Leita í fréttum mbl.is

Lasarus

Damn hvað ég er slöpp, ég ætla mér samt ekki að verða lasin það hefur aldrei verið jafn mikið að gera hjá minni og ég hef engan tíma fyrir svoleiðis vitleysu þar að segja að verða lasin.  Það er reyndar alltof mikið að gera, redda þessu og hinu, reyna koma íbúðinni í stand þar að segja ganga frá öllu, fara á endalausa læknafunda, undirbúningur fyrir geislameðferðina, fara með Þuríði mína í þjálfun svo lengi mætti ég telja.  Enda hef ég ekki verið svona þreytt síðan ég veitiggi hvenær þannig þið mættuð bæta við nokkrum klukkutímum í næturnar hjá mér svo ég fengi smá beauty-svefn, aaaaaaaaaarghhh!!  Theodór minn ekki að meika það á nóttinni.....

Við fjölskyldan að fara í fjölskyldymyndatökur á morgun þá verð ég nú að vera eins hress og ég get, ljósmyndarinn tróð okkur nebbla inná milli því hann veit statusinn hjá okkur þannig það er stóóórt knúúús til hans.

Þuríður mín er frekar hress þessa dagana allavega miða við síðustu mánuði, hún er að tala svo mikið og spurja mann spjörunum úr sem er mjög óvanalegt því hún er ekki vön að segja NEITT.  Það er alveg æðislegt að hlusta á hana þessa dagana, er mikið að pæla í hvenær allir eiga afmæli og hvað klukkan sé ehhe!!  Yndislegtust!!

Well er stödd uppí styrktarfélagi núna að pakka inn jólakortum þannig það er best að halda áfram, þá vitiði allavega hvert þið eigið að koma/fara ef ykkur vantar falleg jólakort og viljið styrkja gott málefni.

Meira draslið þetta bloggar.is

Ég hef mikið verið að spá í að fá mér nýtt blogg þetta bloggara-drasl er meira draslið, þetta er alltaf að detta út.  Andskotans vesen, nenniggi svona veseni.

Þuríður mín byrjaði í undirbúningnum fyrir geislameðferðina í morgun sem gekk glimrandi vel ekki að spurja að öðru, svæfing fer alltaf vel í hana.  Hún ætti að vakna eftir sirka hálftíma eftir svæfingu en Þuríður mín rétt opnaði augun eftir sirka 45mín og sagði við okkur "ég ætla að sofa lengur" og lokaði augunum og svaf í þrjá tíma í viðbót.  Aaaargghhh!!  Einsog það fer alltaf vel um mann á vöknunardeild og mar skemmtir sér vel þar og finnst þá obboslega gaman að hún svaf í þrjá tíma í viðbót.  Ég og Skari vorum dottandi yfir henni og ég var að reyna halda mér vakandi því nóttin hjá Theodóri mínum var ömurleg, eyrun hans eru svo mikið að bögga hann.  Kominn á lyf og vonandi lagast það eitthvað annars erum við að fara hitta einn af krabbameinslæknunum hennar Þuríðar minnar og hann sér um óvær börn og svona þannig vonandi lagast þetta áður en hann verður árs gamall.  Dóóhh!!

Allavega Þuríður mín vaknaði súper-hress eftir þessa rúma þrjá tíma og er ágætlega hress núna, ágætt!!  Hún heldur áfram í undirbúningi á föstudag og svo byrjar "skemtunin" á mánudag sem stendur í tvær vikur.  Vonandi mun þetta bara vel í hana!!

Oddný mín Erla er svo súper klár einsog allir vita, mikið pælir hún í stöfum þessa dagana og er ótrúlega fljót að læra, dæssúss mar!!
Oddný: "mamma stafurinn hans pabba heitir Ó og stafurinn hans Garðars heitir G. En hvað heitir stafurinn hans Theodórs?"
Ég: "hann heitir T"
Oddný: "já alveg einsog Tumi tígur"
Dóóóhh!!  Hva fær hún að vera svona vitur?  Ég hreinlega skil þetta ekki og mun ö-a aldrei skilja þetta ehehe!!

Ætli það sé ekki best að reyna klára taka úr restinni af kössunum sem eru hérna inní mínu herbergi svo ég geti farið að gera það sæmilegt, bara nokkrir kassar eftir.  Vííí!!  Jólaskrautið er að koma smátt og smátt upp, svo gaman að skreyta en svoooo leiðinlegt að þurfa taka það niður.

Í fréttum er þetta helst....

Ég var nú ekki alveg að nenna fara skrifa eitthvað núna en finnst þið eiga það inni að heyra nýjustu tíðindin og jú viti menn netið komið heim og heimasíminn kominn í lag.  Jíbbíjeij!!  Þannig ég hef "enga" afsökun ef ég skrifa ekki well jú orkan er á þrotum, gjörsamlega orkulaus og andlaus.

Síðustu tveir mánuðir hafa verið mér ótrúlega erfiðir, jú mér hefur fundist tvö síðustu ár erfið en síðustu mánuðir helmingi erfiðari.  Læknarnir voru alltaf búnir að segja við okkur að þeir teldu litlar líkur á því að æxlið yrði illkynja en það gæti gerst þegar hún yrði eldri en svo kom tuskan sem var slegin fast í andlit okkar um miðjan sept og síðan þá hefur mér fundist erfitt að finna vonina og sjá kraftaverk gerast.  Búið að segja við okkur að barnið okkar ætti nokkra mánuði eftir og það vill engin lenda í, mér hefur fundist tíminn líða svo hrikalega hratt og fundist ég vera renna út á tíma með að gera alla hluti sem mig hefur langað að gera með börnunum mínum þá sérstaklega Þuríði.  Mér hefur fundist allt svo erfitt, ömurlegt og ósanngjarnt.

Síðustu tusku fengum við í andlitið þegar við fengum svarið frá Boston, þeir voru hrikalega leiðir yfir því að geta ekkert skorið og það væru ekki margar lausnir í málinu.  Ekki margar en það var ein lausn sem þeir vildu prófa sem hefur aldrei komið til greina áður og sem þeir vildu heldur ekki gera hérna heima sem var geislameðferð.  Alltaf erfitt að gera geisla þegar svona ungt barn á í hlut og þegar þetta kemur í höfði en við forworduðum svarinu frá þeim í Boston til læknana hérna heima sem VIÐ fengum frá þeim en læknarnir hérna heima voru búnir að bíða eftir í meira en mánuð.  Viti menn þeir fóru strax að vinna í því og ath hvort það væri möguleiki að litla hetjan mín færi í geislameðferð sem væri síðasta úrræði og fyrir helgi var ákveðið að senda hana í geisla.  Jíbbíjeij!!  Þeir eru ekki alveg búnir að gefast upp en þetta hefði samt aldrei farið í gang nema því VIÐ fengum þetta frá læknunum okkar í Boston, haaaaaaaaallllóóó!!

Við vorum sem sagt á fundi í morgun í sambandi við geislameðferðina hennar sem byrjar nota bene á mánudaginn og klárast fyrir jól, hún mun fara á hverjum degi sem er svæfing á hverjum degi.  Þetta er doltið hörð meðferð en mun vonandi samt ekki reyna mjög mikið á hana en þeir  vita aldrei læknarnir hvursu mikið hún mun reyna á hana.

Þeir eru ekkert búnir að finna neitt kraftaverk en vonandi gerir hún það gagn að kanski minnkar æxlið, kanski stöðvar þetta stækkunina það eru endalaust mörg kanski en þarna kom samt vonin aftur.  Kanski mun þetta gera henni það að hún getur verið lengur hjá okkur sem ég vona svo heitt og innilega, við eigum nefnilega eftir að gera svo margt saman, það er svo margt sem mig langar að kenna henni og allar áhyggjurnar sem mig langar að hafa af henni.  Þannig er nú það, ég nenni ekki að telja upp allar aukaverkanirnir sem geta fylgt eftir á enda finnst mér það skipta obboslega litlu máli. 

Sem sagt ekki alveg strax uppgjöf hjá læknunum sem ég er obboslega ánægð með en ég er samt hrikalega kvíðin fyrir næstu vikum sem ég á kanski ekki að vera en ég er það samt.  Ég veit ekkert hvernig þetta fer í hana, hvort jólin verða einsog síðustu sem sagt endalausir krampar sem gæti gerst vegna bólgna í æxlinu útfrá geislunum en það kemur þá bara í ljós þegar að því kemur.  Hún getur þurft að fá stera með þessu en það kemur líka bara í ljós þegar nær dregur sem fer allt eftir því sem geislarnir fara í hana ógleði og svona.  Lengi mætti telja.................

Þuríður mín er búin að vera óvenju hress síðustu daga sem er bara æðislegt og þá ákváðum við líka að panta okkur fjölskyldumyndatökur á fimtudaginn hjá Bonna "vini" okkar ljósmyndara.  Ég er ótrúlega spennt fyrir því, víííí!!  Hún hefur verið að krampa minna en venjulega en er reyndar búin að fá tvo í dag, æjhi sem er alltaf erfitt að sjá þar sem þeir eru orðnir miklu harðari. 

Theodór Ingi er farinn að taka fleiri skref og að sjálfsögðu leyfði ég gellunum á Hofi að sjá hann labba, aðeins að monta mig svo fólk haldi ekki að ég sé að ljúga ehehe!!  Hann reyndar sefur ekkert á nóttinni, eyrun þvílíkt að bögga hann og lekur svona mikið úr þeima.  Aaaaaaaaaaargghh!!

Helgin var æðsileg hjá okkur Skara þar sem við skruppum á Geysi á jólahlað ásamt hópi af fólki, hlustuðum á Stebba og Eyfa syngja og spila og þetta var æði.  Alltaf gott að komast aðeins út fyrir dyr og anda að sér öðru en heimilisloftinu.

Erum að verða búin að koma okkur fyrir, settum upp fyrsta jólaskrautið í gær og stelpunum fannst það sko ekki leiðinlegt eða okkur ehehe!!

Verð víst að hætta, stelpurnar að biðja mig um að spila við sig..................  og þarf líka á smá hvíld að halda erfiður dagur á morgun undirbúningurinn fyrir geislameðferðina byrjar á morgun hjá Þuríði minni.  Stór svæfing, myndatökur og fleira......................

Næy könnun

Endilega svarið könnunni!!

Er að fara á fund uppá spítala, vonandi kemst ég í tölvu eftir hann svo ég geti komið með fréttirnar þaðan.  Erum sem sagt ekki komin með netið heima enda sagði kerlan hjá Símanum að það gæti tekið tvær vikur, grrrrr!!

Góða helgi

Góða helgi allir, engin tími til að blogga og netið farið að heiman þannig ég stalst í tvær sekóndur í tölvuna hjá mömmu og pabba.

Farin að flyjta og ef ykkur langar að vita hvert við erum að flytja getiði sent mér mail því ég set það ekki hér, hasta la vista babes!!


Bissí kona

Ákvað að henda inn nokkrum línum áður en læti dagsins byrja, er að fara með Theodór minn Inga í 10mánaða skoðun á eftir og karlpungurinn á að fá sprautu þar að segja ef hann má?  Ennþá mikið kvefaður, hor í nös og gröftur í augum, well sjáum til en hann er allavega hitalaus og líka í gær þannig þetta er allt í áttina.  Jíbbíjeij!!

Kl ellevu erum við að fara hitta læknana hennar Þuríðar minnar ásamt sálfræðingi sem er búin að vera taka hana í þroskapróf svo það verður fróðlegt að sjá hvað kemur útur því.  Ég veit alveg hvursu klár hún Þuríður mín er en hún kann bara ekki að nota það eða hreinlega nennir því ekki svo þykist hún heldur ekki heyra í manni þegar mar er að spurja hana spjörunum úr því hún nennir ekki að svara mömmu sinni.  Dóóhh!!

Við Skari fórum á útgáfutónleikana hjá Stebba og Eyfa í gær sem voru æði en ekki hvað.  Æðislegur diskur sem ég keypti mér að sjálfsögðu um leið og hann kom út og hann er líka "fastur" í spilaranum mínum, elska hann ásamt Sálina Gospelinn, jiminneini!!  Flottastir!!  Reyndar var líka doltið erfitt að vera á tónleikunum í gær þar sem Stebbi samdi texta um stelpu sem dó kringum fjagra og það er ótrúlega sorglegur og fallegur texti sem mér finnst alltaf erfitt að hlusta á.  Þegar þeir spiluðu það lag í gær reyndi ég sem ég gat að hugsa um eitthvað annað en textan því annars hefðu tárin farið að streyma niður því alltaf þegar ég heyri þetta lag fer ég að hágráta því þetta er svo ótrúlega sorglegt einsog ég sagði.  ....og það líka hugsa útí það að mar gæti einhverntíman einsog allir verið í þessum sporum sem engin í heiminum vill lenda í.
Takk fyrir tónleikana í gær, hlakka til að hlusta á ykkur á Geysi á laugardagskvöldið.  Jíbbíjeij!!

Þuríður mín er aðeins hressari þessa dagana en dagana á undan en kanski er það vegna þess við leyfum henni að sofa einsog hún þar sem hún þarf.  Farin að slappast og svona.  Var superhress á leikskólanum í gær og fékk að fara með deildinni sinni í leikfimi sem er utan hennar leikskóla-tíma sem okkur þykir ótrúlega vænt um.  Knús til ykkar á Hofi!!  En um leið og ég náði í hana rotaðist hún um leið í bílnum svaf í slatta tíma, stuttu eftir að hún vaknaði krampaði hún þannig mín rotaðist aftur og svaf fram á kvöldmat en hefði getað sofið miklu lengur.  Núna sefur þessi hetja sem fastast og fer bara á leikskólan þegar henni hentar og þegar hún orkar til.

Vóvh tíminn líður of hratt, verð að fara gera mig og Thedór reddí fyrir fyrstu læknaheimsókn dagsins og Skari fer líka að koma til að sitja yfir hetjunni minni.  Ætla svo eyða kvöldinu í kvöld að halda áfram að raða í skápa í nýju íbúðinni minni, "mamma það er heldur ekki alveg búið að þrífa hana".  Mhohoho!!

Eigið góðan dag, haldið áfram að knúsast það jafnast ekkert á við eitt (allavega) knús á dag.
Slauga

Vonin

Í baráttu lífsins er vinningur vís
sé vonin í fylgd þessi bjartsýna dís.
Hún huganum lyftir á hækkandi braut
um háfjöll er rísa yfir jarðneska þraut.

Hef það frekar stutt í dag, það er allt brjálað að gera með flutninga að gera Linda og mamma skiptust á í gær að passa hluta af genginu mínu svo við Skari gætum aðeins gert saman niðrí íbúð, raða í skápa og svona og stelpurnar hjálpuðu til eða frekar tóku allt út aftur.  Aaaarghh!!  Þær eru ótrúlega spenntar að flytja, Þuríður mín bað mig um að sækja náttfötin sín í gær þegar við vorum niðurfrá. 
Missi netið væntanlega á morgun þannig ekki búast bið mörgum færslum frá mér næstu daga nema ég skreppi til mömmu og pabba til að blogga, never know!!  Mar er svo háð þessu þannig ég geri það væntanlega.

Verð víst að fara halda áfram að klára pakka en það er komið á hreint að við flytjum á föstudaginn.......

Kveikja á keri fyrir Þuríði mína

Endilega farið inná þessa slóð og kveikið á kerti http://www.gratefulness.org/candles/candles.cfm?l=eng&gi=Arna
Það var lesandi sem gerði þetta fyrir hana, kossar til hennar og að sjálfsögðu kveikti ég strax á kerti :)

Elsku dúllan mín

Þuríður Arna mín grét svona líka sárum gráti í gær sem er farið að gerast oftar en gerðist áður fyrr enda ekki vön að kvarta yfir einu né neinu.  Hún er greinilega farin að finna meira til í höfðinu og ég vildi óska þess að ég ætti einhver kraftaverkameðöl til að lina þjáningar hennar eða tekið eitthvað yfir á mig.  Dagurinn var frekar þreyttur hjá henni í gær og fann líka til og svo grét hún svona líka og sagði við mig "mamma mín ég er lasin, ég er lasin í höfðinu".  Æjhi hvað það kom innilega frá hjartanumGráta.  Hún er heldur ekki vön að segja mikið eða tjá sig þannig þegar hún segir eitthvað svona þá er mikið að.

Stundum hef ég það á tilfinningunni að læknarnir hérna heima séu bara búnir að gefast upp, þetta er bara tilfinning ég er ekki að segja þeir séu búnir að gera það en það er það sem mér finnst.  Sorrý!!  Því æxlið hennar er orðið illkynja þá finnst mér þeir ekkert vilja gera meira og farnir að hundsa hana, ég veit það er ekkert rétt eða ég vona ekki en mér finnst ömurlegt að hafa þessa tilfinningu.  Þegar mar er að segja þeim hvernig henni líður (og henni líður alls ekki vel) þá finnst mér bara fá svarið eða kanski ekkert svar bara kinkað kolli, kanski finnst mér þetta því ég vill fá fleiri svör og lækningu fyrir hana eða þeir hafa hvorugt.  Andskotans helvítis ömurlegt líf!!

Ég á að vera ótrúlega kát yfir því að vera flytja en ég er samt ekki svona kát einsog ég á að vera, kanski vegna þess stóra ástæðan fyrir því að við erum að flytja er vegna veikinda Þuríðar minnar.  Við þurfum að vera á jarðhæð svo það verðir auðveldara fyrir hana og okkur, þá vildi ég frekar vera berjast við nágranna mína alla mína ævi heldur en að þurfa flytja vegna þess dóttir mín er illkynja sjúkdóm.  Þetta er ósanngjarnt!!

Þuríður mín vaknaði hress í morgun og fyrr en venjulega sem var ótrúlega gott, það var einsog hún ætlaði sér sko ekki að missa af leikskólanum í dag.  Þannig stúlkan gat mætt með systir sinni kl átta á leikskólan, æðislegt!!


Dagurinn í dag

Þuríður mín Arna hefur ekki orku í að fara í leikskólann í dag því verr og miður, við erum farin að leyfa henni að sofa einsog hún vill.  Þótt hún þurfi á reglunni að halda þá þarf hún líka að hafa orku til að stunda leikskólann og fleira sem hún hefur ekki  því verr og miður.  Ætlum hér eftir að leyfa henni að sofa út eða einsog hún þarf á morgnana og svo senda hana í leikskólann einsog við ætluðum að gera í morgun en það var ekki alveg að virka.  Jú hún vaknaði hálftíu í morgun fékk sitt uppáhald að borða en komst ekki alveg strax í leikskólann þar sem ég var hjá tannsa þannig stúlkan var búin að finna allt sitt leikskóla-dót til og beið spennt eftir því að pabbi sinn gæti keyrt sig í leikskólann en svo bara búúúmm fékk krampa og rotaðist um leið.  Aaaarghh!!  Klukkan er núna tólf og stúlkan sefur en, það er alveg ótrúlegt hvað hún hefur slappast hratt hjartað mitt er gjörsamlega ónýtt einsog það hefur reyndar verið síðustu tvö ár en það skemmist bara meira og meira.

Kramparnir hennar eru orðnir miklu harðari en þeir voru og lengri, hún er gjörsamlega ónýt eftir hvern og einn krampa sem hún var ekki hérna fyrir einhverjum vikum.  Þeir eru færri á dag eða svona frá einum uppí fimm en miklu verri, þótt hún væri búin að sofa í tvo tíma eftir krampa eða slappleika og fengi krampa stuttu eftir að hún vaknaði væri hún strax orðin "ónýt" af krampanum.  Þetta er endalaust sárt!!

Theodór minn Ingi er ennþá lasinn, litli pungurinn okkar!!  Hann á ótrúlega bágt enda vita flestir líka hvernig karlmenn eru þegar þeir eru veikir eheh!!  Reyndar ætla ég nú ekki að líkja tíu mánaða dreng við fullorðna karlmenn en hann á samt ósköp bágt, er líka á fullt af lyfjum, pústum og með ljóta hósta sem ég hef heyrt.  Hann hefur EKKERT sofið síðustu tvær nætur, ohh mæ!!  Ég var hjá tannsa áðan og það hefur ALDREI nokkurntíman gerst að ég hefði getað sofnað hjá honum og nota bene þegar hann var að bora, asskotans vesen!!  Ég átti hrikalega erfitt með að halda augunum opnum, dæssúss!!  Vona samt að hann verður fljótur að jafna sig...

Oddný mín Erla er hress að vanda og mig langar nú bara að koma með nokkra gullmola frá henni en hún er algjör snillingur þessi stúlka, það sem veltur uppúr henni.

Á fimtudaginn vorum við mægður að horfa á sjónvarpið og Hemmi Gunn að byrja.
Oddný: "mamma er Hemmi Gunn að byrja?"
Ég: "já"
Oddný: "ohh hann er svo leiðinlegur, viltu slökkva á sjónvarpinu"
Hvaðan fær hún það eiginlega ehehe!!

Hún er mikið að pæla í stöfum þess dagana og vill helst vera búin að læra þá alla.
Oddný: "mamma hver á alveg eins staf og þú?"  (sem sagt Á eheh)
Ég: (ég var ótrúlega þreytt þetta kvöldið og var ekki alveg að meika það að vera í einhverri stafakennslu) "uuuu  æjhi veistu það ég veit það ekki"
Oddný: "döö er það ekki Ásgrímur?"
Ótrúlega getur móðirin verið vitlaust, barnið bara tveggja og hálfs og veit betur en móðirin ehe!!

Hún kjaftar endalaust mikið þegar við erum á leiðinni í leikskólann og ég hef ekki undan að svara spurningum hennar en stundum er ég bara svo þreytt að mig langar bara að þegja en það gengur samt aldrei hjá Oddnýju minni eheh!!  Þannig var það um daginn, við vorum að keyra og hún var búin að spurja mig spjörunum úr og svo á endanum nennti ég ekki meir og sagði bara "ég veit það ekki" við einni spurningunni en þá varð mín alveg trítilóð og svaraði mér tilbaka "nei mamma þú mátt ekki segja ég veit það ekki".  Damn eheh ég verð að vera með svörin við öllu hjá henni og henni er nú nákvæmlega sama þótt móðir sín sé þreytt og langi ekki að tala, hún verðu sko að gjöra svo vel.

Takk fyrir mig í dag!!
Kveðja Áslaug sú laaaaaaaang þreyttasta


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband