Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Ef Maístjarnan mín væri heilbrigð...

...þá væri líf mitt fullkomið. 

Ég ætla að birta eina mynd af Maístjörnunni minni sem var tekin þegar hún var frekar veik (sterkri lyfjameðferð) og krampaði endalaust mikið.  En á myndinni er hún nýbúin með einn krampa og varð svona eftir að hún skall beint á steypuna.  ....hún er að sjálfsögðu alveg búin á því eftir krampan og sofnaði um leið.
krampi
Munum hvað við höfum það gott þrátt fyrir öll þessi læti í þjóðfélaginu, heilsan okkar er það allra mikilvægasta.

Knús á ykkur!!


Ég þoli ekki október mánuð

Þá er komið að þeim mánuði sem ég HATA mest, afhverju?  Jú vegna þess þegar við höfum fengið slæmar fréttir þá koma þær oftast alltaf í október.  Fyrstu slæmu fréttirnar í október voru 25.okt'04 eða þegar Maístjarnan mín veiktist fyrst og þeim degi gleymi ég ALDREI og svo hafa þær komið alltof oft eftir það í október mánuði.

Maístjarnan mín ætti með réttu að fara í sýnar næstu rannsóknir síðasta þriðjudaginn í okt en við báðum læknanna okkar að breyta því sem ég er mjööööög fegin.  Vegna allra slæmu fréttana sem við höfum fengið (í okt) og vegna þess að hennar stærsti draumur á að rætast stuttu eftir það og EF það kæmi ekki gott útur rannsóknunum veit ég að við myndum ekki njóta þess jafn mikið, en í staðin fáum við að gera eitthvað brjálæðislega skemmtilegt og láta hennar STÆRSTA draum rætast.  Ég var reyndar alltaf búin að lofa henni að þessi draumur myndi rætast fyrsta lagi þegar hún myndi fermast en aðstæður breyttust í maí þegar hún greindist aftur og vildi helst gera þetta NÚNA.  Ég er sjálf að deyja því ég er svo spennt og langar endalaust mikið að segja henni frá þessu en ef ég myndi gera það, þá myndi Maístjarnan mín ekki sofa þanga til.Grin   Þannig í staðin fær flottasta stelpan að fara í sínar þriggja mánaða rannsóknir 9.nóv eða tveimur vikum seinna en hún hefði átt að gera.

Maístjörnunni minni líður ágætlega, ég fór einmitt á foreldrafund uppí skóla á föstudag og auðvidað stendur hún sig ágætlega miðavið allt saman.  Viljinn er mikill hjá henni og hún hefur sýnt ótrúlega miklar framfarir á bara ári, það verður einhverntíman alveg hrikalega mikið úr þessari stelpu.  Hún er líka rosalega ánægð í skólanum enda ekki annað hægt þegar hún er með þrjár stelpur í fjórða bekk sem sitja henni (3 og 4 bekkur saman) sem eru alveg yndislega góðar við hana og passa vel uppá hana, það er ekki hægt að biðja um meiri kærleika einsog hún fær frá þeim.  Greinilega vel uppaldar stelpurWink.

Það var líka foreldrafundur hjá Blómarósinni minni, þetta er allt að koma hjá henni þar að segja félagslega enda þrusu erfitt fyrir hana að þurfa kveðja bestu vinkonurnar úr leikskóla(leikskólinn hennar var ekki í hverfinu), fara í alveg nýtt umhverfi og hafa þurft að upplifa svona erfitt sumar með systur sinni.  Henni gengur endalaust vel í skólanum eða einsog kennarinn hennar orðaði það "spurning um að senda hana bara beint í Háskólann".Wink Hún er fluglæs og komin í annar bekkjar bók í stærðfræðinni sem hún flýgur reyndar í gegnum einsog ég hef oft sagt þá er Blómarósin mín ekki 6 ára, hefur þurft að þroskast alltof hratt síðustu ár.

Ég vona að þessi október mánuður verði sá besti síðan 2004, hvað þá nóvember þegar Maístjarnan mín fer í rannsóknir sínar. 


Sumarbústaður og Stokkseyri

Yndisleg helgi að ljúka sem við eyddum í sumarbústað og enduðum svo á Stokkseyri að taka upp nokkrar kartöflur en það var hið árlega "kartöflukeppni" okkar fjölskyldunnar (amma og afi, börn og barnabörn).  Að sjálfsögðu var kíkt niður í fjöru og týnt nokkra krabba, þetta finnst krökkunum ÆÐI.  Mér finnst ofsalega mikilvægt að eyða miklum tíma með börnunum mínum, gera eitthvað skemmtilegt saman sem við gerum mjög mikið af en þá er ég farin að sakna þess oggupínupons að vera ein með Skara mínum, væri alveg til í helgarferð í sumarbústað, grilla, sauma í, horfa á dvd og gera í náttgallanum allan tíma.  ....set þetta í planlistan fyrir jól, kanski eitt stk bíóferð og útað borða líka.

Maístjarnan mín er bara þokkalega hressSideways, kvartar ekkert og nýtur þess bara að vera til!!  Hún sýnir ágætis framfarir, það gengur allt mjög hægt og rólega.  Hún má taka ALLAN þann tíma sem hún þarf, hennar tími kemur í ÖLLU. GETA, ÆTLA, SKAL!!

Hérna koma nokkrar frá deginum í dag:
IMG_4168
Ofur-töffarinn hann Theodór fann eitt stk krabba niður í fjöru og var alveg ákveðinn að taka hann með sér heim og sýna krökkunum í leikskólanum en það var víst ekki í boði og herra krabbi varð eftir á Stokkseyri.
IMG_4129
Maístjarnan mín var mjög stollt af medalíunni sinni sem hún fékk í "kartöflukepnninni" enda ekki oft sem stúlkan fær medalíu.
IMG_4144
Blómarósin mín lét sér nægja að halda á "dverg" krabba en hún hefði geta eytt heilum degi í fjörunni bara að velja sér kuðunga og skoða "sjó"lífið enda sú allra fallegasta fjara sem ég veit um.
IMG_4159
Mömmupungsanum mínum fannst heldur ekki leiðinlegt að leika sér í fjörunni en þarna var honum orðið "kal" (kalt)einsog hann sagði sjálfur.

Sem sagt bara fullkomin helgi að ljúka og núna ætla ég að taka fram saumadótið mitt og halda áfram að sauma fyrir jólin enda BARA 89 dagar til jóla.  Víííí!!


Maístjarnan mín

Maístjörnunni minni finnst ofsalega gaman að hlusta á tónlist, sérstaklega að fara á tónleika.  En á myndbandinu hérna fyrir neðan er hún að tjútta við eitt af sínum uppáhalds lögum.  Þið verðið að sjálfsögðu að vera með hátalarann í gangi.

Eigið góða helgi.


Blómarósin mín

Blómarósin mín er búin að æfa fimleika í ár og fimleikar eru eitt af því sem hefur hjálpað henni mest í að "gleyma sér".  Hún er að hálfan sólarhringinn og fær engan veginn leið á því að æfa sig, ég hélt að hún myndi kanski byrja kvarta undan verkjum og þreytu núna í haust þegar hún fór að æfa 4x í viku tvo tíma í senn en NEI hún má sko ekki missa af æfingu þó svo hún sé hálf lasin þá kemur það ekki til greina.  Hún hreinlega elskar fimleika og það hneykslast margir á því að við skulum "láta" hana æfa svona mikið aðeins sex ára gömul, við látum hana ekki gera neitt og hún er ekki neydd í að gera eitthvað sem henni langar ekki.  Ég er ótrúlega stollt af þessari stelpu einsog öllum hinum þremur en hún hefur þurft að vera í baráttunni með systur sinni alveg frá byrjun og þekkir ekkert annað en hún hefur fimleikana sem hjálpa henni mest til að gleyma sér og mér finnst það alveg frábært.  Ef hún fengi að ráða þá væri hún væntanlega á æfingum alla daga, reyndar æfir hún sig alla daga en þá er ég að meina með þjálfaranum sínum.  Maístjarnan mín lítur líka ótrúlega mikið upp til hennar og það hjálpar henni líka rosalega mikið því líkaminn hennar hefur styrkst rosalega mikið eftir að hún byrjaði í sínum fimleikum því henni langar svo rosalega mikið að vera einsog "litla" systir.

Hérna er smá myndband af Blómarósinni minni gera pínu æfingar:


Tóm.is

Síðustu mánuði hefur maður verið frekar tóm, finnst endalaust erfitt að æxlið er komið upp aftur og allt svo óljóst.  Alla daga er hnútur í maga sem er engan veginn að fara, kvíðinn er svo mikill að hálfa væri miklu meir en nóg.  Ég þarf svo mikið að gera eitthvað fyrir sjálfan mig, reyna gleyma mér og ég veit það sjálf að minn besti sálfræðingur er hreyfing en það er bara svo erfitt að koma sér afstað.

Manni dreymir um veikindalaust líf en innst inni veit ég að það er frekar fjarlægur draumur þar sem við verðum væntanlega alltaf í þessari baráttu þar sem æxlið hennar er þannig "týpa" sem getur "poppað" upp hvenær sem er aftur og aftur.  Þetta er erfitt!

Maístjarnan mín stóð fyrir framan spegilinn í gær og tilkynnti Blómarósinni að krabbameinið væri að stækka og það fékk dáltið á mig.  Blómarósin mín sagði við hana að það væri ekkert sniðugt að segja svona, þetta fór greinilega líka í hana.  Ég man svo vel fyrir ca tveimur árum varð hún alveg brjáluð þegar krakkarnir í bekknum voru að segja við hana að hún væri með krabbamein, hún sagði að það væri farið og svo segir hún þetta.  ...auðvidað á ég ekkert að vera hugsa um þessi orð hennar en geri það samt.

Það eru frekar "erfiðir" dagar hjá henni, það er frekar stutt í þráðinn hjá henni.  Hún er víst ofsalega róleg í skólanum og dugleg en þegar hún kemur heim verður hún mjög erfið, einsog hún viti ekkert hvað hún eigi að gera af sér.  Það er eitthvað ónot í henni, svo vont þegar hún getur ekki tjáð manni hvað er að "bögga" hana.Frown

Minnsti mömmupungurinn er búinn að vera lasinn, fyrsta sinn á sinni 22 mánaða ævi svo það hlaut að koma af því.  Við erum búin að vera horfa á 10-15 Latabæjarþætti (bara í gær)sem er hans uppáhalds og þeir eru að sjálfsögðu komnir í gang núna.

Helgin framundan sem verður bara róleg, byrjar að sjálfsögðu á fimleikaæfingum og vonandi verður sá minnsti ekki veikur svo það verði hægt að gera eitthvað skemmtilegt með þeim.

Góða helgi.
Gamanm_KJ_100816_5312 [1280x768]


Styttist í drauminn...

Það styttist óðum í STÆRSTA draum Maístjörnunnar minnar, jiiiii minn hvað mig hlakkar til.  Þegar henni verður tilkynnt hvað við ætlum að gera fyrir hana verður videovélin að sjálfsögðu til staðar og allt verður myndað þar sem hún mun tjúllast af kæti.W00t  Þetta verður bara BEST í heimi!!

Maístjarnan mín er ágætlega hress, gengur vel hjá henni í fimleikunum sem styrkja hana rosalega vel.  Við ákváðum að láta hana ekki vera í sjúkraþjálfun þar sem fimleikarnir styrkja hana alveg jafn mikið (ef ekki meir)og þar fær hún líka að vera hluti af hóp sem hún var ekki í sjúkraþjálfuninni.  Fyrir ca ári síðan vorum við í sjúkraþjálfun hjá greiningarstöðinni sem er besta þjónusta sem við höfum fengið en þar var hún alltaf ein og sjúkraþjálfinn hennar vildi að hún yrði hluti af hóp og fengi að æfa með krökkum á svipuðu leveli og hún og auðvidað vildum við það þó svo það var hrikalega erfitt að hætta hjá þeim í greiningarstöðinni.  Það var sótt fyrir hana á ákveðnum stað sem henni var lofað að vera í hóp sem við vorum að sjálfsögðu ánægð með en hún fékk það svo aldrei, hún var alltaf ein svo það var engin "gróði" að flytja sig af besta staðnum.Frown  Þess vegna ákváðum við að hún yrði ekki í sjúkraþjálfun en hún sýndi miklar framfarir frá síðustu önn af fimleikunum, þó svo hún geti ekki alveg sömu hlutina og stelpurnar sem eru með henni í hóp en þá gerir þetta ofsalega mikið fyrir hana.  Hún fær fullkomna þjónustu hjá fimleikafélaginu OKKAR, við eigum væntanlega engan rétt að þeir reddi aðstoð fyrir hana en þeir gera það samt sem ég er hrikalega ánægð með. 

Blómarósinni minni líður ennþá ekkert of vel, það er alltof margt erfitt sem er að gerast hjá henni og hún bara höndlar það ekki.  Það er alltof erfitt að horfa á 6 ára barnið sitt óhamingjusamt flesta daga, það er sko ekkert auðvelt að vera systkin langveiks barns (og þekkja ekkert annað)sem eiga oft til með að gleymast í svona baráttu en við höfum alltaf verið meðvituð um það.   Hún er nú farin að sýna smá spenning fyrir draum Maístjörnu minnar sem er nú líka smá draumur hjá henni líkaInLove.


Gamanmyndir - Hinrik Örn

Þá koma síðustu myndirnar sem ég ætla að birta hérna og það er af litla mömmupungnum mínum Hinrik Erni. 
Gamanm_KJ_100816_5113_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5131_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5242_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5251_brt [1280x768]

Gamanmyndir - Theodór Ingi

Hérna koma nokkrar af súper töffaranum mínum Theodóri Inga sem er farinn að lesa upp úr lestrabókum systra sinna enda vill hann að sjálfsögðu vera einsog þær.  Ég fæ ekki leið á því að monta mig af þeim.Halo 

Gamanm_KJ_100816_5089_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5169_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5224_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5289_brt [1280x768]

Eigið góða helgi öll sömul, helgin okkar verður pakk full af skemmtilegheitum.


Gengur vel

Maístjarnan mín er ágætlega hress en um leið og það kemur einhver þreytu dagur og hún vill leggja sig eftir skóla fer maginn á hvolf þó svo það sé óþarfi, ég meina ég verð líka oft þreytt og langar stundum að leggja mig í hádeginu.  Maður er samt alltaf með í maganum að aukaverkanir fari að koma, fái fleiri krampa eða fleiri æxli komi í ljós, vávh hvað ég þrái "áhyggjulaust" líf.

En hérna koma nokkrar myndir af þeim systkinum sem voru teknar hjá Gamanmyndum;
Gamanm_KJ_100816_5036_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5047_brt [1280x768]

Gamanm_KJ_100816_5066_brt [1280x768]

Ég hreinlega elska þessar myndir og ætla að gera eitthvað skemmtilegt við þær.  ....bara veit ekki hvað??Whistling


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband