Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Tíminn líður hratt

Þegar ég var lítil og var að bíða eftir jólunum þá leið tíminn svo svakalega hægt, það var allt svo lengi að líða og maður var endlaust óþolinmóð, þessi bið var svo erfið.  En í dag líður tíminn svo hratt og mér finnst ég eftir að gera svo mikið, dagarnir fljúga frammhjá okkur bara alltof hratt.  Ég er ekkert mikið að stressa mig á hlutunum þó mér finnist ég eftir að gera mikið þá finnst mér annað mikilvægara en skrúbba alla skápa hátt og lágt fyrir jólin einsog margir gera.  Puuuufffh ekki svo mikilvægt á þessu heimili, vill frekar að börnin mín njóti þess að vera til og sjá hvað þau hlakka til jólana og njóta þess að gera hina og þessa hluti með þeim sem mér finnst mikilvægir og þau skemmtilegir.  Þrífa hvað?

Við krakkarnir (samt aðallega stelpurnar á meðan litli íþróttaálfurinn minn horfir á Latabæ) höfum setið á stofugólfinu síðustu kvöld og pakkað inn jólagjöfum, stelpunum finnst það sérstaklega skemmtilegt þannig flestir pakkar eru pakkaðir af 3 og 5 ára stelpum og fíluðu þær það í botn.  Ætlið við mæðgur reynum ekki að klára þessa innpökkun í kvöld svo við séum laus við það þó þær væru alveg tilbúnar að gera þetta alla daginn ehe.

Við fórum á okkar þriðja og síðasta jólaball þetta árið hjá styrktarfélaginu og vávh hvað hún Þuríður mín skemmti sér vel, hvað hún var hress og kát.  Hún elskar að dansa í kringum jólatré, Oddný Erla var líka að fíla þetta en litli íþróttaálfur var fastur við mömmu sína enda skíthræddur við hólaheinin einsog hann segir sjálfur (jólasveinin).  Alltaf gott að fá fast knús þó það sé vegna hræðslu.  Þuríður mín stóð sig líka einsog hetja í einu viðtali sem við fórum í,  sat stillt og prúð hjá okkur Skara eða þanga til hún fór að gretta sig thíhí, æjhi það var bara finndið því hún er ekki vön að sýna þá hlið á sér.  Segi ykkur frá því seinnaW00t sko viðtalinu.

Er að fara í enn eina jarðaförina í dag, enn ein hetjan sem tapaði.  Þetta er með því erfiðasta sem maður gerir og þær eru búnar að vera alltof margar þetta árið. Frown  Megið hugsa fallega til foreldra og aðra ættingja þessa drengs sem tapaði og kveikja á kertum á Þuríðar síðu. Ofsalega getur þetta líf verið ósanngjarnt.

Einsog þið vitið en í haust fékk ég góð fyrirtæki og einstaklinga til að bjóða 10 foreldrum til London og njóta þess að vera til, öllum var boðið útað borða, á fótboltaleik og svo nutu foreldrarnir þess að vera til.  Burtu frá öllu og reyndu að hugsa bara um sjálfan sig þá þó það hafi verið erfitt en þá gekk það rosalega vel og engin veikindi rætt í þessari ferð.  Hjúkrunarfólkið uppá spítala hjápaði mér að velja foreldrana og allir svakalega ánægðir með þetta og enn er rætt um þessa ferð bæði af foreldrum og starfsfólkinu uppá spítala, þetta heppnaðist svo svakalega vel.  Ég ennþá svo þakklát þeim sem gerðu þessa ferð að veruleika enda lifa foreldrarnir ennþá á þessu, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað allir voru þakklátir.  Því miður hafa tvennir foreldrar úr þessari ferð misst börnin sín og fleiri eru alvarlega veik, sumar meðferðir hættar og aðrir í óvissu, mjög ósanngjarnt.  Megið hugsa fallega til þessara foreldra.

Mig langaði að gera annað svona góðverk um jólin, hafði samband við fyrirtæki en fékk ekkert svar æjhi stundum vill maður fá svar þó það sé neikvætt, bara kurteisi.  Reyndar ætlaði ég að gleðja veik börn og systkinin þeirra en því verr og miður gleymast þau svo oft þegar hin eiga bágt en munið það má ekki, þau eiga líka erfitt, þetta tekur miklar meir á þau en ykkur grunar.  Sjáið bara Oddnýju mína sem er nú bara þriggja og hálfs og á oft á tíðum svakalega erfitt og er oft einsog versti þunglyndissjúklingur, hún þarf líka á athyglinni að halda sem við erum meðvituð um enda getur þetta líka leitt til erfiðleika þegar þau eldast þannig maður verður líka að passa uppá þau.  Já ég hafði samband við fyrirtæki/einstakling í lok nóv en svo veiktist Þuríður mín og þá hafði ég ekki krafta né orku í halda áfram að leita þannig ég verð bara að gera þetta á næsta ári enda stutt til jóla.  Gefur manni svo ofsalega mikið.

Við fjölskyldan fengum stærðar pakka í gær og máttum opna hann strax og að sjálfsögðu biðum við ekkert með það ehe enda pakkaóð thíhí og í pakkanum voru nokkrir englar, krakkarnir fengu sinn engil hvert og við Skari fengum einn, vávh hvað þeir voru fallegir og voru settir strax við myndina af Þuríði okkar og biðjum þá að passa hana fyrir okkur og hjálpa henni að komast í gegnum þetta allt saman og trúum því að þeir gera.  Þeir eru orðnir ansi margir englarnir sem eru í kringum hana, elska engla.  Þessi gjöf hitti beint í mark hjá okkur öllum, takk kærlega fyrir okkur kæri sendandi.Sideways

Ætli ég verði ekki að hætta þessu og fara gera eitthvað af viti, orðin alltof löng færsla.  Anna Lind ég kem til ykkar eftir áramót í ræktina og vonandi verðuru þá líka því þá verður ekkert lull.  (er með nokkrum kellum á morgnanna í ræktinni)

Munið kærleikann og knúsin.


Jólafílingur.....

Ég hef ákveðið að pakka niður þessum ömurlega líða ofan í kassa, setja fallegan pappír, festa slaufuna fast og ekki opna hann fyrr en eftir áramót.  Þarf að hrista mig aðeins til og reyna fara njóta þessara daga sem eru að koma, það verður erfitt en ég veit að ég mun geta það.  Ég er svo mikið jólabarn einsog restin af fjölskyldunni og mig langar að njóta þessara tíma með þeim glöð en ekki með endalausa magapínu, hey ég hef þau öll hjá mér yfir hátíðirnar en það eru ekki allir svo heppnir.  Njóta hvers dags alveg í botn. 

Þuríður mín Arna fór alltíeinu að borða á sunnudaginn og er farin að safna á sig grömmum sem er æðislegt og þá fór aðeins að lifna yfir minni, hún sefur ekki eins mikið og hún gerði þó hún sé kraftalítil en þá er hún öll að koma til.Smile  Ég er farin að finna smá spennu hjá henni útaf jólunum sem er ennþá betra, meira að segja farin að spurja mig hvað við gefum einsog Evu Natalíu frænku sinni og mundi það svo seinna um daginn þegar ég spurði hana.  Já mér finnst það mjög merkilegt því hún er ekki vön að spurja svona hluta hvað þá muna eftir þeim, bara best í heimi.  Hún er t.d ein af systkinum sínum sem hefur verið að vakna um nótt til að kíkja í skóinn og þá er nú mikið sagt, sýna þann spenning er æðislegt.

Hin tvö eru alveg að deyja úr spenning nema hann Theodór minn vill ekki fá sveinka í heimsókn ehhe, hann verður nefnilega alveg snar og fer allur að skjálfa þegar hann birtist.  Greyjið!  Samt ætlum við að fá sveinka til okkar hingað í sveitina á Þorlák en það er nú kanski meira gert fyrir stelpurnar enda voða skotnar í honum einsog flest börn.  Æjhi það er ótrúlega gaman að sjá hvað þau eru orðin spennt, Oddný Erla mín byrjaði nú að vera spennt í byrjun des ehe og pælir mikið í pökkunum en þetta er allt að koma hjá henni Þuríði minni.  Ég verð orðið að læsa herberginu mínu svo Þuríður komist ekki þangað inn eheh einsog í fyrra kom ég að henni uppí rúmi og búin að opna nokkra pakka thíhí og vávh hvað hún var glöð hvað hún var dugleg að opna gjafirnar þannig rétt fyrir jól í fyrra var í því að pakka gjöfum aftur inn.  Dóóhh!!  Sem betur fer voru þetta bara gjafir sem við ætluðum að gefa en ekki sem þau áttu að fáWink.

Það er búið að flýta myndatökunum hjá Þuríði minni, þær áttu ekki að verða fyrr en í febrúar því henni hafði liðið svo vel og kom allt svo gott úr síðustu myndatökunum en það er búið að flýta þeim um miðjan janúar og vonandi ekki flýtt en meira.  Þeim yrði nefnilega flýtt en meira ef henni færi að líða aftur eitthvað illa eða fengi aftur svona höfuðverkjakast einsog um daginn en ég vona svo heitt og innilega ekki.

Jámm ég hef verið í litlu bloggstuði síðustu daga, ég er bara orðin svo langþreytt en fólk á ö-a erfitt með að skilja það en þá kemur mesti kvíðin og þeytan þegar vel gengur.  Þó síðustu þrjár vikur hafa verið mjög erfiðar og tekið mikið á þá er maður aðeins að geta slakað á núna en þá verður líðan manns helmingi verri.  Ég hélt að ég væri eitthvað öðruvísi en aðrar mömmu í þessum "bransa" en nei svo er ekki sem betur fer, ég hef nefnilega verið að ræða við nokkrar og þær lýsa þessu alveg eins hjá sér.  Skrýtinn heimur!  Ég er orðin algjörlega máttlaus af þreytu og kvíða en ég er að fara pakka þessu inn þó það verði erfitt en ég get, ætla og skal. 

Það hafa margir beðið mig um að senda sér myndina af mér með geislabaugnum en því miður er ég búin að vera senda nokkrum en mailið mitt höndlar ekki svona sendingar.  Annaðhvort fer myndin ekki eða hún fer 10x til sömu manneskjunnar en ég fyllti t.d. mailboxið hjá pabba af sömu myndinni ehe, mailið mitt er eitthvað að klikka allavega með svona myndir að gera þannig ég er að hugsa mig um að birta hana hérna þó ég ætlaði ekki að gera það.

Best að fara pakka þessum ömurlegu tilfinningum í kassa og herða slaufuna vel.

 


Frestun óskast

Væri alveg til í að fresta jólunum aðeins, er ekki alveg tilbúin.  Ég kemst ekki í jólaskap, er að reyna en finn ekki þennan fíling en er samt svo mikið að reyna.  Oddný Erla mín svo svakalega spennt að hálfa væri miklu meir en nóg en hin tvö kippa sér ekki mikið upp við þetta.  Þuríður Arna mín náttúrlega búin að vera hálfmeðvitundarlaus í rúmar tvær vikur en er öll að koma til en sýnir samt engan spenning kanski er ég að bíða eftir honum og vonandi kemur hann hjá henni.  Er að reyna ræða við hana um pakkana sem hún fær, góða matinn sem hún fær, hitta alla í fjölskyldunni en hún kippir sér ekkert upp við þetta og manni finnst það er svo erfitt.  Enda er kanski margt annað mikilvægara en allt þetta bara að henni fari að batna og líði sem best og það væri besta jólagjöfin. 

Hún byrjaði alltíeinu að borða í gærdag sem var æðislegt og er aðeins hressari en síðustu vikur sem er ennþá betra, erum að fara með hana í tjekk uppá spítala á morgun og vonandi er hún farin að þyngjast þó ég hafi litla trú á því bara að hún hafi ekkert lést svo það þurfi ekki að pína hana meira.  Hún er að sjálfsögðu ekki með mikla orku en hún er að koma, ég trúi ekki öðru.  Fór meira að segja í leikskólann í dag sem hún hefur ekkert gert mjööööög lengi og ég held að það hafi hresst hana aðeins meira.

Shit hvað þetta tekur á, hvað maður er máttlaus, sársaukinn er svo mikill, hjartað slær tífalt meira en venjulega, kvíðin verður ennþá meiri og hnúturinn í maganum ennþá stærri.  Ég hef aldrei verið jafn hrædd einsog ég hef verið síðustu daga, bwaaah!  Hnúturinn stækkar og stækkar.  Verð viðkvæmari með hverjum deginum, þarf lítið til.  Andskotans ljóti kúkalabbi.

Þuríður mín kvaldist dáltið í gær, hún fékk mjög slæman hausverk og grét af sársauka.  Fékk verkjastillandi og það dugði frameftir degi eða þanga til seinni partinn þá byrjaði sársaukinn aftur og aftur byrjaði hún að þjást og grét ennþá meira.  Þegar maður sér þessar kvalir hjá henni þá vitum við að hún finnur virkilega til því það þarf mikið til, hún þolir endalaust mikið. Andskotans!

Vorum að panta sveinka til að koma til okkar á Þorlák eða öll jarðhæðin hérna í sveitinni (í blokkinni minni) og ég veit að það mun slá í gegn.  Stuð stuð stuð!

Verð annars að nefna það en við vorum að skoða myndir frá jólaballi sem við fórum í á laugardaginn og þar var ein mynd af mér dansandi með krökkunum sem er kanski ekki frásögufærandi nema þegar við vorum að skoða myndina betur þá er rosalegur geislabaugur yfir mér á myndinni.  Vávh hvað þetta var sérstakt.  Þetta var engin skuggi á myndinni eða neitt svoleiðis það var bara einsog að það væri eitthvað yfir mér, mjög sérstakt.  Ég ætla ekki að setja þessa mynd inn hérna en ef einhverjum langar að sjá hana get ég sent hana, mjööööög sérstakt.

Púúúffh borðaði svo góðan kvöldmat er ennþá svo södd.  Anna Lilja vinkona mín kom og eldaði handa okkur þessa dýrindis Mexíkönskusúpu handa okkur, vávh hvað hún var góð(á meira að segja afgang fyrir okkur á morgun, ekki verra).  Slurp slurp.  En ég á svo svakalega góðar vinkonur sem koma annað slagið til okkar og elda dýrindis máltíðir handa okkur. 

Myndir frá jólaballinu á laugardaginn:

PC158220
Þuríður mín nýklippt og flott að knúsa sveinka sinn, mikið var hún glöð að hitta hann enda klikkaður sveinki sem var veltandi um öll gólf og Þuríður mín skellihló af honum eheh.

PC158229
Oddný Erla mín gaf sveinka koss fyrir nammipokann.

PC158163
Theodór minn var bara kúl á því með dudduna sína.


Þessi ljóti krabbi kúkalabbi

Fékk leiðinlegar fréttir á föstudaginn, enn ein hetjan tapaði baráttunni sinni.  Hriklega er erfitt að lifa í þessum heimi.  Elsku Eva og Alfreð hugsa mikið til ykkar þessa dagana, ótrúlega erfitt að heyra fréttirnar af hetjunni ykkar.  Knús til ykkar beggja.

Ætlaði að blogga alveg heilan helling en er dottin úr gírnum, finnst þessi heimur svo hrikalega erfiður og hvað hann hefur tekið alltof marga einstaklinga frá okkur.

Langar samt að óska Ólöf Ingu (mágkonu) og fjölskyldu til hamingju með nafnið á litla drengnum en hann var nefndur Guðbrandur Ingi sem sagt tengdapabbi fékk nafna (en Inga nafnið er í höfuð á móðirinni) og var hann ótrúlega stolltur en ekki hvað? 

Sindri Snær frændi uppáhald á þessu heimili á líka afmæli í dag, 14 ára gaurinn.  Til hamingju með daginn elsku Sindri Snær okkar, kíkjum á eftir í heimsókn til að ath hvort það verði ekki eitthvað ætt á boðstólnumW00t

Knús til ykkar allra


Elsku Þvörusleikir

Viltu vera svo vænn að gefa okkur stelpunum gloss í skóinn og Theodóri Playmo.  Við ætlum að reyna vera góðir krakkar.
Þínir vinir
Þuríður Arna, Oddný Erla og Theodór Ingi.

Þetta bréf voru stelpurnar að skrifa til þvörusleikis og áttu hugmyndina sjálfar eða réttara sagt Oddný Erla mín og eru að setja í skóinn og vonandi verður sveinki að ósk þeirra. 

Höfum ekkert heyrt frá spítalanum í dag og ég er ógeðslega fúl, allir doktorarnir í fríi þar að segja okkur og þeir eru nú ekkert fáir.  Allir bara komnir í jólafrí?  Þannig við þurfum að bíða framyfir helgi eftir niðurstöðum, grrrrrr!!

Þuríður mín hefur nú borðað alveg heila kleinu í dag og frostpinna og það er nú bara aldeilis mikið hjá henni, æjhi vonandi er þetta í áttina hjá henni.  Við erum stanslaust að ota í hana mat en gengur frekar erfiðlega.  Hún er aðeins hressari en síðustu tvær vikur, hefur "bara" lagt sig tvisvar í dag sem er nú bara frekar gott.

Hey ég verð nú aðeins að minnast á einkunnir mínar en ég var að fá lokaniðurstöður rétt í þessu, trallalalala!!  Smá misskilingur með bókfærsluna ehe en ég fékk nú bara 10 í lokaeinkunn í henni thíhí! Ömurlegt eða þannig.  Í tölvum fékk ég 10, stærðfræði 9 og íslenski 6.  Bwaaahhh ég er svo hrikalega léleg í þessari íslensku sem ég var að læra að hálfa væri miklu meir en nóg þannig stefnan er kanski ekki sett í að vera ritari Bankastjóra Glitnis ehe þó hann vilji ö-a ólmur fá mig í það starf en þá þarf ég að vera betri í þessari íslensku.  Dóóóhh!!  Sendi líka mail á kelluna sem sér um brautina sem ég er á og var að ath hvort ég gæti nú kanski bætt við mig í fjármálageiranum sem mig langar að læra þegar ég verð búin með þetta sem ég er að læra eða tekið fleiri greinar á minni braut en í boði eru bara fjórar en bara svona til að flýta útskrift.  Ég er bara svo klár.  Æjhi kanski yrði það of mikið en þá veit ég líka að mér finnst gott að geta kúplað mig aðeins útur öllu og hugsað um lærdóm og ekkert annað, mér finnst gott að hafa mikið að gera og vera undir smá pressu.  Hey maður getur alltaf hætt við einhverjar greinar ef mér finndist það of mikið.

Best að fara leggjast í sófan með tærnar útí loft, jehh right einsog það sé í boði?  Kanski eftir svona klukkutíma þegar allir eru sofnaðir og þá mun ég væntanlega leggjast útaf líka er orðin hrikalega þreytt á sál og líkama.

PC117979
Stelpurnar mínar kátar í prinsessuvagninum í jólatívolíinu.


Ferðasaga í myndum og fleira

Langaði að skella inn nokkrum myndum frá ferðinni okkar:

PC117894
Þegar Þuríður mín bað um ís og þá fékk hún ís en verst að það fór ekkert uppí hana.  Hún kvartar mikið hvað hún er svöng og biður um hitt og þetta en svo fer ekkert uppí hana þegar maður er búin að finna það til sem hún biður um.  Meira að segja uppáhaldið hennar kakómalt fer ekki mikið uppí hennar munn og þá er það orðið slæmt. 

Þessi mynd var tekin í Svíþjóð en við ákváðum að skreppa þangað á þriðjudaginn, dagurinn tekin snemma og keyrt yfir til Svíþjóðar og þaðan beint í tívolíið.  Alltaf gaman að koma til Svíþjóðar.

PC117925
Við kíktum í jólatívolíið eftir Svíþjóðarferðina og eyddum hálfum degi þar.  Þarna eru fallegustu börnin mín við Rúdólf og leiðinni að hitta sveinka.

PC117953
Systurnar fengu að sjálfsögðu að hitta jólasveininn í jólatívolíinu og létu hann vita hvað þeim langaði í jólagjöf en þar kemur langur listi til sögunnar eheh.  Þuríður mín er ofsalega heit fyrir dúkkum og dúkkufötum og allt sem tengist henni Dóru langar Oddnýju minni í og auðvidað mun Sveinki láta þann draum rætast en ekki hvað?  Theodór minn var svo mikil skræfa að hann þorði ekki að tjatta við hann.

PC117962
Eitt af tækjunum sem þær fóru í og skemmtu sér konunglega, vávh hvað það var gaman að sjá hvað þær voru glaðar og meira að segja hún Þuríður mín brosti breitt á meðan þessu stóð.  Yndislegast.

PC117983
Theodór minn Ingi fékk að fara í hringekjuna og skemmti sér konunglega.  Hann er verðandi tívolíkarl einsog systur sínar ehe.

PC118042
Ætla að enda á þessari mynd af hetjunni minni henni Þuríði Örnu.  Hún er eitthvað svo hress að sjá.  Hérna er hún komin í "build a bear" búðina í tívolíinu og fékk að velja sér jólakjól á bangsann sinn sem hún var ofsalega kát með. 

Fréttir dagsins eru annars þær jú við fórum með hetjuna uppá spítala í gær og vorum svo heppin að hitta jólasveinana en rétt misstum af skemmtuninni en Þuríður mín var svakalega kát að hitta þá en ekki hvað?  Hetjan mín er búin að missa 3kg sem er svakalega mikið miða við þennan litla kropp og öll föt hanga utan á henni greyjinu.  Ömurlegt. Hún fór í blóðprufur og við fáum útur þeim í dag en það er verið að ath öll gildi hjá henni þar að segja ef hún fer ekkert að borða þá þarf hún að fá sondu og það er ekki það þægilegasta í heimi þannig maður er á fullu að pína í hana mat sem gengur ekki vel því verr og miður en hún borðaði nú samt heila vöfflu hjá mömmu sinni í gær sem er bara met í matargjöf.  Vííííí!! 

Við vorum farin að hafa áhyggjur að við værum farin að sjá lömun hjá henni (aftur) en vorum að vona að það væri bara ímyndun en svo er ö-a ekki því doktorinn hennar talaði líka um það og svo er hún farin að vera svo völt.  Hún fer samt ekki í myndatökur alveg strax því hann vill vona að þetta tengist bara slappleikanum en við vitum ekkert og erum líka ógeðslega hrædd við þetta núna.  Myndatökur verða ekki gerðar fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku en það á að ath hvernig þetta þróast allt yfir helgina og ath hvort hún fái sér ekki munnbita.  Shit hvað þetta er erfitt.

Börnin eru öll heima hjá mér núna enda ógeðslegt veður úti og þá höfum við það bara kósý hérna heima.  Þuríður mín er núna sofnuð eftir tveggja tíma vöku og sefur enn, hún vill helst bara liggja fyrir og helst að ég liggi hjá henni en því miður er það ekki alveg í boði þegar allir eru heima og allir þurfa athygli en ég geri mitt besta.

Ég vildi óska þess að við hefðum fengið einn góðan desember eftir að Þuríður mín veiktist en því miður fæ ég ekkert um þetta ráðið.  Ömurlegt.  Bara endalaus magapína hjá manni.

Í lokin langar mig að óska mágkonu minni og hennar manni hjartanlega til hamingju með litla prinsinn sinn sem kom í heiminn í gær og auðvidað fórum við Skari og kíktum á litla prinsinn sem mig langaði ekki að sleppa, oh mæ hvað hann er fallegur, mjúkur og ilmar svo vel.  Kling kling!! ehe! 

psssssssss.ssss Takk kærlega fyrir öll fallegu kommentin frá ykkur, ég er nánast orðlaus yfir þeim og svo gaman að lesa þau.  Knús til ykkar!  Takk líka fyrir öll fallegu e-mailin ykkar, veit ekki hvort ég næ að svara þeim öllum og vonandi verður mér fyrirgefið en batteríin mín eru alveg að klárast og mig langar að eyða þeim í börnin mín og mann.  Sorrý.


Myrkrið virðist endalaust

Mig langaði reyndar ekkert að setjast við tölvuna og blogga en ég gerði það nú aðallega bara fyrir ykkur sem eru að fylgjast með okkur.

Jú við komum í gærkveldi frá Koben en við ákváðum ekki fyrr en alveg á síðustu mínútunni hvort við ættum að fara eða ekki?  Þuríður mín hefur nefnilega aldrei verið svona slöpp, hún hafði bara algjörlega legið fyrir, ekki borðað bita, nánst ekkert drukkið þannig það var mjög erfið ákvörðun að ákveða hvað við ættum að gera.  En þar sem hún var búin að vera hitalaus í þrjá daga ákváðum við að skella okkur, ö-a best fyrir alla að komast aðeins í burtu og reyna skemmta okkur saman.

Við áttum æðislega stund í Koben, nenni reyndar ekki að skrifa ferðasöguna í augnablikinu þar sem mig langar ekkert sérstaklega mikið að vera hérna í tölvunni.  Þuríður mín hefði reyndar mátt vera hressari en hún sat aðallega í kerrunni sinni en orkaði nú samt að fara í nokkur tæki í tívolíinu og setjast hjá sveinka og segja honum hvað henni langaði mest í jólagjöf.

Æjhi það er mjög þungt yfir mér þessa dagana, ótrúlega viðkvæm og mjög hrædd.  Ég hef aldrei verið jafn hrædd einsog þessa dagana að það sé eitthvað slæmt að ske hjá Þuríði minni því ég veit ef það er eitthvað að ske hjá henni þá þarf mikið kraftaverk.  Þetta er hrikalega erfitt, úffh ég sé varla tölvuna núna fyrir tárum.

Hetjunni minni er búið að líða mjög illa síðustu tvær vikur, hún hefur ekki haft okru í neitt, algjörlega legið fyrir og einsog ég sagði hefur nánast ekkert borðað í tvær vikur enda lítur hún núna út einsog anorexíusjúklingur.  Hún hefur litla krafta í líkamanum enda hver hefði mikla krafta ef maður borðar ekkert?  Ö-a engin?  Við áttum að mæta með hana í morgun uppá spítala en því miður varð að fresta því til tvö í dag þannig hún verður bara orkulaus þanga til en ég veit ekki alveg hvað þeir eru að spá að gera fyrir hana?  Gefa henni mat í gegnum sondu?  Næringu í æð?  Við vitum það ekki en eitt er víst að það verður eitthvað að gera fyrir hana.  Er að reyna troða í hana mat, vatni en það gengur nánast ekkert.  Hún reyndar fékk nokkur snökk í gærkveldi og þá var hrópað húrra en við leyfum henni að borða ALLT sem henni langar í  en verst að það er mjög lítið. 

Hetjan mín er heima hjá mér, leyfði henni að heilsa aðeins uppá þær í leikskólanum og þá komu nú nokkur bros hjá minni en hún hefur ekki mikið verið að brosa þessa dagana enda bara sofið útí eitt.  Svefninn hefur nú minnkað hjá henni, farin að vaka meira sem sagt. 

Æjhi þetta er orðið ansi lengra en ég ætlaði mér, ég skelf hérna við tölvuna, ég er svo hrædd, ég vissi ekki að það væri hægt að vera svona hrædd.  Ég meina ef ég hef einhverntíman verið hrædd í þessari veikindasúpu þá er það núna.  Ég sef ekki neitt enda langar mig ekki að sofa, mig langar bara að halda fast utan um hetjuna mína og láta henni líða betur sem vonandi er að gerast núna eða allavega þegar hún fær einhverja næringu í litla kroppinn sinn.

Farin að knúsa hana, ætla leggjast uppí rúm til hennar og horfa á nýju hákarlamyndina sína sem hún fékk að velja í fríhöfninni í gær.


Mér er illt í hjartanu

Ég hef ekki þorað að viðurkenna það alla síðustu viku hvað ég væri hrædd og núna er ég ennþá hræddari og verð hræddari með hverjum deginum sem líður.   Þuríður mín Arna er mjög slöpp, engin hiti eða neitt þannig en hún kvartar mikið hvað hún sé svöng en vilji samt ekkert borða því hún þarf að gubba.  Hún hefur legið alfarið fyrir í níu daga en í nokkra daga af þeim hefur hún verið með hita en ekki núna eða síðan á fimmtudag, hún sefur mjög mikið og kvartar dáltið hvað hún sé þreytt og við vitum hvað það merkir þegar hetjan mín kvartar undan einhverju því þá líður henni virkilega illa.  Gvuuuð hvað ég þoli ekki desember, ég hélt að við fengjum góðan desember þetta árið en það höfum við aldrei fengið síðan hún veiktist.  Ömurlegt!  Ég sem hef alltaf elskað þennan mánuði enda mikið jólabarn eða öll fjölskyldan, það er svo gaman að sjá hvað krakkarnir eru mikil jólabörn reyndar er Oddný mín Erla sem talar mest um jólin á heimilinu og er svakalega spennt að fá pakka, fara á jólaböll og þess háttar. 

Ohh hvað ég vildi að ég væri glöð í hjartanu og liði ekki svona illa en ég finn alveg hvað krafturinn er að sogast úr mér, að horfa uppá hana Þuríði mína svona er hrikalega erfitt.  Erfiðast í heimi.  Núna er þessi tími sem mig langar að leggjast í gólfi, sparka fótum og grenja úr mér augun.  Afhverju þarf lífið hennar að vera svona erfitt, afhverju þarf hún að þjást svona, afhverju getur hún ekki verið heilbrigð.  Hún má alveg vera ofvirk, hvatvís þannig það þurfi að hafa fyrir henni en ekki með þennan illvíga sjúkdóm.  Aaaaaaaaaaaaaaaaaaargghhh!!

Rétt í þessu var hetjan mín að vakna af einum dúrnum sínum og það fyrsta sem hún sagði við mig "mamma ég er þreytt", mikið svakalega hlýtur henni að líða illa eða vera mikið þreytt enda leggur hún sig oft á dag.  Váávhh hvað þetta er erfitt.  Mig langar að taka eitthvað á mig, afhverju get ég ekki fengið hluta af þessari þreytu, mér er alveg sama þó ég sofi bara þegar ég er orðin gömul ef það myndi hjálpa henni eitthvað?  Afhverju valdi hann hana?  Ekki misskilja mig, ég hefði ekki viljað að hann hefði valið einhvern annan þó það væri minn versti óvinur.  Þá á ekki að leggja svona á neinn, EKKI NEINN.  Shit ég er alveg farin að skelfa.

Við ætlum að hringja í hjúkkuna okkar á eftir og segja henni frá stöðu mála, ef hún verður svona þegar við komum heim frá Koben þar að segja ef við fáum leyfi að fara út þá ætlum við að heimta myndatökur því við höfum áhyggjur að þar er eitthvað að ske?  Við erum ofsalega hrædd við það.  Þó hún sé svona slöpp langar mig ofsalega að fara með börnin mín út og ath hvort hún myndi ekki hressast við að sjá sveinka vin sinn, sjá öll jólaljósin í Koben, kíkja í nokkur tívolítæki og knúsast með okkur fjölskyldunni.  Stundum finnst manni líka að við séum að renna út á tíma, æjhi það er þegar henni líður svona og maður verður hræddur og þá vill maður nýta hvern dag alveg uppí topp.

Við píndum mat í hana í gær, héldum henni (þannig séð) og hún borðaði smá sérstaklega því hún var að borða fyrir Lindu sína, Skarphéðinn sinn og strákana sína(uppáhaldin hennar).  Annars er ofsalega erfitt að koma í hana mat en við erum "heppin" að hún drekkur þó mikið vatn, hún er þá allavega ekki á meðan að þorna upp.

Jú við Skari kíktum á jólahlaðborðið á Nordicca í gær og það var ofsalega gaman.  Slurp hvað forrétturinn var góður en ég var orðin svo pakk af honum að ég gat ekki fengið aðalréttinn og eftirréttinn eheh.  Ég elska þetta pate, síldina, laxinn en mér fannst samt vanta súpuna eheh, finnst nefnilega svona veitingastaðasúpur æðislegar.  Það myndi duga mér ef ég væri að fara útað borða að fá bara súpu þá sérstaklega humarsúpu, mmmmmm!

Haldiði það sé að meðaleinkunnin mín sé komin í 9,47, trallalala!!  Ég gæti talað endalaust mikið um skólann og einkunnir mínar því ég hef ALDREI fengið svona góðar einkunnir, það þarf greinilega að vera álag á minni þannig mín meikið það í skólanum þó ég vildi óska þess að líf mitt væri aðeins öðruvísi.  Að ég væri ekki að lifa í þessum veikindaheimi, sem er erfiðast í heimi.  Ég vildi óska þess að ég væri bara að pirra mig á því hvað börnin mín væru hrikalega oft veik og bossinn minn orðin langþreyttur á mér útaf því, en ég fæ víst ekkert um það ráðið.

Ég er ekki vön að biðja um mikið en mig langar að biðja ykkur um að kveikja á kerti fyrir hetjuna mína og leggjast á bæn og vona að hún rífi sig uppúr þessu og þetta sé ekkert alvarlegt.  Ég trúi því að samanlagðar sálir geti einhverju breytt.

Var næstum því búin að gleyma að segja ykkur frá því þegar við sögðum krökkunum í gærkveldi að við værum að fara í flugvélina og kíkja í jólatívolí eheh.  Þuríður Arna mín er svo slöpp að hún kipti sér lítið við það en Oddný Erla mín öskraði af kæti svona án gríns þá gjörsamlega öskraði hún og litli pungsi minn hann Theodór Ingi hermdi eftir henni ehe en hann er farin að herma eftir henni í öllu. Núna er Oddný mín alltaf að spurja hvort við séum ekki að fara í tívolí, æjhi snúllan mín hrædd um að við séum að hætta við því hún heyrir okkur náttúrlega á tjattinu um þetta allt saman. Vonandi ekki samt.

Takk fyrir mig í dag en hetjan mín er að kvarta hérna þannig ég ætla að sinna henni en þið vitið ekki hvað ég er heppin hvað hin eru svo hrikalega góð og dugleg að leika sér, þarf að hafa lítið fyrir þeim þó Oddný mín þurfi sína athygli og sakni stundum stundanna með mömmu sinni en þá eru þau svo meðfærileg og æðisleg. 

Farin að knúsa börnin mín.


Hún bað um kók og nammi :)

Það er nú ekki oft fagnaðarefni að barnið manns biður um kók og nammi en það var það hjá mér þegar hetjan mín bað um kók og nammi í gærkveldi og hún var ekki lengi að fá það.  Þuríður mín er ekki þessi nammi týpa eða mikið fyrir að setja gos inn fyrir sínar varir, þessa vikuna vildi ég óska þess að hún væri einsog systkinin sín sem elska allt sætt ehe.  Ég hef reynt að bjóða henni ALLT svo hún borði bara eitthvað en ekkert hefur hún viljað borða alla vikuna nema drukkið vatn og kakómalt.  Múttan mín kom færandi hendi í gærkveldi en hún kom með steiktan fisk handa hetjunni minni og ákvað að mata hana því hún neitar frekar mér heldur en ömmu sinni.  Hetjan mín borðandi smá sem var æði og svo um kvöldið kókglas og hraunbita, vííííí!!  Hún er líka algjörlega kraftalaus, sefur einsog ungabarn en einsog í gær tók hún sér fjóra dúra yfir daginn sem eru allir sirka 1-2 tímar og það er ekkert skrýtið að hún sé kraftalaus þegar hún borðar ekki neitt og er á öllum þessum lyfjum á móti.  Aaaargghh!!  Hún er t.d. búin að léttast um hálft kg þessa vikuna og það er mikið miða við 18kg kropp, ég er líka farin að sjá beinin standa út á bakinu hennar.Undecided  En hey ég held að hún sé að koma til, hún er allavega búin að vera hitalaus þó hún sé orkulítil en hver væri það ekki?  Þannig stefnan er tekin í jólatívolíið ekki á morgun heldur hinn þökk sé leynigestunumW00t. Krakkarnir vita ekkert og fá ekkert að vita fyrr en á morgun og gvuuuð hvað ég get ekki beðið með að segja þeim þetta sérstaklega prinsessunum mínum því litli pungur hefur ekki eins mikið vit.

Haldiði ekki að okkur Skara var boðið í annað jólahlaðborð í kvöld sem við að sjálfsögðu komumst ekki í því við vorum búin að ákveða annað.  En gamli vinnustaðurinn minn sem ég vann allar mínar aukavinnur TBR bíður okkur alltaf til sín hver jól þó ég sé ekkert að vinna þar útaf Þuríði minni annars væri ég þar ö-a reglulega.  Þykir ofsalega vænt um það og það er líka alltaf svo gaman þar.  En gamli bossinn minn hringdi í mig á fimmtudag til að ath hvort ég hefði ekki fengið boðskortið en neinei ég hafði ekkert boðskort fengið.  Vitiði afhverju?  Jú því helvítis póstburðarmaðurinn sem á að vera bera út hérna í sveita er hættur að bera hingað út og ég held að sitji bara heima hjá og lesi alla launaseðla, euroreikningana, Séð og heyrt blöðin allra hérna, æðislegt.  Ég er ógislega vond útí þennan póstburðamann sem tekur að sér vinnu en nennir svo ekki að sinna henni og hendir, póstinum eitthvað.(er ekki alveg að fatta?)  Hvernig er hægt að hafa það á samviskunni?  Ég er allavega ekki búin að fá póst í viku og svo hef ég bara verið að fá hann svona einu sinni og einu sinni.  Ég veit ekki alveg hvað þeir ætla að gera hjá póstþjónustinni, þeir geta ö-a ekki reddað okkur öllum glötuðum pósti? Eru þeir tryggðir fyrir svona?  Hvernig þá?  Hvernig get ég treyst því að fá öll jólakortin mín?  Vonandi eru þið ekki búin að senda okkur jólakort því þá erum við ekki búin að fá þau nema eitt sem fannst á ganginum í blokkinni sem nágrannakona mín fann.  Djöh er ég reið.

Verð víst að þjóta, Þuríður mín að kvarta undan ógleði og segist þurfa að gubba.  Þessi ljótu krabbakúkalabba lyf sem er eins gott að þau geri sitt fyrir hana.

FARIN.


Fyrsta hitalausa nóttin :)

ToungeNóttin í nótt hefur verið sú besta hingað til eða í viku.  Þuríður mín svaf uppí hjá okkur í nótt einsog síðustu nætur bara svo maður geti fylgst með henni, hún svaf ofsalega vel í nótt sem er sú fyrsta ásamt engum hita.  Very nice!!  Aftur á móti svaf ég ekkert því ég var alltaf að ath með hana, hvort það væri ekki alltíkei, var hún heit, þarf ég að pústa hana, gefa henni vatn að drekka,gefa stíl og þess háttar en ekkert þurfti ég að gera nema liggja sem fastast uppað henni.Sleeping  En þetta var allt tilbúið á rúmstokknum fyrir hana.

Hetjan mín er vakandi núna og búin að vera vakandi í næstum tvo tíma sem er eiginlega met en annars sefur hún nánast allan daginn því hún er svo slöpp.  Mér finnst kanski heldur ekkert skrýtið að hún sé svona slöpp, hún er ekkert búin að borða í viku fyrirutan kjötbollurnar í fyrradag.  Það er alveg sama hvað ég bíð henni ís, nammi, kex, jógúrt en ekkert vill hún því verr og miður svo er hún líka komin á enn ein lyfin.  Núna eru það sýklalyf til að koma í veg fyrir lungabólgu og svo fær hún á fullu púst (astmalyfin sín) þannig það er mikið lagt á þennan litla kropp sem er að léttast og léttast.  Aaargghhh!!  Vonandi er hún að rífa sig uppúr þessu, krossa alla putta og tær.

Jeij ég fékk að setja eitthvað annað í tækið en Latabæ eða Skoppu og Skrítlu en það er ágætt að hvíla sig aðeins á þeim, púúúffhhh!!  En ég og Oddný Erla mín (múttan mín líka) kíktum í kringluna í gærkveldi en mig vantar einhverjar tuskur á mig en auðvidað finnur maður aldrei neitt þegar manni sárvantar eitthvað, þoli ekki að skoða á mig föt því ég veit að ég finn hvorteðer aldrei neitt á mig.  Bwaahh!!  Við kíktum við í Skífunni keyptum eina gjöf handa hetjunni minni en það var eiginlega fyrir mig eheh því mig vantaði eitthvað nýtt í dvd-spilarann þannig við keyptum handa henni þriðja uppáhaldið Simpson sem hún er að horfa á núna.W00t (elska þessa fígúru)

Þuríður mín er ennþá mjög slöpp en er hitalaus allavega í augnablikinu og í nótt og þá líður manni strax betur annars tekur þetta ofsalega á taugarnar og dregur mann mikið niður.  Um leið og hún verður eitthvað slöpp slappast maður sjálfur niður, hrikalega erfitt. 

Er búin að fá þrjár einkunnir af fjórum, trallalala!!  Segi ykkur þær þegar sú fjórða kemur í höfn, vííí!! Ég veit allavega núna hvar börnin mín fá þessar gáfur sem þau hafa, ég hef oft verið að reyna finna það út og farið langt aftur í ættir en aldrei fundið neinn svona gáfaðan einsog þau en núna hef ég loksins fundið manneskjuna, MIG.Whistling

Ég verð að segja ykkur frá smá samtali sem ég átti við Oddnýju Erlu mína í fyrradag:

Oddný: mamma hvenær ætlar þú að fá litla stelpu?
Ég: ha! Litla stelpu, hvað meinaru?
Oddný: fá svona stóra kúlu einsog Ólöf Inga.  (sem er mágkona mín og á að eiga núna þann 14.des)
Ég: ég veit það ekki, einhverntíman seinna.
Oddný:  kanski núna um jólin?
Ég: nei seinna
Oddný: en hvað eigum við að gera við Theodór þegar við fáum litlu stelpuna?
Ég: eheh hvað eigum við að gera við hann, nú hann verður áfram hjá okkur.
Oddný: ok, ég ætla þá að passa hana svo hann meiði hana ekki og hún má sko leika sér í dótinu mínu.

Þar var samtalinu lokið, þvílíkar pælingar hjá þriggja ára gömlu barni, hvernig ætli hún verði þegar hún verði eldri.  Ef ég verð ö-a komin á endanum með tíu kríli á heimilið ehe.

Við Skari erum hætt við að fara í Bláa lónið á morgun, viljum ekki fara frá hetjunni okkar svona veikri en við gerum það bara seinna.  Okkar tími mun koma.  En ætlum samt að fara í jólahlaðborðið sem ég er búin að bíða eftir síðan ég pantaði það í september, slurp slurp!!  Þegar ég fer í jólahlaðborð þá get ég bara borðað forréttinn, ég elska hann.  Ég þarf ekki aðalréttinn né eftirréttinn, hitt dugar mér og borðað mikið af því.  Kanski ég sleppi bara öllu nema forréttinum eheh, mmmmm! Ég get alltaf fengið læri, ís eða eitthvað en ekki hitt.  Oh mæ god hvað ég hlakka til.  En okkur er svo boðið á tónleikana hans Bjögga á sunnudagskvöldið þannig það er alveg mikið að gera og maður verður víst að reyna velja og hafna sérstaklega þegar staðan er svona á heimilinu.  En einsog einn bloggvinur minn sagði í færslunni hérna fyrir neðan:

Ég áttaði mig á því MÉR TIL SKELFINGAR að ég fór að hugsa. Hvernig getur HÚN farið út að skemmta sér og barnið hennar svona veikt. Ég varð svo reið útí sjálfa mig fyrir þessa hugsun og verð að játa það að gamla hugarfarið er lífseigt og ég verð virkilega að passa mig. 

Mér fannst ofsalega gott að hún viðurkenndi hvernig hún hugsaði fyrst en breytti svo þeim hætti en það er samt þessi hugsunarháttu hjá fólki sem fer ofsalega í mig því við foreldrar veikra barna getum ekki hætt að lifa lífinu því barnið okkar er veikt.  Við þurfum alveg jafn mikið á því að halda að skreppa út og gera eitthvað fyrir okkur, hvernig eigum við að geta sinnt veika einstaklingnum ef við getum ekki sinnt okkur?  Það er mikið af skilnuðum hjá fólki í okkar stöðu og ég er alltaf að heyra um fleiri og fleiri því verr og miður en ég skil þessa foreldra líka sem eru að skilja, það eru ekki allir sem höndla þetta og auðvidað verður maður sjálfur hræddur um að lenda í þessari stöðu en þá verður  maður á móti að vera dugleg að gera eitthvað saman sem fólk er ekki nógu duglegt við.  Við erum hrædd við að fara frá veika barninu en einsog við Skari erum við ofsalega heppin með fólkið í kringum okkur sem er alltaf tilbúið að koma og aðstoða okkur með pössun en þá er maður samt ekki nógu dugleg að nýta það því verr og miður því manni líður illa að fara frá sérstaklega Þuríði minni sem þarf á okkur að halda en verður samt ekkert meint af að fá ömmu, afa eða Lindu frænku í heimsókn.  En svo aftur á móti fer það líka ofsalega í mig þegar fólk er að tauta við mig, aldrei förum við neitt (eiga heilbrigð börn) en þið eruð alltaf að fá pössun sem við gerum kanski einu sinni í mánuði (mesta lagi) reyndar aðeins meira í des og skammast mín ekkert fyrir það.  Við þurfum á þessu að halda.  Takk fyrir.  Samt ekkert beint til þín Fríða mínSideways, fannst mjög gott það sem þú skrifaðir og viðurkenndir hvernig þú hugsaðir.

Jæja dúllan mín sofnuð og þetta orðin alltof lööööng færsla, kerran hennar Þuríðar minnar reddí.  Takk hálpartækjastofnun eða kanski réttara sagt konan sem sá um þetta fyrir okkur, góð þjónusta.

Eigið góða helgi, ég ætla allavega að reyna eiga góða helgi og skemmta mér að borða forréttinn á norddicca.

Ciao


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband