Færsluflokkur: Bloggar
26.1.2007 | 09:37
Bréf frá þessum "þarna" upp
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2007 | 09:14
Upp og niður
Ég hef ekki þorað að blogga um ástand Þuríðar minnar síðustu daga því ég hef verið svo hrædd um að það myndi breytast um leið og myndi skrifa um það. Jú síðustu daga hefur Þuríði minni liðið alveg súpervel, hún hefur verið svo hress og kát að hálfa væri nóg. Hláturinn í henni sem ég hef ekki heyrt í svona langan tíma þar að segja bara allan daginn, síkát og hress allan daginn. Alveg yndislegt!! Hún hafði ekki krampað síðan á Flórída þegar hún fékk 30+ krampa hrinuna en svo kom það í gær um miðjan dag byrjaði hún að krampa og fékk ég veitiggi hvað marga krampa því ég var ekki að telja finnst það líka aukaatriði. Þannig hún var frekar slöpp og þreytt þegar hún mætti í leikskólann í morgun, hefði kanski átt að leyfa henni að sofa út greyjinu en ég veit líka að hún fær alltaf að leggja sig á leikskólanum fæ samt samviskubit.
Við vorum annars á fundi með læknunum á miðvikudaginn og við fengum að vita það að Þuríður mín fer í myndatökur um miðjan febrúar til að ath allan status. Ég er strax orðin stressuð en samt svo ánægð að hún fær að fara í þessar myndatökur því þeir hafa alltaf sagt við okkur að það færi allt eftir statusnum á henni hvort hún fengi að fara í myndatökur eðurei þannig þeir hljóta að finnast henni líða vel.
Þó Þuríði minni hefur liðið vel síðustu daga þá er eitthvað ekki að virka hjá mér, mér finnst ég vera með allan varan á. Ég er að reyna bara að hugsa um einn dag í einu en bara get það ekki, ég hugsa of mikið um framtíðina EF. Mér finnst það doltið óþægileg, erfið og sár hugsun því Þuríður mín á svo marga drauma, þessa dagana talar hún ekki um annað að henni langi að fara í skólann að læra og Linda eigi að kenna henni og þann draum hennar langar mig að láta rætast. Henni dreymir líka um að fara æfa fótbolta, ekki spurja afhverju því ég er löngu hætt í boltanum henni ætti frekar að langa fara æfa sund eða badminton vegna foreldrana en svo er ekki það kemur ekkert annað til greina en fótbolti. Þannig ég ætla að fara ath hvernig er með svona litla stelpur og fótbolta, getur hún farið að "æfa" einhversstaðar?
Núna ætla ég fara reyna hugsa um einn dag í einu en ekki EF, ég er bara svo hrædd við þetta allt saman, hrædd um að missa barnið mitt sem ég ætla mér ekki að gera. Ég ætla að láta alla hennar og hinna tveggja drauma ræstast, hún getur hún ætlar og hún skal vinna þetta stríð. Ég veit um eitt kraftaverk einsog Þuríður mín er að berjast við og ég lifi á því kraftaverki, þá var ekki árs gamalli að mig minnir stelpu gefnir nokkrir mánuðir ólifað en í dag er þessi stelpa 9 ára hress og kát.
Helgin framundan, fjölskyldukvöld í kvöld en við höfðum alltaf "partý" þegar idol var þá var keyptur ís og snakk þannig ætlum við líka að hafa það á x-faxtor kvöldum en þeim finnst það geggjaðslega gaman. Þannig það verður stuð í "sveitinni" í kvöld.
Góða helgi kæru lesendur og verið góð við hvort annað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2007 | 09:29
Lífið ósanngjarnt
Ég frétti í gær að litli frændi Óskars sem er jafn gamall Oddnýju minni var að greinast aftur með krabbamein og fer að sjálfsögðu strax í harða lyfjameðferð. Drengurinn bara rétt að verða þriggja ára og er aftur að greinast einsog maður hélt að þetta væri á uppleið og svo kemur þetta bakslag. Lífið er ótrúlega ósanngjarnt!! Mig langar að senda knús til ykkar allra sem tengjast honum, veit að þið lesið síðuna mínaog vonandi verður hann fljótur að jafna sig enda hörkutól þessi drengur einsog hann hefur sýnt og sannað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.1.2007 | 09:21
Blebleble
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.1.2007 | 09:40
Elsku Theodór minn!!
Í dag kl 10:23 er nákvæmlega ár síðan hann Theodór minn Ingi kom í þennan heim, litla ljósið okkar á sem sagt eins árs afmæli í dag. Elsku Theodór okkar hjartanlega hamingjuóskir með daginn, þú hefur hjálpað okkur heilmikið í veikindum hennar Þuríðar okkar þótt þú vitir ekki af því ásamt henni Oddnýju Erlu. Knús og kossar til þín
Annars hafa margir verið að spurja okkur hvert næsta skref er hjá henni Þuríði okkar? Stórt er spurt en fátt er um svör. Hún kláraði geislameðferðina sína föstudeginum fyrir jól og eftir það er bara bið jú einsog það hefur verið síðustu rúm tvö ár, andskotans helvítis en ég held að ég sé komin með ofnæmi fyrir biðum. Núna verður bara séð hvernig hún mun taka geisalmeðferðinni, ef hún heldur sé "góðri" næstu vikur/mánuði þá fer hún aftur í myndatökur í feb/mars til að ath hvernig æxlinu "líður" en ef henni versnar þá vita læknarnir hvað er í vændum og þá er óþarfi fyrir myndatökur.
Um jólin hitti ég yndislega fjölskyldu en húsbóndinn á heimilinu greindist með æxli í höfði í maí síðastliðin, jákvæðasta og hressasta fjölskylda sem ég hef hitt sem er að kljást við svona erfitt verkefni. Þau búa í Ameríkunni sem besta læknaliðið er sem ég vildi óska þess að ég ætti svo mikið af peningum að ég gæti bara "búið" þar til að reyna hjálpa Þuríði minni. Við fengum allavega að vita frá þeim hvernig læknarnir vinna þarna úti en það eru sko engar biðir eisnog hérna heima, hér erum við ALLTAF að bíða og sú bið er ekki hætt en þarna úti er ekkert sem kallast "bið".
Einsog t.d þegar Þuríður mín fékk sitt flogakast sem voru reyndar nokkur í röð fórum við með hana uppá Barnadeild og þar vorum við bara send heim með lyfseðil fyrir flogaköstunum og okkur tilkynnt að þetta væri nú ö-a "bara" störuflog sem myndi eldast af henni og þyrftum engar áhyggjur að hafa. Að sjálfsögðu trúðum við læknunum þar en svona voru ekki vinnubrögðin í Ameríkunni þegar þú færð einhver svona köst þar þá er allt ath og það hlýtur annahvort að vera blæðing í heila eða heilaæxli og það er STRAX ath en ekki beðið til að sjá hvort þetta lagist ekki. Aaargghh!!
Þuríði minni versnaði líka þessa nótt og var að krampa á nokkra mínútna fresti og þegar við mættum með hana daginn eftir uppá spítala sem hún fékk sinn stærsta krampa ever og þá fannst mér hjartað hafa verið fyrst kippt úr mér. Strax dópuð niður og loksins voru myndatökur teknar af henni og fyrst héldu læknarnir að það væri blæðing hjá henni en svo kom annað í ljós? Okkur var sagt að hún væri með einhverjar blöðrur í heilanum, tvær blöðrur? Ok það var nú ekki það versta sem gæti komið fyrir barnið sitt hugsaði maður en afhverju sögðu læknarnir blöðrur við okkur þegar voru "ekki" blöðrur? Það var einsog þeir hefðu verið að tala í kringum hlutina og ekki viljað segja okkur allan sannleikan, ég veit það ekki og hef reyndar aldrei spurt því mér brá svona líka þegar einn læknirinn kom og skoðaði Þuríði mína og það var svona viku eða tveim vikum eftir að þessar svo kölluðu blöðrur greindust hjá henni að þessi læknir sagði orðið "æxli". Ég hef ekki ennþá jafnað mig eftir þá fréttir en skil samt heldur ekki afhverju þeir segja manni ekki ALLAN sannleikan strax? Hvað er málið? Kanski eru blöðrur eitthvað læknamál yfir æxli en bara fallegra orð hjá þeim sem við eigum að skilja? Ég hef aldrei lært lækninn og afhverju ætti ég þá að skilja það?
Þó ég sé ótrúlega ánægð með okkar lækna hér á spítalanum þá er margt sem ég er ekki ánægð með ekki þá þeirra vinnubrögð heldur vinnubrögðunum á sjálfum spítalanum. Afhverju er fólk látið bíða svona? Kanski eru þetta læknarnir sjálfir ég veit það ekki, ég ætla ekkert að fara kenna einhverjum einum um þessar biðir þó ég ótrúlega ósátt og gæti gargað útí þetta kerfi. Hver ræður þessu? Afhverju er verið að leggja svona á fólk? Ohh, aaargh!! gaarghh!!
Afmælisbarnið kallar og svo ætla ég líka að hætta áður en ég fer að segja eitthvað sem ég á ekki að segja.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
22.1.2007 | 22:27
Bloggvinir?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.1.2007 | 10:50
Nokkrum árum síðar...
Þegar Þuríður mín Arna var nokkra mánaða eða var hún kanski orðin árs gömul æjhi ég man það ekki heldur ekkert svo mikilvægt að muna en allavega þá ákvað ég að opna síðu á Barnalandi. Síðan var ætluð vinum og ættingjum sem gætu fylgst með vexti og þroska Þuríðar minnar og var hún opin öllum enda fannst mér heldur ekkert svo nauðsynlegt að loka henni, ég hafði ekkert merkilegt að segja og svo voru bara fallegar myndir af fallegasta barninu og hélt heldur ekkert að fólk sem þekkti ekkert barnið væri að lesa eða skoða myndir. Ég hafði sjálf engan áhuga að lesa síður annarra þar að segja hjá fólki sem ég þekkti ekkert og hvað þá að skoða myndir af börnum þeirra, sá bara engan tilgang með þeirri forvitni.
Einhverju síðar ákvað ég að opna mína eigin bloggsíðu bara af forvitni og svo var ég kanski líka að herma eftir Katrínu vinkonu www.katrin.is sem fékk og ö-a fær gífurlega mikla athygli með síðuna sína enda segir hún allt sem henni dettur í hug eheh. Ég hafði heldur ekkert merkilegt að segja á þeirri síðu, var bara að tala um hvað ég væri að gera og þess háttar. Hafði engar ákveðnar skoðanir á einhverjum hlutum eða myndaði mér engar skoðanir, var bara að leika mér af forvitni. Fannst þetta bara gaman og það voru kanski mesta lagi 40manns sem komu á síðuna mína á dag sem mér fannst nú eiginlega bara geggjað þar sem þetta voru bara vinir og ættingjar sem voru að forvitnast um okkur fjölskylduna.
Svo líða árin ég er ennþá með heimasíðu en tilgangurinn er ekki lengur þá sami, það er að koma 2000manns inná heimasíðuna mína á dag og afhverju skyldi það vera? (ég veit alveg afhverju) 64% ykkar þekkja mig ekki hin prósentin þekkja mig eða rétt kannast við mig, aðal málið er að fylgjast með Þuríði minni sem mig þykir ótrúlega vænt um en samt doltið óþægilegt. Finnst alltof mikill fjöldi sem kemur á síðuna mína ég þekki ekki meira en helminginn, stundum finnst ég eiginlega að vera pína mig til að skrifa hérna bara til að halda ykkur við efnið þótt ég hafi ekkert að segja og ég hafi engan áhuga að skrifa. Fólk kvartar þó ég þekki það ekki neitt ef ég skrifa ekkert, finnst alltílagi ef mitt fólk kvartar sérstaklega ef það býr faraway því mér finnst líka gott að hafa símann ekki á fullu allan daginn og alllir að spurja um líðan hennar Þuríðar minnar. Þó mér finnist gott að tala um veikindin hennar sem hjálpar mér endalaust mikið hvað þá að geta skrifað hérna um líðan minn, hennar eða hinna í fjölskyldunni en þá vill ég stundum smá pásu frá öllu þessu álagi.
Einsog Óskar minn sagði þegar hann fór að vinna 1.júní síðastliðin eftir margra mánaða fjarveru frá hvað honum finndist gott að komast aðeins í burtu og geta dreyft huganum við eitthvað annað. Þó það geti ö-a verið álag í hans vinnu en þá er það allt öðruvísi en því miður get ég ekki hlaupið svona í vinnu þó ég glöð vildi bara til að komast aðeins í burtu til að hvíla hugan frá álaginu, enda held ég að engin vinnuveitandi vildi ráða mig í vinnu þar sem það geta komið margir dagar/vikur já eða mánuður sem ég þyrfti að vera í burtu vegna Þuríðar minnar og svo verða hin börnin líka veik þótt við höfum verið svakalega heppin með þau í vetur. (7-9-13)
Þar sem ég er að reyna segja, þá ætla ég núna að hætta pína mig til að skrifa hérna þó ég hafi sagt það áður en þá stend ég við þau orð núna. Ég er bara eitthvað svo þreytt, mér finnst þetta erfitt, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég hugsa daglega og það reynir virkilega mikið á bara það eitt og sér að hugsa um að geta misst barnið sitt tekur virkilega mikið á. Þó að Þuríði minni líði "vel" krampar lítið og er ekki eins slöpp einsog hún er oft á tíðum hætti ég aldrei að hugsa um það sem læknarnir hafa sagt við okkur og geri það á hverjum degi og kvíði fyrir ALLTAF næstu dögum um að henni fari að hraka. Ég reyni alltaf að vera jákvæð og sterk þá sérstaklega hérna þó ég sé það reyndar kanski ekkert alltaf bara því þið eruð alltaf að tala um hvað við stöndum okkur vel og tökum þessu vel þá reyni ég að gera mitt besta. Að sjálfsögðu er það gott að fá öll þessi klöpp á bakið sem ég get þakkað ykkur endalaust oft fyrir og það heldur manni líka gangandi en mér finnst þetta samt allt endalaust erfitt. Ég er með magapínu á hverjum degi og hjartað í buxunum en þá er líka gott að eiga alla þessa vini og ættingja sem við eigum, knús til þeirra!! Við erum ótrúlega heppin með alla í kringum okkur og allir þessir sem hafa staðið einsog klettar á bakvið okkur er ómetanlegt, mér líður samt illa. Mér líður ekkert verra núna en síðustu vikur eða tvö ár, ég verð bara alltaf opnari með líðan minn bara það sem líður á veikindin hennar Þuríðar minnar og á auðveldara að skrifa um þau.
Það sem við Skari reynum til að halda okkur gangandi er að hafa eitthvað til að hlakka til sem er nauðsynlegt fyrir alla hvort sem þú ert veikur sjálfur, átt veikt barn eða bara ert alheilbrigður, það er reyndar mikið að gera hjá okkur næstu helgar sem við getum hlakkað til og ég ætla reyndar að fara í vinnu til hans þegar litli krulluhausinn minn (jebbs komið nýtt orð á hann þar sem hann er algjör krullukarl sem hann fær frá pabba sínum ekki leiðinlegt) er búinn að taka lúrinn sinn og þá ætlum við að búa til smá til að hlakka til eftir sirka þrjá mánuði eða svo.
Verð víst að fara láta hann fara sofa þar sem hann er orðinn frekar órólegur, svo þið vitið það þá er ég alls ekki hætt að skrifa hérna því ég veit að það hjálpar mér mjög mikið sérstaklega þegar ég fæ falleg komment og mail en það verður kanski ekki jafn oft en kanski verður það oftar ég veit það ekki? Ef mér líður þannig að mig langar að skrifa oft á dag þá geri ég það, ef mig langar ekki að skrifa í marga daga þá geri ég það líka.
Takk fyrir mig í dag og verið góð við hvort annað og farið að búa til eitthvað til að hlakka til. Þurfa ekki að vera stórir hlutir, þessir litlu skipta líka svo miklu máli.
Knús til ykkar allra þó ég þekki ekki meiri en helmgininn sem lesa síðuna mína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.1.2007 | 22:12
Myndir


Þuríður Arna hetjan mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.1.2007 | 18:09
Til hamingju Ísland
Oh mæ god hvað er gaman að vera "gamall" badmintospilari í dag, vííí!! Ekki það að mér hafi einhverntíman leiðst það en núna er það sko stuð, var að koma úr höllinni og svei mér þá þá er ég orðin hás og virkilega illt í hálsinu. Ég var ekkert að öskra "Áfram Ísland" ég bara öskraði "bwaaahhh" þegar Ísland klúðraði eða vann stig thíhí endalaust stuð. Ísland er sem sagt að keppa í Evrópukeppninni B-þjóða og er komin í úrslit hæhó jíbbíjíjei og jíbbíjei!! Dæssúss mar hvað það er gaman og ef ykkur langar að horfa á úrslitin þá eru þau kl tíu í fyrramálið í höllinni að sjálfsögðu, endilega mætið og hvetjið ykkar fólk. Jújú núna eru þetta krakkarnir "ykkar" einsog strákarnir "ykkar" í handboltanum eða bara þegar þeim gengur vel annars er það bara handboltalandssliðið.
Theodór minn litli pungsi eru allur að hressast enda veit drengurinn að hann ætlar að halda uppá stórafmælið sitt á morgun og alveg að farast úr spenning eða þannig. Ég á víst ekkert að vera hangandi í tölvunni þar sem ég þarf að vera undirbúa stórveilsu og kanski taka smá til þar sem mín er ekki búin að vera heima í ALLAN dag bara að horfa á krakkana "okkar.
Skari er á leiðinni uppá Skaga að ná í stelpurnar þar sem þær gistu þar í nótt en við hjónakornin (æjhi mér finnst að maður eigi bara að segja hjónakorn við t.d. ömmu og afa, finnst þetta vera eitthvað svo gamalt orð) fórum útað að borða í gærkveldi og áttum ótrúlega notalega stund og borðuðum góðan mat. Slurp slurp!! Mamma kom og passaði pungsan á meðan sem sat bara stilltur og góður í fanginu hennar í þessa þrjá tíma sem við vorum í burtu, yndislegastur!!
Best að fara setja kjúllan í ofninn og taka smá til hérna í sveitinni......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
95 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar