Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2006

Fréttir dagsins

Heyrði í Skara áðan og þá voru þau búin að keyra í tvo tíma og Þuríður Arna mín búin að sofa allan tíman, gjörsamlega búin á því eftir keyrsluna í gærdag og jú var búin að krampa og þá sofnar mín oftast strax.  Þuríður er búin að vera alveg yndisleg þessa keyrslu enda er hún bílvænasta barn sem ég hef kynnst, ohh mæ!!  Þótt hún getur verið oft á tíðum mjög ofvirk og erfið en þá er hún það svo innlega ekki í bíl, hún elskar að keyra um horfa á gróðurinn jú eða hlusta á Latabæ og horfa á spilarann sinn. Bara gott!!  Þau stefna að vera komin á Kirkjubæjarklaustur kl níu í kvöld, jamm það verður 10-12tíma keyrsla í dag enda mega þau bara keyra á 50-80km hraða.  Úffh hvað ég hefði ekki þolinmæði í svonaSkömmustulegur.

Við hin höfum það notó hérna heima, við kíktum í húsdýragarðinn í gær og sumir voru doltið hrædd við dýrin eheh og svo urðum við smá menningarleg og kíktum á kaffihús og fengum okkur heitt kakó.  Slurp slurp!!

Var víst búin að lofa heimsókn í ísbúðina í dag og sjálfsögðu verður staðið við það, kanski við kaupum einn eða tvo límmiða, Oddný elskar að líma límmiða í límmiðabókina sína, mar verður víst að dekra aðeins við hana fyrst hin er í endalausu dekri í bílferðinni. 

"Ein" í kotinu

Þá eru Skari og Þuríður farin hringinn í kringum landið, púffh ég nenni eiginlega ekki að segja afhverju þið bara fylgist með fjölmiðlum, Rúv og stöð 2 í kvöld en það koma viðtöl við þau bæðiHlæjandi og svo einhver blöð á morgun.  Smá samstarf á milli styrktarfélagsins og Heklu, þau koma í bæinn aftur um hádegi á miðvikudaginn þannig núna er ég, Oddný Erla og Theodór Ingi ein í kotinu og það er nú aldeilis tómlegt þegar það vantar háværasta fólkið  á heimilinu ehehe. 

Þuríður var ótrúlega heppin en hún fékk smá gjöf frá Heklu áður en það var lagt í hann, svona lítinn pc-spilara og fullt af myndum sem á að stytta henni stundir hringinn og stúlkan var himin glöð með það enda ekki hægt annað.

Við þrjú ætlum nú bara að reyna hafa það notó á meðan, ég sagði við Oddnýju mína í gær ef það yrði gott veður í dag og engin rigning ætlaði ég að fara með hana í Húsdýragarðinn.  Júmm leið og hún fór út í morgun á leiðinni í leikskólann með pabba sínum sagði hún við hann "pabbi það er gott veður og engin rigning" eheh.  Hún er bara snillingur þessi stúlka og gleymir seint hlutum sem mar er búin að lofa henni þannig stefnan er sett á Húsdýragarðinn eftir leikskóla og kíkja á hestana eða það er það helsta sem henni langar að sjá þarHlæjandi.  Júmm mín er nottla búin að "bjóða" sér í mat á Dragó bæði kvöldin sem við verðum home alone og setti nottla skilyrði hvað yrði í matinn ehehe!!  Að sjálfsögðu hlíðir mamma og eldar uppáhalds matinn minn en ekki hvað?Glottandi

Þuríður var ágætlega hress í morgun þegar hún fór í langferðina sína, búin að krampa einu sinni og var kanski orðin smá ofvirk eftir hann og þreytt en ég var búin að lofa henni að hún mætti sofna um leið og kæmist í hinn bílinn og ég veit að hún er ö-a sofnuð núna. Að "sjálfsögðu" er hún búin að vera krampandi alla helgina en góðu fréttirnar eru að þær hafa verið aðeins færri en vanalega.

Nýjar myndir

Við fjölskyldan kíktum á róló-völlinn í dag og að sjálfsögðu fékk myndavélin að fylgja með þannig ég var að setja inn þær myndir. Hlæjandi

Æði gæði

Við Skari áttum yndislega sólarhring í gær sem endaði að hádegi í dag, oh mæ oh mæ!!  Það var alveg æði gæði!!  Okkur var hent út af heimili okkar um kaffileytið í gær, fórum á hótel.  Jmm við gistum á hóteli í nótt í Reykjavík eheh sem var endalaust nice, röltum um bæinn og skoðuðum mannlífið. Enduðum kvöldið að fara á Sálina sem var geggjað stuð, dönsuðum af okkur lappirnar, laaaangt síðan ég hef dansað svona mikiðHlæjandi.  Ég gæti endalaust tautað hvað það var gaman og hvað við skemmtum okkur vel, ótrúlega gaman að fara svona útaf heimilinu og fá smá brake.  Þvílík hleðsla!!

Ég hitti einmitt eina góða vinkonu mína í bænum í gær og það var eiginlega það fyrsta sem hún sagði við mig þegar við hittum "æjhi hvað er gaman að sjá þig svona glaða og brosa svona".  Já það var líka gott að geta brosað smá því oft eftir að Þuríður mín veiktist hef ég átt erfitt með að brosa enda alltaf svo illt í hjartanu enda fann ég líka hvað mar hefur gott af því að komast aðeins svona út og reyna hugsa um eitthvað annað sem er reyndar doltið erfitt en það tókst ágætlega í gærHlæjandi

Knús og kossar til tengdó sem tóku við heimilinu okkar í þennan sólarhring, gaman að vera hent svona út eheh!! 

....og Þura mér líst bara mjög vel á hugmyndina þína sem þú komst með í hádeginu, það hafa allir gott af þessu sérstaklega hin tvö börnin og fá aðeins meiri athygli foreldra sinna. 

Farin út að leika við börnin mín.


Bestu þakkir

Eins og flest ykkar vita var í gær haldið golfmót til styrktar Þuríði Örnu.  Mótið var hugarfóstur vinkonu okkar, Önnu Bjarkar Birgisdóttur og sá hún um allan undirbúning og skipulag mótsins. 
Það voru í kringum 80 manns sem tóku þátt í þessu golfmóti í gær sem var á Grafarholtsvellinum hér í Reykjavík.  Þátttakendur komu úr öllum áttum, ættingjar vinir og frábærir velunnarar.  Öllum þessum frábæru golfurum viljum við þakka fyrir að taka þátt í þessu móti og styðja þannig við bakið á okkur.
Umfram allt viljum við þó þakka Önnu Björk, okkar frábæru vinkonu fyrir að hafa staðið fyrir þessu glæsilega golfmóti, með slíkum myndarbrag að eftir var tekið.  Stuðningurinn er okkur ómetanlegur og kemur sér vel í þeirri baráttu sem framundan er.

Knús, kossar og RIIIIIIIIIIIISAA knús til viðbótar.
Kveðja
Óskar Örn, Áslaug Ósk, Þuríður Arna, Oddný Erla og Theodór Ingi.

Helgin og fleira

Jeh dúddamía barasta komin helgi og það skemtileg helgi framunda eða sem ég hef beðið eftir í þrjá mánuði, án gríns sko!!  Fyrir þremur mánuðum ákváðum við Skari að fara á tjúttið þessa helgi og búin að panta næturpössun fyrir börnin eheh, við erum frekar skipulögð Hlæjandi.  Við þurfum reyndar að vera mjög skipulögð vegna veikinda Þuríðar minnar, við erum líka búin að gera dagatal fyrir okkur fjölskylduna þar sem við sjáum hvort það væri einhver smuga gera e-ð þessa helgi eða einhverja aðra en það er allt í kringum lyfjameðferð Þuríðar minnar. 

Áformin breyttust reyndar lítilega þar sem okkur verður hent útaf heimilinu á morgun og við verðum að gjöra svo vel að finna okkur gistingu annarsstaðar og jú við lendum ekki á götunni aðra nótt, búin að finna okkur fína gistingu.  Bara gaman!! 

Stefnum að fara snemma að heiman á morgun eða svona sirka um kaffileytið, verðum á kaffihúsarölti og svo bara rólegheit en stefnum svo á að kíkja á Sálina um kvöldið.  Reyna að ná svona sirka einu Sálarballi áður en ég verð aftur ólétt thíhí, .....eða ekki!!Óákveðinn  Ég nebbla hef "alltaf" orðið ólétt þegar við höfum náð einu Sálarballi eða svo en það verður ekki núna, annars veit mar aldrei hverju manni sé ætlað ehe.  Pabbi hefur tilkynnt mér það ég muni koma með fjórða barnið á næsta ári, ég veit ekki alveg hvort pabbi sé búinn að breyta pillunni minni í einhverja sykurmola?  ...er hann skyggn?  ....er hann með einhver plön svo þessi ósk hans rætist?  Erfitt að segja en við skulum samt vona að honum verði ekki "ósk" sinni að þessu sinniUllandi annars er ég tilbúin að gera allt annað fyrir hann. ehe!!

Í kvöld ætlar mín að bjóða Viggu vinkonu í "la Áslaug Italiano" og stelpurnar bíða spenntar eftir henni, tala ekki um annað og pakkan sem þær ætla að gefa henniGlottandi.  Skari verður sem sagt ekki heima þar sem karlinn verður að keppa á golfmóti sem hefst nákvæmlega eftir klukkutíma til styrktar Þuríðar Örnu minnar.  Endalaust stórt knús og margir kossar til þín Anna Björk okkar.  Þú ert ÆÐI!!  Við ætlum að kíkja á mótið þegar við verðum búin að næra okkur á ítölsku pasta og Vigga ætlar að hjálpa mér með börnin og fær pasta að launum ehehe!!

Annars er statusinn ekkert sérlega góður á henni Þuríði minni, hún er súper þreytt og krampandi einsog venjulega og hef ekkert meir um það að segjaGráta. Jú læknarnir vita ekki afhverju hún sé svona?  ....er það lyfjameðferð?  ....eru það kramparnir?  ...það eru allavega ekki flogalyfin því statusinn þar er í góðu lagi well reyndar búið að stækka ein lyfin hennar þannig það gæti verið að koma í ljós núna þreyta og ennþá meiri þreyta útaf því, það sem á að stækka þau lyf enn meira ö-a í næstu viku.  Ég bíð ekki í það!!Skömmustulegur

Best að hætta að sinni, orðin nett stressuð að fara frá börnunum á morgun, well veit að þau eru í góðum höndumHlæjandi.  Veit að við höfum gott af þessu eða er allavega að sannfæra mig um það thíhí, höfum ekki farið barnlaus eitthvað ég veit ekki hvað lengi allavega ekki síðan Theodór fæddist og hann er almost sjö mánaða en ég veit að það miklu miklu miklu lengra síðan.

Njótið helgarinnar, við fjölskyldan ætlum allavega að gera það.  Sjáumst kanski í bænum á morgun jú eða á Nasa, hlakka endalaust mikið til.
Slauga slím

Ný könnun

Setti inn nýja könnun, ok sá það að ég á ekki að fá lykilorð á síðuna.  Frekar margir að fylgjast með og hræddir við að fá ekki lykilorðið þannig hún helst áfram opin en ég er samt ekki alveg búin að ákveða hvað ég mun gera seinna meir.

Jamm og jæja ný könnun komin, hausinn á mér nebbla snýst í marga hringi um að fara í fjarnám í vetur.  Hjúkka búin að mæla með að ekki fara í það en mar hlustar víst ekki á allt sem manni er sagt en samt flest. 

Jú ég veit að það verður og er brjálað að gera hjá mér en svo langar manni líka að gera eitthvað fyrir sjálfan sig og hafa eitthvað til dundurs þegar ég er uppá spítala annað en að ráfa um netið og vita ekkert hvað ég á að skoða á meðan Þuríður mín er að horfa á Latabæ eða sefur.  Ég þarf líka kanski að hugsa um framtíðina well reyndar reyni ég ekki að hugsa um daginn á morgun en samt kemur þetta í hausinn minn, þegar Þuríður mín er búin með lyfjameðferðina og þarf ekki eins mikla ummönnun hvenær sem það verður hvað á ég þá að gera??  Ég verð að vera búin að fá einhverja smá menntun, hef ekki mikla reynslu á vinnumarkaðinum enda ekki mikið um að skipta um vinnur, jú var í Íslandsbanka í tvö ár en það kanski segir ekki neitt þegar ég hef ekki verið útivinnandi í mörg árGráta.

Ég var/er sem sagt búin að sækja um fjarnám í MK á skrifstofubraut sem tekur og konan þar sem sér um skráningar ætlar að halda plássinu mínu þanga til ég get tekið ákvörðun og hausinn minn hringsnýst í marga marga hringi.  Erfitt erfitt!!

Jú ég veit að álagið mun aðeins aukast við að fara í nám og ég veit alveg að ég hef 200% nóg að gera, veit heldur ekki hvernig veturinn verður hjá Þuríði minni og þá verður leiðinlegt að hafa hent þessum peningum í ruslið.  Aaaaaaaaaaaargghhhh!!

Einhverjar hugmyndir?  Djöh er þetta erfið ákvörðun.

Varla orka til

Hef varla orku í að skrifa en ákvað að henda inn nokkrum línum því ég veit að þið bíðið frétta af hinu og þessu, þetta eru þessir dagar sem ég hef enga orku og er búin á því, ekki það að það sé eitthvað meira álag en vanalega bara alveg eins alla daga eða þannig séð.  

Þuríður mín er að krampa sirka 10x yfir daginn sem er ekki gott sem sagt sama ástand á henni einsog það var þegar það var ákveðið að senda hana til Boston fyrir ári síðan.  Ömurlegt ömurlegt ömurlegt!!!

Fallegir molar

Endilega lesið yfir þá....

*Langi þig til að gefa einhverjum góða gjöf veittu þeim athygli og brot af tíma þínum.

*Góður árangur er yndislegur en þú skalt ekki vanmeta gilid mistakanna.  Viðlærum miklu meira af mistökunum en góður árangur getur nokkurn tíma kennt okkur.

*Láttu ekki daginn líða án þes að gera eitthvað til þess að láta drauma þína rætast.

*Hlátur er alveg einstakt meðal sem setur vandamálin í rétt samhengi, slakar á spenntum vöðvum, róar fólk í kringum þig og hjálpar þér til að njóta lífsins þótt þú hafir ekki allt sem þú vilt.

*Það getur verið að þú hafir ekki um margt að velja í lífinu en þú getur ráðið hvað þú gerir við það sem þú hefur.

*Lífið er skóli.  Þeir sem láta kærleika og hjálpsemi stjórna sér útskrifast með sóma.

*Látir þú álagið stjórna lífi þínu og ræna þig gleðinni er það einsog að leyfa óvini þínum að stjórna því sem þú gerir og koma í veg fyrir að þú getir notið þín með fjölskyldu þinni og vinum.

Takk fyrir mig í dag!!

Fréttir dagsins

Vorum á fundi hjá svefnráðgjafa í morgun og viti menn litli pungsulíusinn minn á að fara í sérherbergi þannig að pungurinn verður sendur í sérherbergi í kvöld og Oddný Erla færð yfir til Þuríðar.  Gaman fyrir svona töffara að vera í bleiku prinsessu-herbergi eheÓákveðinn,  ætli mar verði þá ekki að breyta því í blátt bangsímon-herbergi?  Gaman verður að sjá hvernig þetta fer allt saman, ótrúlega gott að hitta þessa konu en hún er líka ein af hjúkkunum hennar Þuríðar okkar þannig við þekkjumst ágætlega. 

Þuríður mín var ótrúlega hress í morgun þegar hún vaknaði, ótrúlegt en satt því dagurinn í gær var hreint hell hjá henniÖskrandi.  Þær systur byrjuðu einmitt í morgun að vera frá átta til tvö á leikskólanum, ótrúlega skrýtið að hafa þær svona "lengi", vonandi mun Þuríður mín orka það að vera svona lengi annars má hún alltaf leggjast á leikskólanum þegar hún vill enda verður hún að gera.  Alltaf búin á því eftir krampana. 

Hef reyndar engan tíma til að skrifa því ég er nebbla að búa til smá afmælisgjöf handa afmælisbarni dagsins  "til hamingju með daginn Vigga mín, veit það var gaman um helgina þótt ex djammarinn mætti ekki á svæðið".  Knús og kossar til þín og best að halda áfram að svitna yfir þessari gjöf eheheHlæjandi.  Vertu bara spenntust!!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband