Leita í fréttum mbl.is

Lent og beint uppá Barnaspítala

jamm við þurftum bara að  bíða í fjórtán tíma útá Kastrup eftir flugi heim þvílík og önnur eins þjónusta hjá Icelandair, já þeir létu okkur hanga þar til fjögur í nótt þegar við fengum loksins flug heim en við áttum að fljúga heim kl tvö í gær dag.  Þeir lugu að sjálfsögðu að okkur farþegunum að það væru ÖLL hótel uppbókuð í Koben sem er að sjálfsögðu bara lygi þannig við þurftum bara að hanga en sumir slógu þessu bara uppí kæruleysi og djömmuðu feitt eheh en samt ekki við thíhí!!  Við vorum bara að spila og Skari reyndi að leggja sig á flugvellinum sem gekk svona lala en mín reyndi þá bara að hlusta á ipodin en ég get samt ekki sagt að það hafi bara verið leiðinlegt að hanga þarna þar sem við kynntumst skemtilegu fólki og á tíma hélt ég að ég væri komin í myndina "með allt á hreinu" þvílíkir snillingar þar á ferð.  Oh mæ god!! 

Allavega lentum við hálf sex í morgun en áttum að lenda um þrjú í gærdag sem var kanski aðeins of mikið hangs þegar ég tala fyrir sjálfan mig og þreytan er líka endalaus mikil enda svaf mín ekkert þarna þar sem ég þorði ekki leggjast og reyna gleyma mér þar sem það voru "fyllibittur" hér og þar og mín var ekki að fíla það þegar þær komu og voru eitthvað að klæmast.  En við vorum komin heim loksins um sjö og stuttu eftir það var mín mætt uppá Barnaspítala með hann Theodór minn og ég var einsog einhver vofa, veit ekki hvað þeir hafa haldið þar?  En hann Theodór minn heldur engu niðri síðustu þrjá daga, ef hann fær smá sopa af einhverju þá ferð það bara strax útur bæði götin.  Það er ömurlegt ástand á drengnum.  Við þurftum að vera þar fram að hádegi því þeir voru að reyna hella einhverjum vökva í drenginn sem gekk EKKERT en hann gubbaði samt ekkert né útur hitt gatið þannig læknarnir sögðu okkur að fara heim en kanski myndi Þetta ganga betur þar sem að það hefur sjálfsögðu ekkert gert en um leið og við stigum innum dyrnar kom þvílík buna útur litla karlinum mínum og hann ekkert ennþá fengið dropa uppí sig en hann verður alveg snar ef ég reyni því hann má heldur ekki drekka hvað sem er. 

Ég mun sjá til frammá kvöld eða morgun því ef hann heldur svona áfram mun hann þurfa fá næringu í æð en mig langar ekki að leggjast með hann inn þess vegna reyni ég að berjast og berjast við drenginn verst að það gengur ekkert.  Svo er hann líka með einhverja sveppasýkingu í munninum sínum þannig það er smá ástand á drengnum mínum sem fannst yndislegast að endurheimta mömmu sína í morgun sem hann hefur ekki sleppt eheh!!  Núna sefur litli krulluhaus enda engir kraftar til að gera neitt, æjhi greyjið!!

Stelpurnar voru að sjálfsögðu hoppandi kátar þegar mútta og pápi tóku á móti þeim í morgun en þær voru samt mest ánægðastar með litlu prinsessurnar sem þær fengu frá okkur eheh!!  ÞArf ekki mikið til að gleðja þessar stelpur.

Ætli ég fari nú ekki að gera eitthvað af viti hér heima þetta er einsog einhver ruslahaugur, dóóhh!! Eigið yndislega helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr.
Slauga


Fost i Koben

Tad er ekkert jafn leidinlegt en ad vera fost einhversstadar a flugvelli og tad ad vera fost i ruman halfan solarhring, oh mae god!!  En tad er samt margt verra en tad tannig eg kvarta ekki mikid og madur reynir bara ad gera gott ur tessu.  Vid attum sem sagt flug i dag kl tvo en vegna skemmdar a velinni fljugum vid ekki heim fyrr en fyrsta lagi fjogur i nott, takk fyrir tad!!  Tannig vid Skari skelltum okkur i bulluna a svaedinu og eignudumst eitt stk yatsi og spilastokk og vid bara spilum i nokkra klukkutima i vidbot ehhe!!

Annars var klikkadslega gaman a ballinu i gaer, skemmtilegir bordfelagar en ad sjalfsogdu gatum vid reddad okkur a bordi sem vid tekktum bordfelagana en ekki hvad, stundum er gott ad hafa sambond eheh!!  Tad var aedi a ballinu sjalfu Studmenn og Salarmenn voru klikkadslega flottir asamt Eyfa og Bjorgvini Halldors, eg hefdi sko ekki viljad missa af tessu.  Nei takk!!  Stort knus til teirra sem sau til tess ad vid fengum tessa skemmtun eg verd endalaus takklat, tid erud aedi!!  Mer fannst lika gaman af fa oll tessi knus sem eg fekk a ballinu ekkert endilega fra folki sem eg tekkti eheh!!  Eg er nu ekki su opnasta a svaedinu otrulegt en satt en ta finnst mer alltaf gaman ad fa knus og klapp a bakid to eg tekki ekki einstaklingin, hefdi kanski ekki flilad tad fyrir morgum arum en nuna knus til ykkar tilbaka.  Tetta voru nu bara lesendur minir sem voru ad knusa mig og sogdu ekki stakt ord nema barattukvedjur sem mer fannst aediWink.  Tid erud frabaer lika!!

A tridujudagskvoldid forum vid i tivoliid sem var geeeeeeeeedveikt og fengum tetta tvilika kikk og forum i ollu storu taekin ta meina eg OLL ok nema eitt eheh en eg held ad eg hafi farid i einum of mikid tvi eg var naestum tvi buin af kasta upp i sidasta taekinu sem hefdi farid beint a Horpu ehhe!! Tess a milli roltum vid bara upp og nidur strikid og drukkum einn kaldan, tessi ferd var sem sagt aedisleg to stutt vaeriGrin.

Tad verdur gott ad komast heim i fyrramalid tar sem Oddny min Erla og Theodor minn Ingi eru baedi ordin lasin og litlu mommulingarnir vilja fa ad kura i mommukoti.  Eg sem var farin ad hlakka til a morgun til ad fa ad vera med Evu mina litlu mus lika en tad verdur tvi midur ekkert ur tvi vegna veikinda.  Eg einmitt var ad tjatta vid Oddnyju i simann og spurdi hana hvort hun vaeri ordin lasin en nei hun er sko ekki ordin lasin tvi "lasin" hja henni tydir eitthvad slæmt utaf Turidi minni Ornu. Einsog um daginn tedar hun vard lasin og var svo haett var hun alltaf ad spurja mig hvort hun væri nuna hætt ad vera lasin tvi hun var ordin eitthvad smeyk greyjid og ad sjalfsogdu skilur hun ekkert tessi elska to hun se velgefinHalo.

Ætli tad se ekki best ada fara spila Yatsi sem Skara minum tannig eg bid ad heilsa i bili og takka enn og aftur fyrir oll fallegu kommentin fra ykkur, tid erud oll yndisleg.

Knus og kossar fra Kastrup
Slauga og Skari


Orðlaus

Ég er farin að vera ansi oft orðlaus þessar vikurnar það er svo mikið af góðu fólki í kringum okkur að hálfa væri miklu meir en nóg.  Ekkert endilega fólk sem við þekkjum sem er tilbúið að gera heilmargt fyrir okkur og hefur gert, ekki bara Þuríði mína heldur líka okkur Skara og oft hugsa ég "hvað hef ég gert til að verðskulda allan þennan kærlega frá sérstaklega "ókunnugum?".  Ég stend gjörsamlega á gati og er þokkalega orðlaus og mikið ofsalega langar mig að knúsa alla sem hafa staðið svona vel á baki okkar. 

Fallegu e-mailin sem ég hef fengið síðustu daga gera ótrúlega margt fyrir mig, æðislega gaman að fá líka mail þegar vel gengur þið skiljið hvað ég meina.  Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þetta er allt saman dýrmætt fyrir okkur og við værum ekki stæðum ekki svona upprétt ef við hefðum ekki ykkur öll að kæru lesendur, þið eruð alveg ótrúleg!!  Þetta litla land er ótrúlegt og hvað fólk er tilbúið að gera fyrir ókunnuga og mikið vil ég óska þess að ég mun gefa af mér svona einn daginn.  Þegar ástandið verður orðið sem "venjulegast" á heimilinu sem ég veit aldrei  hvenær eða ef það mun gerast þá ætla ég mér að gefa af mér einhverjum sem þarf virkilega á því að halda.  Ég vildi óska þess að ég gæti það í dag, ég hef mínar hugmyndir sem mig langar að gera þegar ég verð orðin "stór" og vonandi einn daginn mun sá draumur verða að veruleika.   

Einsog ég sagði þá skil ég ekki þennan kærleika til okkar og það frá ókunnugum einsog ein manneskja sagði við mig fyrir jól "afhverju er fólk svona gott við ykkur en hvað með alla hina sem þurfa á hjálp að halda?".  Ég var að sjálfsögðu orðlaus og gat engu svarað enda veit ég það ekki kanski þeir vita ekki af öllum hinum, við erum opin um veikindin hennar Þuríðar minnar og það hefur hjálpað mér endalaust mikið að vera með þessa heimasíðu þó ég fái leiðinleg komment einu sinni í mánuði sem særa mann endalaust mikið en þá er þetta mikil hjálp.  Að birtast í fjölmiðlum fyrir jól hjálpaði mér líka mikið fékk mörg mail frá bæði heilbrigðum og veikum og þeir veiku voru rosalega ánægðir með þá umfjöllun því það eru svo margir feimnir við þessi veikindin sín sem þeir ættu ekki að vera því "við" getum ekkert að þessu gert.

Einsog þessa dagana hef ég verið orðlaus, hamingjusöm, í sæluvímu og svo lengi mætti telja og auðvitað er mesta ástæðan hún Þuríður mín sem er að slá í gegn.  Jíha!!  En svo fengum við líka fallega gjöf "hey kanína komdu í partý" jíha!!  Okkur var sem sagt boðið flug til koben í fyrramálið og heim aftur á fimtudag þannig við erum á leiðinni að sjá okkar uppáhalds hljómsveit Sálina hans Jóns míns og Stuðmenn, tralalalalala!!  Þannig langar einhverjum að skella sér með mér í klikkuð tæki í tívolíið annað kvöld og halda uppá þessa yndislegu daga?  Hver hver og vill verður að lofa bannað að svíkja?

Mig langar bara í lokin að senda stóóóóórt knús til ykkar allra kæru lesendur sem hafa hjálpað okkur endalaust mikið að leyfa okkur að gera eitthvað fyrir okkur og látið okkur halda sönsum svona einsog best kosið sem er ómetanlegt.  Þið trúið því ekki hvað ég er orðlaus.
Farin að pakka einhverjum tuskum í tösku og ég hugsa til ykkar á morgun og hinn eða ekki það verður ö-a öfugt frekar eheheh!!

Skjáumst síðar
Slauga


Ævintýri en gerast

Sjalllalalalala!! Oh mæ god hvað maður er ekki að átta sig á þessum fréttum og við fjölskyldan að sjálfsögðu fögnuðum ásamt góðu fólki og fórum á uppáhaldið okkar Ruby Tuesday og svo í dag fórum við mæðgur í bíó ásamt vinkonu minni og dóttir og að sjálfsögðu skemmtum við okkur konunglega.  Það er líka bara svo gaman að vera innan um gott fólk alveg sama hvað maður gerir og fá allar þessar fallegu kveðjur sem við höfum fengið hvort sem það er í gegnum heimasíðuna, e-mailin eða hringingarnar.  Þið eruð best!! 

Þið getið ekki ímynda ykkur hvað okkur líður vel núna, þetta er svo yndislegt að hálfa væri miklu meir en nóg.  Ég var einmitt að ræða við læknana okkar ef henni mun halda áfram að líða svona vel sem ég að sjálfsögðu vona svo heitt og innilega þá ætla ég í skóla í haust sem þeim leist ótrúlega vel á.  Enda finn ég það líka að ég þarf að fara gera eitthvað fyrir sjálfan mig, ég þarf að fara hitta fólk og gera eitthvað af viti sem ég vona svo heitt og innilega að það verði að veruleika en að sjálfsögðu veltur allt á Þuríði minni en hún er nr.  eitt tvö og þrjú.

En mig langar samt að minna ykkur á að ekki að gleyma kveikja á kerti fyrir hetjuna mína sem er að standa sig best í heimi og sem er að reyna læra svo mikið en litla konan á heimilinu hún Oddný Erla er svo mikið að kenna henni þessa dagana eheh!!  Oddný er nefnilega svo mikið að læra stafina og Þuríður mín er einsog flestir vita tveimur árum eftir á en Oddný er að kenna henni að halda á blýanti ehehe og kenna henni að skrifa hina og þessa stafina ótrúlega dugleg þessi elska. Þuríður mín er mjög áhugasöm að reyna læra hina þessa hluti sem hún hefur ALDREI verið, það er svoooooo gaman að sjá þetta allt saman.

Knús og kossar
Slauga


Ja hérna hér, flugmiði óskast ódýrt.

Þessi dagur er búinn að vera yndislegastur að hálfa væri miklu meir en nóg, maður er í hálfgerði sæluvími með þetta allt saman en þetta voru svo yndislegar fréttir sem við fengum í morgun. 

Ég fékk líka skemtilegt símtal áðan en ein vinkona mín hringdi í mig og hennar vinkona vann tvo miða á Sálina útí Köben þar að segja ballið og matinn.  Hún kemst ekki en langaði þá að gefa okkur þá í staðinGrin sem er nú ekki leiðinlegt en það er bara einn galli flugið er orðið himinhátt og uppselt að sjálfsögðu hjá express út þannig það kemur ekki til greina NEMA þú kæri lesandi langar að selja mér flugmiða þinn ehhe!!  Maður er alltaf jafn bjartsýnn en það sakar ekki að reyna, það skiptir ekki máli hvort það sé með icelandair eða express.

Endilega hafðu samband við mig ef þú lumar á miða e-mailið mitt er aslaugosk@simnet.is
Góða helgi
Slauga


Stóóórglæsilegar fréttir

Hæhó jíbbíjeij og jíbbíjeij það er föstudagurinn þrettándi sem er greinilega okkar happadagur hér eftir.  Ttralllalalalala!!

Fengum góðar fréttir í morgun og læknunum hefði fundist skrýtið ef þær hefðu ekki verið góðar þar sem Þuríður mín litla hetja er búin að vera svo hress en reyndar segir það ekki alltaf allt en það gerir það í þetta sinnGrin.  Æxlið hefur sem sagt minnka, ekki mikið en samt smávegis þeir sáu greinilegan mun sem er heimsins bestu fréttir.  Tralllalala!!  Eintóm hamingja á þessum bæ!!  Maður er samt með allan varan á því þetta getur verið tímabundin minnkun og svo farið aftur að stækka aftur enda er æxlið illkynja en einsog alltaf lifum við fyrir daginn í dag og erum ekkert að bíða eftir því að eitthvað breytist til hins verra að sjálfsögðu ekki.  Auðvidað er alltaf þessi hnútur í maga ef maður sér einhverjar breytingar á hetjunni en kraftaverk gerast og það skal gerast með hana Þuríði mína.  Ég veit að samanlagðar sálir geti einhverju breytt, takk fyrir það!!Sideways

Því henni líður svona einsog hún gerir í dag þá var ákveðið ef hún heldur svona áfram þá verða næstu myndatökur ekki fyrr en í ágúst og það hefur ekki liðið svona lengi á milli síðan ég veit ekki hvenær, ætli það hafi einhverntíman liðið svona langur tími á milli síðan hún veiktist held ekki?  Þetta er þvílíkur draumur í dós!!  Sjalllalalala ævintýri en gerast!!

Tilefni þennan frábæra dags ætli við fjölskyldan skellum okkur ekki bara á uppáhaldsstaðin okkar í kvöld sem er Ruby tuesday Tounge.  Kanski ég ætti bara líka að panta mér ferð til Koben í næstu viku á Sálina og Stuðmenn thíhí!!  Mikil pressa í gangi frá sumum gærum thíhí en ætli það nokkuð?

Best að halda áfram að fagna með litla krulluhaus og knúsa hann í botn, eigið góða helgi og ekki gleyma knúsunum og reynið nú að gera eitthvað skemtilegt.
Hasta la vista
Slauga í geggjuðu stuði


Þreytt

Þá eru myndatökurnar búnar og Þuríður mín er ofsalega þreytt eftir þær enda ekki furða þar sem stúlkan var svæfð, gat nú ekki mikið labbað eftir þetta og varla haldið höfði þegar við mættum til ömmu Oddný í morgun eftir vöknun.  Vanalega vaknar hún mjög hress og getur mætt á leikskólan en það var ekki til umræðu í morgun þegar maður sá hvernig hún vaknaði.   

Þetta gekk allt saman mjög vel fyrirutan þreytuna nema þegar við mættum í myndatökurnar og stúlkan sofnuð þá fannst ekki beiðnin fyrir myndatökurnar og þá hélt ég að hún fengi ekki að fara en að sjálfsögðu reddaði Sigrún hjúkkan okkar því þannig þetta er búið.

Mikin ofsalega kvíðahnút fékk ég þegar það var verið að taka myndir, púúffhh!!  Óþægilegt að fá svona hnút en ég reyni samt að vera bjartsýn, við sýndum liðinu okkar breytingar í andlitinu hennar Þuríðar minnar og doktorinn vonaðist til að myndirnar hefðu náð svona langt niður og það vona ég líka þannig hún þyrfti ekki að að fara í aðrar myndatökur.   Nú er bara að krossa fingur og biðja þennan þarna uppi að fara gera eitthvað að viti fyrir hetjuna mína þó hún sé búin að vera hress undanfarnar vikur þá vill ég að sjálfsögðu meira og vill fá að sjá minna æxli á myndunum en ekki meiri stækkun.  TAKK FYRIR ég bið ekki um meira.

Þegar við mættum uppá deild í morgun fór ég að hugsa um okkar innlagnir síðasta sumar og hvað ég mun vorkenna liðinu sem þarf að liggja inni í sumar, greyjið börnin!!  Því þetta kerfi er alltaf með niðurskurð og þeir tíma ekki að ráða sumarstarfsfólk bara meira álag á fastráðna sem er bara ekki að virka.  Gvuuuð minn góður hvað ég vill ekki að neinn þurfi að lenda í innlögn í sumar hvað þá með miikið veikt barn en því miður mun einhver þurfa þess.   

Síðasta sumar varð Þuríður mín mjög veik eftir eina lyfjagjöfina og þurfti að sjálfsögðu innlögn, þá var t.d. helmingur af starfsfólkinu í sumarfríi og það var búið að loka annarri barnadeildinni vegna skorts á starfsfólki.  Þið hefðum átt að sjá hjúkkurnar þá, þær voru sveittar að hlaupa á milli herbergja til að reyna sinna öllum sjúklingunum, flestar með bauga niðrá axlir enda ö-a að vinna einum of mikið og álagið á þær gífurlegt.  Einn morguninn þegar ég mætti uppá spítala til Þuríðar minnar en þá var tengdó hjá henni fékk ég áfall því Þuríður mín lá svona líka í blóði sínu í rúminu sofandi.  Að sjálfsögðu brá mér og hvað þá tengdó þegar hún sá hana svona og auddah hljóp ég strax fram til að ræða þessi mál við hjúkkurnar á vakt og aldrei í lífinu hef ég verið jafn reið og ætlaði sko að æsa mig en þeir sem þekkja mig er ég ekki mikið fyrir að æsa mig yfir hlutunum frekar fer ég að grenja ef eitthvað er eheh!!  Ég ætlaði sko að reyna vera reið enda ekki sátt við það að barnið mitt alblóðugt í rúminu sínu enda auddah gat ég það ekki og átti mjög erfitt með að halda grátinum inni.

Þá var víst einhver hjúkka sem var að sinna henni um nóttina og var að gefa henni lyfin sín og það kom víst gat á slönguna sem var tengd Þuríði minni og blóðið spíttist útum allt en hjúkkan hefur væntanlega verið svo þreytt að hún sá þetta ekki eða hafði rænu á að vekja tengdó sem hefði í hið snarasta hjálpað hjúkkunni en ekki hvað en nei þá lét hún þetta vera og barnið bara alblóðugt.  Mikið ofsalega var ég reið, svona verður þetta náttúrlega ef fólk hefur unnið yfir sig eða kanski bara nennti hún ekki að sinna sinni vinnu, ég veit það ekki?  Hefði þessari hjúkku langað að koma að barninu sínu svona?  Nei ég held ekki enda hvað átti ég að halda þegar ég sá hana svona? Það hefði eitthvað alvarlegt getað komið fyrir.  Grrrrr!!  Ég verð alveg ennþá reiðari þegar ég hugsa um þetta því þessir karlar þarna sem stija á rassgatinu allan daginn og tíma ekki að borga sumarstarfsfólki frekar vilja þeir að eitthvað komi fyrir?  Andskotin hafi það, og mikið finnst mér líka leiðinlegt að horfa á hana Sif Friðleifs koma uppá spítala til að sýna sitt nef og henni er ö-a alveg sama um þetta?  Allavega er hún ekki að gera neitt, veit ekki hvursu mikið hún ræður með þetta allt saman en þá fer það ofsalega í mig.  Ég hefði getað sparkað fast í rassgatið hennar þegar ég mætti henni útí TBR um daginn þegar hún var þar að sýna sitt nef, grrrrrrrrrr!!  

Ég vona allavega svo heitt og innilega að við sleppum við innlögn í sumar þó ég vildi óska þess mest í heimi að Þuríður mín væri að klára lyfjameðferð sína núna í júlí einsog prógrammið var en svo  gott er það ekki.  En samt ekki misskilja mig en þá finnst mér flestar konurnar á 22E æðislegar og sumar reyndar í meira uppáhaldi en aðrar eheh sérstaklega þær sem hafa sinnt Þuríði minni frá því hún veiktist og auðvidað er það ekki þeim að kenna að sumarstarfsfólk er ekki ráðið til vinnu en vonandi verða gerðar einhverjar breytingar á því.

Takk fyrir mig í dag en á morgun kl hálf ellevu verður fundur með læknunum, megið hugsa fallega til okkar þá og vonandi get ég þotið heim til að skrifa góðar fréttir annars þanga til ég veit ekki hvenær.

Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið hafið verið að senda okkar sem gera mikið fyrir okkur.
Knús og kossar
Áslaug og co

Kvíðin :(

Alltíeinu í gærdag fór mér að líða skringilega, var orðin kvíðin og leið eitthvað hálfilla sem ég skyldi eiginlega ekki afhverju?  Þuríði minni líður vel og allir í kringum þar sem ég veit en þá fattaði ég að ég væri bara svona kvíðin fyrir morgundeginum en samt mest fyrir föstudeginum 13.  Aaaargghh!!  Þuríður mín fer í myndatökur á morgun og fundur á föstudaginn með læknunum sem mér kvíður rosalega fyrir þó að Þuríði minni hefur liðið vel undanfarna vikur og ekki fengið krampa í tæpa tvo mánuði þá finnst mér ég ekki nógu bjartsýn fyrir þrettándanum.Frown 

Kanski er líka ástæða fyrir því en fyrir nokkrum vikum man nú ekki nákvæmlega þá sá ég smá breytingar á annarri hliðinni hjá Þuríði minni einhverskonar bólga rétt fyrir neðan þar sem aðgerðin var gerð sem sagt sömu megin og æxlið er.  Æjhi ég var kanski ekkert mikið að spá í það þá hélt kanski að þetta væru aukaverkanir af geislanum en svo fór ég að pæla aðeins meira í þessu síðustu daga en "bólgan" hefur ekkert hjaðnað og þá verð ég ennþá smeykari.  Er eitthvað ljótt að gerast þarna?  Er stækkunin orðin svona mikil?  Hvað er þetta eiginlega?  Ég veit það að sjálfsögðu ekki sjálf en læknarnir ættu vonandi að vita það og það ætti þá kanski að koma í ljós á föstudaginn.  Vonandi er þetta að sjálfsögðu ekkert en auðvidað verður maður smeykur þegar maður sér eitthvað sem ætti ekki að vera.   Jú henni hefur liðið vel undanfarið fyrirutan "brjálæðisköstin" sem hún hefur verið að taka undanfarna daga og við þau er ég líka smeyk, hún er ekki vön að æsa sig yfir hlutunum þó hún fái ekki eitthvað en undanfarna daga hefur hún tekið þessi köst sem maður á ekki að sjá ekki einu sinni hjá heilbrigðu barni og við það er ég smeyk.  Maður hefur heyrt ýmsa sögur um fólk með æxli í höfði þess vegna verð ég smeyk eða réttara sagt mjög hrædd.

En að sjálfsögðu held ég í vonina að allt komi vel útur þessum myndatökum og hún sé eitt af þessum kraftaverkum en ég veit líka ef ég er of bjartsýn og það komi ekki gott þá mun ég gjörsamlega brotna niður og mig langar ekki að líða svona einsog mér leið í september síðastliðin.  Ég var gjörsamlega dofin, hjartað mitt hætti að slá í smá tíma, mér fannst allt vera hrynja en ég á líka tvo aðra gullmola sem ég verð að reyna standa upprétt fyrir og Oddný mín finnur líka þegar mömmu sinni líður illa og þá verður hún svo ómögleg og fer líka að líða illa og þannig vill ég ekki hafa það þó ég geti ekkert af því gert því verr og miður.Crying

Þannig í tilefni morgundagsins og daginn þar á eftir langar mig að biðja ykkur að kveikja á einu kerti fyrir hetjuna mína og hugsa fallega til hennar, kertasíðan hennar er hérna til hliðar.

Knús og kossar
Slauga


Yndislegir páskar

Við áttum yndislega páska, átum á okkur gat, ég held að ég hafi aldrei í lífinu borðað jafn mikið og þessa páska.  Oh mæ god!!  Það var æðislegt að komast í sveitina til að gera ekki neitt, bara borða, fara í pottinn, út að leika og svo lengi mætti telja.  Þetta var æðisleg hleðsla og gott að geta sofið svona mikið einsog við gerðum þessa páska, æði gæði!!

Theodór minni Ingi er þvílíkt farin að blaðra, uppáhalds orðið hans er "gigga" sem þýðir "Vigga" ehe og svo er hann farinn að herma þvílíkt eftir manni þar að segja ef ég segi að honum að segja eitthvað þá gerir hann það sem er æðislega gaman að fylgjast með því hann verður svo glaður þegar hann segir það sem ég segi honum að segja (úff doltið mörg "segja" í þessu hehe) og svo klappar hann á fullu fyrir sér.  Yndislegastur!!

Hann er samt alltof mikill mömmukall, dæssúss!!  Ég má ekki hreyfa mig þá tryllist hann en svo þegar ég er ekki á staðnum þá er alltíkei en um leið og móðirinn birtist slítur hann sig ekki frá henni, kanski orðið einum of.  Hann er samt alltaf jafn yndislegur þessi drengur sem er farinn að þroskast svona líka mikið bara á nokkrum dögumHappy.

Annars líður öllum vel hérna á heimilinu, Þuríður mín hafði þvílíka orku í að leika sér alla helgina hvort sem er það var inni, úti eða í pottinum sem hún elskar útaf lífinu og ótrúlegt hvað hún gat haldið sér vakandi lengi á kvöldin.  Bara best!!


Tekið á páskadagsmorgun

P4081686
Hérna eru systkinin ný búin að finna páskaeggin sín því að sjálfögðu var páskaeggjaleit í sveitinniGrin

« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband