Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Sýklalyf í æð, ristill, hjartaómun og fleiri rannsóknir

Það er einsog Þuríður mín hafi ekki þolað nóg, hvursu mikið þarf hún að þjást þangað til hann fer að hætta að kvelja hana svona?  Það er ekki nóg að hún sé að berjast við þennan krabba kúkalabba en þá þarf hún að fá allt ofan á það, greyjið!

Vikan er búin að vera erfið hjá henni, hún er búin að þjást án þess að við vissum afhverju og að sjálfsögðu hugsar maður það versta og fer að ímynda sér allskonar slæma hluti.  En á miðvikudaginn kom í ljós að hún hefur þjást af ristli og þeir sem vita hvað það er og þá er ekkert grín að fá þann sjúkdóm, miklar kvalir og þess vegna hefur maður eiginlega þurft að pakkað henni inní bómul og passað vel uppá hana.  Vanalega leggst þetta bara á eldra fólk en Þuríður mín er soddan furðuverk einsog hún segir sjálf þá fær hún allt sem hún líka ekki að fá, aaaaaaaaargghh!  Hún var strax sett á sýklalyf og kvelst ekki jafn mikið líka kanski því hún hefur verið líka á miklum verkjastillandi lyfjum til að lina kvalirnar eða fjagra tíma fresti.  Hún vaknaði reyndar í morgun sprækur sem lækur og sagði glöð "mamma og pabbi ég er hætt að vera lasin, sárið er farið". Reyndar var sárið ekki farið sem myndast þegar fólk fær ristil, frekar ógeðslegt og hilur líka hálfan hringinn yfir maga og bak en henni leið greinilega vel í morgun allavega betur en síðustu daga sem hafa verið "hell" fyrir hana. Dagurinn í dag er búin að vera betri en síðustu daga sem er bara frábært.

Ég hélt eða allavega vonaðist til að þetta yrði okkar fyrsta sumar sem yrðum laus við innlögn á spítala síðan Þuríður mín veiktist en auðvidað gat það verið of gott til að vera satt. Mhuhu!!  Reyndar þarf hún ekki að liggja inni en hún er innskrifuð uppá Barnadeild næstu daga (veit ekki hvurstu marga)en hún er að fá sýklalyf í æð vegna allra þessara veikinda sem hún hefur verið að berjast við síðustu mánuði en fær alltaf að  fara heim af þeirri gjöf loknu sem betur fer.  Ekki það skemmtilegasta sem maður gerir er að liggja inni á spítala hvað þá yfir sumartíma eða þegar það er svona mikil mannekla uppá spítalan einsog yfir sumartímann.  Hjúkkurnar búnar að vinna yfir sig og með bauga niðrá tær, alltof mikið álag á þær á þessum tíma. 

Við hittum sem sagt lungasérfræðingin í morgun, hann sendi hetjuna mína í hjartaómun til að ath hvort allt þetta lungavesen á henni væri farið að bögga hjartað en sem betur fer er allt flott þar.  Lungun eru reyndar fín núna, kinnholin full af skít, andardrátturinn alltaf jafn þungur og svo lengi mætti telja en öll þessi sýklalyf eru ekkert að vinna sína vinnu þannig núna er hún komin á þau sterkustu sem hún getur fengið og það verður hún að fá í gegnum æð og vonandi munu þau gera eitthvað fyrir hana.  Voru teknar nokkrar blóðprufur því það er líka verið að ath ónæmiskerfið hjá henni, gæti verið orðið dáltið bælt?

Hún er með slöngu fasta á sér svo það þurfi ekki að vera stinga hana á hverjum degi sem er ágætt en ég varð vitni af því fyrsta sinn í dag eða í þrjú og hálft ár (síðan hún veiktist) að hún vildi ekki  klæðast úr bolnum sínum svo aðrir myndu sjá slönguna hennar.  Það var eitthvað sem hún skammaðist sín fyrir, ótrúlega skrýtið að sjá það því hún er ekki vön að vera eitthvað spéhrædd.

Hún hefur samt staðið sig ótrúlega vel síðustu daga, kveinkar sér aðeins þó hún finni kanski mjög mikið til og maður verður að passa sig hvar maður tekur utan um hana vegna ristilsins því það er ótrúlega sárt.  Því miður mun hún ekki geta farið á badmintonnámskeiðið sem hún ætlaði á í næstu viku vegna alla þessara veikinda því verr og miður en sem betur fer var ég ekkert búin að vera ræða það alvarlega við hana því annars hefði hún verið svakalega svekkt.

Annars fengu systkinin ótrúlega flotta og fallega gjöf í dag frá okkar uppáhaldi eða við viljum kalla hann stjörnu KR-liðsins í fótbolta Björgólfur Takefusa en stelpurnar fengu sjálfa KR-búningana sem gladdi þeirra litla hjarta ótrúlega mikið og mitt líka ehe því við erum miklir KR-ingar og þær hafa ekki farið úr búningunum síðan þær fengu þá eheh og ætli þær fari nokkuð úr þeim sem ég mun alveg skilja enda ótrúlega flottar.  Þar sem það er ekki komið svona lítill búningur á Theodór þá græddi hann KR-buff sem hann var líka ótrúlega sáttur við, fær núna gömlu búninga systra sinna í staðin sem er ekkert verra.Wink  Þetta var ómetanleg gjöf sem Björgólfur gaf þeim, veit að afi Hinrik er alveg í skýjunum eheh og segir alltaf þegar þær mæta í svoleiðis fötum "jæja eru þið komin í sparifötin" ehe.

Mín ástkæra systir er að fara gifta sig á morgun sem mig hlakkar mikið til, mikið að gera í dag vegna undirbúnings.  Væri alveg til í að fara gifta mig aftur honum Skara mínum, oh mæ væri alveg til í það aftur var svooooo gaman.  Spítalinn eldsnemma í fyrramálið í sýklagjöf og svo beint í brullup.

Er núna farin til Elsu minnar að ná í fína kjólinn minn sem hún var að sauma á mig fyrir morgundaginn, endilega kíkið á www.gallerilist.is og sjáið öll fallegu málverkin sem hún hefur verið að mála og þið getið keypt.  Tilvalin brúðargj.Tounge

Eigið góða helgi, ég vona allavega að hetjan mín mun eiga góða helgi.


Hæ hó jibbíjei og jíbbíjeij eða þannig...

Ég myndi ljúga að ykkur ef ég væri ekki farin að hafa áhyggjur af hetjunni minni, hún er búin að vera drulluslöpp í dag og þá er ég ekkert að meina með flensuna heldur bara SLÖPP.  Vitum ekki alveg hvað málið er og farin að hafa miklar áhyggjur.  Hetjan mín t.d. vaknaði kl 6:30 í morgun með smá ræsi í nótt um tvö og ég nánast svaf ekkert eftir það því andardrátturinn hennar var orðinn svo þungur.  Jamm vanalega þegar hún vaknar svona á morgnanna eigum við að fara á fætur ekki seinna en NÚNA og gefa morgunmat en stúlkan lá hálf "meðvitundarlaus" á milli okkar og var ekkert á leiðinni á lappir.  Eftir það lá hún algjörlega fyrir þó það búið að opna út og systkinin hennar farin út að leika þannig hún rétt kíkti en svo var það búið.  Kíktum í "afahús" og þar grilluðum við og borðuðum útí garði ásamt mömmu, pabba og Oddnýju systir og fjölsk. en hetjan mín hafði ekki orku í að gleypa í sig bita hvað þá fíflast með systkinum sínum  og Evu frænku þannig hún sofnaði bara í garðinum í fanginu hjá mér. 

Þó hún hefði varla orku í að fara í bæinn ákváðum við samt aðeins að kíkja því við vissum að þau myndu vilja sjá Skoppu og Skrítlu og atriði úr Gosa og þar fengum við líka að sjá fyrsta bros dagsins hjá henni þegar vinkonurnar mættu á svæðið (Skoppa og Skrítla).  Hún lá einsog slitti í kerrunni sinni eða í fanginu hjá mér uppí brekku en venjulega þegar Þuríður mín er hress vill hún vera hlaupandi útum allt hvað þá sitja í kerrunni eða í fanginu hjá mér.  Ekki gott ástand!

Hún er líka farin að kvarta í líkamanum, eitthvað í bakinu, maganum og löppunum en maður veit eiginlega ekki hvar henni er illt því hún kann ekki að kvarta, réttara sagt er hún ekki vön að kvarta þannig þetta kemur mikið á óvart og þá hlítur henni að vera illt.  Hún er líka komin ógeðslega stórt og ljótt sár á magann sem við skiljum ekki alveg hvaðan það kom?  Skari eitthvað hræddur um að það sé kominn sýking í það en svona svipað sár er að birtast á bakið líka sem er ekkert betra.  Aaaargghh!!

Eigum ekki að mæta uppá spítala fyrr en á föstudag til að hitta lungasérfræðinginn en við munum ekki bíða með að mæta þangað á föstudag.  Við að sjálfsögðu mætum í fyrramálið því ég er líka dáltið smeyk hvað sé að bögga hana og ætla að berja í borðið og biðja þá að skoða hana hátt og lágt.  Ég vill fá svör ekki bara enn einn sýklaskammtinn sem gerir ekkert gagn fyrir hana.  Hún gat varla andað í nótt, er mjöööög þreytt, illt í kroppnum þannig það hlýtur að vera eitthvað?  Hún verður allavega ekki illt í kroppnum af lungunum.

Það var hrikalega erfitt að horfa uppá hana í morgun, ótrúlega vansæl þó hún hafi ekkert verið grátandi og mjög þreytt.  Hún er reyndar farin núna út að leika, leika sér við systir sína og eina nágranna vinkonu en verður ö-a komin inn eftir smástund enda orkulítil.

Þetta er vont og erfitt.


......

Hetjan mín er þreytt þessa dagana og er fljót að þreytast, hún þarf orðið að sofa á daginn "aftur" og sofnar snemma á kvöldin.  Það er eitthvað að bögga hana, jú það er eitthvað í lungunum sem læknirinn hennar hefur ekki alveg áttað sig á hvað það sé? Þess vegna munum við hitta lungasérfræðing á föstudag og vonandi mun hann finn útur þessu, hún á líka svo oft erfitt með öndina sem er ekkert betra.  Stundum er einsog hún sé að "kafna".  Þannig statusinn mætti vera betri á henni.

Margir eru að spurja hvað sé að frétta af óléttunni, æjhi ég veit ekki afhverju ég ræði það ekkert hérna.  Kanski vegna þess að ég er dáltið slæm í grindinni og finnst asnalegt að "kvarta" eitthvað um það hérna þegar veikindin hennar Þuríðar minnar eru miklu alvarlegri og hún hefur gengið í gegnum miklu erfiðara tímabil en það sem ég er að ganga í gegnum.  Ég hef reyndar aldrei verið jafn góð í henni og þegar við Skari vorum úti á Fuertventura þannig kanski er best að læknirinn minn framvísi vottorði um það að ég þurfi að fara til sólarlanda eina viku í .

Bumban stækkar og stækkar, margir spurja mig hvort þetta séu tvö eða hvort ég sé vissum að þetta séu ekki tvö.  Hmmmm!!  Fæ þá spurningu nánast frá ÖLLUM en nei barnið er bara eitt en bumban mín hefur alltaf stækkað svona hratt við allar mínar meðgöngur nema hjá Þuríði minni því þá kastaði ég upp fyrstu fimm mánuðina.  Dóóóhh!!  Svo spurja mig margir hvort við vitum kynið en nei sama svarið ég er ekki gengin nógu langt til að vita það og þegar það kemur að 20 vikna sónarnum sem er snemma í næsta mánuði þá ætlum við ekki að vita kynið, ótrúlegt en satt.

Meðgangan gengur sem sagt bara vel fyrirutan grindarverki, krakkarnir alltaf að knúsa og kyssa bumbuna og tala mikið um litla barnið í maganum sem er bara gaman enda við líka dugleg að tala um það við þau.  Þarf víst að undirbúa litla mömmupunginn minn sem er verið að venja snudduna af þessa dagana og það gerir hann þvílíkt slæman í skapinu.  Greyjið litli!!  Næst verður  það svo bleyjan....  Bara stuð!

Var að kaupa blóm á pallinn minn þannig kanski ég fari að setja þau í potta og reyni að gera pallinn minn aðeins "sætari".


Útilega? Niiiih ekki í þetta sinn :/

Við fjölskyldan ætluðum að fara í útilegu þessa helgi eða réttara sagt ætluðum við að fara í gær en að sjálfsögðu er það ekki hægt vegna heilsu Þuríðar minnar og svo var maður líka að fatta að bensínverðið er orðin klikkun og það er ekkert grín að fara í útilegur útá land(ætli við skreppum ekki bara í Laugardalinn ehe).  Ætluðum einmitt að fara norður og kíkja í heimsókn til ættingja, vorum búin að fá lánað fellhýsi (sem mig dreymir einn daginn að eignast) en það verður víst að bíða betri tíma.  Perlan mín var orðin rosalega spennt því við vorum búin að ákveða þetta áður en við fórum til Kanarí en svona er að vera með veikt barn stundum verður maður að hætta við en þá er bara að fresta og gera það síðar í sumar og perlan mín sætti sig við það þó við verðum "bara" í bílskúrstjaldinu okkar(það er sko hrikalega stórt enda þarf það líka að rúma fyrir okkur öll), hver þarf endilega fellhýsi?

P6110014
Hérna er hann Theodór minn, hélt að það væri ekki hægt að eignast svona fallegan dreng samt er hann ekkert líkur pabba sínum ehe.  Það er byrja að venja drenginn af snuddunni enda tími til kominn, systurnar voru báðar hættar með bleyju og snuddu á þessum aldri.  Hann er algjör snuddukarl en þetta er allt að koma hjá honum, svo erum við líka byrjuð á bleyjunni eða réttara sagt farin að segja honum að kíkja á koppinn sem hann er farinn að gera án þess að vera brjálaður.  Hann er með dáltið skap drengurinn sem ég veit ekki alveg hvar hann fær það því við Skari erum mjög róleg að eðlisfariSideways.

P6110005
Fallega lukkutröllið mitt, perlan mín var að æfa sig að taka myndir (sem hún er mjög áhugasöm um að gera) en þessi var ansi nálægt ehe en þuríður er alltaf tilbúin að stilla sér upp fyrir systir sína nú eða okkur.  Komin með ansi mikið hár og erfitt að ráða við það, hrikalega þykkt og fallegt.  Hún fór reyndar í klippingu í fyrradag (myndin var tekin fyrir klippingu)en það sést varla því hún er bæði að safna toppi og ætlar sér að fá sítt hjá einsog Oddný sín. 

Ég hélt að hún væri að kafna í nótt, hóstinn er svo ljótur og greinilega mikið í lungunum.  Átti erfitt með að hætta hósta og byrjaði svo aftur þegar hún vaknaði í morgun.  Æjhi greyjið en samt ágætlega hress þó hún sé mjög þreytt þessa dagana, farin að leggja sig aftur yfir daginn.  Damn! Frekar pirruð yfir þessari þreytu og hafa ekki jafn mikla orku einsog venjulega eða síðustu tvo/þrjá mánuði sem hefur verið hennar besta tímabil síðan hún veiktist(hefur aldrei átt svona langt gott langt tímabil áður).  Krossa bara alla putta að sumarið verði sem best hjá henni, stefna var sett á eitt stk badmintonnámskeið 23.júní en bara í viku en ég veit ekki hvort það verði hægt allavega ekki ef ástandið á henni verður svona þá hefur hún enga orku í að vera fjagra tíma námskeiði.  Hmm kanski ég ath hvort hún megi vera tvo tíma eða eitthvað bara svo hún fái smjörþefinn af þessu öllu, ætti nú ekki að vera erfitt fyrir mig að ath það þar sem þetta er haldið í mínu fyrrverandi heimili til margra ára (æfði badm. í 11 ár) og minn fyrrverandi aukavinnustaður.W00t

Annars er mánuður í næstu myndatökur eða væntanlega 23.júlí, fengum að vita það í gær þegar við hittum liðið uppá spítala og svo styttist í krabbameinsmeðferðina.  Vonandi verður ekki beðið of lengi með hana.

P6110012
Perlan mín er í góðum fíling þessa dagana og er þvílíkt að blómstra.  Pælir mikið í öllum hlutum og hlakkar mikið til þegar við fjölsk. förum öll saman í sumarfrí sem er reyndar ekki fyrr en í lok júlímánaðar.  Úúúffh ég er líka spennt fyrir því fríi.  Jabbadabbadú!! 

Skari er reyndar í fríi núna og ætlar að kíkja á golfvöllinn á eftir en ég ætla bara að kíkja í garðinn til mömmu og krakkana en mamma er dagmamma en að fara hætta eftir sirka 20/25 ára starfsemi því verr og miður.  Hvert á ég þá að senda ófædda barnið mitt? ehe  Hef reyndar ekki þurft á dagmömmu að halda því verr og miður segi ég bara vegna veikinda Þuríðar minnar en vonandi tekur það einhvern enda.  Svo seinna í dag er sumarhátíð á leikskólanum og að sjálfsögðu ætlum við Skari að kíkja þangað og hitta börnin okkar, grill, hoppukastali og fleira skemmtilegheit.  Bara gaman!

Hey Júlíana takk fyrir leikjasendinguna sem beið okkar þegar við komum heim, stelpurnar kíktu á leikina í gær og voru að fíla þá í botn.  Þetta var eitthvað sem var við hæfi fyrir Þuríði mína og þær báðr voru ýkt klárar og svo gaman að sjá þá sérstaklega hetjan hvað hún var fljót að ná þessu.  Tölvur er eitthvað sem heilla hana og hún hefur gott "auga" fyrir svona hlutum og ná þeim þó svo hún er ekki að fíla DVD-kids eða ná þeirri fjarstýringu þá vill hún bara vera með "alvöru" tölvu og mús ehe.  Flottastar!

Fyrst að helgin fer ekki í útilegu mætum við í allar veislurnar sem okkur er boðið í um helgina, útskriftarveisla hjá minni verðandi mágkonu og tvö barnaafmæli.  Bara gaman!

Eigið góða helgi og hafið það sem allra best, við ætlum allavega að reyna njóta helgarinnar eins best á kosið.


Sagan heldur áfram

Þetta er orðin frekar langdregin saga og leiðinleg, vildi að ég kæmist á síðustu blaðsíðuna en alltaf bætast við blaðsíður.  Aaaargghh!!  Hetjan mín er nefnilega slöpp þessa dagana, var komin með nettan hnút í magann í gær því líðan hennar má ekki breytast mikið þannig maður fer að hugsa það versta og fæ vont ónot um allan líkaman.  Hún er ofsalega þreytt, vill sofa meira en venjulega sem er frekar óvenjulegt þessar vikurnar því hún hefur verið svo hress og kát.  Ég veit nefnilega að það eru engin lyf að bögga hana og gera hana svona þreytta því hún er í "fríi" frá krabbameinsmeðferðinni sinni þanga til í haust. 

Við fórum að sjálfsögðu með hana uppá spítala í morgun og þar var hún hlustuð og mettuð (mettar nú ágætlega eða 96%) og það er mikið slím í báðum lungunum sem ætti að vera löööööngu farið því hún fær pensilín kúr eftir pensilín kúr og alltaf sterkari og sterkari einsog sem hún á að byrja á í dag, er að pústa hana þrusu sterkum asmalyfjum, búin að steralyfjum en það virkar ekkert á hana og að sjálfsögðu stendur lækninum hennar ekki á sama og ekki við heldur.  Þetta á að vera lööööööööngu farið einsog ég sagði en það virkar ekkert þannig hún þarf að hitta lungasérfræðing en samt ekki fyrr en í næstu viku því læknarnir þurfa víst frí einsog annað fólk.  Meira "vesenið" á hetjunni minni, hún er líka ýkt pirruð yfir þessu öllu og hver væri það ekki að líða ekki vel og það oft og alltof oft í langan tíma.

Hún fór nú leikskólann í morgun en varð ótrúlega fúl þegar hún mátti ekki fara með systkinum sínum inn í morgun því fyrst þurfti hún að fara uppá spítala því hún var svo spennt að hitta Bínu sína (þroskaþjálfinn hennar) og sína henni nýju teygjubyssuna sína einsog Halla Hrekkjusvín uppáhald á eheh.  Þær úr skólanum hennar verðandi voru líka að kíkja aðeins í leikskólann og ræða við þær þar, við fórum líka í skólann hennar (verðandi) í gær ásamt sjúkraþjálfaranum hennar til að ræða allt það sem hún mun þurfa á að halda á verðandi vetri.  Hún var reyndar ekkert ánægð að þurfa fara útí skóla sem er mjööööög ÓVENJULEGT vegna þess hún er svo spennt að fara í skólann en það sýnir bara pirring hennar og líðan þessa dagana.

Oddný Erla mín er eitthvað að þroskast mikið þessa dagana, ræðir dáltið Þuríði við okkur og er orðin ótrúlega hjálpsöm við hana og þolinmóð að kenna henni hina og þessa hluti sem er yndislega gaman að fylgjast með.  (jú Oddný S. þetta vorum við í gærmorgun)  Þær systur voru úti að hjóla í gær sem nota bene Þuríður er orðin geðveikt klár í nema hún kann ekki að snúa við á hjólinu og stundum er erfitt fyrir hana að fara afstað vegna "máttleysis" í fótum þannig Oddný perla stekkur alltaf af hjólinu þegar hún sér Þuríði í vandræðum ýtir á hana til að láta hana afstað eða hjálpar henni að snúa við og segir henni nokkrar leiðbeiningar hvað hún eigi að gera og ekki gera.  Það er alveg ótrúlegt að fjagra ára gamalt barn skuli vera svona einsog hún er, jú hún hefur þurft að þroskast alltof hratt sem er stundum gott og stundum ekki.  Þuríður er líka farin að sitja yfir Oddnýju þegar hún er að gera stafina og Oddný kennir henni og svo reynir hin stundum að herma.  Það er alveg ótrúlega gaman að sjá hvað hún Oddný er þolinmóð við hana og er alltaf viljug að gera allt fyrir hana, farin að láta hana fá hlutverk ef hún er að leika sér með eitthvað.  Bara gaman!  Held að Oddný eigi eftir að læra eitthvað sem tengist heilbrigðiskerfinu.

Mikið að gera þessa dagana og jú svo ég komi með eitthvað slúður þá á mín elskulega systir sem er nota bene að fara gifta sig 21.júní nk. von á sér eða tveim vikum eftir mér.  Vííí!!  Finnst það geggjaðslega gaman, komum með jólabörn.  Er einmitt á leiðinni í mollið að ath hvort ég finn mér ekki skó við nýja fína kjólinn minn sem Elsan mín ætlar að sauma á mig fyrir brullupið, þessi kona er snillingur í puttunum.  Ef ykkur langar að kaupa t.d málverk eftir hana þá kíkiði bara í Gallerí List nú eða heimasíðuna hennar www.elsanielsen.com og verðið ekki fyrir vonbrigðum en verð samt að hryggja ykkur með því að ég held að hún saumi ekki á ykkur ehe, því verr og miður fyrir ykkur.Whistling

Ætlaði að enda á nokkrum góðum myndum en myndakerfið er ekki alveg að virka einsog oft áður, grrrr!!


Komin heim úr...

...mestu afslöppun sem ég hef nokkurn tíman farið í eða fengið og svooo gaman að fá þrefalt knús í morgunsárið, svaf varla í nótt því ég var svo spennt að knúsa börnin mín.  Leið einsog litlu barnið að bíða eftir jólunum ehe, bara yndislegast.  Börnin að sjálfsögðu í fríi frá leikskólanum en ekki hvað?  Núna eru þau alveg í brjálæðiskasti að skoða gjafirnar frá okkur og opna en Theodór er mest spenntastur yfir krokk skónum með Hómer og Bart skreytingunni á, þarf ekki mikið til að gleðja þau.

Erum að fara í verðandi skólann hennar Þuríðar minnar og kíkja aðeins, það er nefnilega verið að velja bestu hjálpartækin fyrir hetjuna mína, góðan stól, það verður gert sérstakt hvíldarherbergi fyrir hana og svo lengi mætti telja og þangað erum við að fara skoða allt ásamt sjúkraþjálfaranum hennar sem stendur fyrir þessu öllu saman.  Þau vilja allt fyrir hana gera og munu hafa allt til staðar sem hún þarf á að halda.

Svo verður að sjálfsögðu læknaheimsókn á morgun uppá spítala þar sem hetjan mín var með hita frá föstud.- sunnud. og dáltið slöpp og svo er andardrátturinn ekki ennþá farin að breytast og þeir eru ekki alveg nógu glaðir með það.  Ofsalega þungur og eitthvað sem við erum heldur ekki glöð með, grrrr!!

Ætla halda áfram að knúsa börnin mín, opna allt nammið fyrir þau sem við gáfum þeim (þó það sé ekki laugardagur og kl svona snemma morguns ehe) en þau eru alveg að komast í sykursjokk, flott að mæta svoleiðis með þau útí skóla á eftir ehe.

Meira um allt síðar og okkar frábæru ferð.


Kvedja frá Fuertventura

Damn hvad vid erum í mikilli afsloppun af hálfa vaeri miklu meir en nóg.  Soknum samt krakkana gífurlega mikid, soknudirnn er sterkur sérstaklega tegar madur veit ad hetjan mín er slopp tessa dagana tá getur verid dáltid erfitt ad vera svona langt í burtu.  Get ekki bedid med ad knúsa tau, erum búin ad tala vid tau í síma (nokkrum sinnum eheh) og tegar ég taladi vid tau sagdi Oddný mín bara "mamma afhverju ertu ad hringja" og svo átti hún dáltid bágt eftir símtalid, hetjan mín hún Turídur grét bara í símann og tá átti ofurnaema Slauga erfitt med ad gráta ekki med henni en Teddilíus var bara gladur tví hann veit ad hann faer pakka tegar vid komum heim eheh.  Óskar taladi vid tau í gaer (og jú aftur í dag) en tegar hann taladi vid Turídi í baedi skiptin sagdi hún bara "ég elska tig pabbi minn".  Aeji hvad soknudurinn er sterkur en ég veit ad tau eru í gódum hondum en bara erfitt tegar hún Turídur mín er svona slopp.

Annars erum vid ekki búin ad gera neitt hérna nema liggja og tad erfidasta sem vid hofum gert er ad fara ad borda, ná mér í vatn (Skari bjór) og turfa ad labba uppí herbergi.  Sem sagt afsloppun útí eitt og hingad langar mig ad koma med bornin mín, ótrúlega rólegt, barnvaent og tad góda vid tetta af vid Íslendingar erum ekki búin ad fatta tennan stad allavega mjog fáir.  Tid verdid ad prufa tennan stad, bara yndislegt og ALLT innifalid tannig vid turfum ekki ad fara af hótelinuWink.  Lovely!!

Kanski ég teygji mér í vatnsglas og labbi uppí herbergi, erfitt líf!!

Knús til ykkar úr sólinni.
Slaugan


Nú liggur vel á mér....

P5280022
Hetjan mín að dansa við hann Óskar sinn í útskriftinni sinni, hún varð sko að fá tígó og setja fléttur í þannig hún leit út einsog Lína Langsokkur með stífar fléttur eheh Smile  En hún fékk nett ógeð af hárinu sínu í dag, finnst kanski frekar leiðinlegt að líta út einsog lukkutröll og klippti heilan helling af hárinu en sem betur fer er hún með það þykkt hár jámm einsog ég sagði einsog lukkutröll þá sést það ekki mikið.  Það versta við þetta að hún skammaðist sín ekkert fyrir þetta, bara hló af prakkarastrikinu sínu sem er kanski ákveðið þroskastig hjá henni.

P5290060
Fallegustu systurnar á sumarhátíðinni uppá Barnaspítala í vikunni, Þuríður var ekki lengi að taka utan um systir sína þegar ég sagðist ætla að smella einni mynd.  Yndislegust!

Það liggur annars þrusu vel á okkur, það er alveg að koma að hjónaferðinni okkar Skara sem við getum ekki beðið eftir, jíííhhaaaa!!  Krakkarnir hressir og kátir, maður sér alveg þegar það liggur vel á hetjunni minni þá er perlan mín hressari og kátari.  Mjög meðvirk á líða okkar allra.

Þið verðið svo að fyrirgefa ef ég hef ekki svarað ykkur en pósthólfið mitt er búið að fyllast síðustu daga og ég hef ekki komist yfir allan þann póst sem bíður mín til að lesa, er svo hrikalega bissí.W00t Allir að gefa mér góðar ábendingar um góða þroskaleiki fyrir hetjuna mína sem ég segi bara TAKK allir fyrir, ótrúlega gott að fá þessi tips.

Ég er farin að hitta gærurnar (stelpurnar úr badmintonu í "gamla" daga).


Kem sjálfri mér sífellt á óvart

Þetta eru þessir dagar sem ég er ekki alveg að nenna setjast niður og blogga en ákvað nú að segja ykkur frá svarinu frá henni Frú Jóhönnu svo ég myndi ekki gleyma því og síðustu dögum.

Einsog fyrirsögnin segir þá kem ég sjálfri mér sífellt á óvart, ég er ekki þessi týpa sem ber í borðið ef mér er nóg boðið af einhverju, ég er ofsalega feimin og dáltið lokuð en hef lagast heilmikið síðustu ár ehe en sumir myndu kalla mann merkilegan með sig því oft eru það fyrstu kynni við ofsalega feimið fólk.  En nei það er ég ekki, ég hleypi bara ekki hverjum sem er að mér þá er ég að meina persónulega því þið eruð nú farin að þekkja mig ansi vel en þá segi ég nú ekki allt hérna.  Það getur stundum verið erfitt fyrir fólk að opna þessa skel en þegar hún opnast verður hún ansi opin eheh og lokast ekkert aftur, frekar flókin persónuleiki?

Þess vegna kom ég mér eiginlega sjálfri á óvart þá kanski sérstaklega Skara sem þekkir mig manna best að ég hafi sent henni Jóhönnu mail án þess að kóngur né prestur hafi sagt mér að gera það því ég var alveg búin að hugsa um það áður en ég skrifaði þetta hérna á síðuna en þið gáfuð mér ákveðið pepp að skrifa henni þess vegna lét ég skara skríða.  Sé enganveginn eftir því, því ef við erum óánægð með eitthvað verðum við að láta í okkur heyra því annars lagast það ekki.  Hún Jóhanna tók vel í mailið mitt og fór beint í málið, hún var ofsalega glöð með þessa ábendingu mína og sagði líka að kerfið væri mjög erfiður frumskógur sem þyrfti líka að breyta.  Því það er alveg nógu erfitt  fyrir okkur sem eru að berjast í þessu kerfi að þurfa berjast fyrir "okkar" veikindum en ekki líka kerfinu því það dregur úr manni endalausa orku.  Að þeysast á milli staða til að reyna finna einhverja lausn á "okkar" málum er ofsalega erfitt og lýjandi, veikindin eru nógu erfitt.  Allavega hún jóhanna stóð sig hrikalega vel í þessu og þetta er til bóta ef það er ekki þegar búið að breyta þessu með fæðingarorlofið því einsog hún segir eiga þessar "foreldragreiðslur" að koma í staðin fyrir laun (þó maður fengi hærri laun ef ég væri að vinna einhversstaðar) og þá á að ganga jafnt yfir alla, hvort sem maður á veikt barn eða sé á launum hjá vinnuveitanda.  Bara flott hjá minni sem mun fá mitt atkvæði í næstu kosningum, hún hefur breytt ofsalega miklu sem tengjast langveikum börnum og fjölskyldum þeirra síðan hún byrjaði og ég veit að þetta á eftir að breytast en meira hjá henni.    Gó Gó Jóhanna!!Wink  Flott kona.

Úti annað en þá útskrifaðis Þuríður mín Arna á miðvikudaginn úr leikskólanum sínum þó hún eigi tæpa tvo mánuði eftir og var hrikalega flott í útskriftinni sinni og kom okkur foreldrunum á óvart hvernig hún stóð sig.  Jebbs Þuríður mín kemur líka sífellt á óvart, sem er bara best.  Krakkarnir áttu nefnilega að dansa fyrir okkur foreldrana og Þuríður mín fékk að dansa við hann Óskar sinn en hann nær víst best til hennar af krökkunum í leikskólanum, að sjálfsögðu var ég búin að ákveða að Þuríður mín myndi ekki nenna þessu og fara gera eitthvað allt annað en að dansa.  Ohh nei aldeilis ekki, þarna fór ekki brosið af minni og dansaði líka svona flott við hann Óskar sinn.  Hann var líka svo flottur því ef Þuríður ætlaði að fara "púkast" eitthvað þá var hann svo góður í að stjórna henni og hún hlýddi sem mér fannst eiginlega æðislegt að sjá.  Vildi óska þess að krakkarnir í hennar verðandi skóla muni taka henni svona einsog hann Óskar hennar Þuríðar minnar, ég veit að allir krakkar taka henni ekki einsog hún er og nenna ekki að hafa hana í kringum sig sem mér finnst ofsalega sárt að horfa uppá en þarna átti ég erfitt með að halda tárunum inni.  Yndislegast!  Núna segir hetjan mín að hún vilji fara í kjól því henni langar að dansa við Óskar sinn ehe.

Við erum búin að vera fundast á greiningarstöðinni þessa vikuna, bæði bara tvö vegna greiningar á Þuríði minni og líka með þeim af hennar verðandi skóla, leikskóla og fleirum sem tengjast okkur í þessum "bransa".  Ofsalega góðir fundir en samt alltaf erfitt að fá greininguna þó við séum alveg meðvituð um hvernig hetjan okkar er og það eina sem ég mun segja við "ykkur" sem kom útur þessu þá er hetjan mín einsog þriggja ára gömul eða svona að meðaltali í öllum þroska en Þuríðar minnar vegna læt ég það vera nóg fyrir "ykkur".  Jú hún er á hærra stigi félagslega enda finnst henni ofsalega gaman að kynnast fólki og er mjög opin en það kunna bara ekki allir að taka henni einsog hún er því verr og miður.  En það sem kom okkur mest á óvart hvað hún er klár á tölvur, iðjuþjálfinn setti hana í einn leik í tölvunni og það var einsog hún hafði aldrei gert neitt annað eheh og þetta kom okkur mjög á óvart og iðjuþjálfanum.  Vávh hvað það var gaman svo ef þið kæru lesendur vitiði um einhverja flotta og góða þroskaleiki fyrir hetjuna mína megiði benda mér á hvar ég get fengið þá (aslaugosk@simnet.is ), það þarf nefnilega að efla hana betur í þessu þannig ætli næsta jólagj. verði ekki fartölva eheh, DjÓk við eigum tölvu og hún fær að nota hana einsog hún vill þegar við höfum fundið réttu leikina fyrir hana.  Ég fór nefnilega í BT í gær og þar voru bara til þessir Glóaleikir og starfsmaðurinn vissi ekki neitt um neina þroskaleiki (jú ég veit að Glóaleikirnir eru þroskaleikir en þá er ég að leita aðeins öðruvísi leikjum).  Lélegt!  Hún er nefnilega mjög áhugasöm að læra hlutina og gefst ekkert auðveldlega upp eða þar að segja ef hún heldur að hún geti þetta en stundum er hún búin að ákveða að hún getur þetta ekki og þá reynir hún ekki einu sinni.Frown 

Hún minnir mig stundum á sjálfan mig ehe en í dag veit ég samt að ég get allt ef viljinn er fyrir hendi þess vegna verð ég hrikalega fúl ef ég fæ eitthvað minni en tíu í skólanum, dóóhh!!  Fékk t.d. lokaeinkunn 8 í ensku og ég hef aldrei fengið þá tölu í ensku bara svona rétt náð og orðið ánægð með það en ég var sko ekki ánægð með þessa tölu, grrrr!!  Farin að gera meiri kröfur.

Úúúfffh orðin ansi langt blogg, ætlaði nú bara rétt að skrifa um Jóhönnu ehe.  Helgin yfirpökkuð af allskonar skemmtilegheitum og mín farin að gera eitthvað hérna á heimilinu sem böggar ekki grindina.  Hmmm hvað gæti það verið?


Spítalaferðir, sumarhátíð og Jóhanna :)

Lítill tími til að blogga en mig langaði að segja ykkur að ég væri búin að fá svar frá Jóhönnu þar að segja lokasvar Grin, önnur stjarna í minn kladda sem ég mun segja ykkur frá þegar ég get og hef tíma.  Var nefnilega að koma úr sjúkraþjálfun með hetjuna mína, fórum beint uppá spítala og þangað þurfum við að mæta aftur á eftir í smá rannsókn og svo erum við svo heppnar mæðgur að það er sumarhátíð þarna í dag þannig við rukum í að ná í Oddnýju Erlu í leikskólannn til að leyfa henni að leika við okkur í dag.

Stelpurnar að finna til til í sumarkjóla og við roknar út.

Meira um allt síðar.......


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband