Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Krabbaverkur

Þuríður kemur að sjálfsögðu alla daga með mér í sinn fyrrverandi leikskóla að ná í hin tvö og oft hittum við hennar fyrrverandi leikskólafélaga sem henni finnst ótrúlega gaman þó hún þykist stundum vera ofsalega feimin en hún Þuríður mín er sko ekki feimin.  Held að hún fái þann "hæfileika" að vera svona opin frá pabba sínum en aftur á móti Oddný Erla mín er dáltið feimin og lokuð og erfir það frá móðirinni ehe.  Allavega við hittum einn gamlan félaga hennar í gær og labbar til mín og segir svo alvarlega "er Þuríður með krabbaverk, hann Jakob (annar gamall félagi hennar) sagði mér þar".  Ég reyndi nú ekkert að brosa og svaraðir honum jafn alvarlega og hann spurði mig og reyndi að útskýra fyrir honum að þetta héti krabbamein en ekki krabbaverk en þá svarar hann bara á móti "já en Jakob sagði mér að þetta væri krabbaverkur" og labbar svo í burtu.  Þau eru alveg ótrúlega yndisleg þessir krakkar þegar þau byrja að spurja og mér finnst sjálfsagt mál að útskýra fyrir þeim veikindin hennar Þuríðar minnar eins vel og ég get enda ekkert feimnismál og hefur aldrei verið á þessu heimili.

Þuríður hefur ekki fengið núna svona góðan tíma ég veit ekki hvað lengi og maður er alltaf með hnútinn í maganum að núna hljóti henni að fara "hraka" eða eitthvað bakslag fari að koma.  Að sjálfsögðu njótum við þess á meðan það er og vonum svo heitt og innilega að þetta er allt saman á uppleið og flestir hennar draumar munu rætast.  Það er allavega einn draumur búinn að rætast og það er að fá að fara í skóla þannig þetta er allt í áttina því þessi draumur hefði ekki átt að rætast.  (læknalega séð) 

Ég hef heldur aldrei fengið svona langan rólegan tíma síðan hún veiktist og veit varla hvað ég á að gera af mér nema ég reyni að njóta hverra mínútu á morgnanna til að hvíla líkama minn sem er að klofna í sundur enda líka bara vika þanga til skólinn minn byrjar og þá verður sko engin slökun ef ég ætla að útskrifast með stæl fyrir jólin í sex greinum.  Úúúúfffhh!!  Var líka að koma úr nuddi, djöh var það vont en þess virði og svo fer meðgöngusundið alveg að byrja en mín er á biðlista og kemst síðastalagi að 1.okt. (ekki seinna vænna)

Stelpurnar mínar byrjuðu á sundnámskeiði í gær (3x í viku) og eru að sjálfsögðu alveg eldklárar.  Sundkennarinn sá þvílíkan mun á hetjunni minni síðan (bara) síðastaliðið vor, hún er ekki jafn ofvirk, hlýðir betur skipunum og er einsog selur í lauginni.  Ég held að hún geti kafað lengur en ég ehe og svo Oddný mín er verðandi Olympíufari, hún biður um að fá að æfa sund og það verður ekki langt í það að hún verði syndari en ég.  Meistarar á ferð.  Theodór minn er nú bara glaður að fá að fara í pottinn með foreldrunum á meðan þær æfa sig en getur byrjað að "æfa" í janúar og að sjálfsögðu fer hann þá í strangar æfingabúðir eheh.

Þuríður mín er að sýna eitt þroskastig sem mér finnst mjög fyndið að sjá en hún hefur aldrei vitað hvað hún ætti að gera við nefið á sér en eftir að hún byrjaði í skólanum er hún stanslaust borandi í nefið og svo "slurp slurp"Whistling.  Mörgum finndist ekkert gaman að sjá börnin sín gera þetta en þetta sýnir bara fyrir mér að hún er að taka smá þroskastig og ég ELSKA að sjá hana taka þessi skref frammá við.  Bara flottust.

Gengur vel með minnkunina á flogalyfjunum, reyndar ætti ekkert að koma alveg strax í ljós ef hún færi að krampa við þessa minnkun það er oftast svona sirka 10 dagar.  Krossa bara alla putta og tær að þetta muni heppnast og hún fái að njóta sín án allra krampa.
kr-ingur
Þessi mynd var tekin af hetjunni minni sumarið áður en hún veiktist (hún veiktist 25.okt'04), laaaaang flottasti KR-ingurinn japplandi á ís.


Tákn með tali

Þuríður mín er þvílíkt hamingjusöm í skólanum, einsog hún hafi þroskast dáltið við þetta stóra stökk.  Hennar stuðningsfulltrúi talar dáltið mikið við hana "tákn með tali" og það er svo ótrúlega gaman að sjá hvað hún er fljót að læra.  Á föstudaginn t.d. í síðustu viku sá ég að hún var að tala við Theodór og þá notaði hún bara þetta "táknmál" og þá bara búin að vera í skólanum í viku, greinilega eitthvað sem höfðar til hennar og mér finnst hún líka hlýða skipunum betur ef þetta er notað á hana.

Ætlaði í gær að skrá hana á badmintonnámskeið en við tvær skruppum útí TBR í gær (mitt fyrrverandi annað heimili) eða einsog hún segir "mamma bara við stelpurnar" en henni finnst alltaf svo spennandi og gaman þegar við tvær erum bara að gera eitthvað saman og svo heldur hún áfram "en ekki Oddný Erla og ekki Theodór, bara við" og verður ótrúlega stollt.  En ég held að ég sé eiginlega hætt við að senda á svoleiðis námskeið, jú ég veit að æfing skapar meistarann en þegar við vorum aðeins að prufa okkur áfram þá sá ég að hún getur ekki beitt höndunum í íþróttinni vegna lömunar sem hún er ekki búin að ná sér af.  Ég held líka að það yrði dáltið leiðinlegt fyrir hana að fara á námskeið og vera kanski að reyna "slá" við einhvern krakkann og hann yrði nettpirraður á henni vegna þess að hún gæti þetta ekki.  Krakkar skilja að sjálfsögðu ekki afhverju hún getur þetta ekki en það er "bara" lömunin sem er að plaga hana, skítt!  Ætli hún haldi sig þá ekki "bara" við sjúkraþjálfunina og sundið sem ég held að ætti að byrja í dag 3x í viku sem hjálpar henni gífurlega mikið enda er hún einsog selur í sundi.  Þar sér maður líka vel lömunina og hún getur ekki beitt hægri helmingnum einsog hún á að geta en það kemur einn daginn.  Reyndar ætlar Oddný Erla líka að fara með henni á námskeiðið sem hún bíður spennt eftir og er alltaf að spurja hvenær sundnámskeiðið eigi eiginlega að byrja?  Bara gaman!!

Þuríður mín er annars ágætlega hress, engin sýking í gangi sem er bara ótrúlegt en satt.  Hefur ekki verið svona lengi án sýkingar í svona langan tíma í einu, 7-9-13.  Allt í áttina!  Reyndar sá ég í morgun að var farin að haltra eitthvað og vonandi er það bara tilfallandi, alltaf þegar maður sér svoleiðis fer allt í hnút.  Hrædd við eitthvað slæmt og ég held að sú tilfinning fari ALDREI alveg sama hvursu vel gangi.  Bwaaaaahh!!  Reyndar man ég það núna en hún var eitthvað að kvarta undan verkjum í löppinni í gærkveldi þegar hún var að fara sofa? Hmm!!

Allir aðrir hressir á heimilinu, Skari minn byrjaði í Háskólanum í morgun reyndar með vinnu enda væri hitt ekki hægt.  Einhver verður að vinna fyrir heimilinu.  Ef hann hefði farið í fullt nám hefði hann getað útskrifast í vor með einhverja B-gráðu (ekki alveg inní þessum gráðum eheh) í Stjórnmálafræði en hann er víst í því. 

....Styttist að ég nái í hetjuna mína og þá eigum við okkar rúman klukkutíma saman áður en við náum í hin tvö en hún ELSKAR að tjilla bara með mér EIN "bara við stelpurnar" en því miður gerist það alltof sjaldan að við erum ekki að gera neitt eða á tjillinu, þurfum alltof oft þurfum við að stússast eitthvað vegna veikindana spítalaferðir, sjúkraþjálfun, apótek og þessháttar.


Foreldragreiðslur og réttur okkar

Það var mikið stórt skref frammá við þegar svokölluðu foreldragreiðslur tóku gildi fyrir ALLA foreldra en ekki bara þá sem eignuðustu langveik börn fyrir einhverja ákveðna dagssetningu einsog það var.  Þá vorum við ekki í þeim hópi, vorum svo „óheppin“ að Þuríður okkar veiktist of snemma en jú við erum í þessum hópi núna og ég er búin að fá þessar greiðslur frá 1.feb’08 sem gilda til 1.jan’09.  Þeir samþykkja ekki þessar greiðslur nema lengst ári frammí tímann sem er kanski alltílagi nema hvað það er ótrúlega erfitt að vera alltaf að sækja um hitt og þetta þegar maður er í strangri baráttu og þá á maður helst ekki að þurfa hugsa  um neitt annað en langveika barnið sitt.

 

Bætur mínar lækkuðu um 30% 1.júlí sem ég hef ekki ennþá komist að afhverju?  Enda er hrikalega erfitt að ná í þessa „háttsettu“ einstaklinga niðrí TR oft hefur maður ekki getu né orku í að reyna hanga í símanum hálfan sólarhringinn til að fá svör við ýmsu sem þeim finnst kanski smámunir en er stórmál hjá okkur foreldrunum enda var það mikið hjá okkur að „tekjur“ okkar lækkuðu um 30%, hafa margir efni á því í dag?

 

Núna er ég strax komin með í magann því ég veit ekki hvort þeir muni framlengja þessar foreldragreiðslur til mín um áramótin(ímyndið ykkur ef þið vissuð að þið mynduð kanski missa allar ykkar tekjur um áramótin), hvernig eigum við þá að lifa? (Stundum líður mér nefnilega þannig að þeir haldi að Þuríður mín sé búin að ná bata sem er laaaaaangt í frá.) Jú ég á þá rétt á að fara í fæðingarorlof en það gerir líka bara 80% af þeim greiðslum (sem gerist að sjálfsögðu hjá öllum sem fara í fæðingarorlof en flestir foreldrar hafa nú hærri laun en þetta) sem er kúkur og kanill því þá myndu líka mínar greiðslur lækka enn meira og það ekki á löngum tíma.  Þar að segja ef þeir samþykkja að ég fái 80% af þeim greiðslum, jú Jóhanna Sigurðar sagði við mig að það ætti að vera svoleiðis en ég hef verið á fullu að reyna ná sambandi við þá hjá Vinnumálastofnun en ENGIN getur svarað mér þessu, einsog þeir viti ekki hverju þeir eigi að svara.  Þó Jóhanna hafi sagt þetta við mig þá þarf ekki að vera að þeir samþykki þetta, þetta kerfi er nefnilega ótrúlega asnalegt.  Þið getið ekki ímyndað ykkur.

 

Þar sem ég er ólétt og er að deyja í grindinni þyrfti ég að fara til sjúkraþjálfara en það er víst ekki í boði.  Það er t.d. ógeðslega dýrt fyrir einstakling sem getur ekki borgað í stéttarfélag að fara í eitthvað svoleiðis og fá engar niðurgreiðslur.  Ég hef ekki þann möguleika að borga í stéttarfélag og safna mér inn einhverjum réttum því það er ekki vinnuveitandi að borga mér „laun“.  Ég er að sjálfsögðu búin að kanna þetta og ég get heldur ekki borgað í lífeyrissjóð því það yrði svo hrikalega dýrt fyrir mig sem ég er líka búin að kanna.  Þyrfti að borga svo mikið í skatt þegar mig langaði að byrja borga í lífeyrissjóðinn og þegar ég ætlaði svo að taka það út þegar af því kæmi þyrfti ég að borga ennþá meiri skatt af þeirri upphæð þannig þeir í sjóðnum mæla ekki með því að ég geri þetta.  Þeir segja þó sannleikann.

 

Ótrúlega ósanngjarnt fyrir fólk í minni stöðu.  Ég hef t.d. ekki getað borgað í þessa sjóði í mörg ár fyrirutan öll fæðingarorlofin mín sem hafa verið ansi mörg eheh og þá á móti get ég enganveginn eignast neina rétti.

 

Svo var annað, afhverju fá öryrkjar meiri bætur en við foreldrarnir sem eru í svipaðri stöðu og þeir og geta ekki unnið útí?  Ég er alls ekki að gera lítið úr öryrkjum en ég sem bráðum fjagra barna móðir fæ miklu lægri tekjur en öryrki sem ég skil ekki.  Við hvorug getum unnið úti en vonandi einn daginn mun ég geta það en það er þetta sem ég skil ekki?

 

Með þessari færslu er ég ekki að biðja fólk að vorkenna mér, ég er bara að sýna ykkur hvernig þetta er hjá foreldrum í sömu stöðu og ég.  Ég veit líka að fólk fær vanalega 80% af sínum launum þegar það fer í fæðingarorlof en þessar greiðslur sem ég fæ með hetjunni minni ná ö-a ekki því sem foreldrar fá í „laun“ þegar það er búið að taka þessi 20% af.

Takk fyrir mig í dag, er alveg að fara ná í hetjuna mína í skólann og svo ætlum við að fara skrá hana á eitt stk námskeið sem hún verður ofsalega glöð með.  Og svo styttist óðum í að skólinn minn byrjar, skemmtilegra að geta lært þegar ég ligg uppí rúmi heldur en að "bora bara í nefið" en hann byrjar 12.sept og ég er mjög spennt og líka dáltið kvíðin.


Ég var að hugsa...

...sem gerist nú ekkert alltof oft ehe.  Þegar ég var að fara sofa í gærkveldi, sárkvalin í líkamanum sem er kanski ekki frásögufærandi en þá fór ég að hugsa um allar þær konur sem fá ekki þá gjöf að eignast börn eða ganga með þau einsog ég og þarf ekki mikið til haha!.  Ótrúlega heppin (sko ég).  Fólk lítur nefnilega oft á þennan "hlut" sem sjálfgefið sem það er að sjálfsögðu ekki, oft þegar konur eru ekki orðnar óléttar eftir nokkur ára samband spyr fólk oft það hvort það fari ekki að koma með barn.  Sem gæti verið ofsalega særandi fyrir þann einstakling sem er verið að spurja þessara spurningu, kanski er fólkið búið að vera reyna og reyna en ekkert gerist en "við" erum oft ekkert að spá í það.  Bara "hneykslast" á því afhverju þau skyldu ekki vera búin að fjölga sér?  Tjah auðvidað hafa sumir engan áhuga á að fjölga sér og eignast börn en ég veit t.d. með eina vinkonu mína sem vill njóta lífsins til þrítugs og þá vill hún fara reyna sem er bara gott mál.  Ég bíð spennt eftir þeim degi sem hún verður þrítug eheh.Wink

Það vildu t.d. margar konur vera í minni stöðu þó þær væru svona kvaldar í líkamanum, bara að þær geti átt börn og ég veit sjálf að ég væri ein af þeim annars væri ég ekki að þessu.  Ég er orðin það slæm að ég verð að taka mér stundum hvíld á nóttunni þegar ég þarf að snúa mér yfir á hina hliðina og sofna aðeins á bakinu því kvölin er svo mikil, einsog ég hata að sofa á bakinu.  Ég vissi alveg fyrirfram að ég yrði svona slæm og væntanlega verri en þegar ég gekk með Theodór minn þannig ég er ekkert að biðja ykkur að vorkenna mér eða neitt svoleiðis enda bý ég til fallegustu uppskrift ever að þessum kraftaverkum mínum. 

Ég öfunda allavega ekki þær konur sem fá ekki að kveljast svona í líkamanum (einsog ég) til að fá drauma sína uppfyllta, sumar að sjálfsögðu finna ekkert fyrir meðgöngum en ég er allavega ein af þeim heppnu.  Best í heimi þó ég þurfi að liggja mikið fyrir, ég elska að finna fyrir bumbubúanum mínum sprikla í mallakútnum mínum einsog það er að gera núna.

Mig einmitt langar mjög mikið í þrívíddar sónar einsog mín ástkæra systir er að fara í en Skari vill það ekki, djöhh ehe.  Vill ekki kíkja í þann pakka, jú að sjálfsögðu verður hann að ráða einhverju þá fæ ég kanski að ráða nafninu eheh.  Aftur á móti langar okkur að fara í bumbumyndatökur þó ég sé nú ekki mikið fyrir að vilja láta taka myndir af mér í þessu ástandi einsog þið hafið tekið eftir, ekki búin að birta eina mynd hérna af mér, allavega ekki hérna ehe. Ég veit ekki hvað við gerum, djöh dýrt.  En hvað reynir maður ekki að gera til að fá flottar minningar því við öll fjölskyldan myndum mæta í þetta og svo þekkir fólk mig ekkert öðruvísi en ólétta thíhí.

Statusinn góður á heimilinu, hetjan mín ágætlega hress og svo róleg.  Erum búnar að liggja aðeins yfir stöfunum um helgina og hún hlustar vel á mig þó hún sé kanski ekkert mikið að tjá sig um þá en þá ég veit að hún er að læra en sú yngri kann þá alla sem við höfum farið yfir en við höfum þá reglu að Þuríður eigi að reyna fyrst svo má hún sem hún tekur vel í.  Theodór minn hefur líka verið með okkur í þessu og bíður mest spenntur yfir því að við komum í hans staf T ehe en hann er samt farinn að tengja stafina við hin og þessi nöfn þó hann viti ekki hvað hann heitir en þá veit hann hver á hann.  Frekar góð byrjun af tveggja ára gaur.Grin

Best að fara "berjast" við Þuríði og Theodór sem eru að sofna.....  Sko að reyna halda þeim vakandi...


Lyfjaminnkun

Kíktum uppá spítala í gær og þar var rædd lyfjaminnkun hjá hetjunni minni.  Hún er að fá fjórar tegundir af flogalyfjum tvisvar á dag, bara mismikið af hverju lyfi sem er helv... mikið fyrir þennan litla kropp.  Frá og með deginum í dag þanga til 1.nóv byrjum við að minnka skammtinn hennar í engan þannig hún mun "bara" taka þrjár tegundir.  Svo verður tekið frí frá lyfjaminnkun þanga til á næsta ári en þetta verður gert mjöööööög rólega, við erum að sjálfsögðu orðin mjög stressuð fyrir þetta og ég veit að læknirinn hennar er það líka.  Mikil hætta að hún fari að krampa aftur og ef hún færi að gera það væri einsog fyrir okkur ö-a miklu erfiðara en þegar hún var greind í fyrsta sinn.  Yrði mikið áfall sértaklega ef það væri ekki hægt að halda því niðri einsog það gerðist síðast (krampaði stanslaust í tvö ár frá 10-50 krömpum á dag) en þá var hún "bara" búin að vera krampalaus í þrjá mánuði þegar sú ákvörðun var tekin en núna er liðið eitt og hálft ár.

Ef þetta tekst sem við að sjálfsögðu trúum þá yrði það rosalegt skref fyrir hetjuna mína og ég veit þá líka að hún sýndi ennþá meiri framfarir þar að segja líka ef æxlið fer ekki að stækka sem við trúum líka.  Við ákváðum líka með læknunum að næsta myndataka verður ekki fyrr en í janúar, vávh það hefur ALDREI liðið svona langur tími á milli myndataka en ef eitthvað kæmi uppá (sem mun ekki gerast) þá yrði hún send strax í myndatökur.  Trúin er sterk og ég veit að hún mun sigrast á þessu, hún á eftir að gera svo margt, langar að læra svo mikið þannig ég trúi því ekki að þessi "þarna" uppi ætlar að taka það frá henni og okkur.

Það var ótrúlega gaman að fara með hana til sjúkraþjálfarans á mánudaginn, hún var svo hissa hvað voru miklar framfarir í sumar.  Hún hefur t.d. ALDREI getað labbað EIN án allra aðstoða á mjórri spítu en það gerði hún og það alla leiðina yfir sem er þvílíkt afrek fyrir hana.  Hún sýndi henni líka hvað hún var dugleg að hoppa sem er alveg frábært að sjá, svo var hún bara sjálf farin að stjórna hvað hún átti að gera næst, well reyndar vissi hún það alveg ehe og þurfti sko enga hjálp í tækin.  Þessi litlu/stóru skref er geðveikt gaman að sjá hjá henni, þvílíkar framfarir á ekki svo löngum tíma. Ég lít líka á það að við höfum verið dugleg að senda hana hingað og þangað og reynt að styrkja hana með því að fara í íþróttir sem við ætlum að sjálfsögðu að halda áfram í vetur.  Hún er að biðja um það, þó hún sé orkulaus þá vill hún þetta samt.  Viljinn er ótrúlega sterkur hjá henni Þuríði minni, ættu margir að taka hana til fyrirmyndar.  Hún er allavega eina manneskjan sem ég lít upp til.  Þvílíkur kraftur, lífgleði og vilji sem fylgir henni.

Hún fór ótrúlega stollt í skólann í morgun, nota bene án foreldra sinna.  Við eigum nefnilega svo ótrúlega góða nágranna og einn af þeim er kennari í skólanum hennar Þuríðar minnar og hún labbar alltaf með sína 7 ára og aðra nágrannavinkonu í skólann á hverjum morgni og bauð Þuríði minni að koma með þeim.  Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað hún var stollt, fá að labba með tveimur ári eldri sem hún lítur dáltið upp til og fær alltaf þegar hún vill að koma í heimsókn til þeirra enda alveg yndislegar við hana.  Hún var sú montnasta á svæðinu í morgun.

Theodór minn er ennþá brjálaður að hann skuli ekki fá að fara í skólann með henni, segist nú vera sex ára á morgun eheh.  Segist ekkert lengur vera í leikskóla, ótrúlega fyndinn gaur.  Oddný mín er ótrúlega róleg yfir þessu, kanski smá lítil í sér þessa dagana.  Þuríður búin að fá mikla athygli síðustu daga vegna skólans og svona og það má ekki segja mikið við hana þannig hún fari bara að gráta.  Ætla að setjast niður með þeim systrum á eftir og fara yfir stafabókina sem Oddný mín elskar og Þuríði minni finnst líka gaman að reyna læra, hún leynir á sér þessi stúlka.  Þó svo að ég viti það innst inni hún fari ekki að læra lesa þennan veturinn en þá gefumst við ekkert svo auðveldlega upp.  GETA ÆTLA SKAL!!

Góða helgi kæru lesendur, við ætlum bara að hafa það kósý um helgina.  Reyndar að kíkja uppá Skaga í kjötsúpu *slurp slurp*, verst að tengdó verður ekki með svið líka eheh og eitt stk afmælisveisla.

Verið hress, ekkert stress, bless bless.


"Eru þið í einhverjum sértrúarsöfnuði?"

Þessa spurningu hef ég oft fengið frá fólki sem ég þekki ekki mikið eða hvort við Skari vitum ekki hvað getnaðarvarnir séu, bara því við erum að koma með okkar fjórða barn á sex og hálfu ári.  Fer stundum dáltið í mig, má maður ekki fjölga sér öðruvísi nema maður væri í einhverju sértrúarsöfnuði?  Ég myndi eiginlega ekki bjóða í það ef svo væri eheh því þá kæmu börn hjá okkur á níu mánaða fresti, stundum er erfitt að vera frjór og maður manns megi ekki anda á mann án þess að maður verði búúúmmm!  Jú við vitum allt um getnaðarvarnir án þess að ég þurfi eitthvað að útskýra fyrir fólki, ég hef alla mína tíð elskað börn.  Helst vildi ég ekki vera neinsstaðar annarsstaðar nema þar væru börn enda passaði ég mikið þegar ég var yngri eða þanga til ég átti Þuríði mína en þá hætti ég að passa mín þrjú uppáhald sem voru þá 9 og 10 ára gamlir töffarar(alveg síðan þeir fæddust).  Ætli ég væri ekki ennþá með þá ef ég væri barnlaus eheh. 

Ég hef líka alltaf sagt að ég ætlaði mér að eignast fimm börn, well þá vitiði hvað mun ske árið 2010 mhúahaha!!  ....eða ekki?  Ég segist nú vera hætt eftir þessa meðgöngu því ég veit að líkaminn minn mun ekki meir ef ég verð bara ekki komin í hjólastól eftir þessa en ég var einmitt að ræða þetta við konu frænda míns.  Hún sagðist einmitt hafa fundið það þegar henni fannst vera komið gott og þá var hún komin með þrjú og vissi nákvæmlega að núna ætlaði hún að hætta en það versta með mig að ég hef ekki fundið þessa tilfinningu.  Hmmm!!  Þó ég segist vera hætt þá langar mig ekkert að hætta ehe, þetta er bara svo gaman fyrir utan alla þessa verki sem ég þjáist af alla daga. 

Fólki finnst líka skrýtið að við ætlum að halda áfram að búa hérna í sveitinni með öll okkar fjögur börn (fáum þessa spurningu oft "er íbúðin ekki orðin alltof lítil fyrir ykkur?"), því einsog þjóðfélagið er þá eiga öll börn að vera með sérherbergi en það er ekki í boði á mínu heimili.  Stundum er einsog allir skíti peningum og haldi að við getum bara hlaupið útí næstu fasteignasölu og sagst ætla kaupa draumahúsið mitt hérna í sveitinni sem kostar "bara" sjótíu millur.  Vávh hvað lífið væri þá mikill draumur í dós.  Hey draumahúsið mitt er tómt, gengur ekkert að selja það ætli þeir geti ekki bara skipt á sléttu?  Þó að íbúðin okkar sé ekki stór þá líður okkur ofsalega vel hérna og við erum ekkert á leiðinni neitt enda eigum við heldur ekki sjötíu millur fyrir draumahúsinuWhistling.  Kanski þegar Skari verður orðinn bæjarstjóri í einhverju bæjarfélaginu og ég mun nýta mitt nám .....eða ekki?

Læknaheimsókn á eftir, þá kemur eitthvað af framhaldinu hjá Þuríði minni í ljós.  Hún er annars ótrúlega hamingjusöm og ánægð með lífið þessa dagana, elskar að fara í skólann en Theodór minn er sko ekki sáttur að vera ekki orðinn 6 ára og fá að fara í skólann líka eheh.  Mikil lífsgleði í hetjunni minni sem elskar að vera til, á mjög auðvelt með að heilla fólkið í kringum sig.  Stundum þegar hún er að gera eitthvað sem hún veit að hún má ekki og ég ætla að fara skamma hana setur hún upp þennan svip og segir "æjhi mamma mín ég elska þig". Hvernig er þá hægt að "æsa" sig við  hana? Hún saknar samt allra á leikskólanum en hún er svo heppin að fá hitta allar konurnar á hverjum degi þegar við náum í hin tvö og elskar það  líka.
P8154406
Hetjan mín að hugsa eitthvað mikilvægt.

 


"Er hún fötluð?"

Þá er spurninga-flóðið byrjað hjá krökkunum sem eru með Þuríði minni í bekk eða umgangast hana mikið í skólanum, reyndar hafa þau ekkert spurt mig en spurja aðilana sem annast hana.  Fyrstu spurningarnar eru þannig "Er hún fötluð?", "afhverju er hún í skóla?", "afhverju fær hún að vera með ipod?".  Jamm Þuríður mín fær að hafa ipodinn sinn með sér í skólann en það er eitt af því fáa sem fær hana til að slaka almennilega á, hlusta á tónlist er það eitt af því besta sem hún gerir og mikil slökun fyrir hana.  Þannig eftir matinn í dag lagðist hún fyrir og slakaði á með ipodinn sinn.  Oft og mörgum sinnum biður hún okkur um þetta hérna heima eða þegar við erum að keyra eitthvert sem er bara besta mál.  Hún var meir að segja að kenna stuðningsaðila sínum á ipodinn sinn í dag ehe, yndislegust. 

Mér líst orðið svakalega vel á liðið sem mun annast Þuríði mína í skólanum einsog ég var kvíðin en ég held að ég þurfi engu að kvíða lengur.  Einsog ég hef oft sagt þá höfum við verið ofsalega heppin í kringum veikindin hennar Þuríðar minnar þá hefur BARA raðast gott fólk í kringum okkur, bæði sem hefur þurft að annast hana eða aðstoðað okkur fjölskylduna.  Ótrúlega heppin!  Þó ég hefði að sjálfsögðu viljað sleppa að kynnast öllu þessu góða fólki og átt heilbrigt barn í staðin en þá er lífið ekki svo einfalt, því verr og miður. Hún er líka algjörlega búin á því eftir daginn þó svo hann sé styttri en hennar leikskólatími var en ég finn samt hvað hún sé glöð að vera komin í skólann og ánægð með þetta allt saman og þá verð ég líka hamingjusöm.

Á fimmtudaginn förum við að hitta lækna-teamið okkar og þá fáum við að vita hvernig lyfjamálum hennar verður háttað næstu mánuði.  En núna verður tekin sú "áhætta" að minnka flogalyfin hennar sem við erum að sjálfsögðu sátt við (annars yrði það ekki gert) en mikið er ég samt kvíðin fyrir því, svoooo mikil hætta á því að hún fer að krampa aftur.  Ég veit að það færi helmingi verra í mig í dag ef hún færi að krampa aftur en fyrir einu og hálfi ári, yrði bara verst í heimi einsog ef æxlið færi að stækka aftur.  Aaaarghhh!!

Annars er ég nýbúin í mæðraskoðun, gekk bara vel.  Ljósan mín gaf mér nálastungur vegna grindarinnar sem ég er gjörsamlega deyja úr verkjum í, ansans grind!  Bumban mín er víst stærri en meðgöngutíminn minn segir ehe (hefur aldrei gerst áður þó svo að allir finnist ég alltaf með svo stóra bumbu), vonandi þá bara að ég muni eiga aðeins fyrr en venjulega en ég er vön að ganga tvær vikur framyfir sem ég vona svo heitt og innilega að það gerist ekki í des og ég mun eiga viku fyrir jól.  Ekki það versta sem gæti skeð en væri samt betra að eiga á tíma eða kanski tveim vikum fyrrWink.  Er eitthvað svo hrikalega þreytt þessa dagana, gæti sofið endalaust ætli það sé ekki vegna þess að Þuríði minni líður sæmilega og maður getur hugsað um eitthvað annað?

P8254594
Fallegasti litli mömmupungurinn minn og mesti gaur ever, hann Theodór Ingi minn eða "Ingi aumingi" einsog hann segir sjálfur ehe.  En hann er mikið búinn að vera hlusta á lag sem heitir "Ingi aumingi" með hljómsveitinni Abbabbabb og finnst það geðveikt kúl lag og syngur hástöfum og það fyndna við það að það má engin syngja það með honum nema pabbi hans ehe.

Hetjan mín sofnaði á meðan ég var skrifa þetta, alveg búin á því eftir daginn en hin tvö eru sko í góðum fíling og sofna sko ekki nærri því strax.

-Hamingjan í lífi mínu veltur á gæðum hugsanna minna-


Fyrsti skóladagurinn

P8254590
Hetjan mín ótrúlega hamingjusöm að fara í skólann sinn í morgun, hafði varla tíma til að borða morgunmatinn hvað þá að kveðja mann í morgun þegar við öll fjölskyldan fylgdum henni í skólann. 

Hver hefði trúað því að hún fengi að upplifa þennan merkisdag?  Fékk þann "stimpil" fyrir tæpum tveimur árum að hún ætti nokkra mánuði ólifaða en ég er ein af þeim fáum foreldrum ofsalega glöð með það að læknarnir okkar vita ekki allt.  Sem betur fer!!  Það fer oft ofsalega í mig þegar fólk rakkar niður læknaliðið okkar því mörgum finnst þeir eiga vita allt, kunna allt og aldrei gera nein mistök en þeir eru líka mannlegir rétt einsog ég/þið.  Það gera allir mistök,engin fullkomin þó við viljum það. 

Að sjálfsögðu er hennar baráttu ekki lokið, það er langt í land þó svo að æxlið hafið minnkað við síðustu myndatökur en þá getur það farið að stækka á morgun.  Þuríður mín er ofsalega hamingjusöm þessa dagana þó hún kvarti mikið vegna verkja en þá er bara svo mikill spenningur að fara í skólann.  Miklu erfiðara fyrir okkur foreldrana að láta börnin okkar fara í skólann en þau sjálf sértaklega finnst mér með hana vegna veikinda hennar, held að það væri auðveldara einsog með Oddnýju mína Erlu þó hún sé ofsalega feimin og hleypir ekki hverjum sem er að sér (mjög lík mömmu sinni sem er nú ekki leiðinlegt eheh).

Það gladdi mitt litla hjarta í morgun þegar ég kíkti á mailið mitt þá var þar póstur frá einni mömmunni sem á líka stelpu sem var að byrja í morgun, situr hliðina á Þuríði minni ásamt vinkonu sinni og lét mig vita að Þuríður mín væri velkomin í heimsókn.  Fólk getur ekki ímyndað sér hvað svona gleður mig og svo fylgdi ein mynd af þeim skólasystrum mailinu.  Þuríður mín Arna er nefnilega mjög félagslynd, elskar að leika við krakka, fá að fara í heimsókn eða fá til sín heimsókn þó svo að hún sé kanski ekki beint að leika við krakkana en bara að fá að vera í kringum þá finnst henni ofsalega gaman.  Reyndar er ein skólaystir hennar (tveimur árum eldri og ný flutt í blokkina okkar) farin að kíkja hingað í heimsókn og Þuríði minni fannst það æðislegt og svo hjálpar það henni líka að eiga hana Oddnýju sína að sem er einsog 6 ára í þroska en ekki 4 ára einsog hún er.  Svaka stuð hjá þeim í gær.

Hlakka mikið til að ná í hana í skólann á eftir, allavega ekkert búið að hringja í mig þannig hún er nokkurn veginn að meika daginn.  Ö-a upptjúnnuð af hamingju að hún hefur ekki tíma til að þreytast ehehe, hún mun svo fara beint í sjúkraþjálfun eftir skóla sem hún getur heldur ekki beðið með að fara í og hitta "Marrit sína" einsog hún segir sjálf.  Þetta verður strembinn vetur hjá henni, sjúkraþjálfun, sund- og badmintonnámskeið en að sjálfsögðu verður hún ekki pínd í neitt ef orkan eða getan segir stopp.  Það er bara svo ótrúlegt með hana Þuríði mína þó hún sé alveg búin af þreytu þá lætur hún ekkert stoppa sig ef henni langar, ætlar og finnst eitthvað það skemmtilegt að hún tímir ekki að missa af því. Hún er alveg ótrúleg þessi stúlka.

Styttist líka í að skólinn minn hefjist eða 12.sept og það er komin smá spenningur í  mig og líka kvíði því ég ætla mér að útskrifast í des þó svo að ég sé skrifuð 3.des (14 einingar í fjarnáminu).  Ef vilijnn er fyrir hendi þá get ég þetta rétt einsog Þuríður mín getur alla þessa hluti sem hún ætlar sér þó enginn orka sé til staðar.

Geta, ætla, skal.

Innan um erfiðleikana, felast tækifæri.


Ágætis dagur að ljúka

Við fjölskyldan kíktum í bæinn í dag tilefni dagsins, hvöttum nokkra aðila sem voru að hlaupa til styrktar "styrktarfélagi krabbameinssjúkrabarna" en ákváðum í þetta sinn ekki að taka þátt í Latabæjarhlaupinu.  Alltof mikið af fólki og of mikill troðningur en að sjálfsögðu kíktum við á skemmtiatriðin og þau skemmtu sér svakalega vel einsog þið sjáið á þessari mynd.
P8234544
Þuríður Arna mín var í svakalegu stuði niðrí bæ í dag þó hún hafi ekki séð mikið á sviðið en þá fannst henni bara rosalega gaman að hlusta á alla tónlistina.  Söng hástöfum þegar Ingó og Veðurguðirnir byrjuðu að spila Bahama en það er eitt af hennar uppáhaldslögum.  Höfum spilað það mikið í sumarfríinu okkar og sumir komnir með nett ógeð af því lagi eheh engin nöfn.

Eftir bæinn fórum við heim og við börnin bökuðum eitt stk gulrótaköku sem er reyndar í ofninum núna þannig íbúðin ilmar vel.  En við erum að fá gesti í morgunmat í fyrramálið eða kl hálf átta til að horfa á leikinn og þá verða vera til einhverjar kræsingar handa liðinu.  Krökkunum fannst sko ekki leiðinlegt að baka einsog ég ætla að sýna ykkur eheh.

P8234551
Þetta byrjaði mjög sakleysislega með smá smakki á kreminu en svo byrjaði þetta:
P8234554
Fór aðeins að klínast á alla hendina og það fannst það geðveikt fyndið en það var bara smotterí miðavið framhaldið ehe.
P8234562
Farið að klínast aðeins útí andlit og ennþá var hlegið....  Þuríður Arna mín og Oddný Erla mín
P8234570
Theodóri mínum fannst þetta samt laaaang fyndnast.

Annars er statusinn ágætur á hetjunni minni, reyndar kvartar hún mikið vegna verkja í líkamanum sem maður veit ekki hvað merkir?  Erum að fara í læknaheimsókn í næstu viku og við komum reyndar að henni í gær lokaða inní herbergi, undir sæng, grátandi og kvartaði vegna verkja í höfðinu.  Þá var ekkert annað en um það að ræða að gefa henni verkjastillandi svo finnst mér hún nota hægri hendina minna.  Var t.d. að klæða sig úr buxunum áðan og notaði þá bara vinstri en að sjálfsögðu vona ég bara að þetta sé tilfallandi og hún bara svona vön að nota "bara" þá vinstri.

Leikurinn í fyrramálið sem fjölskyldan ætlum að sjálfsögðu að vakna til að horfa á ekki það að við þurfum einhverja vekjaraklukku til þess að vekja okkur fyrir leikinn, ég á þrjár góðar klukkur.Wink Fáum líka fólk til okkar til að horfa á leikinn með okkur, ekki oft sem maður bíður fólki heim til sín í morgunmat svona snemma morguns eheh.  Svo ætlar mín yndislega ljósmóðir að koma til mín á morgun og gefa mér nálastungur vegna grindarinnar sem ég er klikkaðslega slæm í, bwaaahh!!

ÁFRAM ÍSLAND!!

ÁFRAM ÍSLAN


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband