Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009
31.5.2009 | 11:19
Tölvan mætt á svæðið
Yeeeesss búin að endurheimta tölvuna mína og hún var í ábyrgð en samt leiðinlega við að hún "dó" er að ég tapaði öllum póstinum mínum sem ég hef fengið í gegnum veikindin hennar Þuríðar minnar sem mér þótti ofsalega vænt um. Myndavélin líka komin, jiiiihaaa!! Þannig við getum haldið áfram að taka myndir en þá er það helv.... bíllinn sem er kominn aftur með þessa blessuðu sveppi, ólíft í bílnum.
Þuríður mín fór í smá tjékk uppá spítala á fimmtudaginn en það er núna búið að taka önnur flogalyfin af henni eða þau sem hafa "skemmt" mest, þar að segja hægt mest á þroska hennar enda sjáum við líka mikin mun á henni, hún er að þroskast svo mikið þessa vikurnar og orðin mikil gelgja. Alveg yndislega gaman að fylgjast með henni. En það á að taka núna pásu frammá haustið með lyfjaminnkun eða eftir næstu myndatökur sem við ætlum ekki að heimta fyrr en í september(ætti að vera í ágúst) því við ætlum að eiga spítalalaust sumar í fyrsta skipti síðan hún veiktist. Enda sagði læknirinn við okkur á fimmtudaginn að hann vildi ekki sjá okkur neitt í sumar þannig það er eins gott að mæta honum ekki einhversstaðar hehe.
Þuríður mín er ótrúlega hress og þetta er bara yndislegast!! Sumarið framundan sem við ætlum að njóta í botn enda Skari kominn í fæðingarorlof. Jiiiiiihaaaaa!!
Svona verður sumarið okkar, bara leti og skemmtilegheit hérna á klakanum. Theodór minn og Skari minn!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.5.2009 | 21:36
Á allra vörum - söfnunarátak til styrktar SKB (styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna)
Afrakstur átaksins í ár rennur til kaupa á nýju hvíldarheimili fyrir SKB. Árlega greinast að meðaltali 10-12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Mikil þörf er fyrir hvíldarheimili fyrir fjölskyldur krabbameinssjúkra barna og eru forsvarskonur átaksins afar stoltar af því að geta orðið að liði.
Verkefnið og samstarfsaðilar
Sem fyrr verður fjármunum safnað með því að selja varalitagloss frá Dior - merkt átakinu - en allur ágóði af sölunni rennur til SKB. Heildverslun Halldórs Jónssonar, umboðsaðili fyrir Dior á Íslandi og Iceland Express eru aðal styrkaraðilar átaksins en auk þeirra studdu okkur auglýsingastofan Fíton mjög rausnarlega, Latibær, Filmus, Vörumerking, AFA á Íslandi, Gassi ljósmyndari og Edda útgáfa.
Varalitaglossin verða seld í júní og júlí 2009 um borð í flugvélum Iceland Express. Á tímabilinu frá 1. 14. júní verða þau einnig seld í verslunum Hagkaupa, Lyf og heilsu, Hygea og hjá öðrum söluaðilum Dior snyrtivara. Fyrirtæki sem vilja styrkja átakið með kaupum á vörunni fyrir starfsfólk sitt geta einnig keypt glossin hjá SKB. Með kaupunum styrkja fyrirtækin í landinu átakið Á allra vörum. Hvert varalitagloss kostar 2.500 kr. og rennur allur ágóði til Styrkarfélags krabbameinssjúkra barna.
Von
Af þessu tilefni ætlar tónlistarmaðurinn Magnús Eiríksson að gefa lagið Von til átaksins. Lagið Von er af nýútkomnum geisladiski Mannakorna og segir textinn allt sem segja þarf, því vonin er oft það eina sem fólk á sem berst við erfið veikindi eins og krabbamein. Pálmi Gunnarsson syngur þetta yndislega lag.
Mæli með glossnum á "allra vörum" í sumar og styrkja gott málefni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.5.2009 | 20:14
Ef lífið væri alltaf svona einfalt og gott
Það allt yndislegt að frétta þó svo að tölvan mín hafi gefið sig (stalst núna í vinnutölvuna hans Skara)en þá gæti mér ekki verið sama, bara dauður hlutur og myndavélin okkar gaf sig líka. Hvað er málið? En mér gæti ekki verið meira sama þannig séð en þá í versta falli verð ég að kaupa mér nýja myndavél og nýja tölvu, ef maður hefði bara áhyggjur af svona hlutum þá gæti lífið ekki verið yndislegra.
Þuríður mín er hress og kát, finnst ofsalega gaman af lífinu. Ef hún fengi að ráða þá væri hún úti að leika sér allan sólarhringinn en það er eitthvað sem hún elskar og hefur ORKU í. Þessa orku hafði hún ekki fyrir ári síðan án þess að leggja sig minnsta kosti einu sinni yfir daginn. Lífið er yndislegt!! Verð bara spenntari fyrir sumrinu, rúm vika í frí hjá henni og þá verða dagarnir okkar bara "einhvernveginn" og það stefnir vonandi í spítalalaust sumar. Jabbadabbadú!! Hún fer í smá tjékk á fimmtudaginn vegna lyfjaminnkunarinnar og svo ætlum við bara að vera laus þanga til í ágúst þegar hún fer í myndatökur.
Þessi var tekin af henni um helgina á vorhátíð SKB, endalaust glöð alltaf.
Þessi var líka tekin um helgina, en einsog þið vitið þá dreymir Þuríði minni alltaf að taka þátt í idolinu og strax farin að æfa sig og Oddný Erla ánægð með systir sína.
Af hinum er bara flott að frétta, ég hef ekki kynnst rólegra barni en honum Hinrik mínum. Hann liggur bara á gólfinu eða hoppurólunni sinni og leikur sér og ekkert heyrist í mínum, honum er nákvæmlega sama hver heldur á sér bara þvílíkt draumabarn. Alveg sama þegar systkin sín druslast með sig um alla íbúð og hnoðast með sig. Bara draumur í dós!!
...og svo er hann brosandi allan liðlangan daginn.
Theodór töffarinn minn, finnst hann eldklár því hann kann að blikka með báðum. Flottasti gaurinn sem ég þekki.
Sem sagt allt frábært og flott!! En mig langar að minna þær á það sem voru búnar að panta hjá mér og vilja halda kjólunum að hafa samband við mig aftur á mailið aslaugosk@simnet.is því einsog ég sagði þá tapaðist allt í mailinu mínu og týndi þá að sjálfsögðu öllu pöntunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
23.5.2009 | 18:41
Pantanir á kjólunum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.5.2009 | 07:47
Elsku flottasta Maístjarnan mín...
Sunddrottningin mín, þessi var tekin um helgina í pottinum í sumarbústaðnum.
Bara flottust.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
17.5.2009 | 21:45
Til sölu
Myndir af þeim:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.5.2009 | 08:28
Nokkrar frá spítalanum
Björkin okkar kom og kíkti á okkur uppá spítala, þarna er hún ásamt Hinrik mínum og Þuríði minni sem langaði sko ekkert í myndatökur hehe.
Þessi drengur er alltaf brosandi, þvílíkt draumabarn. Hann er svo rólegur, heyrist varla í honum nema þegar hann er svangur og þreyttur.
Þuríður mín nýkomin úr aðgerðinni og sefur að sjálfsögðu. Nei hún er ekki með snuddu uppí sér, æjhi ég man aldrei hvað þetta kallast en well....
Skemmtileg helgi framundan, partý hjá okkur tvö kvöld í röð sem krakkarnir bíða svakalega spenntir eftir og við að sjálfsögðu líka. Mín búin að fá allar einkunnir sem ég að sjálfsögðu stóðst með prýði þó svo ég hafi ekki nennt mikið að læra í vetur. Er mikið að pæla með áframhaldandi nám, er ekki alveg viss hvað ég fari í en það kemur til greina að halda áfram í þessu sem ég er í eða breyta um sem tengist að sjálfsögðu heilbrigðisgeiranum. Ótrúlegt hvað mikið af fólki leiðist þangað ef það er búið að kynnast e-ð af því sem við höfum gert.
Þuríður mín hress og þá erum við líka hress.
Eigið góða helgi allir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.5.2009 | 08:33
Hress og kát hetjan mín :)
Þuríður mín er hress og kát eftir aðgerðina, skurðlæknirinn veit nú ekki mikið hvað þetta var sem hann var að skera í burtu en hann telur mjög litlar líkur á því að það sé e-ð illt. En þetta er sent í ræktun og við fáum að vita úr henni í næstu viku.
Ótrúlega skrýtið að vera búin í skólanum og hafa ekki lærdóm hangandi yfir sér, einkunnirnar farnar að streyma inn og að sjálfsögðu næ ég öllu með "style" þó svo það verða engar tíur þessa önnina enda hefði ég ekki geta búist við því þar sem ég er búin að vera svoooo löt að læra bara viljað knúsa rjómabolluna mína. Er samt mjög ánægð með þær einkunnir sem komnar eru.
Ætla núna að njóta þess að gera "ekki neitt".
pss.ssss takk fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið hafið verið að senda okkur, bæði hérna og á facebook. Knúúúússs!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
10.5.2009 | 20:20
Aðgerðin í fyrrmálið
Alltaf þegar Þuríður mín hefur farið í myndatökur höfum við Skari haft það að venju að "senda" börnin í pössun (þar að segja helginni á undan) og gera e-ð saman, breyttum aðeins þeirri venju en við fjölskyldan fórum saman á Kardimommubæjinn í dag og skemmtum okkur geðveikt vel. Mæli með þeirri sýningu!!
Þuríður mín fer sem sagt í aðgerðina í fyrramálið, þarf að skera hana á tveimur stöðum einsog ég hef sagt áður en við trúum ekki öðru að þetta sé "ekki neitt". Væri bara óskandi að fá að vita e-ð á morgun og þá bara góðar fréttir, við viljum ekkert annað. Megið alveg hugsa fallega til hennar á morgun og kveikja einu stk kerti á síðunni hennar en aðgerðin er kl tíu.
Læt eina fylgja af flottustu hetjunni minni, þeirri einu hingað til sem ég hef litið upp til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
8.5.2009 | 10:50
Komin í "fæðingarorlof"
Jiiiiiihaaaa!! Búin með skólann í bili og komin í langþráð frí með rjómabollunni minni, núna getum við gert það sem við viljum og ekki með neinar áhyggjur af lærdómi. Tralllalalala!! Vonandi heldur það líka áfram í næstu viku eftir aðgerðina hjá hetjunni minni eða ekkert vonandi það MUN gera það ekkert annað í boði. Verðandi sumar mun verða það besta hjá Þuríði minni hingað til, við erum líka búin að afþakka öll veikindi.
Núna ætla ég líka að fá að upplifa smá tíma við að gera "ekki neitt" án allra veikinda, vera í fríi án spítalaferða. Hvernig væri það? Maður þekkir ekkert annað en að vera á fullu í kringum veikindi hennar Þuríðar minnar en núna er alveg komin tími til að upplifa e-ð nýtt. Takk fyrir!! Það væri allavega draumur í mjög stórri dós. Bara líka hinna barnanna minna vegna að leyfa þeim að njóta smá tíma án þess að Þuríður þurfi að fara á spítalann og þess háttar, Oddný Erla mín þekkir ekkert annað en að eiga veika systir hvað þá Þuríður mín þekkir ekki lífið sitt án veikinda. Alveg tími til komin. Við erum allavega búin að bóka sumarið okkar þannig að það verða engin veikindi og ef e-ð kæmi uppá þá er ekki svo erfitt að breyta því, maður á ALLTAF að plana þó svo að veikindi eru til staðar. Það er ekkert líf að bíða bara, við verðum að hafa e-ð til að hlakka til, við reynum allavega að vera dugleg að búa til e-ð svoleiðis. Og það er svo mikið að hlakka til hjá okkur.
Helgin framundan enn eina ferðina, að sjálfsögðu verður partý í sveitinni sem krakkarnir bíða alltaf spennt eftir og ætli ég stefni ekki á að gera e-ð skemmtilegt fyrir þau á morgun þar sem mín verður ein heima með þau. Hugmyndir?
Eigið góða helgi og njótið hennar vel, það ætla ég allavega að gera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar