Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Tilefni dagsins

...ætla ég að birta eina af Hinrik Erni rjómabollunni minni sem var bara tekin fyrir hálftíma. 
P2220002-2


Þvílíkar framfarir

100_3585
Vorum að koma úr sjúkraþjálfuninni og sjáið hvað stúlkan stendur sig vel.  Þvílíkar framfarir, ekki svo margir mánuðir sem hún hefði engan veginn getað þetta.  Er endalaust stollt af henni!!  Eeeeeelskar þessa hestatíma!!  Leyfði afa sínum Hinrik að sjá sig áðan og fannst það geggjaðslega gaman og mikið stollt af sjálfri sér.

Eigið góða helgi, ætla að halda partý fyrir börnin í kvöld.  Á víst að kaupa mikið nammi hehe fékk þá skipun frá Oddnýju Erlu minni og svo er mín víst að fara í reiknisskilapróf á morgun, úúúfffhh!!


Mottó

Í veikinda"súpu" Þuríðar minnar höfum við Skari alltaf haft það mottó að hafa eitthvað til að hlakka til og sjálfsögðu erum við ekkert hætt því þó svo það gangi vel.  Það er nauðsynlegt að mér finnst að hafa eitthvað til að hlakka til, það er ótrúlega margt núna sem mig hlakkar til en ég hlakka alltaf mest til að halda uppá afmæli barnanna minna.  Elska það!!  Reyndar er nú dáltið í afmæli stelpnanna eða Oddný er 30.apríl og Þuríður 20.maí en þetta er svo fljótt að líða.

Við Skari vorum líka að plana smá ferð fyrir okkur og jú litlu rjómabolluna mína hann Hinrik og svo ætla reyndar mamma og pabbi að koma með okkur en það er nú ekki svo langt í það.  Oh mæ god er hrikalega spennt.  Ætlum að skreppa á uppáhalds staðinn minn og pabba hehe, megið giska?  Kanski ekkert svo erfitt að giska fyrir fólkið mittWink.  Sumarið verður líka æði fyrir okkur þar sem Skari verður í sumarfríi og fæðingarorlofi og þá verður það bara "einhvernveginn", Þuríður mín verður jú að sjálfsögðu í fríi í allt sumar.  Ætla nú samt ekki að taka hin tvö alveg úr leikskólanum þar sem þau þurfa að hafa smá reglu og verða fljótt leið ef þau eru í fríi þaðan of lengi.  Það verður líka bara gaman að njóta þess að vera í fríi með Þuríði mína án þess að hún sé of veik til að njóta þess, vonandi verður þetta hennar fyrsta sumar án allra veikinda, ég trúi ekki öðru er búin að eiga svo góðan vetur.

Oh mæ god, það er svo margt að hlakka til.  Ferðin með mömmu og pabba, afmæli stelpnanna og svo kemur sumarið sem Skari ætlar að vera í "fríi" eða réttara sagt fæðingarorlofi og og og og og gæti talið endalaust.  Mælið með því að þið hafið eitthvað svona til að hlakka til, það er endalaust gaman.

Er á leiðinni í sjúkraþjálfun með hetjuna mína á hestana, úúúfffhh þið ættuð að sjá hana eintóm hamingja hjá henni. 


Áttu tvær Þuríðar?

Fékk þessa spurningu þegar ég fór með Þuríði mína í skólann í gærmorgun frá einum stráknum en þá var Oddný Erla og Theodór Ingi með mér.  Það finnst nefnilega öllum þær systur nákvæmlega eins og ruglast mikið á þeim sérstaklega þegar Oddný röltir með mér í skólann og þá eru allir að heilsa henni og halda að hún sé Þuríður eheh.  Þær eru náttúrlega alltaf eins klæddar  kanski vegna þess mig hefur alltaf dreymt að eignast tvíbura hehe og mér finnst það líka flott en það kemur bráðum að þeim degi að ég fæ ekkert um það ráðið.   En þær eru alltaf að líkjast meira og meira sérstaklega núna þegar Þuríður mín er komin með þetta fallega hár, úúffh þær eiga einhverntíman eftir að vera pirraðar á þessu.

Ég fæ oft margar skrýtnar (að mér finnst) spurningar í kringum veikindin hennar Þuríðar minnar sem ég hef e-ð talað um hérna áður.  Einsog þegar ein manneskja spurði mig hvernig ég þorði að eignast fleiri börn eftir að Þuríður mín veiktist því þá hélt hún að krabbamein væri smitandi, frekar mikil fáfræði.  Margir hafa líka hneykslast að við skulum á annað borð eignast fleiri börn eftir að hún veiktist, er ekki nóg að vera með veikt barn finnst fólki.  Við höfum aldrei hætt að lifa þó svo það á móti blæs, afhverju eigum við að gera það?  Auðvidað er erfitt að horfa á barnið sitt þjást en við hættum samt ekkert að gera hluti sem við elskum að gera sem er náttúrlega ekki bara að eignast börn hehe enda þarf Skari bara að blása á mig og þá bara búúúúmmm ólétt.  Við höldum áfram að plana hluti langt frammí tímann annað en margur sem eru veikir eða eiga veikt barn, ég meina það er ekki svo erfitt að hætta við þá.  Þó svo við fengum þær fréttir okt'06 að Þuríður okkar ætti ekki langt eftir þá ákváðum við samt að plana sumarið okkar þar á eftir.  Við fórum bara ekkert að bíða að henni færi að hraka meira eða þess háttar, héldum bara áfram okkar strikið einsog MÉR finnst eigi að gera.  Það hefur bara hjálpað okkur, við höfum líka fengið mikið hrós frá læknateyminu hennar Þuríðar með það.

Það frétti einmitt ein kona sem ég þekki til að Theodór minn svaf ekkert fyrsta árið sitt sem var jú tók smá á en það er nú ekki það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum, bara minnsta kökusneið ef eitthvað er en þegar hún frétti það þá sagði hún við mig "samt haldiði áfram að eignast börn".  Hmmm ef það væri "erfiðasta" raunin sem við værum búin að lifa þá væri ég glöð, missa svefn er bara eitthvað prump ég get bara sofið þegar ég verð gömul þó svo ég verð smá ergileg þegar ég sef bara nokkra tíma á nóttinni en það er eitthvað sem líður hjá.

Ég er t.d. núna búin að vera deyja í grindinni síðustu vikur og það fer bara versnandi ef eitthvað er en mér er samt engin vorkunn, þetta var mitt val!!  Væru margar konur sem myndi vilja "þjást" svona á hverjum degi bara til að geta orðið óléttar en því miður eru ekki allar svo heppnar.

Þuríður mín er þreytt þessa dagana, ö-a því það er svo mikið að gera hjá henni og sofnar kl sjö alveg búin á því.  Hún er reyndar eitthvað að slappast þar að segja ö-a að fá flensuna eða eitthvað, hóstaði stanslaust í eyrað á mér í nótt.  En hún kom uppí, alltaf þegar börnin mín koma uppí þurfa þau að sofa "inní" mér þannig ég fái ca 2cm af rúminu því ég er alltaf að reyna flýja þau útá brún þannig ég enda nánast útaf.  Jújú það er ofsalega notalegt að fá þau stundum uppí en samt ekki alveg á hverjum degi, Skari var nýbúinn að flytja Theodór yfir í sitt rúm þegar Þuríður mín mætti á svæðið hehe.

P2067531
Töffarinn minn Theódor, nýkominn úr klippingu og að sjálfsögðu fékk hann krem í hárið og settur umm kambur en ekki hvað?  Gvuuuuð hvað hann er fallegur enda alveg einsog mamma sín hehe.


Þuríður Arna

Hún Þuríður mín Arna er alveg frábær karakter, hún er opin, skemmtileg, fynndin, þrasari(þá aðallega við afa Hinrik hehe), mikill húmoristi og að sjálfsögðu með þeim fallegustu börnum sem ég hef kynnst.  Hún er að sýna mikinn þroska þessar vikurnar bæði andlega og líkamlega sem er best í heimi, hún er samt ekki ennþá farin að átta sig á því ef krakkar eru leiðinlegir við hana.  Einsog áðan þá sárnaði mig ofsalega mikið en hún áttaði sig ö-a ekkert á því, ég var að fara með hana inní skólastofu einsog alla morgna þegar hún hittir eina stelpuna sem hún þekkir og fer að sýna henni hvað hún sé fín og þess háttar.  En þessi ákveðna stelpa hundsar hana bara og vill ekkert með hana hafa, jú Þuríður mín gefst ekki svo auðveldlega upp og heldur áfram að sýna sig en varð að gefast upp að lokum því hún var algjörlega hundsuð en þá snéri hún sér bara að einhverju öðru.  Æjhi ég hefði geta farið að gráta þarna því ég fann til með Þuríði minni en sem betur fer segi ég bara að hún áttaði sig ekki á þessu eða kanski gerir hún það en nennir ekki að velta sér uppúr svona "vitlausu" liði sem vill ekki reyna kynnast henni? 

Það var byrjað að minnka lyfjaskammtinn hennar Þuríðar minnar enn meira í gær, jiiiiih það er svo gaman þegar þetta tekst svona líka vel.  Núna er verið að taka eina gerðina af töflum af henni og þá verða tvær gerðir farnar og tvær eftir, maður er alveg farin að dreyma kanski einn daginn þarf hún ekki að taka neitt inn.  Ég veit að sá dagur kemur upp og engin flog munu koma, hlakka mikið til þess dags.  Núna eru líka sirka tvö ár síðan hún fékk síðast krampa, hvursu mikið kraftaverk er það? W00t Best í heimi!!  Líka síðan lyfjaskammturinn hennar var minnkaður hefur hún sýnt endalausar framfarir þannig maður sér hvað þessi blessuðu lyf geta "skemmt" mikið og hægt rosalega á þroska. En kraftaverkin gerast og munu halda áfram að gerast.

Helgin hjá okkur hjónum mun vera róleg, þrjú elstu börnin ætla til ömmu og afa uppá Skaga og dvelja þar alla helgina á meðan ætlum við bara að vera í rólegheitunum með Hinrik Erni.  Reyndar búið að bjóða okkur í mat föstudags- og laugardagskvöldið þannig við þurfum ekki einu sinni að elda handa okkur.  Hlakka mikið til, ætla að reyna gera allt annað en að læra þessa helgi þó svo ég þurfi þess, er svo hrikalega löt í lærdómnum en samt gengur mér endalaust vel.  Skil þetta ekki?Shocking

Ætla núna ath hvort ég geti kanski lært eitthvað áður en Hinrik vaknar og heimtar rjómann sinn.


Munum að...

"Það sem máli skiptir er ekki að við getum lifað í voninni heldur hitt að líf án vonar er ekki þess virði að lifa því"

Síðustu daga hef ég verið að lesa gamlar færslur frá mér eða síðan Þuríður mín veikist, allt sem ég hef skrifað síðustu árin og það sem þið hafið skrifað til mín hef ég varðveitt vel enda allt mjög mikilvægt og verður gott fyrir Þuríði mína þegar hún eldist að geta lesið um veikindin sín.  Ég t.d fann nokkur ljóð sem mitt fólk hefur samið til okkar eða um Þuríði í hennar baráttu, ég fékk t.d. þetta ljóð sem ég ætla að birta hérna í nóv'04 frá Óskari "bróðir" mömmu (nenni ekki að útskýra tengslin enda óþarfi) sem hann samdi.

Þrautin er þung
þá barist er við
alvarleg veikindi barna
til almáttugs drottins
ég auðmjúkur bið
að batni þér Þuríður Arna.

Svo á svipuðum tíma í nóv'04 fengum við þetta ljóð frá Ásu vinkonu mömmu.

Ó góði guð nú bið ég þig
að þú munir bænheyra mig
að Óskar og Áslaug verði sterk
og Þuríður Arna verði kraftaverk.

Það hefur svo sannarlega ræst úr þessum ljóðum og bænum frá þessu flotta fólki.  Ég á nokkur svona ljóð sem hafa verið tileinkuð hetjunni minni og allar þessar færslur úúúfffhh þær eru endalaust margar, er búin að liggja yfir þessum og lesa útí gegn.  Þvílíkar þjáningar sem barnið hefur barist við en er endalaust kraftaverk og endalausar framfarir sem hún hefur sýnt.  Flottust!!

IMG_2181
Yndislegust komin í öskudagsbúning sinn.



Ekki hætt

Well búin að fá nokkrar skammir hvað ég er léleg að blogga og fólkið mitt farið að heimta blogg frá mér hehe, ég er bara engan veginn að nenna þessu þessa dagana en hef samt frá svo mörgu að segja.  Er með margar hugmyndir í kollinum sem ég ætla nú ekkert að uppljóstra allavega ekki strax, sorrý!!Whistling

Einsog ég hef sagt þá er sjúkraþjálfunin hennar Þuríðar minnar farin að vera á hestum sem hún mætir í 2x í viku sem er sko að gera sitt.  Bæði því henni finnst þetta alveg meiriháttar gaman og þessi þjálfun er að gera góða hluti fyrir hana.  Ég fór t.d með henni í fyrsta sinn á föstudaginn en pabbi hennar fór alltaf með hana í sínu fæðingarorlofi sem er búið í bili og það var alveg yndislega gaman að fylgjast með henni, hún var eitt bros í framan og þegar henni fannst hún standa sig vel þá laumaði hún alltaf þumlinum upp í áttina til mín og var alveg skælbrosandi.  Þjálfarinn einmitt sagði það við mig þegar hún var að byrjað rann hún alltaf útí aðra hliðina eða þá sem hún lamaðist algjörlega í en núna þrem vikum síðar er hún hætt því, jibbíjeij!!  Hún sýnir framfarir á hverum degi þetta kraftaverk.

Á föstudaginn þegar við vorum að bíða eftir að sjúkraþjálfunin byrjaði ákváðum við að gera stafina eða ég ætlaði svona að testa hana aðeins því einsog þið vitið þá er ekki langt síðan að þessi stúlka gat gert stafinn sinn.  Áður en ég vissi af þarna var hún búin að gera alla þá stafi sem ég sagði henni að gera og ég átti mjög erfitt með að halda tárunum inni.  Vááááávvvvhhh!!  Ef hún ætlar sér eitthvað þá hættir hún ekki fyrr en henni tekst það enda mjög þrjósk sem hefur verið mjög gott í hennar baráttu.  Henni einmitt langar svo að læra lesa og ég veit að það mun takast ekki eftir svo langan tíma.

Nýjasta æðið á þessu heimili er búið að vera Abba eða síðan í kringum jólin, Þuríður mín elskar þennan disk og farin að kunna hann utan af, meira að segja enskusletturnar í myndinni og svo eru systkin að leiðrétta hvort annað á ensku sko ehhe.  Bara fyndið að hlusta á þau.  Svo reynir Þuríður mín að dansa við hvert lagið eða einsog þau gera í myndinni, hún minnir mig dáltið á mig þegar Söndru Kim æðið var þá stóð ég fyrirframan imbann og hermdi eftir henni.  thíhí!!  Þannig næsti draumur minn er að fara með þau til London á Abba-showið sem verður væntanlega eftir einhver árSideways

Hinrik minn fór í sína fyrstu klippingu á föstudaginn enda hárið allt að hrynja af og þá fannst foreldrunum bara tími til að raka það allt af.
P2067491
Hérna er einmitt búið að raka það nánast allt af, hann var svona líka góður enda vel uppalinn.
IMG_2179
Svo er hérna ein af gaurnum mínum honum Theodóri, var að máta öskudagsbúninginn sinn.  Endalaust flottur.

Við Þuríður hittum eina hetju í síðustu viku sem hefur ekki verið að fá góðar fréttir af sínum sjúkdómi, þannig mig langar að biðja ykkur að hugsa fallega til hennar Bjarkar okkar og megið alveg kveikja á kerti á kertasíðunni hennar Þuríðar minnar tileinkað henni.

Þetta átti nú bara að vera færsla sem ég var að láta ykkur vita að ég væri ekki hætt, bara bissí kona.  Ætla að læra smotterí áður en drengurinn kallar á mjólkurbúið sitt.


Niðurstöður komnar

Það var ekkert athugavert við myndirnar sem er náttúrlega bara best í heimi, en læknirinn vill að sjálfsögðu fylgjast áfram með henni vegna þessara verkja sem hann veit ekki afhverju þeir koma.  Eigum að hafa samband aftur í næstu viku og þá verður líka gerð ein önnur breytingin á flogalyfjunum hennar sem sagt enn meiri minnkun, vávh hver hefði trúað því að það væri hægt að minnka lyfin hennar svona mikið og kanski í lok sumars verður hún "bara" á tveimur gerðum af flogalyfjum í staðin fjagra.  Enn eitt kraftaverkið!!

Má til með að segja frá því en í febrúar eru tvö ár síðan hetjan mín krampaði síðast, einsog hún var slæm fyrir þann tíma en svo bara eftir fyrri geislameðferðina hættu þeir.  Geislarnir hittu sem sagt akkurat á þann punkt sem þeir þurftu að hitta á, úúúfffh einsog hún var orðin veik á þessum tíma fyrir tveimur árum og átti að vera fara frá okkur.  Var líka að hugsa um tíman fyrir ári síðan þá var Þuríður mín líka mjög veik eða í þrjá mánuði nærðist hún ekkert, þá meina ég EKKERT, lá hálfmeðvitundarlaus, með mikin hita þessa mánuði og enginn læknir vissi neitt.  Það er nefnilega það versta fyrir okkur foreldrana að lifa í óvissu og fá ekkert að vita, maður vill fá að vita hlutina þó þeir séu slæmir þá vitum við allavega við hvað við erum að díla. 

En nún ári síðar er þetta kraftaverk svona líka spræk, sýnir endalausar framfarir á hverjum degi, sýnir mikin áhuga að læra lesa sem ég veit að mun koma einn daginn hjá henni enda er hún líka með frábæran stuðningsfulltrúa í skólanum sem er endalaust þolinmóð við hana og góð.  Gæti ekki verið í betri höndum.  Við höfum alltaf verið svo heppin hvað það hefur raðast gott fólk í kringum okkur í veikindum Þuríðar, það er nefnilega ekkert sjálfgefið í þessum "bransa" að fá svona fólk í kringum sig.
veikindi
Hérna er svo ein af hetjunni minni á þeim tíma sem hún var að veikjast, alveg sama hvursu dópuð hún var af lyfjum þá reyndi hún alltaf að brosa og hafa það gaman.  Ég man einmitt alltaf svo vel eftir því þegar hún var í krampa og var kanski að púsla rétt áður en krampinn kom þá lét hún hann ekki stoppa sig eða reyndi allavega ekki láta hann stoppa sig og reyndi einsog hún gat í krampanum að halda áfram að púsla.  Það er alveg ótrúlegur kraftur í þessari stelpu og lætur fátt stoppa sig.

Núna er mín gjörsamlega búin á því eftir daginn, ætla að koma börnunum í háttinn og kanski reyna gera eitt skólaverkefni þar að segja ef litla rjómabollan mín "leyfir" mér það (Skari er nefnilega að vinna).  Hann er nefnilega orðinn smá mömmupungur þó svo að drengurinn sé rétt rúmlega tveggja mánaða, finnur rjómalyktina af mömmu sinni hehe.


Litla rjómabollan mín - niðurstöður á morgun

P2027454
Hérna er litla rjómabollan mín hann Hinrik Örn ....orðinn heil 6kg. 

Niðurstöðurnar koma á morgun frá myndatökunum í dag, Þuríður mín stóð sig að sjálfsögðu mjög vel enda ekki að spurja af því. 

.......skjáumst á morgun.


Myndatökur á morgun

Þuríður mín Arna er að fara í auka myndatökur á morgun, væntanlega ekkert en þegar hetjan mín kvartar undan verkjum og það búin að gera það lengi þá andar maður ekki léttar en að láta hana í myndatökur og fá jákvætt útur þeim.  Hún er nefnilega búin að vera kvarta undan verkjum í einhverja mánuði en  læknarnir hafa bara svona eiginlega hundsað það og haldið að þetta væru vaxtaverkir eða í þá áttina en Þuríður mín er ekki að stækka svo mikið að henni verki í marga mánuði enda ekki heldur há loftinu.  Þannig á morgun eftir skóla hjá henni förum við með hana uppá barnaspítala í myndatökur og fáum væntanlega strax útur þeim.

Mig langar annars að benda ykkur á að mín ástkæra Anna móðirsystir mín er dagmamma og býr í Norðlingaholtinu og er með laust pláss, hún er að vinna allan daginn eða til 16:30.  Annars getiði fengið fleiri upplýsingar hjá henni í síma 5577326.

Eigið gott kvöld.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband