Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Ný könnun

Var að setja inn nýja könnun að sjálfsögðu eigiði að taka þáttGlottandi
Það eru alltof fáir sem kommenta hjá mér miðavið fjöldan sem kemur inná síðuna okkar, endilega kommentið bara með kvitti langar svo að sjá hverjir eru að fylgjast með þar, plíííísss!!  Ég veit 100% að Elsa, Katrín og Brynja eru duglegar að heimsækja síðuna mína enda nýkríndir heimsmeistarar í kommentum hjá mér.  Knús til ykkar stelpur, það er svo gaman þegar þið kommentið.  Love it!!

Heyriði hvað haldiði?  Áðan þegar ég ætlaði að hætta við námið mitt fræga þá vill konan ekki í skólanum leyfa mér það eheh, það væri synd sagði hún og vill endilega halda mér inni.  Hmmm!!  Hvað gera bændur þá?

Þá er það ákveðið

Mín er búin að vera velta skólamálum endalaust fyrir sér, púffh þvílíkar pælingar!!  Alltof erfið ákvörðun en samt ekki.  Núna loksins er ég búin að taka ákvörðun og hef ákveðið búúmmmm trommusóló að ég ætla ekki í stóra fjarnámið sem mig langar geggjaðslega í.  Fyrsta lagi þá held ég að það verði of mikið fyrir mig, jújú ég ætti alveg eftir að meika námið á endanum en held samt að það yrði of mikið og færi ö-a yfirum.  Þannig ég virði ákvörðun þeirra uppá spítala og fer eftir henni, þau vita væntanlega hvað þau eru að tala umGlottandi.  Öðru lagi þá er þetta geggjaðslega dýrt nám fyrir heimavinnandi húsmóðir PUNKTUR!!

Þannig mín ætlar að taka sér tvö létt fög í Ármúla í fjarnámi, bara byrja eitthvað létt og ódýrt ehe og svo þegar Þuríður mín verður hraust og fín þá mun ég meika þaðHlæjandi.

Verð víst að fara útí búð og kaupa eitthvað hollt og gott, byrjaði nebbla í gær í átakinu og það var byrjað að hlusta á einhvern næringafræðing sem var frekar fróðlegt.  Mín verður víst að byrja borða fimm máltíðir á dag, dóóhh!!  Ég sem á erfitt með að borða 2x á dag síðustu vikurnar damn!!  Well reyna koma manni í almennilegt form.  Stuð stuð stuð!!

Bingabangdingaling...

...nú er best að toga sig og teygja.
Jamm mín ætlar að fara byrja hreyfa sinn stinna skrokk nota bene í kvöld.  Sem sagt ég, Oddný systir og mamma erum að byrja í Hreyfingu í kvöld á átta vikna átaksnámskeiði þannig við verðum allar í snípstuttupilsi og magabol um jólin ehe, sjáið þetta ekki alveg fyrir ykkur? eheh!! 

Ég hef ekki verið að hreyfa mig síðan ég varð ólétt af Þuríði minni well ekkert af viti svona rétt kíkt í ræktina og heilsað starfsfólkinu í sirka mánuð og svo búúúmm búið en það verður ekki þannig núna.  Ætla að heilsa uppá magan minn afturHlæjandi, verða aðeins hressari yfir daginn held að þetta hjálpi mér líka aðeins að halda sensi.  Að hreyfa sig smá er þvílík gleðipilla og ég ætla að fara taka inn þessa gleðipillu, vííí!!  Ótrúlega spennt!!

Helgin var annars fín, var reyndar að vinna alla helgina. Oddný Erla fékk að vera með mér í vinnunni í gær og fyrradag, Skari að vinna á laugardag þannig hún fékk að njóta þess að vera ALEIN með múttu sinni og fannst sko ekki leiðinlegt að vera útí TBR með Silju vinkonu sína (það er dúkkan hennar).  Alltaf þegar síminn hringdi þá var "hver var þetta mamma, hvað var hann að segja?", hún er bara yndislegust!! Þuríður og Theodór fengu að vera hjá ömmu Oddný á laugardaginn og skemmtu sér líka velHlæjandi.

Í gær var ég búin að vinna snemma þannig við fjölskyldan tímdum ekki að eyða deginum í bíó (æjhi sorrý Þuríður en hún er búin að taka mig í sátt því við förum á Grettir, lofa lofa lofa) þannig við keyrðum í Hvalfjörðinn og fórum í berjamó.  Tókum með okkur nesti og hittum liðið hans Skara og borðuðum saman í náttúrunni og átum krækiber þess á milli.  Slurp slurp, finnst alltaf þessi ber jafn góð.

Var annars að hugsa það í gær að þessi vika sem er framundan er fullbókuð, dæssúss mar!! Brjálað að gera hjá frúnni ehe, byrja á fullu í ræktinni sem er alltaf seinni partinn, búin að fá vinnu eitt kvöld æjhi ég nenni ekki að telja upp þetta allt saman.  Allavega ótrúlega bissí, ekki það að mér leiðist nokkurn tíman með börnin mín þrjú væri eitthvað skrýtið ef ég gerði það thíhí!!  Miklir orkuboltar!!Ullandi

Helgin er samt ekki búin að vera góð hjá Þuríði minni, æjhi greyjið hún er endalaust þreytt og krampar mjög mikið.  Vitiði það ég er eiginlega hætt að hafa tölu á þessum krömpum hjá henni þeir eru svo margir yfir daginn.  Mér finnst mikið og það er mikið að fá 10krampa yfir daginn, þeir eru misstórir og hún verður misþreytt eftir hvern og einn.  Einsog í gærmorgun var hún nývöknuð (eftir 12tíma svefn)  og ætlaði að fara borða morgunmatinn sinn fékk hún einn mjög stóran og strax eftir hann rotaðist húnÖskrandi.  Hún stífnar líka svo í líkamanum sínum við þetta þannig þetta reynir endalaust mikið á alla vöðva, mig langar svo mikið að komast inní líkaman hennar og vita hvernig henni líður, hvernig líður henni við að þurfa taka allar þessar töflur.  Hún er væntanlega einsog hún sé þunn og full alla daga enda eru þetta ekkert fáar töflur sem hún þarf að taka sinn greyjið.  Ekki gaman!!

Helgin framundan

Júmm fékk smá job um helgina, víííí!!  Þar sem mín getur því verr og miður ekki verið með fasta vinnu vegna aðstæðna þá verður mín svona vara útí TBR og að sjálfsögðu hafði ég að plata Fúsa að leyfa mér að vinna um helgina, gott að eiga góða aðHlæjandi.  Þannig ég verð að vinna í kvöld, laugardag og hálfan sunnudag, ekki amalegt að komast aðeins út og vinna sér inn aur.  Að sjálfsögðu vona ég að það verði mikil veikindi hjá kvöldvaktinni svo síminn minn stoppi ekki ehe þannig ég fái mikla vinnu þegar vel stendur á hjá Þuríði minni. Ekki það að ég haldi að ég geti unnið mikið en mar veit aldrei? Finnst líka bara endalaust gaman að vera útí TBR að hitta allt gamla liðið hvort sem það eru kúnnarnir eða krakkarnir í babbóGlottandi.

Þið hefðuð átt að sjá glottið á mínum manni Theodór þegar ég var að gefa honum hafragrautinn sinn thíhí.  Ákvað að dekra aðeins við hann og hella smá skyr.is jarðaberja útí hafragrautinn þvílíkt nautnaglott kom á honum, ótrúlega sætt!!  Hann nebbla fær aldrei jógúrt hjá mér alveg nógur tíminn að fá þetta mjólkursull en að sjá hvað honum fannst það gott, hann mun ö-a lifa á þessu næstu vikuna.  "slurp slurp". 

Er að fara með töffarann til læknis í dag, hann er nebbla að gera móðir sína og föður gráhærð og nógur er nú tíminn í gráuhárin en þau eru farin að birtast núna.  Hann sefur nebbla ekkert á nóttinni bara grætur sárum gráti þannig eyrun eru væntanlega eitthvað að bögga hann, sjáum það allavega í dag annars er hann bara frekjudósHissa

Ég má ekki hverfa þá verður hann alveg snar ok kanski ekki snar en fer að væla þessum frekju tóni og þótt hann sé hjá pabba sínum, dóóhh!!  Algjör mömmusnúlli!!  Er það nokkuð skrýtið þar sem við erum tvö ein rúmlega hálfan daginn bara að dúllast, knúsast, kelast og fíflastGlottandi.  Æjhi mér finnst það bara sætt kanski bara verra ef ég ætla að skilja hann einhversstaðar eftir, dóóhh!!

Statusinn á Þuríði minni er bara sá sami, krampandi og þreyttust.  Hún er alltaf að biðja mig um að koma í bíó, ótrúlega sætt!!  "mamma koma sjá Grettir!.  Þannig ef ég er að vinna stutt á sunnudaginn þá ætlum við Þuríður að skreppa í bíó, bara gaman en Oddný Erla er skíthrædd í bíó þannig það verður bara dekrað við hana heima á meðan.

Takk allir fyrir yndislega góð komment og falleg mail sem ég fengið undanfarna daga, ótrúlegt hvað það hlýjar manni í hjartanum að fá þetta allt samanUllandi.  Knús, kossar og eigið yndislega helgi.
Slauga


Erfitt erfiðara erfiðast

Þið megið samt ekki misskilja mig að mér finnist ekki gaman þegar þið eruð að hrósa okkur hvað við erum dugleg, jákvæð og hvað þið lítið upp til okkar, mér finnst það endalaust gaman!! Ég vildi bara óska þess að fólk liti svona á mig/okkur útaf einhverju öðru en ekki vegna veikinda Þuríðar minnar.  Mér finnst t.d. endalaust gaman þegar fólk kommentar hjá mér eheh, finnst alltaf gaman þegar mar sér að það sé komið komment því í 99% tilvika eru þau skemmtileg og uppörvandi.

Ég er bara þreytt mikið þreytt þessa dagana, það koma stundum þessir dagar orkan alveg á þrotum.  Það er ekki vegna þess að mér finnst erfitt að sjá um börnin mín það er auðveldasta verkefni sem ég hef fengið í hendurnar mínar ef Þuríður mín væri ekki svona veik þá væri ég ö-a ólétt núna af fjórða barninu eheh.  Ég á erfitt með að sofa þótt ég sé alveg dauðþreytt, finn alveg hvað augnlokin eru þreytt og ég á erfitt með að halda þeim uppi, líkaminn endalaust þreyttur en samt á ég erfitt með að sofa? 

Öll orkan mín fer í að hugsa svo mikið þegar ég á að vera sofandi, hef áhyggjur af öllu ok kanski ekki öllu en mjög miklu, ég pæli kanski of mikið í hlutunum veitiggi? Ég á ekki að þurfa hafa svona miklar áhyggjur, maginn minn er á hvolfi þessa dagana og stutt í tárin.  Mætti halda að ég væri ólétt ehe!!

Mér er óglatt alla daga, ég á erfitt með að borða.  Ógleðin fer um kvöldmat og þá get ég fengið mér eina máltíð yfir daginn, án gríns!!  Ég er líka búin að missa tvö buxnanúmer síðan í júní, jújú ég mátti alveg við því thíhí (eru ekki skopparabuxur í tísku ehe) samt óþarfi að verða svoleiðis vegna álagas alltílagi ef ég væri á fullu í ræktinni.  Fór einmitt í klippingu fyrir sirka tveimur vikum og klippi-konan fékk sjokk þegar hún ætlaði að fara klippa mig, afhverju? Jú vegna þess hárið mitt væri orðið svo þunnt og ég ætti alveg von á því að fá skallabletti, “nice” og það kemur allt vegna álags. 


Álagið er að horfa Þuríði mína þjáðst á hverjum degi, ekkert annað. Þetta er eitthvað sem mar venst aldrei að sjálfsögðu ekki, fólk væri eitthvað klikkað ef það myndi venjast því að sjá barnið sitt þjáðst.



Theodór minn Ingi orðinn pirraður, eyrun mikið að pirra hann sem sagt lítið um svefn í nótt þannig mín verður að hætta hérna.  Meira síðar!!


Þuríður Arna

Í dag er sirka ár síðan það var ákveðið að senda Þuríði mína til Boston vegna þess hún var farin að krampa svo mikið eða sirka 10krampa á dag sem sagt sama ástand á henni og eftir aðgerðina í Boston.  Ósanngjarnt!!    

Ég var að lesa gamlar færslur frá mér eða síðan síðasta sumar og þá voru kramparnir farnir að aukast hægt og rólega, hún var mikið inná spítala síðasta sumar uppdópuð og vissi varla í sinn haus.  Ath þá var hún “bara” að fá sirka þrjá krampa yfir daginn en læknunum fannst þá að það þyrfti að leggja hana inn vegna ástands hennar.  Hún var dópuð niður og þannig var hálft sumarið hjá henni.  Í dag er hún  í sama ástandi og hún var fyrir ári síðan meira að segja verri þegar þeim fannst hún ætti að vera inniliggjandi uppdópuð.  
 

Hvað er málið í dag?
 

Eru læknarnir bara búnir að gefast upp? Þeir vita ekkert hvað þeir eiga að gera?  Jú ég veit að hetjan mín er í krabbameinsmeðferð en sú meðferð er ekkert að laga krampana, jú þeir eru að reyna minnka æxlið svo hún geti farið aftur til Boston eftir ár og reynt að minnka það ennþá meir.  
 

Við erum búin að bíða eftir svörum í næstum TVÖ ÁR, takk fyrir!!  Væru margir svo þolinmóðir?  Held ekki enda hef ég verið að springa síðustu mánuði, þetta er sko ekkert grín. Þeir vita ekki einu sinni fyrir víst hvort æxlið sé eitthvað að stækka eðurei og við munum væntanlega ekkert vita það fyrr en kanski eftir ár þegar meðferðinni líkur. Fáum við einhverntíman að vita eitthvað?  Hún á að fara í næstu myndatökur 10.okt en þeim var seinkað átti að vera núna miðjan sept en við verðum hvorteðer engu nær, þurfum bara að bíða og bíða.  (ath ég er ekki óánægð með læknana hennar Þuríðar minnar þeir eru bestir en stundum væri gott ef þeir vissu betur)
 

Við vitum að æxlið er að ýta á eitthvað sem orsaka þessa krampa, lyfin hennar eru bara að “skemma” hana.  Oddný Erla er komin á undan henni í þroska vegna lyfja og svo fer mar að pæla, hvernig verður Þuríður mín eftir tvö ár þegar hún á að fara í skóla? Að  sjálfsögðu pælir mar í því, getur hún gengið í venjulegan skóla? Mun hún þurfa mikla hjálp? Verður til hjálp fyrir hana? Þeir eru nú alltaf að spara í þessu kerfi þanni hún fengi væntanlega “bara” leiðbeinenda til að aðstoða sig og það vill ég enganveginn.  Ég vill ekkert einhvern tvítugan ungling til að vera með henni, never ever!!  Ef ég ætti trilljónir í banka myndi ég ráða sjálf manneskju til að vera með henni en ég hef heyrt að foreldrar hafa þurft að gera það svo það fáist aðstoð fyrir barnið. 

Í hvað fara þessir peningar hjá ríkinu?
 

Mér finnst þetta allt svo ótrúlega erfitt og er svo gargandi reiða, að horfa uppá barnið sitt þjáðst á hverjum degi vill ekkert foreldri lenda í.  Þið finnið til með börnunum ykkar ef þau klemma sig og grátið kanski með því þannig þið getið ímyndað ykkur með Þuríði mína sem er “klemmandi” sig oft á dag en segir samt ekki orð. Aaarghh!!
 

Ég hef lært heilmikið eftir að Þuríður veiktist en mig langaði samt ekkert að læra þetta í gegnum hana, mig langar ekkert að fólk læri að meta lífið öðruvísi gegnum hana.  Jú mér finnst gott að fólk kann að meta það litla/stóra sem það hefur, mig langar ekki að fólk líti á okkur sem hetjur allavega ekki á þann hátt sem þið gerið.  Mig langar bara að vera venjuleg mamma sem er vinnandi útí TBR eða haft litlar áhyggjur af því að fara í fjarnámið sem þeir hafa mælt við mig ekki fara í (uppá spítala) og ekki haft miklar áhyggjur af næsta degi,  hvernig verður Þuríður mín á morgun?  Verður hún að krampa mikið? Er hún mikið veik á morgun þannig það þarf að leggja hana inn?
 

Já mér finnst þetta allt ótrúlega erfitt, erfiðast sem ég hef upplifað. Aaaaaaaaarghhh!!  
 

Ég er eitthvað svo reið og sorgmædd, það á ekki að þurfa leggja svona á neinn.  
 

Hvað er málið?

Í síðustu viku rölti ég um Smáralindina sem er kanski ekkert frásögufærandi, nema ég dett inní eina búðina og sé þennan geggjaðslega jakka/kápa/úlpa.  Ég nottla vávh mar spáh mar, djöh yrði ég mikil gella í þessum jakka og djöh langar mig í hann.  Yrði doltið gaman að máta hann og bara sjá hvernig ég yrði í honum en fyrst ákveð ég að kíkja á verðið, hmmm ég var fljót að setja flíkina á sinn stað þegar ég sá verðið.  Vitiði hvað hann kostaði?  22.000kallinn, hvað er málið með föt í dag?  Ef mig langar í disel-gallabuxur þá er næstum því ódýrustu buxurnar kringum 20.000kallinn, skíta allir peningum í dag? ..eða er Jóhannes í Bónus eini sem getur verslað sér föt í dag?  Ég bara skil þetta ekki?

Annars rólegheit hjá okkur börnunum í dag, Theodór Ingi var með hita í gær en er orðinn góður í dag.  Glæsó splæsó!!  Þannig mín ákvað að vera með drenginn inni í dag en langar geggjaðslega mikið út í góða veðrið, aaaargghhh!! 

Mín ætlar að skella sér í bikarleikinn í kvöld með Viggu gellu, laaaaangt síðan að við skvísurnar höfum kíkt á félagana okkar KR og Þrótt, hmm með hverjum á ég að halda í kvöld? Liðin mín að keppa á móti hvort öðru þannig ég veit allavega að það yrði gaman að fara á úrslitaleikinn eheh!!  Ég man í denn þegar við Vix fórum á ALLA leiki KR og þekktum ALLA leikmennina eheh en það var í denn en núna þekki ég bara markvörðinn með nafni.  Dóóhh!!


Nýjar myndir

Setti inn nýjar myndir frá hringferðinni frægu sem skari og Þuríður mín fóru í um daginn, well bara myndir af Þuríði minni sem er ekki verraHlæjandi

Brullup og fleira

Fórum í brullup í gær sem var fínt en það fyndnasta í brullupinu þegar það átti að henda vendinum í stelpurnar sem voru en ógiftar.  Well ég mátti ekki fara ehhe en mín yndislega systir mátti fara og það þurfti ekki að segja það tvisvar við hana að það var verði að fara henda vendinum.  Ohh mæ ohh mæ!!  Hún reikspólaði og þaut uppá sviðið og var laaaaaaaang fyrst á svæðið af stelpununum ehehe og svo var restin einsog bíómynd.  Án gríns þetta var svona atriði úr fyndnar fjölskyldumyndir sem var alltaf í sjónvarpinu í denn, Oddný var hoppandi fremst að bíða eftir vendinum og svo var hoppaði hún fyrir framan allar stelpurnar, þið getið ímyndað ykkur þetta úr fjölskyldumyndunum í dennn ehehe!!  Hún sem sagt greip vöndin í loftinu og hálfpartinn reif hann af annarriHlæjandi.  Endalaust fyndið!! Sem sagt hún litla sys verður næst að gifta sig ehe eða hún vonar það allavega, Sammi er á fullu að vinna til að safna fyrir brullupinu þeirra í Egilshöll sko stóóóóra salnum, thíhí!!  Sem sagt stuð í brullupi.

Ammæli á föstudagskvöldið og jú það var sama stuðið, var reyndar ekki á neinu djammi enda endalaust þreytt þessa dagana og hafði sko enga orku.  Skemmitleg hljómsveit að spila og oft finnst mér bara gaman að fylgjast með fólkinu og hljómsveitinni minni einsog í þetta sinn.  Bara gaman!!Brosandi

Þuríður mín er ekki búin að vera hress um helgina, jú hresstist aðeins við í gærkveldi þegar uppáhalds fjölskyldan hennar mætti á svæðið til að passa sem sagt Linda og strákarnir.  Hún er búin að vera krampa mjög mikið enda fór ég ekkert að fagna þessa nokkra daga sem hún fékk mjög fáa krampa.  Hún er farin að kvarta eitthvað í höfðinu æjhi þarna sem aðgerðin var gerð, vitum ekki alveg hvað það er?  Þuríður mín er ekki vön að kvarta og kveina þannig henni hlítur að finna mikið til þegar hún kvartar undan einhverjuFýldur.

Theodór er farinn að reyna standa upp við dótakassan sinn, vííí!!  Farinn að reyna fikra sig áfram á rassinum en veit ekki alveg hvað hann á að gera, þetta er allt að koma hjá drengnum.

Oddný er sami snillingurinn, ég var að máta föt í fyrradag þá heyrist í minni "mamma þú ert einsog kona", hmmm henni fannst ég sem sagt eitthvað kerlingaleg í þessum fötum eheh!!

Ætluðum í berjamó í dag en stefnir ekki í það þar sem það er rigning og leiðindaveður, aaaaaaaarghh!!Öskrandi

Ný könnun

Flestir með því að ég skelli mér í fjarnámið sem mig langar í en ansi margir sem eiga erfitt með að segja, hmmm!!  Miklar pælingar í gangi.

Endilega svarið nýju könnuninniHlæjandi

« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband