Leita í fréttum mbl.is

Gleðilega páska

Við fjölskyldan erum svakalega spennt að fara í sveitina um helgina, stelpurnar að farast úr spenning ehe!!  Held að það sé aðallega því það á að fela páskaeggin í sveitinni thíhí og svo að sjálfsögðu að skreppa á Stokkseyri því amma Erla á afmæli og það er eiginlega einsog og Oddný Erla mín eigi afmæli því hún er svo spennt að fara til ömmu sinnar nöfnu í afmæli.

Hvað haldiði annars að mín hafi gert í fyrradag, júmm mín ákvað að fara í Bása og þeir sem vita ekki hvað Básar eru en það er fyrir golfara einsog mig eheh en VIÐ Smile förum þangað til að æfa höggin og svona.  Oh mæ god hvað ég var léleg eheh!!  Þetta er á þremur hæðum og ég var á miðhæðinni og ég veit eiginlega ekki hvað þeir hafa haldið sem voru fyrir neðan mig, stundum runnu boltarnir beint niður á næstu hæð.  En sjálfsögðu gat ég slegið langt líka en það var eitt samt sem ég skammaðist mín mest fyrir en það var ég var að taka plastið af golfkylfunum mínum þegar ég var að fara nota þær.  Dóóhh!!  Eitt og hálft ár var mér gefið þetta sett og var að nota það í fyrsta sinn í fyrradag og er að deyja úr harðsperrum í handleggjunum.    ("Ég er nefnilega að æfa mig fyrir þrídugsferðina mína KatrínWink".)  Ætla sko að taka settið með mér í sveitina, það ætti allavega engin að vera fyrir þegar ég slæ nokkur högg eheh engin fyrir neðan allavega.  Víííí!!

Best að fara pakka, sveitin kallar!!
Gleðilega páska kæru vinir og vonandi hafiði það yndislega gott yfir páskana.


Steikt steiktari steiktust

Dæssúss mar hvað ég er orðin steikt í hausnum af öllum þessum pælingum af hinu og þessu og auddah miðast þessar pælingar allt út frá "hvernig hún Þuríður mín er/verður".  Ég er alltaf að reyna miða við hlutina að hún verði bara góð en svo kemur alltaf þetta stóra EF, aaaaaaaaargghhhh!!!  Ég vildi óska þess að hlutirnir hjá okkur væru bara sem eðlilegastir og væri bara að pirrast útí hvað ég ætti að gefa stelpunum mínum í afmælisgjöf, þetta er alltof flókið líf.

Theodór minn töffari er komin með pláss á sama leikskóla og þær stelpur að sjálfsögðu enda kæmi engin annar leikskóli til greina þó ég gæti veifa til þeirra hérna útum stofugluggan þá er mér sama þó ég þurfi að keyra 10km í leikskólan með þau.  Hann reyndar byrjar ekkert fyrr en næsta haust en það er sama og stelpurnar komnar með pláss til fjögur því mig langar svo ofsalega mikið að fara gera eitthvað fyrir sjálfan mig.  T.d. að sækja loksins um það sem mig langar að fara læra en stefnan er sett á það næsta haust og ég get það nottla bara ef Þuríður mín heldur áfram að vera svona mikil ofurkona einsog hún hefur verið undanfarin einn og hálfan mánuð allavega. 

Mig langar svo að geta bara hugsað um að hún haldi áfram að vera svona einsog hún er en svo kemur alltaf hitt og þá kemur hnúturinn en ég veit líka að kraftaverkin gerast en þannig ég er að reyna halda í það.  Ég hef reyndar sett mig í samband við skólan og þeir munu leyfa mér að vera með frjálsa mætingu en við erum að sjálfsögðu tvö í þessu en Skari verður nottla að sinna sinni vinnu annars getum við bara borðað það sem úti frýs en yfirmenn Skara eru líka ofsalega skilningsríkir ef eitthvað bjátar á t.d. hjá henni Þuríði minni og kanski ekkert annað hægt ég veit það ekki? 

Annars er Þuríður mín búin að vera krampalaus í einn og hálfan mánuð en metið hennar er þrír mánuðir(fyrir tveimur árum var það síðast), hibbhibbhúrrey!!  Stefnan er að losna algjörlega við þessa krampa að sjálfsögðu, ég veit að það færi alveg með mann ef/þegar hún myndi byrja krampa aftur.  Þó ég hafi verið vön að sjá hana fá endalaust marga krampa á dag þá yrði það ö-a einsog allra fyrsti krampinn þannig við biðjum bara um að kraftaverk og hún losni bara við þennan andskota.  (sorrý)  Henni er farin að fara svo fram í þroska og það er svo gaman að sjá hvað henni líður vel, hún þarf að tjá sig svo mikið og henni finnst svo gaman að segja frá hinu og þessu.  Held að öll deildin hennar á leikskólanum viti allt hvað við ætlum að gera og hvað við höfum verið að gera og hvað flestir ættingjarnir heita sem er reyndar bara gaman því hún er að sýna framfarir sem við ELSKUM.

Þegar Þuríði minni líður svona vel þá líður Oddnýju minni líka vel en þetta snýst allt um Þuríði hjá öllum á heimilinu.  Oddný mín finnur alveg þegar Þuríði líður illa og þá verður hún alveg ómögleg því þá líður okkur líka illa þannig þetta vindur bara uppá sig.  Þó Oddný sé bara að verða þriggja ára (27dagar þanga til eheh, hún telur dagana í prinsessukökuna) þá finnur hún alveg hvernig okkur hinum líður.

Það eru líka fleiri steikingar í hausnum mínum en þetta en ég læt það bíða með að tjá mig um það, reyni að hugsa um það bara þegar það kemur útur myndatökunum eftir rúma viku eða föstudaginn 13.

Takk fyrir mig í dag, munið að knúsa hvort annað það er endalaust gott.  Við Þuríður sofnuðum í faðmlögum í gærkveldi sem var yndislegast.


Fallegustu börnin

P3311363
Fallegustu börnin á leiðinni í fermingarveislu núna um helgina. (ef þið klikkið á myndina stækkar hún)

2 daga seinkun

Það er búið að seinka myndatökunum hjá Þuríði minni um tvo daga eða þanga til 12.apríl og  niðurstöður föstudaginn 13, hmmmm á ég að vera hjátrúafull?  Það er nú í lagi að þeim seinkaði ekki meira en þetta en það skiptir svo sem engu við elskum að bíða eða þannig.  Einsog læknarnir segja við okkur eigum við bara að horfa á Þuríði og sjá hvernig henni líður og henni líður vel, hún er súper dugleg.  Hún var einmitt í sjúkraþjálfun í gær og hún er meira að segja farin að þrauka klukkutíma í þjálfun sem er æði, hún líka hjólað smá í þjálfuninni sem hefur ALDREI gerstGrin.  Reyndar var það með smá hjálp þar að segja hún er föst við petalana en sjúkraþjálfarinn ætlar að panta svoleiðis handa henni hjá TR þannig stúlkan getur farið út að hjóla í sumar þar að segja ef foreldrarnir gefi henni hjól í afmælisgjöf thíhí!!  En Þuríður mín hefur aldrei haft krafta í að hjóla en með þessari aðstoð getur hún vonandi hjólað og það verður gaman hjá henni í sumar, víííí!!  Kanski við fjölskyldan kaupum okkur hjól og hjólum hér í sveitinni í sumar? 

Annars er flensna ennþá hér í sveitinni og það er sko alveg komið nóg, Theodór minn búinn að vera með hita í sex daga og það ekkert lágan eða milli 39-40, grrrrr!!  Fór með hann til doktor Þuríðar í gær og þar voru teknar blóðprufur til að ath hvort þetta væri eitthvað alvarlegra en flensan en sem betur fer var það ekki.  Drengurinn fer þá ekki í fermingarveisluna hjá honum Sindra Snæ okkarFrown en tengdó ætlar að vera svo æðisleg að sitja hjá honum á meðan við hinum knúsum hann og borðum góðar kræsingar. slurp slurp! Vonandi verður hann orðinn hitalaus á morgun svo hann komist í næstu veislu.  Dóóhh!!

Börnin hefðu átt að fara í næturpössun á morgun þar sem þau fóru ekki síðustu en það verður víst ekkert úr því vegna veikinda en Oddný mín Erla fær nú samt að gista hjá Evu sætu mús frænku og leyfa þeim frænkum aðeins að rífast thíhí!!  En við Skari erum að fara í þrídugsafmæli (þá eru þau að byrja) en munum þá bara í staðin stoppa styttra, vonum bara að þessi flensa verði farin fyrir páska en þá ætlum við fjölskyldan að fara í sveitina, skoða dýrin og hafa það gaman.Halo

Ætli ég fari ekki að sinna lasarasnum mínum sem er orðinn versti mömmukarl ever, má ekki líta af mér þá verður hann alveg snar.  Hann liggur hérna hjá mér og segir "mamma" svona öðru hvoru en þá vill hann athygli þessi dekurrófa eheh!!  Best að fara dekra við hann og góða helgi alle sammen.  Njótið hennar í botn!!


Tvær vikur

Ég áttaði  mig á því í gærkveldi að það eru bara tvær vikur í næstu niðurstöður, ohh boy!!  Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að kvíða fyrir eðurei?  Því náttúrlega úr síðustu niðurstöðum vissu þeir ekki hvort þetta væri stækkun eða bara svona miklar bólgur frá geislanum sem getur verið miklar líkur á þannig maður veit eiginlega ekki hvernig maður á að vera. 

Hún er að sjálfsögðu kraftaverk hún Þuríður mín, það er bara ótrúlegt hvað henni líður vel í dag og hvað hún er að taka miklu framförum sem engin skilur?  Með réttu ætti henni ekkert að líða svona en kraftaverkin gerast sem ég hef verið vitni afGrin.

Ég var líka að rifja það upp í huganum myndirnar af æxlinu, við fáum að sjálfsögðu að sjá myndirnar eftir hverja töku en síðast fengum við að sjá myndirnar frá því fyrir tveimur og hálfu ári og síðustu myndir og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað hefur verið mikil stækkun.  Vávh!!  Fyrstu myndirnar af æxlinu þá var það oggupínulítið reyndar alveg sjö cm eða eitthvað sem er reyndar mjög stórt í þessu litla höfði en síðast þakti það eiginlega bara yfir hann allan sem ég vona að mestu voru bólgur en það veit engin fyrr en eftir tvær vikur vonandi.  En einsog ég hef sagt þá viljum við frekar bíða alla ævi heldur en að fá erfiðar fréttir þannig ég verð ekkert alveg miður mín ef þeir eru ekki vissir eftir tvær vikur en samt vil ég fá GÓÐAR fréttir en engar fréttir eru góðar vil ég túlka allavega með Þuríði mína.

Þegar æxlið uppgvötaðist fyrst þá var það góðkynja og læknarnir sögðu að það ætti ekkert að breytast, gæti kanski breyst þegar hún væri orðin eldri en svo kom annað í ljós.  Þeir höfðu aldrei séð svona áður þess vegna gátu þeir heldur ekki greint hana alveg strax og svo er æxlið á versta stað þannig þeir geta aldrei tekið það nema hún verði fyrir miklu skaða alla sína ævi sem við viljum heldur ekki.

Í júní síðastliðin varð fyrsta breytingin á æxlinu en læknarnir hérna heima og læknarnir úti voru ekki sammála um hvort það væri að breytast í illkynja, þeir heima vildu meina að það væri stækkun til hins verra en þeir úti vildu meina að þetta væru bólgur frá lyfjameðferð en í það sinn höfðu okkar læknar rétt fyrir sér því verr og miður.  Ég gæti öskrað!!

Þuríður mín hefur sýnt og sannað að hún er ein af þessum kraftaverkum og ég ætla mér að trúa því þangað til annað kemur í ljós. 

Í lokin langar mig að senda kraftaverkaknús til einnar hetjunnar hérna til hliðar hennar Ástu Lovísu, þið megið alveg kveikja á kerti fyrir hana á kertasíðu hennar og senda henni kraftaverk.  Knús til þín Ásta mín, mikið ofsalega langar mig að gefa þér alvöru knús núna.


Stífla

Það er rosaleg stífla í gangi og ég fæ enga til að hjálpa mér til að losa hana, sorrý!!

Að kveikja á kerti

IMG_7294

Þegar við fórum til New York skoðuðum við ótrúlega fallega kirkju og kveiktum á tveimur kertum fyrir Þuríði mína.

Annars er statusinn ekki góður á heimilinu, fórum ekki á Sálina á föstudagskvöldið og ekki heldur afmælið sem okkur var boðið í á laugarsdagskvöldið (dóóhh) þar sem ég var svona líka bólgin um augun af kvefi, Skari að slappast en hann er slappur núna, Oddný Erla mín er ég held hitalaus en var mjög slöpp á föstudagskvöldið en hún fær samt ekki að fara á leikskólan á morgun en hann Theodór minn Ingi er orðinn slappur og kominn með mikin hita.  Ansas vesen!!  Mín er orðin hress sem betur fer og þá er líka auðveldara að hugsa um sjúklingana sína og Þuríður mín er ennþá súper hress.

Mín er á leiðinni að hitta gærurnar, hmm núna segja sumir "gærurnar?".  Jámm það erum við "gömlu" stelpurnar í badminton og við köllum okkur gærurnar, smá pasta-partý hjá einni og undirbúa vorhátíðina.  Víííí!!  Bara stuð!!

IMG_7293

Hér er Skari minn að kveikja á sínu kerti fyrir Þuríði sína/mína.


Hor í nös

Skemtileg fyrirsögn ehe!!  Hér sitjum við mæðgur horfum á imban og búnar með heila tissjú rúllu saman og það bara í morgun, er alltíeinu komin með bullandi kvef, hnerrandi útí eitt, hausverk og hef varla við að ná mér í snítipappír.  Skemtilegt eða þannig!! 

Ég sem hélt að ég væri öll að koma til og var búin að redda mér pössun fyrir kvöldið þar sem mín ætlaði að skella sér á Nasa á sjálfa Sálina en það stefnir ekki í þaðUndecided.  Hef ekki kíkt á Sálarball síðan síðasta sumar og fannst eiginlega komin tími til þar sem minni og mínum var líka boðið í afmælispartý til verðandi mágkonu minnar Sirrýjar ásamt skemtilegu liði en verð ö-a að canselera þessu öllu og liggja bara undir sæng í kvöld og horfa á X-factor og fá mikin kjánahroll af henni Ellý.  Afhverju í andskotanum er hún þarna?

Oddný mín Erla er líka að kvefast ofan í þetta allt saman og byrjað líka að gubba í gærkveldi en ég held samt að hún sé að koma til þessi elskaWink.  Hún er allavega byrjuð að biðja um að fá að fara í kjól þannig þá held ég að hún sé að koma til, víííí!!

Annars ofsalega lítið að frétta af stór fjölskyldunni, Þuríður mín er alltaf jafn hress ekki búin að krampa í rúman mánuð sem er bara best.

Góða helgi!!


10.apríl'07

Já næst komandi 10.apríl mun Þuríður mín fara í næstu myndatökur og svei mér þá, þá held ég að ég sé bara bjartsýn á þann dag.  Hún var í smá tjekki í gær sem gekk svona líka vel enda er stelpan sem hressust sem engin skilur, hún notar hægri hendina alltaf meira og meira sem er bara kraftaverk.  Maður sér alveg hvað þroskinn hennar eykst með hverjum deginum sem er bara gaman því við vitum alveg ef hún fær tækifæri einsog núna þá kemur þetta allt saman hjá henni hægt og rólega.  Well hún mun kanski aldrei (aldrei að segja aldrei) vera á sama þroskaleveli og heilbrigð börn á sama aldri og hún en mér er líka alveg sama á meðan ég hef hana hjá mér skiptir það engu máli. 

Mér er samt farið að kvíða fyrir sem ég vil kvíða fyrir því þá ég veit líka að allt er einsog það á að vera að senda hana í skóla því mér finnst svo sjaldgæft að börn sem þurfa góða aðstoð í skólum og mikin stuðning að þau fái hann ekki.  Mér finnst oftast þetta vera bara leiðbeinendur sem eru kanski bara í kringum tvídugt og vita ekki alveg hvað þeir vilja gera í lífinu og velja bara þetta til að fá eitthvað (ath þetta er bara það sem mér finnst, sumir verða eitthvað fúlir núna).  Ég vill ekki að "einhver" ólærður sjái um Þuríði mína og er ekki að nenna því, hún þarf mikin stuðning og mikla þolinmæði enda er hún ofvirk, hvatvís og lengi mætti telja.  Ég er ekkert að segja að ólærðir séu slæmir, enda eru ekkert bara lærðir sem sjá um Þuríði mína í leikskólanum og þær eru frábærar en þegar kemur að skóla þá vill ég fá faglærða.  Takk fyrir!!

Ég man eftir einni stelpu sem bjó hliðina á mér í gamla daga og hún var ári eftir í skóla og þurfti virkilega mikin stuðning í skólanum og var að sjálfsögðu í sérkennslu sem mér finnst sú fáránlegasta í heiminum.  Því þetta var engin kennsla, stelpan var alltaf að þeystast um allan bæ með sérkennaranum sínum og sinna hennar private verkefnum, fara útí búð að kaupa í matinn og þá var líka alltaf keypt handa þessari stelpu.  Góða sérkennslan!! Þetta var einmitt í Langholtsskóla sem ég myndi aldrei senda barnið mitt í, ég hef orðið vitni af ýmsu í þessum skóla undanfarin ár og agi hjá ýmsum kennrunum þarna er ENGIN.  Ég er ekkert að segja allir kennarnir þarna séu svoleiðis og vonandi bara þessir sem ég hef orðið vitni af því ég þekki líka til annarra kennara þarna sem er yndislegasta fólk en þetta væri samt síðasti skólinn sem ég myndi senda barnið mitt kanski því ég var í þessum skóla og kennarnir þá voru þeir ömurlegustu sem ég hef kynnst.  (ég veit ansi mörg ár síðan ehe og vonandi engir kennarar af þessum eftir)

Annars er heilsan hjá mér orðin betri er bara komin með verki í allan líkaman því ég er búin að liggja svo mikið eheh, hlakka til að geta mætt í ræktina á morgun sem ég hef ekki gert í alltof langan tíma.  Oddný Erla mín liggur ennþá fyrir fékk þessar leiðinlegu ofsjónir aftur í gærkveldi því hitin var svo hár, díssúss hvað maður verður hrædd þegar þetta kemur hjá henni svo óhugnalegt.  Hún liggur bara uppí sófa og horfir á eitthvað skemtilegt, það er nú mikið sagt þegar hún liggur algjörlega fyrir og horfir á imban og biður ekki um að skrifa nokkra stafi eheh!!  Hún er ekki mikill sjónvarpssjúklingur vill frekar sitja borðstofuborðið og skrifa stafi, teikna eða lita, það er alveg ótrúlegt hvað barnið getur.  Ég skil eiginlega ekki alveg hvaðan hún fær allar þessar gáfur ehe.


New York-stutt ferðasaga í myndum

P3151028
Hér erum við nöfnurnar mættar útá flugvöll í stuði

P3151045
Við flugum yfir Grænland

P3161071
Mætt á svæðið og það var ógeðslega kalt og þá var líka gott að vera með góða úlpu og hvað þá góða hettu þar sem eyrun brotnuðu næstum því af mér vegna kulda.

P3161092
Kíktum inná einn pöbbinn til að hlýja okkur og þar var sko stuð.

P3171111
Óskari mínum leiddist ehe á meðan ég var að gera mig reddí fyrir "eitthvað".

P3171130
St. Patricksday var þegar við vorum í New York og þarna er mega stór skrúðganga í gangi sem tók ég veit ekki hvað margar klukkustundir.

P3171151
Í tilefni írska daga voru allir bjórar grænir og að sjálfsögðu urðum við að prufa fá okkur einn grænan.

P3171137
Jeij það var aðeins farið að hlýna í veðri þannig ég gat tekið hettuna af mé, lúxus líf!!

P3181156
Við létum duga í þetta sinn að fara svona nálægt frelsisstyttunni, þar sem það var margra klukkutíma röð í bátinn að styttunni og við vorum ekki með kuldagallana með okkur og svo var líka ógeðslegt í sjóinn.

P3181165
Þannig ég lét bara duga að hitta þessa styttu í staðin ehe og svona án gríns þá leið mér einsog einhverri frægri manneskju að standa þarna því allir ferðamennirnir í kring tóku upp myndavélina sína og fóru að taka endalaust margar myndir af mér.  Well ég fékk mínar 10 sekóndur þarna sem var STUÐ.

P3181178
Það var skrýtin upplifun að fara á staðin sem tvíburaturnarnir stóðu, fólkið í kringum mann var hágrátandi enda fékk maður mikla gæsahús að skoða þetta allt saman og sjá öll nöfnin sem létust þennan dag.

P3181206
Við kíktum í China town sem var bara einsog maður var mætt til Kína, ótrúlega gaman og þar fann ég fallegustu og ódýrustu kínakjóla ever á stelpurnar mínar sem smell pössuðu. 

En ég ætla að láta þessa ferðasögu duga í bili þar sem mér líður ekki sem best þar að segja af flensunni og Oddný Erla mín er fárveik, var farin að sjá ofsjónir í gærkveldi vegna svo mikils hita ótrúlega skerí að sjá hana svoleiðis.  Þessi elska vill líka að ég komi og kúri hjá sér undir sæng og vill horfa á jólasveina simpsonLoL

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband