Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Vissu þið...

-að í dag er rúmt ár síðan Þuríður mín fékk síðasta krampann en þar á undan krampaði hún nánast stanslaust í rúm tvö ár. 

-að þegar hún krampaði sem mest fóru þeir alveg uppí 50 á dag.

-þegar hennar bestu dagar voru þá voru kramparnir "bara" tíu á dag.

-að fyrir sirka einu og hálfu ári var Þuríður mín algjörlega lömuð á hægri hendi, byrjuð að lamast á hægri fæti líka og farin slefa vegna lömunnar í munni.

-að lömunin er alveg gengin til baka þó hún noti ekki 100% hendina sína en það er líka vegna þess að stúlkan er örvhent.

- að henni hefur aldrei liðið svona vel í marga marga marga marga mánuði, ótrúlegt en satt því hún er búin að vera svo hrikalega veik síðustu mánuði.

- að hún hefur aldrei fengið svona lítið af flogalyfjum einsog hún fær í dag.

-að hún fer í næstu myndatökur um miðjan næsta mánaðar og ég hef aldrei verið svona afslöppuð útaf þeim tökum.

-að kraftaverkin gerast.

-að Sálin mín uppáhalds hljómsveit á 20 ára afmæli í dag ehhe en þá hljómsveit hef ég dýrkað síðan ég var 14 ára gömul eða í 16 ár.

-að ég ætla ekki á tónleikanna þeirra á föstudaginn, þvílíkur aðdáandi.  Samt verð ég með næturpössun.  Hmmm!!  Hefði kanski farið ef ég hefði geta keypt VIP miða þannig ég komist backstage og látið taka myndir af mér með goðunum.  ...svona einsog pabba dreymir um með Rolling stones ehe! ....eða ekki.W00t

-að mig langar með Oddnýju systir til NY á fimmtudaginn eftir viku.

-að mig langar að gifta mig aftur ehe þá að sjálfsögðu Skara mínum, fór nefnilega með Oddnýju systir að máta kjóla og ohh mæ god hvað þeir voru flottir. 

-ég hef ákveðið að gifta mig aftur í Las Vegas árið 2013 á tíu ára brúðkaupsafmæli okkar Skara.

-að ég væri hrikalega glöð með lífið og tilveruna.  Elska börnin mín og mann útaf lífinu, þið eruð líka æðisleg.


Jákvæð og hamingjusöm

Ég er ákveðin í því að vera jákvæð og hamingjusöm, hverjar sem aðstæðurnar eru, því ég hef lært af eigin reynslu að stór hluti af hamingju okkar og að sama skapi vansæld okkar byggist á viðhorfi okkar en ekki kringumstæðum.
Martha Washington

Haldiði ekki að hetjan mín hafi farið í leikskólann og svona líka hamingjusöm með lífið og að sjálfsögðu verður mín það líka að sjá hana líða svona vel en ekki hvað?  Svona án gríns þá var besti dagurinn hennar í marga marga marga mánuði í gær, gekk svona líka vel uppá spítala, beint í sjúkraþjálfun sem hún stóð sig hrikalega vel en síðustu mánuði hefur hún ekki haft orku í að gera neitt þar en þarna flaug hún í gegnum allar æfingarnar einsog atvinnumanneskja, þegar heim var komið fór stúlkan út að leika með systkinum sínum og var eiginlega að sofna eftir það því hún ákvað ekkert að leggja sig um daginn sem hefur heldur ekki gerst í endalaust marga mánuði, fyrst að það lá svona vel á minni ákváðum við fjölskyldan ásamt mömmu og pabba að kíkja á Fridays og ís í eftirrétt í Smáranum.  Oh mæ god hvað þetta var góður dagur hjá hetjunni minni og ég meir að segja mátti setja teygju í stúlkuna sem var frábært því ég hef ekki mátt gera það í ég veit ekki hvað lengi því hún er ö-a alltaf með hausverk, bara yndislegast.  

Núna liggur vel á mér......Grin

Ætlum að skreppa í sumarbústað um helgina með mömmu og pabba, borða góðan mat, ég kokkurinn á að elda handa þeim í kvöld.  Slurp slurp.  Afhverju er ég ekki að læra kokkinn?  Kanski vegna vinnutíma?  Er búin að vera horfa á Jóa Fel og læra af karlinum, jiiii hvað ég er spennt.  Vonandi verður hægt að kíkja í pottinn og svo ætlum við bara að hanga á náttfötunum alla helgina.  Ekki leiðinlegt.

Það er mömmudagur í dag hjá okkur Oddnýju Erlu minni í dag, stúlkan er núna að klæða sig í pils og gera sig fína.  Erum að fara með Oddnýju systir að máta brúðakjóla því stúlkan er að fara gifta sig í sumar, ætli við röltum ekki einn hring í Toys'r us, hún mun ö-a biðja mig að koma með sér í einhverja glingurbúðina til að koma við allt glingrið eheh og svo lengi mætti telja.

Var að fá eina einkunnina í enskunnni, ekki sátt við kennarann.  Jújú ég fékk 7,75 (fékk 9,13 í síðasta prófi) sem ætti nú að kallast gott á mínu mælikvarða í ensku en hún kellan lækkaði mig um einn eða tvo heila (man ekki hvort) því ég gat ekki skrifað mína skoðun um álverið hérna á klakanum, hvernig í andskotanum (sorrý) á ég að geta skrifað um eitthvað sem ég hef enga skoðun á  eða hugmynd um?  Sendi henni líka mail tilbaka, ótrúlega pissst.  Ætla samt ekkert að grenja lengi útaf þessu ehe.

Vávh hvað mér líður annars vel í dag, ætla njóta dagsins í botn og helgarinnar og krossa alla putta og tær um að hetjan mín fái ekki hita á morgun en það er tíminn hennar ef þetta ætti að vera einsog síðustu mánuði.  Hey hún er hress í dag og að sjálfsögðu njótum við þess og bíðum sallaróleg eftir niðurstöðum úr blóðprufunum samt væntanlega einhver enn ein önnur sýkingin sem væri sú þriðja á þessu ári.

Eigiði yndislega helgin og munið "hamingja er ákvörðun".
Knúsumst fast í tilefni dagsins.


Eldgömul færsla

Þar sem ég er virkilega tóm í dag nýkomin úr ræktinni og algjörlega búin á því, vávh elska þessa tilfinningu. Er á leiðinni að ná í hetjuna mína sem fékk að fara í leikskólann frammað hádegi og svo beint í spítalaheimsókn og svo í sjúkraþjálfun. Þess vegna langaði mig bara að birta eina gamla færslu frá mér sem ég skrifaði fyrir kanski tveim árum, man ekki alveg (jú nákvæmlega 26.mars'06).  En allavega stundum vill maður ekki að allir draumar manns rætast einsog þessi...

Maður á sér marga drauma og einn af mínum draumum var að geta verið heimavinnandi og geta séð alfarið um börnin mín. Þegar fæðingarorlofið mitt með Oddnýju Erlu var að klárast langaði mig enganveginn að fara á vinnumarkaðinn og var heldur eiginlega ekki tilbúin að fara frá henni, fannst hún svo lítil að fara í pössun og þótt það væri til mömmu og Önnu. En ég sá það að ég gat enganvegin verið heima með stelpurnar mínar, jú ég þurfti að fara vinna til að geta séð fyrir heimilinu, borgað reikninga, keypt föt á börnin og bara allan pakkan og var náttúrlega mjög svekt yfir því.

Ég var búin að fara í nokkur atvinnuviðtöl sem gengu mjög vel og var meira að segja búin að fá eina vinnu sem ég var mjög glöð með :) En svo veiktist Þuríður mín og allt breyttist á einum degi, ég gat ekki farið útá vinnumarkaðinn og draumurinn minn varð að veruleika Frown Ohh ég vildi óska þess að þessi draumur minn hefði ekki ræst.

Ég vildi óska þess að mig væri ennþá að dreyma að vera heima með börnin mín. Ég vildi óska þess að ég væri að pirra mig á því hvað ég væri láglaunuð í þessu starfi sem ég væri að vinna við, mig langar að pirra mig yfir því að börnin mín þurfa að vera á leikskóla frá níu-fimm og ég hefði minni tíma fyrir þau, mig langar að pirra mig á því hvað ég væri að borga mikið fyrir þau á leikskóla, mig langar að vera pirruð við yfirmann minn því hann vill ekki gefa mér launahækkun.

Ég vildi óska þess að ég hefði ekki átt þennan draum sem varð að veruleika.


Flottasta hetjan mín

Það var leikhúsferð í leikskólanum hjá krökkunum í morgun og að sjálfsögðu skráði ég mig í þá ferð og var ákveðin að fara með Oddnýju minni og Theodóri mínum þar sem Þuríður mín er alltaf lasin átti ég ekkert von á því að hún færi og ég ætlaði heldur ekkert að leyfa henni að fara enda barnið alltaf með yfir 40 stiga hita.  Well stúlkan var hitalaus í gær og Skari minn ætlaði að vera heima hjá henni á meðan ég færi með hinum en svo fór ég að hugsa sem gerist nú ekki oft ehe.  Það er búið að taka svo ofsalega mikið af henni í þessu veikindastríði að ég hafði ekki stærra hjarta í þetta sinn að taka þessa leikhúsferð líka af henni, hún fær hvorteðer hita aftur á föstudaginn (allavega einsog þetta hefur verið síðustu þrjá mánuði) og afhverju þá ekki að leyfa henni á þessum "eina" hitalausa degi sínum að fá að njóta sín aðeins og skemmta sér?  Vitiði það hún var svo glöð að fá að fara, hún skemmti sér svo hrikalega vel, hún brosti allan hringinn á meðan leiksýningunni stóð og það var líka svo gaman að horfa hana svona glaða.  Ég var gjörsamlega að springa því ég var svo glöð að sjá hana svona, glampinn í augum hennar, æjhi þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það var gaman að sjá hana skemmta sér svona vel.  Hlæja og bara fá að skemmta sér einsog öll börn eiga að gera.  Vávh, bara gaman!

Á morgun ætlar hún svo aftur í leikskólann en hún veit ekki af því en leikskólinn ætlar í heimsókn í hverfisskólann sinn og að sjálfsögðu fær Þuríður mín að fara líka þó hún sé ekki að fara í þennan ákveðna skóla.  Ef ég myndi segja henni frá því núna myndi hún heimta það að ég færi með hana útí búð og keypti eitt stk skólatösku ehe, mikið hlakka ég til þegar við förum að gera þá hluti.  Tíminn er svoooo fljótur að líða og litla fallega hetjan mín er að fara í skóla í haust.  Hver hefði trúað því?  Allavega ekki læknavísindin.  Við erum líka alltaf á leiðinni í skólann okkar hérna í sveitinni en skólastjórinn í þeim skóla er svo yndislegur að ætla leyfa Þuríði minni að eyða smá tíma einn daginn í skólanum og leyfa henni að finna smjörþefinn af því  hvernig er að vera í skóla en þar sem hetjan mín er búin að vera lasin frá því í des hefur ekki fundist tími í það, því verr og miður.  Vonandi fljótlega.

Annars er hún ágætlega hress, hún er eitthvað svo skýr í augunum sem glampa svona fallega, maður finnur alveg að þroskinn hennar er á uppleið og farin að segja allsskonar orð sem ég hélt að hún kynni ekki.  Ég veit nefnilega ef hún fær tækifæri til þess þá mun hún verða aftur einsog jafnaldrar sínir í þroska, hún er nefnilega svo klár hún Þuríður mín en vegna lyfja kann hún ekki alveg að nota þann hæfileika en ég veit að það mun koma hjá henni. 
Hún getur, hún ætlar og hún skal.

Af rannsóknum að frétta þá erum við að sjálfsögðu ennþá að bíða eftir niðurstöðum úr blóðrannsókninni en ekki hvað?  Á morgun erum við að fara hitta magasérfræðinginn vegna næstu viku en þá fer hún í speglun og ö-a aðgerðina vegna tappans.  Það er búið að minnka flogalyfin hennar um dáltið stóran skammt, ég held svei mér þá að hún ætli sér bara að hætta á þeim.  Líkaminn er bara að segja stopp hingað og ekki lengra, ég þarf ekki á þessum lengur á að halda.  Væri óskandi og það er alltílagi að hafa einhverja óskhyggju þó hún sé fjarlægð.

Vonandi helst hetjan mín hitalaus allavega frammá föstudag því þá ætla ég að leyfa hinni hetjunni minni henni Oddnýju Erlu fá eitt stk mömmudag en ég hef ekkert sagt henni það því Þuríður mín gæti fengið hita fyrir þann dag og þá yrði Oddný mín alveg miður sín. 

Hafiði það ótrúlega gott og verið góð við hvort annað.


Fiðrildagangan

Ótrúlega gaman þegar maður er farin að fá mail til að koma einhverju á framfæri, maður á víst að vera eitthvað vinsæl ehe en að sjálfsögðu geri ég það með glöðu geði.  Endilega allir að mæta.

BAS og UNIFEM efna til FIÐRILDAGÖNGU  
miðvikudaginn 5. mars
kl. 20:00.  
Þjóðþekktir einstaklingar leggja göngunni lið sem kyndilberar - og leggja þannig sitt af mörkum til að styðja við Fiðrildaviku Unifem, þar sem vakin er athygli á ofbeldi gegn konum í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum.

Guðlaugur Þór Heilbgrigðisráðherra leiðir gönguna ásamt BAS. Gengið verður í takt við Kvennakór Léttsveitar Reykjavíkur frá skrifstofu Unifem á mótum Frakkastígs og Laugavegs niður að Austurvelli þar sem dagskránni lýkur með skemmtilegri uppákomu.

Kyndilberar:

1. Thelma Ásdísardóttir. Stígamótakona.

2. Amal Tamimi. Fulltrúi Alþjóðahúss og formaður Lýðræðis- og jafnréttisnefndar Hafnarfjarðari.
3. Tatjana Latinovic. Formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
4.  Gísli Hrafn Atlason. Ráðskona karlahóps Femínistafélags Íslands.
5.  Þórunn Sveinbjarnardóttir. Umhverfisráðherra.
6. Sigþrúður Guðmundsdóttir.Fræðslu-og framkvæmdastýra Kvennaathvarfs.   
7. Dagur B. Eggertsson. Læknir og borgarfulltrúi.
8. Hrefna Hugósdóttir. Formaður ungliðadeildar Hjúkrunarfræðinga.
9. Þórunn Lárusdóttir. Leikkona.
10. Kristín Ólafsdóttir. Kvikmyndagerðarkona og verndari UNIFEM á Íslandi.
11. Svafa Grönfeld. Rektor HR.

12. Lay Low. Söngkona

Dagskrá á Austurvelli           
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Forstýra UNIFEM á Íslandi ávarpar göngufólk
           
Ellen Kristjáns og co tekur lagið
           
Thelma Ásdísardóttir flytur ljóð
 
Hörður Torfa flytur lög
Kynnar verða BAS stelpurnar           
Dagskrá líkur um kl 21:15
Hægt er að hafa samband við okkur varðandi Fiðrildargönguna:
Bríet Birgisdóttir, hjúkrunarfræðingur GSM: 8203690
Anna I Arnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur GSM: 6967121
Soffía Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur GSM: 6912996 
Fiðrildið táknar umbreytingu til hins betra og fiðrildaáhrif (butterfly effect) vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft stórkostleg áhrif á veðurkerfi hinum megin á hnettinum. Það má svo sannarlega heimfæra kenninguna um fiðrildaáhrifin á átak UNIFEM á Íslandi sem mun gefa konum í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum byr undir báða vængi. Með þinni þátttöku getur þú haft fiðrildaáhrif! 

BAS
BAS hópurinn samanstendur af þremur hjúkrunarfræðingum sem hafa beitt sér í baráttunni fyrir góðum málefnum af ýmsum toga - frá því að skipuleggja hópgöngur gegn slysum,  ganga til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini yfir í að skipuleggja Fiðrildagöngu til styrktar Fiðrildaviku Unifem.  Allar þrjár stunda meistaranám í Lýðheilsufræðum við Háskólann í Reykjavík. 
UNIFEM UNIFEM er þróunarsjóður Sameinuðu Þjóðanna fyrir konur. Hann var stofnaður árið 1976 í kjölfar fyrstu heimsráðstefnu SÞ um málefni kvenna. UNIFEM á Íslandi er ein 15 landsnefnda UNIFEM, stofnuð 18. desember 1989. Sama dag árið 1979 var samþykktur alþjóðasamningur um afnám alls misréttis gegn konum/ Kvennasáttmálinn (CEDAW). UNIFEM á Íslandi styður og styrkir starfssemi SÞ í baráttunni fyrir jafnrétti og bættri stöðu kvenna víða um heim sérstaklega á sviði þróunarsamvinnu. 

Hamingjan er ákvörðun (breytt)

Velgengni og hamingja eru tilfinningar sem allar manneskjur á jörðinni þrá í hjarta sínu. En samt leita flest okkar af hamingjunni á röngum stöðum, sem veldur okkur enn meiri vonbrigðum og kvöl.

Það er vegna þess að við erum að leita af hamingjunni fyrir utan okkur sjálf, eftir einhverjum hlut eða eftir því að einhver annar færi okkur hamingjuna.

Við förum frá herberbergi til herbergis í leit að demantshálsfestinni sem er utan um hálsin á okkur.
Við leitum að hamingjunni allstaðar, en við sjáum aldrei hvar hún raunverulega er, sem er í okkur sjálfum.

Ég held að við getum öll samþykkt að hamingjan kemur ekki frá veraldlegum hlutum, eins og að aka flottum bíl eða að vera með miklis metinn titil. ( þó að svoleiðis hlutir geti fært ánægju inn í líf okkar)

Hamningja veltur ekki á öðru fólki, eins og hvort við umgöngumst mikilvægt fólk eða ekki. Að hafa elskandi og styðjandi fólk í kringum sig, færir manni ánægju og skemmtun.

Hamingjan veltur ekki á því hvað gerist, svo ef þú ert á staðnum, þá er það gott og ef þú ferð þá er það líka gott.

Hamingju er ekki hægt að finna í ytri heimi.

Aðal fyrirstaða hamingjunnar er röng hugsun. Til dæmis að halda að einhver eða eitthvað færi manni hamingju.

Hvar finnur maður eiginlega hamingjuna?  Hættu að leita fyrir utan þig, eftir einhverju sem aðeins finnst innra með þér. Taktu ákvörðun um að verða hamingjusamur einstaklingur.
Segðu upphátt:

Hamingjan veltur á ákvörðun minnu um að vera hamingjusamur einstaklingur.

Hugleiddu það, hefur þú einhvern tímann tekið meðvitaða ákvörðun um að vera hamingjsamur einstaklingur? Ég myndi giska á að svarið væri NEI. 
Hér kemur ákveðið boð til þín um að vera hamingjusamur!

Sameinum orku okkar fyrir hamingju.

Segðu upphátt:

Ég , Áslaug Ósk Hinriksdóttir (samt ekki mitt nafn ehe), ákveð að vera hamingjusamur einstaklingur núna, þrátt fyrir hvernig veðrið er, hvernig heimurinn er eða það sem gerist fyrir mig.  Ég veit að það er réttur minn að vera hamingjusamur.  Ég fylli líf mitt af jákvæðni og lýsi allt innra með mér, ég endurheimti hamingjuna og hamingjan endurheimtir mig. Svona einfalt er þetta.

(www.velgengni.is)

Ps.sssss. bætti aðeins við veikindasögunnar hennar Þuríðar minnar sem ég reyni að gera allavega annanhvern mánuð.


-ÞÚ VERÐUR AÐ HAFA TRÚ Á SJÁLFUM ÞÉR, ÞÓ ENGINN ANNAR GERI ÞAÐ. ÞAÐ GERIR ÞIG AÐ SIGURVEGARA -

Hetjan mín fór í ómunina í morgun sem gekk glimrandi vel og kom ekkert útur henni sem er væntanlega gott en það er samt eitthvað að hrjá hetjuna mína sem engin skilur hvað?  Hún heldur áfram að léttast sem er engar nýjar fréttir, hrikalega erfitt að koma einhverju ofan í hana.  Hún er drulluslöpp með mikin hita, liggur algjörlega fyrir og vill helst bara sofa eða horfa á sjálfan sig í sjónvarpinu og Höllu Hrekkjusvín vinkonu sína eða þegar þær hittust á afmælisdaginn hennar fyrir tveimur árum.  Fór í blóðprufur í morgun, það er ennþá einhver sýking í blóðinu hjá henni en það verður sent í ræktun og við fáum ekkert meira að vita fyrr en í lok vikunnar.  Bíða bíða bíða....  Hún er ennþá að fá of mikið af flogalyfjunum sínum en það er búið að vera minnka þau síðasta mánuðinn og því verður væntanlega haldið áfram næstu daga þar að segja að trappa þetta niður hægt og rólega.  Í  næstu viku halda svo áfram þessar rannsóknir, það gerist víst ekkert á einum degi á þessum blessaða spítala.  En þá fer hún speglun á maganum og væntanlega aðgerð líka vegna tappans sem á að setja í magann hennar svo hún fari eitthvað að nærast, æjhi ég verð alltaf smeykari og smeykari við það.  Alltaf einhver hætta.....   Jú einsog ég hef oft sagt áður þá er þetta sagan endalausa og hún fer að verða dáltið langdregin.

Theodór minn fékk hita um helgina og að sjálfsögðu fórum við með hann með okkur uppá spítala í morgun og létum læknanna hennar Þuríðar minnar kíkja á hann og drengurinn og hann er kominn með í eyrun sem skýrir nætursvefninn hans.  Hann er nefnilega farinn að vakna trilljón sinnum yfir nóttina og alveg gargandi brjálaður og ekkert hægt að gera fyrir drenginn sem er mjög óvanalegt.  Oftast nóg að koma í mömmukot en það er ekki alveg að virka síðustu vikuna.  Sem sagt kominn á sýklalyf sem vonandi virka strax, ég er gjörsamlega búin á því.   Vávh hvað ég hefði ekkert á móti því akkurat núna að stinga af eitthvert útí buskann.  Oddný systir og Sammi hennar eru að fara til New York um páskana og það væri ekki leiðinlegt að fara með þeim, verst að það yrði engin afslöppunarferð en samt alltaf gaman að koma til NY að skoða og versla.  Hmmm verst að mér finnst ekkert gaman að versla á sjálfan migShocking, langar að fá þá tilfinningu aftur.

Skari minn alveg að fara koma heim með Oddnýju Erlu mína sem á ofsalega erfitt þessa dagana, æji ég finn svakalega til með henni.  Við mæðgur fórum reyndar í bíó um helgina sem henni fannst æðislegt, verst hvað það er erfitt að finna svona tíma fyrir hana þessa vikurnar en hver mínúta gleður hana.  Hún er þessa dagana einsog versti þunglyndissjúklingur, mjög grátgjörn, þarf lítið til, megum lítið segja við hana þannig henni sárni mjög mikið.  Æjhi þetta er sárt.  Þegar drengurinn kemur heim ætla ég að loka mig innií herbergi og læra, verkefnin búin að hlaðast upp.  Dóóhh!!  Engin tími til neins nema sinna hetjunni minni eins vel og ég get og finna tíma fyrir hin tvö. 

Langar að enda á þessu spakmæli:
Það sem aðrir hugsa um þig, skiptir þig ekki máli.Ef það að aðrir hafi trú á þér eða draumum þínum væru skilyrði fyrir velgengni, myndu flest af okkur aldrei koma neinu í framkvæmd. 

Þú verður að byggja ákvörðun þína um hvað þig langar til að gera, á draumum þínum  og þrám – ekki á draumum, þrám, skoðunum og mati foreldra þinna, vina, maka, barna eða samstarfsmanna.

Hætta að hafa áhyggjur af því hvað annað fólk hugsa

Hetjan mín....

.....er að sjálfsögðu með hita og hrikalega slöpp.Crying  Sýklalyfin segja ekki neitt.  Ómun á maga á mánudagsmorgun og við fáum væntanlega einhverjar niðurstöður þá sem verða vonandi engar.

Hef engan áhuga að blogga þessa dagana, alltof erfitt ástand.

Mikið þrái ég "venjulegt" líf hvernig sem það er?  Kanski áhyggjulaust?  Heilbrigt barn?


« Fyrri síða

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband