalega erfitt og ég ætla mér ekkert að fara nánar útí það. Ekki misskilja samt það gengur vel hjá okkur þar að segja í sambandinu sem margir hafa áhyggjur af en þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af þeirri hlið.
Annars er ég að fara í fyrramálið til Dísunnar ásamt Oddnýju systir og hlakka ofsalega mikið til, það víst mikill kuldi hjá henni þannig maður verður víst að pakka niður kuldagallanum eheh!! Stelpurnar komnar með óskir um hvað ég eigi að koma með handa þeim þegar ég kem heim thíhí Oddný Erla mín vill fá regnhlíf einsog og Skoppa og Skrítla eiga og Þuríður mín Arna vill fótboltagalla og að sjálfsögðu mun ég reyna redda þessum tveimur hlutum handa prinsessunum mínum en ekki hvað?
Þannig núna er ég komin í bloggfrí þanga til ég nenni og hef tíma til að blogga næst og vonandi verður það ekki seinna en þriðjudag.
Knús til ykkar allra
Slauga á leiðinni að fara sofa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
7.2.2007 | 15:32
Knús til ykkar!!
Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér þykir vænt um öll fallegu kommentið sem þið skrifið hjá mér, þau gefa mér endalaust mikið. Það eru líka margir sem senda mér falleg mail, jú inná milli leynast leiðinleg mail sem ég reyni jafnóðum og ég fæ þau að gleyma þeim þó það sé stundum erfitt því sum þeirra eru mjög ljót og leiðinleg. Ef einhver er að öfundast útí okkur og finnst við svakalega heppin þá væri ég alveg til í að skipta um hlutverk, ég vildi óska þess mest að Þuríður mín væri heilbrigð og ég þyrfti bara að pirrast yfir því hvað hún væri óþekk. I wish!! Ég er samt alltaf reddí í skipti.
Ég fæ mail frá fólki sem ég þekki mjög vel, gamlir skólafélagar sem ég var kanski ekkert á tjattinu við í gamla daga að senda mér falleg mail, gamlar vinkonur, fólk sem ég þekki bara alls ekkert og svo lengi mætti ég telja. Þó ég svari kanski ekki öllum mailunum þá er kanski mesta ástæðan fyrir því að ég veit ekki hverju ég á að svara en þó ég svari "þér" ekki þá þykir mér samt vænt um fallega mailið sem "þú" varst að senda mér. Stundum verð ég bara algjörlega tóm og veit ekki hverju ég eigi að svara? Ótrúlegt en satt!!
Einsog t.d í dag fékk ég eitt af fallegustu mailum sem ég hef fengið og það var frá einni ókunnugri og vonandi er henni sama þó ég birti smávegis sem hún sendi mér. Mér þótti rosalega vænt um þetta mail og það gaf mér ofsalega mikið að sjálfsögðu eru öll mail trúnaður þar að segja ég mun aldrei segja ykkur hver sendi mér þetta eða þess háttar. Allavega hérna er smá sem hún sendi mér:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
6.2.2007 | 13:42
Dagurinn í dag.
Okkur langaði að prufa í morgun þegar Þuríður Arna mín vaknaði að senda hana í leikskólan, æjhi okkur langar svo að hún hittir önnur börn önnur en systkin sín. Hún vaknaði svona alltílagi þannig við ákváðum að prufa en við vitum það líka núna að það gengur ekki í þessu ástandi sem hún er í. Hún hafði að borða morgunmatinn sinn og svo lognaðist hún útaf og Skari náði í hana um ellevu en þá var hún að vakna greyjið og hefur nánast legið fyrir síðan. Ég eldaði slátur handa stúlkunni sem hún borðaði með bestu list og horfir núna á uppáhaldið sitt Latabæ. Æjhi svo sé ég núna en hún er að koma labbandi fram og biðja meira að borða en hún haltrar miklu meira en hún er vön að gera, ohh andskotans sem þýðir meiri lömun.
Okkur fjölskyldunni var boðið á síðustu sýninguna hjá Skoppu og Skrítlu sem við að sjálfsögðu þáðum þótt við höfum farið á þær áður enda er þetta besta sýning fyrir börnin mín. Þið hefðuð samt átt að sjá hvað Þuríður mín skemmti sér vel, það var þvílíkur hlátur sem kom frá henni og brosin æjhi það var svo gaman að sjá hana svona glaða þótt það var ekki langur tími en það gefur manni endalaust mikið.
Annars hef ég ofsalega lítið að segja í dag, statusinn á hetjunni minni er sá sami og síðustu daga og þegar maður horfir á hana svona verður maður gjörsamlega lamaður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.2.2007 | 15:10
Hvar er draumurinn? Hvar eru allar mínar vonir?
Ég er andlaus, svefnlaus, orkulaus og svo lengi mætti telja. Ég ætla mér að hætta kvarta undan svefnleysi þó ég þjáist af því, Theodór minn er heimsmeistari að vakna á nóttinni ekki á klukkutímafresti það er svona sirka tíu mínútna fresti. Þar sem drengurinn er heilbrigður og algjör sprellikarl, sjarmör með fallega ljósa krulluhárið sitt get ég ekki kvartað, ég er heppin með hann þó ég hafi ekki sofið í rúmt ár þá er mér nákvæmlega sama(sef bara þegar ég er orðin gömul). Ég er heppnust að eignast svona fullkominn strák það eru ekki allir jafn heppnir og við Skari, bara að geta átt börn, þess vegna sefur Skari minn í stofunni thíhí því við megum ekki sofa hlið við hlið því þá verð ég bara búúúmm og það er ekki á dagskránni næsta árið. Drengurinn má ekki anda á mig, dæssúss mar!!
Ég er að reyna hafa þetta blogg í léttari kantinum en það gengur frekar erfiðlega, að horfa á Þuríði mína svona einsog hún er þessa dagana er sárast í heimi. Hún er enganveginn leikskólahæf, ég ákvað líka í dag að hafa hana algjörlega hjá mér og sé sko ekki eftir því. Hún er BARA búin að liggja fyrir í ALLAN dag og vera í hálfgerðu móki, ég þarf eiginlega að halda á henni allt sem við förum þar sem við þurftum að fara á enn einn fundinn í dag útaf henni. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þetta kerfið getur verið leiðinlegt og flókið, endalausir fundir. Það er ekki einsog maður hafi ekki nóg með að standa í því að hugsa um fárveika barnið sitt að maður þurfi líka að þeysast um allan bæ til að redda hinu og þessu. Leiðinlegast!!
Já hún er slappari í dag en síðustu daga, slappast eiginlega með hverjum deginum sem líður og þið getið ekki heldur ímyndað ykkur allar hugsanirnar mínar sem þjóta um kollinn minn þessa dagana. Þetta er allt saman svoooo sárt, ég er líka búin að grenja fleiri fleiri baðkörum síðustu daga.
Hún er ótrúlega þvoglumælt, algjörlega lömuð á hægri hendi og farin að lamast meira í hægri fæti hún haltrar frekar mikið en það er dagamunur hvursumikið. En hendinn hennar er alveg frá.
Erum að fara á fund á miðvikudaginn og hitta nokkra lækna Þuríðar minnar, búið að negla niður 20.febrúar fyrir myndatökur mig grunar hvað mun koma útur þeim þó ég voni annað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
2.2.2007 | 13:19
Vonin
- þá máttu ekki gefast upp, því einmitt þá er komið að þeim stað og stund þegar breyting mun verða á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
1.2.2007 | 11:02
Þegar stormur lemur fast, ég læt sem ekkert sé.
Ég vildi óska þess að maður gæti það og vitað bara að þetta myndi allt lagast og Þuríður mín yrði súper hress eftir ekki svo marga daga.
Var sem sagt að koma af fundi af spítalanum, aðallega talað um ástand Þuríðar minnar sem er alls ekki gott einsog ég hef marg oft sagt. Hún t.d liggur núna uppí rúmi sofandi, fór að sofa í gærkveldi rúmlega fimm, vöktum hana í mat og hún fór beint uppí rúm aftur og sofnaði innan klukkutíma og við vöktum hana í morgun til að fara uppá spítala. Hún sem sagt sefur alveg uppí 18tímana á sólarhring sem er að sjálfsögðu mjög mikið, hún er mjög slöpp einsog þið getið ímyndað ykkur.
Jú ástandið hennar var rætt uppá spítala, við eigum t.d. að hætta fara með hana á leikskólan í þessu ástandi, leyfa henni algjörlega að ráða ferðinni og leyfa henni að sofa einsog hún vill og það er heldur ekkert hægt að stjórna því hjá henni. Hún sofnar hvar sem er og hvenær sem er. Þeir héldu að ástæðan fyrir þessum slappleika væri kanski geislameðferðinni að kenna sem mig langar að trúa en því miður eru litlar líkur á því en vilja samt ekkert útiloka. Það er nottla einn og hálfur mánuður sirka síðan hún fór í sinn síðasta geisla þannig það ætti að vera hætt að virka á hana því miður. Það hefði verið besta svarið fyrir þessum slappleika. Ömurlegt!!
"Ástandið" á okkur Skara var líka rætt en við munum mæta í næstu viku og hitta að mig minnir fjóra lækna hennar Þuríðar minnar og ræða um okkur. Jú það er hrikalega erfitt að halda sensi þegar henni líður svona, maður er alltaf með hjartað í buxunum og mér líður alltaf mjög illa. Við þurfum víst að fara gera eitthvað meira fyrir okkur, t.d. að leita meiri hjálpar sem ég veit alveg að við þurfum að gera og kanski gera eitthvað meira fyrir okkur bara tvö ein. Ég veit að við erum ekki nógu dugleg að gera alla þessa hluti og því þarf að breyta ekki seinna en í gær.
Oddný mín Erla er heldur ekki að höndla þessa hluti, að sjálfsögðu finnur hún að það er ekkert einsog það á að vera. Hún finnur að Þuríður er slöpp og finnur líka að mér líður ekki vel og sér mann kanski brotna niður sem ég reyni oftast að fela fyrir henni en stundum er það ekki hægt. Hún er svo mikil mömmustelpa og ég þarf að gera eitthvað meira fyrir hana þá við bara tvær, er nú með ýmsa hluti í kollinum sem við gætum gert saman en það er bara spurning um að framkvæma.
Hef reyndar endalaust meira að segja en ég ætla frekar að sinna börnunum mínum og skrifa meira síðar, Skari er heima í dag eða ætlar réttara sagt að vinna heima. Ætlar að leyfa mér að skreppa aðeins út áður en ég fer alveg yfirum, þó ég sé heimavinnandi og er ekki að vinna útaf Þuríði minni þá þarf ég líka að komast útaf heimilinu.
Takk fyrir mig í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar