Færsluflokkur: Bloggar
25.8.2006 | 12:30
Jabbadabbadú
Brjálað annars að gera, fertugsammæli í kvöld. Hmmm!! Sýnir að mín er að eldast ehehe!! Boðin í fertugsammæli híhí!! Brullup á morgun hjá Ívari frænda og Önnu hans verðandi konu, allt að verða vitlaust! Endalaust stuð!
Ennþá að velta skólamálunum fyrir mér, alltof erfið ákvörðun well hef eina hálfa viku til að ákveða mig. Dóóhh! Kostar svoooo mikið en yrði samt þess virði

Þuríður mín "bara" búin að krampa 1-2x yfir daginn síðustu þrjá/fjóra daga sem er frekar gott en ég er nú ekki farin að dansa af gleði enda ö-a bara tilfallandi. Lyfin ekki að fara vel í hana, hún er gjörsamlega á útopnu heima. Ekki gott! ....nær sér enganvegin niður þótt hún sé að deyja úr þreytu, púffh mar veit ekkert hvað mar getur gert?
Farin, góða helgi og hafiði það yndislega gott.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2006 | 09:50
Sjónvarpsstjarnan mín

Mig langar í berjamó, hvar get ég farið í berjamó?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.8.2006 | 14:20
Hrós vikunnar

Manni leið hálfasnalega við að taka á móti þeim áðan þar sem það voru myndavélar útum allt, jú ég hef tekið þátt í "brúðkaupsþættinu Já" en þetta var ekki svoleiðis. Alveg sama hvern mar var að knúsa var myndavélin alveg upp við mann, mér leið einsog Micheal Jackson eða einhver í þá áttina eheh. Þannig ef þið kveikið á sjónvarpinu í kvöld mun einhver úr familíunni birtast á skjánum.
Þeim sem sagt tókst þetta ætlunarverk sitt að aka á bílnum hringinn í kringum landið á einum tank þannig styrktarfélagið fékk afhentan bíl áðan til afnota í ár sem Skari verður akandi um vegna vinnunnar. Glæsilegt framtak hjá Heklu!!
FArin uppá spítalan, Þuríður mín þarf að fá lyfin sín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2006 | 21:00
Gömul þjóðsaga
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann
bara ,,mömmu"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2006 | 12:24
Fréttir dagsins

Við hin höfum það notó hérna heima, við kíktum í húsdýragarðinn í gær og sumir voru doltið hrædd við dýrin eheh og svo urðum við smá menningarleg og kíktum á kaffihús og fengum okkur heitt kakó. Slurp slurp!!
Var víst búin að lofa heimsókn í ísbúðina í dag og sjálfsögðu verður staðið við það, kanski við kaupum einn eða tvo límmiða, Oddný elskar að líma límmiða í límmiðabókina sína, mar verður víst að dekra aðeins við hana fyrst hin er í endalausu dekri í bílferðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2006 | 12:03
"Ein" í kotinu

Þuríður var ótrúlega heppin en hún fékk smá gjöf frá Heklu áður en það var lagt í hann, svona lítinn pc-spilara og fullt af myndum sem á að stytta henni stundir hringinn og stúlkan var himin glöð með það enda ekki hægt annað.
Við þrjú ætlum nú bara að reyna hafa það notó á meðan, ég sagði við Oddnýju mína í gær ef það yrði gott veður í dag og engin rigning ætlaði ég að fara með hana í Húsdýragarðinn. Júmm leið og hún fór út í morgun á leiðinni í leikskólann með pabba sínum sagði hún við hann "pabbi það er gott veður og engin rigning" eheh. Hún er bara snillingur þessi stúlka og gleymir seint hlutum sem mar er búin að lofa henni þannig stefnan er sett á Húsdýragarðinn eftir leikskóla og kíkja á hestana eða það er það helsta sem henni langar að sjá þar


Þuríður var ágætlega hress í morgun þegar hún fór í langferðina sína, búin að krampa einu sinni og var kanski orðin smá ofvirk eftir hann og þreytt en ég var búin að lofa henni að hún mætti sofna um leið og kæmist í hinn bílinn og ég veit að hún er ö-a sofnuð núna. Að "sjálfsögðu" er hún búin að vera krampandi alla helgina en góðu fréttirnar eru að þær hafa verið aðeins færri en vanalega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.8.2006 | 20:36
Nýjar myndir

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2006 | 15:24
Æði gæði
Við Skari áttum yndislega sólarhring í gær sem endaði að hádegi í dag, oh mæ oh mæ!! Það var alveg æði gæði!! Okkur var hent út af heimili okkar um kaffileytið í gær, fórum á hótel. Jmm við gistum á hóteli í nótt í Reykjavík eheh sem var endalaust nice, röltum um bæinn og skoðuðum mannlífið. Enduðum kvöldið að fara á Sálina sem var geggjað stuð, dönsuðum af okkur lappirnar, laaaangt síðan ég hef dansað svona mikið. Ég gæti endalaust tautað hvað það var gaman og hvað við skemmtum okkur vel, ótrúlega gaman að fara svona útaf heimilinu og fá smá brake. Þvílík hleðsla!!
Ég hitti einmitt eina góða vinkonu mína í bænum í gær og það var eiginlega það fyrsta sem hún sagði við mig þegar við hittum "æjhi hvað er gaman að sjá þig svona glaða og brosa svona". Já það var líka gott að geta brosað smá því oft eftir að Þuríður mín veiktist hef ég átt erfitt með að brosa enda alltaf svo illt í hjartanu enda fann ég líka hvað mar hefur gott af því að komast aðeins svona út og reyna hugsa um eitthvað annað sem er reyndar doltið erfitt en það tókst ágætlega í gær.
Knús og kossar til tengdó sem tóku við heimilinu okkar í þennan sólarhring, gaman að vera hent svona út eheh!!
....og Þura mér líst bara mjög vel á hugmyndina þína sem þú komst með í hádeginu, það hafa allir gott af þessu sérstaklega hin tvö börnin og fá aðeins meiri athygli foreldra sinna.
Farin út að leika við börnin mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2006 | 11:47
Bestu þakkir
Það voru í kringum 80 manns sem tóku þátt í þessu golfmóti í gær sem var á Grafarholtsvellinum hér í Reykjavík. Þátttakendur komu úr öllum áttum, ættingjar vinir og frábærir velunnarar. Öllum þessum frábæru golfurum viljum við þakka fyrir að taka þátt í þessu móti og styðja þannig við bakið á okkur.
Umfram allt viljum við þó þakka Önnu Björk, okkar frábæru vinkonu fyrir að hafa staðið fyrir þessu glæsilega golfmóti, með slíkum myndarbrag að eftir var tekið. Stuðningurinn er okkur ómetanlegur og kemur sér vel í þeirri baráttu sem framundan er.
Knús, kossar og RIIIIIIIIIIIISAA knús til viðbótar.
Kveðja
Óskar Örn, Áslaug Ósk, Þuríður Arna, Oddný Erla og Theodór Ingi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2006 | 15:02
Helgin og fleira

Áformin breyttust reyndar lítilega þar sem okkur verður hent útaf heimilinu á morgun og við verðum að gjöra svo vel að finna okkur gistingu annarsstaðar og jú við lendum ekki á götunni aðra nótt, búin að finna okkur fína gistingu. Bara gaman!!
Stefnum að fara snemma að heiman á morgun eða svona sirka um kaffileytið, verðum á kaffihúsarölti og svo bara rólegheit en stefnum svo á að kíkja á Sálina um kvöldið. Reyna að ná svona sirka einu Sálarballi áður en ég verð aftur ólétt thíhí, .....eða ekki!!


Í kvöld ætlar mín að bjóða Viggu vinkonu í "la Áslaug Italiano" og stelpurnar bíða spenntar eftir henni, tala ekki um annað og pakkan sem þær ætla að gefa henni

Annars er statusinn ekkert sérlega góður á henni Þuríði minni, hún er súper þreytt og krampandi einsog venjulega og hef ekkert meir um það að segja


Best að hætta að sinni, orðin nett stressuð að fara frá börnunum á morgun, well veit að þau eru í góðum höndum

Njótið helgarinnar, við fjölskyldan ætlum allavega að gera það. Sjáumst kanski í bænum á morgun jú eða á Nasa, hlakka endalaust mikið til.
Slauga slím
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
93 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar