Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

VARÚÐ laaaaaaaangt!!

Einsog flestir vita fórum við fjölskyldan á Akureyri um verlsunarmannahelgina og skemmtum okkur ágætlega, sáum flottustu og lengstu flugeldasýningu ever.  Vávh hvað hún var flott.  Bara gaman!!  

Ég og Skari kíktum aðeins á tjúttið á laugardagskvöldið sem er kanski ekki frásögufærandi nema hvað þegar við erum í leigubílaröðinni hitti ég ógeðlegasta mann ever.  Ekki það hann var eitthvað ljótur eða jú hann varð ljótur eftir það sem valt útur honum.  Það sem hann var að segja við okkur Skara hefur hvílt rosalega á mér síðan við hittum hann, ég man reyndar ekki alveg orðrétt sem hann sagði enda skiptir það engu, held það bara útaf fyrir mig. (þannig ekki spurja).  Það var einsog þessi ógeða maður vissi hver við værum og vissi að við ættum veikt barn, það var einsog hann væri alltaf að tala til okkar.  Kanski var það bara einhver ímyndun í mér því ég á veikt barn en ég held samt ekki?
 

Hann var nebbla að tala illa um veik börn og það fór endalaust mikið í mig,einsog ég sagði skiptir heldur engu málið hvað hann sagði nákvæmlega en það sem hann sagði um veik börn fór endalaust mikið í mig  því það var einsog hann væri að tala um Þuríði mína.  Ef Skari hefði ekki haldið mér niðri hefði ég barið hann, án gríns og ekki er ég nein ofbeldismanneskja, jújú hann hefði bara buffað mig niður á nóinu enda miklu stærri og sterkari en mér var nákvæmlega sama bara ef ég hefði getað þaggað niður í honum.  Ég gjörsamlega brotnaði niður og skammast mín ekkert fyrir að segja frá því, ef einhver talar illa um barnið mitt eða börnin mín verð ég alveg snar og hvað þá um barnið mitt sem getur ekkert af því gert hvernig það er.
 

Þessi einstaklingur situr svo fast í mér og ég hef ekki hugsað um neitt annað síðan þetta kvöld, varð bara aðeins að koma þessu frá mér.  Þið kanski skiljið ekkert um hvað ég er að tala en það skiptir kanski heldur engu máli, síðan mín er gerð fyrir mig svo mér líði betur.  TAKK!!
 

Um daginn fór ég í heimsókn til frændfólks míns og á undan mér labbaði veikir einstaklingar inn um stigaganginn (væntanlega frá einhverju heimili sem kanski er aukaatriði).  Kemur þá maður á móti mér sem býr greinilega í þessum ákveðna stigangi og segir við mig “hver hleypti þessu fólki hingað inn?”, “ekki hef ég gefið þeim leyfi að koma hingað inn”.  Haaaaaaallllóóó er ekki í lagi?   Þessu fólki?  Bíddu hvað var að “þessu” fólki?  Nei hann vildi ekki fólk inní stigaganginn sinn sem átti bágt en bíddu hver átti bágt þarna?  Hann sjálfur!!  Ég varð ógeðslega reið útí þennan mann og hefði langað að berja hann (úbbs held að ég sé að verða ofbeldishneigð), eftir þetta þegar ég er að fara í heimsókn til frændfólks míns reyni ég allt að forðast þennan mann, mig langar bara að gubba á hann þegar ég sé hann allavega hef ég engan áhuga að bjóða góðan daginn við hann hvað þá að tala við hann.  Þetta er ómerkilegasti maður sem ég hef hitt.
 

Það hefur alltaf farið í mig þegar fólk talar illa um fólk eða niður til fólks þegar það á eitthvað erfitt, líka áður en Þuríður mín veiktist en ég tek það kanski meira til mín eftir að hún veiktist.  Ég hef kynnst fullt af fólki sem talar svona illa til þeirra, hvað er að þessu fólki?  Að gera grín af veikum einstaklingum sem geta ekkert af þessu gert, það er eitthvað að svoleiðis fólki.  Þetta fer ótrúlega í mig!!  Aaarrghh!!  Ég verð svo reið!! 

Úfffhh held að þetta sé komið gott!! 
 

Takk fyrir að nenna lesa þar að segja ef þið eruð ennþá að lesa.

Doktor Þuríður

Það er komin læknir í fjölskylduna sem heitir Þuríður ArnaHlæjandi Vorum niðrá leiksktofu áðan og Þuríður fann þenna fína læknaslopp og læknatösku og gengur um spítalan núna með töskuna sem ENGIN má snerta ehehe.  Í þessum töluðum orðum er hún að setja net yfir höfuðið og einnota hanska, bara fyndið!!  Verst að ég er ekki með myndavélina með mér og vanalega er hún alltaf í töskunni, dóóhh!!  Man eftir að koma með hana á morgun, annars er einhver formúlu-karl að koma á Barnaspítalan á morgun sem við ætlum að sjálfsögðu að hitta en ekki hvað og þá verður myndavélin að sjálfsögðu að vera til staðar. 

Hún er annars búin að vera krampa doltið mikið í dag og líður kanski ekkert ofvel, frekar ofvirk sem hún verður alltaf eftir krampana en samt ótrúlega góð.  Kvartar frekar sjaldan!!

Úffh það er svo mikið að gerjast í kollinum mínum þessa dagna en ég kem mér ekki alveg í að skrifa það núna, ligg með störu á tölvuna og puttarnir frekar máttlausir af þreytu.  Tel niður dagana að menningarnótt þegar okkur verður "hent" út af heimilinu og tengdó taka við og við verðum að gjöra svo vel að finna okkur gististað.  Bara spennt að geta sofið eina nótt án þess að þurfa vakna en verst að ég veit að ég mun ö-a liggja andvaka þessa nótt.  Dóóh!!  Stefnum á að tjútta aðeins þetta kvöld, kanski við komumst á Sálina þetta kvöld? Skömmustulegur Never know?

Drengurinn að vakna eftir dagssvefninn sinn, jújú hann getur sofið á daginn.  Aaaaaaaaaaaaarghh!!  Best að sinna börnunum mínum og hætta þessu rugli hérna í tölvunni.
Hasta la vista!!

Þreytt.is

Ég er ótrúlega andlaus og þreytt þessa dagana að ég hef mig bara ekki í það að skrifa þótt ég hafi endalaust miklu að segja frá en þetta eru bara þessir dagarFýldur.

Theodór minn Ingi sefur orðið verr á nóttinni en hann gerði sem bætir ekki hlutina enda hefur mar ekki fengið svefn í sex mánuði aaaarghhh!!  Þegar ég mætti uppá spítala í morgun með Þuríði mína ákvað ég að láta doktorana kíkja í eyrun á litla pungnum mínum og þar var víst doltil bólga þannig mín er komin með lyf handa honum.  Ætli eitthvað breytist eftir þann lyfjaskammt?  I dont think so!!  Ég fæ líka að hitta svefnráðgjafa uppá spítala, vonandi mun hún gefa mér einhver góð ráð áður en ég fer yfirum.  Dóóhh!!  Stundum er gott að þekkja mikið af góðum læknum vildi samt óska þess að ég þekkti ekki þetta lið því þá vissi ég að Þuríði minni liði vel. Gráta

Hún er búin að vera krampa doltið í dag, meira en venjulega.  Grrrr!!  Ekki gott!!  Hún er uppá spítala að fá krabbameinslyfin sín, þvílíkur vökvi sem getur komist fyrir í þessum litla líkama.  Fyrst fær hún vökva í átta tíma, svo koma krabbameinslyfin og eftir það kemur vökvi í 24 tíma, dæsssúss mar!!  Þið ættuð að sjá allar slöngurnar sem eru tengdar í hana í dag, flækjast bara fyrir. Getur varla gengið, slöngurnar alltaf fyrir henni greyjinu. 

Einsog ég sagði þá hefur Þura tengdó verið hjá henni í allan dag og við nottla eitthvað smá, gott að fá smá pásu frá spítalanum og geta sinnt hinum börnunm.  Linda ætlar einmitt að ná í hana Oddnýju Erlu mína á morgun á leikskólan sem henni finnst ekki leiðinlegt enda þarf ég að vera uppá spítala og Skari að sinna vinnunni sinni og þá er líka gott að eiga góða að einsog við erum alltaf að kynnast meir og meir í gegnum veikindin hennar Þuríðar minnar Örnu.  Þið eruð ÖLL best!!

Best að fara hvíla lúin bein, þarf að ná kanski einum eða tveimur klukkutímum áður en litli pungurinn minn vaknar.  Ekki eðlilegt hvað hann sefur lítið, ekki alveg að skilja?

Reyni að segja ykkur einhverjar sögur á morgun eða ekki, veitiggi hvort ég hafi orku?
Góða nótt elskurnar og knúsið hvort annaðHlæjandi ég sendi allavega eitt stórt knús til ykkar allra.

Uppá spítala

Þá erum við mætt á okkar annað heimili, Barnaspítalan.   Þuríður mín Arna verður hérna allavega fram á föstudag, tengdó verður hérna hjá henni í dag og nótt.  Reyndar ekki í einhverju bloggstuði, vonandi finn ég mig seinna í dag.

Verslunarmannahelgin

Myndir komnar inn frá helginni, kíkið!!Hlæjandi
Er ekki ennþá komin í einhvern blogggír, nenniggi að skrifaFýldur

Helgin liðin

Stuð fyrir norðan PUNKTUR.
Ekki í stuði að blogga í augnablikinu PUNKTUR.

Held það bara :)

Jú það stefnir í að við verðum á Akureyri um helgina, er allavega að pakka fyrir hele familíen.  Bara gaman!!  Engan hita hefur litli pungurinn minn fengið sem er gott, ennþá með mikin gröft enda fékk hann nú bara lyfin sín í gærkveldi og svo er hann með hor í nös og vill láta móðir sína dekra endalaust við sig og henni finnst það nú ekki leiðinlegt.Hlæjandi  Vonandi sefur hann bara betur í nótt en síðustu sex mánuði, dóóhh!!  Ok ég bið bara um síðustu nokkra daga því það hefur ekki verið NEINN svefn.

Mamma er víst búin að smyrja nesti handa okkur fyrir morgundaginn en við vonumst eftir góðu veðri þannig við getum stoppað á leiðinni í einhverri lautinni og borða nesti og haft það nice.  Ekki leiðinlegt!!

Ég er endalaust spennt eftir að fara á Sálarball, þekki mikið af fólki sem ætlar á ballið þannig það verður ekki leiðinlegt eða ég vona ekki ehe.  Alltaf stuð á Sálinni hvort sem ég væri ein eða í góðra vina hópi, standa alltaf fyrir sínu, "mínir" menn.

Þuríður mín Arna er búin að vera mjög slöpp í dag, ekki gott!!  Búin að þurfa taka sér þrjá lúra yfir daginn sem lýsir því bara hvernig dagurinn hennar er búin að vera.  Að sjálfsögðu hætta kramparnir ekkiGráta, alveg óþolandi!!  Vonandi hressist hún eitthvað við að fara norður, jeh right!!  Kanski við gleðjum hana aðeins og leyfum henni að kíkja í tívolíið en hún er mesta tívolí-kerling ever er sko ekki hrædd við að fara í stóru tækin. Æji það er endalaust gaman að fara með hana í tívolí, hún verður alltaf svo glöð og það skín alveg af henni gleðin.  Hlakka til að fara með henni "næst" í tívolíið í Koben ekki það að það sé á dagskránni bara draumurKoss.  Mar verður víst að eiga sér einhverja drauma svo við stefnum á að fara með hana þegar hún verður hraust.

Best að halda áfram að pakka þannig ég óska ykkur góðra helgar, gangið hægt um gleðinnar dyr.

Knús og kossar
Slauga slímSvalur

Litli mömmu-strákurinn minn....

....er vonandi ekki að vera lasinn.  Það væri samt alveg típískt, alltaf þegar við ætlum að fara eitthvað þá verða eitthvað að börnunum lasin.  Well honum verður haldið inni í dag og dekrað við hann þar að segja ef það er hægt að dekra við hann eheh!!  Litli mömmu-kallinn minn!!  Hann svaf sama sem ekkert í nótt, grét bara og grét sem hann er ekki vanur að gera.  Jújú hann er vanur að kvarta aðeins í mömmu sinni en ekki einsog í nótt, þannig það var lítið um svefn á þessu heimili well búið að vera lítið um svefn síðustu sex mánuði.  Dóóhh!!  En þetta er nú versta nóttin fram að þessu.  Greyjið litli!!

Þessi vika er búin að vera æði hjá stelpunum, búnar að vera úti að leika frá morgni til kvölds og líka gjörsamlega búnar á því.  Ótrúlega gaman þegar það kemur svona gott veður þá tímum við sko ekki að hanga inni.  Yndislegt!!

Lítið í fréttum hjá stórfjölskyldunni, vonandi komumst við til Akureyrar í fyrramálið og getum skemmt okkur vel með fjölsk. minni og Skara. 

Þuríður er alltaf eins (alltaf krampandi), fór í blóðprufu í gærmorgun og það kom bara vel útur henniHlæjandi.  Verður lögð inn í næstu viku og þá fær hún "stærsta" skammtinn sinn sem hún fær á 12vikna fresti,fróðlegt að sjá hvernig hann mun fara í hana.  Farin að krossa putta!!

Best að fara hjúkra að uppáhalds drengnum mínum fyrirutan hann Skara minn eheBrosandi

Golfmót-auglýsing

 

Föstudaginn 18.ágúst kl. 16.00 verður haldið golfmót til styrktar Þuríði Örnu okkar Brosandi Mótsgjaldið rennur ÓSKERT til ÞÖ og glæsilegir vinningar eru í boði (auðvitað, hehe). Anna Björk vinkona okkar sér alfarið um þetta svo þið sem hafið áhuga á því að vera með getið fengið upplýsingar hjá henni á annabb@mmedia.is eða í síma 822-2282.


Hvar er sólin?

Oh ég var að vonast til að sólin myndi sóla sig innum gluggan hjá mér í morgun þegar ég myndi vakna, reyndar búin að vera vakandi fyrir klukkan fimm og ekki var hún komin þáFýldur.  Theodór minn Ingi var ekki að meika það sem sagt í nótt, vildi bara brjóstin sín eheh en þau fékk hann ekki svo hann er búinn að vera vondur fyrir klukkan fimm í morgun útí mömmu sína og samt að deyja úr þreytu.  Hvar fær hann þessa þrjósku?  Hann er allavega sofnaður núna og ég ætla að leggjast uppí rúm til hans og fá mér smá fegrunarblund ekki það að ég þurfi á honum að haldaHlæjandi.  Sendi stelpurnar á leikskólan, æjhi þær eru orðnar frekar þreyttar á því að hanga með mömmu sinni allan daginn en svo eftir hádegi ætlum við að fara á Dragó í garðinn og hitta Ásgrím og fjölsk. leyfa börnunum aðeins að leika sér þar sem þau hafa ekki hist í ár og aldir.  Oh mæ!!

Hafa margir beðið eftir þessum degi?  Bara spyr? MArgir að fá endurgreitt frá skattinum og svona, ég vildi óska þess að ég væri að borga nokkrar millur tilbaka þá vissi ég það að ég ætti slatta af peningum eheh!!  Kanski verður það einhverntíma?  Held ekki samt!!

Æjhi Þuríður mín er alltaf krampandi, höfuðið hennar er einn stór grænn marblettur og nokkrar kúlur.  Ömurlegt hvað hún skellur í gólfið í krömpunum, svo erfitt að horfa uppá þetta og sjá kanski engan enda á þessuGráta.  ERfiðast í geymi!!  Hún er gjörsamlega ónýt eftir hvern krampa og sefur þá mikið á móti enda tekur þetta í hvern einasta vöðva hjá henni, stífnar svo upp í krömpunum.

Æjhi ég ætla að fara leggja mig, var að setja inn nýjar myndir frá gærdeginum.  Þetta fer kanski að verða of mikið af myndum fyrir ykkur?Hissa Well þá sleppi þið því þá bara að skoða ehe!!

Eigið góðan dag!!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband