8.1.2009 | 17:38
Niðurstöðurnar
Þetta eru alveg hreint ótrúlegar niðurstöður sem við fengum í dag, jú við vissum að það væri enn meiri minnkun á æxlinu sem er bara BEST Í HEIMI en hvað það er búið að minnka mikið síðan það var sem stæðst. Oh mæ!! Þegar það var sem stæðst þá var það 3,7cm á breidd og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það sé í dag? Jú alveg heilir 0,5cm ég þurfti eiginlega að fá gleraugunum hjá doktor Ólafi lánuð til að sjá það á myndunum hehe, það eru allir svooo hissa á þessari minnkun og svo er maður að spurja læknana útí þetta og þeir hafa eiginlega engin svör nema "þetta bara gerist"? Ég get ekki hægt að tönglast á þessu kraftaverki mínu, hún hefur aldrei ætlað sér að fara frá okkur það er svo mikill kraftur í henni og það sem hún ætlar sér reynir hún að gera þanga til það tekst.
Það var endalaust gaman í læknaheimsókninni í dag en oftast er nú ekki gaman að fara í læknaheimsóknir en Þuríður mín reitti af sér brandara við doktor Ólaf. Þessi stúlka er svo mikill húmorist, fannst Ólafur frekar mikill klaufi þegar hann var að "toga hana og teygja". Tók spretti fyrir hann, hoppaði, gerði nokkrar fimleikaæfingar og sagði honum frá sínum ástkæra kærasta sem hún segist alltaf vera kyssa og svo ljómar hún öll. Byrjar kanski aðeins of snemma hehe!! ...en hún sagðist nú ekki vera kyssa hann núna enda var hún á fundi. Bara yndislegust þessi stúlka.
Reyndar er hún ekki að stækka einsog heilbrigð börn sem er útaf öllum þessum lyfjum sem hún er að taka inn en það er nú ekki það versta sem gæti gerst að vera lágvaxin. Þekki það nú sjálf hehe!! Það þarf víst að fylgjast með því og kanski að gera eitthvað meira í því þar að segja hjálpa henni að stækka hraðar.
Frá og með deginum í dag höldum við áfram að minnka flogalyfin hennar, það á að taka næstu lyf af henni þannig hún verði "bara" á tveimur tegundum en það mun ö-a taka ca hálft ár að taka þetta ákveðna lyf af henni eða það verður farið þegar hún fer í næstu myndatökur sem verða ekki fyrr en næsta sumar eða rétt áður en hún færi í skólann. VÁÁÁÁVH!!
Ég nefndi hérna á blogginu mínum rétt áður en hún fór í myndatökurnar útaf einu "kýli" sem ég fann á henni sem við vorum að sýna doktor Ólafi áðan og það sást víst á myndunum en fór frammhjá röngenlæknunum þegar þeir skoðuðu myndirnar því þeir einbeittu sér að sjálfsögðu bara að æxlinu sjálfu þannig það verður kíkt á það á morgun eða síðastalagi á mánudaginn og þá fáum við að vita hvað þetta sé eiginlega? En okkar læknir gat ekkert sagt okkur. Þannig við bíðum bara eftir svörum.
Annars útí annað lumar einhver á góðum uppskriftum á köldum brauðréttum? Ef svo er megið senda mér á aslaugosk@simnet.is takk takk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
6.1.2009 | 16:05
Staðfestar fréttir...
...að æxlið hefur minnkað en meira. Sjúbbsjúbbsjarei, trallalala, nananana. Allir kátir í sveitinni með það!! Heyrum betur í læknunum á morgun með áframhaldið hjá hetjunni minni sem kemur endalaust á óvart, verður væntanlega áframhaldandi minnkun á flogalyfjunum á næstu dögum. Það er alltaf svo gaman að fara með Þuríði mína uppá spítala því það eru allir svo hissa á því hvað hún lítur vel út einsog hún var orðin veik fyrir tveimur árum. Einsog einn krabbameinslæknirinn sagði við okkur í morgun þá voru þeir mjög svartsýnir á þeim tíma og útlitið mjög slæmt en hér er brandarakerlingin mín enn og er endalaust kát. Mikið er þetta yndislegt!!
Reyndar fékk fjölskyldan slæmar fréttir í gær og mig langar að senda elsku bestu frænku minni henni Þórdísi og hennar fjölskyldu góðar kveðjur frá okkur hérna í sveitinni. Hugsum mikið til ykkar!!
Þetta líf er oft óréttlát, skil oft ekki tilganginn!! Verum bara þakklát fyrir góða heilsu og ennþá þakklátari að hafa alla okkar ástvini í kringum okkur það er ekkert sjálfgefið í þessu lífi. Njótum dagsins í dag því við vitum ekkert hvar við verðum á morgun. Verum dugleg að gefa knús, segja hvað okkur þykjum vænt um hvort annað og hættum að svekkja okkur á því að geta ekki keypt hitt og þetta, þetta eru dauðir hlutir sem eru einskis virði.
Stórt knús til ykkar allra.
Tilefni dagsins ætla ég að kveikja á nokkrum stjörnuljósum með krökkunum mínum í kvöld og leyfa þeim að njóta þess.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)
3.1.2009 | 21:25
Kvíðin
Orðin nett kvíðin fyrir þriðjudeginum, fyrir þá sem ekki vita en þá fer Þuríður mín í sínar rannsóknir. Verður að sjálfsögðu svæfð sem er nú lítil kökusneið fyrir hana og hef ég ekki tölu á svæfingum hjá þessari dömu, hún á ekki að vera svona vön og það bara rúmlega sex ára gömul. Við erum orðin vön að fá að vita niðurstöður úr þessum rannsóknum samdægurs og vonandi verður engin breyting á því, held líka að ég gæti ekki beðið í sólarhing. Ég held líka að ég sé orðin kvíðnari fyrir þessum myndatökum því ég fann smá "hnút" eða hvað sem ég get kallað þetta á höfðinu á henni, ofsalega skrýtið eitthvað sem við vitum ekki hvað er og þegar maður finnur svona og ég veit ekkert er erfitt. Auðvidað er þetta ö-a ekkert en samt stressandi og ERFIÐAST.
Útí annað en þá ákvað mín að kíkja á útsölur í dag þar sem öll fötin á börnin eru að verða of lítil eða sjúskuð, oh mæ god hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Það var ALLT ógeðslega dýrt en samt 30-50%afsláttur og LJÓTT, vávh!! Þannig það var ekki hægt að kaupa mikið á þessum blessuðum útsölum, ætla samt að gera einn séns enn og kíkja á útsöluna í uppáhalds búðinni minni þegar kemur að henni eða í Next. Verð ö-a fyrir jafn miklum vonbrigðum, bwaaaahh!!
Theodór Ingi minn heldur stolltur á litla bró og litlu frænku sem fæddist 15.des.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
1.1.2009 | 16:49
Árið
Gleðilegt árið kæru vinir.
Árið 2008 byrjaði ekkert svakalega vel hjá hetjunni minni en það byrjaði að birta vel til hjá henni mitt síðasta sumar þegar hitinn og allt sem því fylgdi kvaddi og hún byrjaði að taka stórt stökk í þroska og fínhreyfingum. Það er alveg yndislega gaman að fylgjast með henni í dag, hún er mikill húmoristi og elskar að þrasa við afa Hinrik hehe. Hvaðan skyldi hún fá þetta endalausa þras? ...allavega ekki frá mér.
Hin tvö eru líka að "meikaða", ég hef alltaf haldið að Oddný perlan mín væri dáltið undan sínum jafnöldrum í þroska en svo hefur Theodór minn Ingi sýnt það og sannað að hann er það líka. Drengurinn verður 3 ára 23.jan og hann kann orðið alla stafina og fór létt með að læra þá, spurði bara endalaust mikið og meira að segja farinn að skrifa þá. Hvaðan fá þessi börn mín alla þessa hæfileika? Hélt líka að strákar væru aðeins eftir stelpum í þroska, nei aldeilis ekki!!
Litli hnoðri minn, líður ofsalega vel. Reyndar megum við ekki kalla hann hnoðra þar sem börnin verða alveg brjáluð og segja að þetta sé bara litli bróðir og hann sé ekki kominn með nafn hehe. Eru líka oft að spurja hvað hann eigi að heita? Well það styttist óðum í nafnið ekki nema 16 dagar í nafnið og stórveisluna skírnar og afmælisveislu þeirra bræðra, við erum líka spennt að vita hvaða nafn við ætlum að velja á drenginn hehe. Drengurinn er reyndar kominn með í eyrun, ekki seinna vænna að fá í eyrun 5 vikna gamall.
Ég náði þeim stóra áfanga sem ég hélt að ég myndi aldrei geta og það að útskrifast "eitthvað" og gerði það með stæl og ætla að sjálfsögðu að halda áfram eftir áramót. Langar reyndar að njóta þess bara að horfa á Þuríði mína hressa og vera í einhverjum "mömmuklúbbum" og fá mér kók með stelpunum á morgnanna og svona en ekki stressa mig að læra en ég veit að það er besta lausnin í þessu ástandi að halda áfram að læra. Fyrst að ég hef getað lært með Þuríði mína fárveika og fengið góðar einkunnir ætti ég nú að geta farið og notið þess og verið í "fæðingarorlofi" ætti ég nú líka að geta hitt og þetta.
Skari minn byrjaði líka í Háskólanum með vinnu í haust og fékk góða einkunn um jólin, enda ekki að spurja af því. Ok ég veit hvaðan börnin fá þessa hæfileika.
Ég ætla líka að byrja árið í ræktinni, hef ekki geta hreyft mig síðan ég var komin ca þrjá mánuði á leið og hef saknað þess heilmikið að geta ekki hreyft mig.
Áttum annars yndislegt kvöld í gær, fjölskyldan mín kom til okkar, borðuðum kalkún, skutum upp nokkrum bombum, spiluðum og höfðum það bara gaman.
Þanga til næst...... Slaugan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
29.12.2008 | 14:29
6.jan'09
Jessörí þá eru 8 dagar í næstu myndatökur hjá hetjunni minni, hef ekkert reynt að hugsa um þennan dag yfir jólin en er núna að átta mig á því að það er að líða að þessum degi. Alveg sama hvursu hress hetjan mín er þá verður maður alltaf jafn stressuð yfir þessum degi, það t.d. bendir ekkert til þess að það sé stækkun í gangi því hún er búin að eiga sín bestu jól EVER en samt er ég öll að stressast upp. Þetta stress hættir aldrei. Það hefur aldrei liðið svona langur tími á milli myndataka heilir 6 mánuðir er bara algjört kraftaverk og vonandi mun líða svona langt á milli næstu myndataka.
Annars erum ég og börnin mín fjögur heima, að sjálfsögðu voru hin tvö látin vera í fríi í leikskólanum um jólin þannig það er bara búið að vera tjill hjá okkur í dag. Erum reyndar að horfa á Gosa í annað sinn hehe þau elska þennan disk sem þau fengu nota bene í jólagjöf en Skari þurfti að fara í vinnuna en bara tveir vinnudagar eftir hjá honum en þá ætlar minn maður að skreppa í mánaðarfæðingarorlof en það er í fyrsta sinn sem hann fer í FÆÐINGARORLOF, ótrúlegt en SATT. Ákváðum að leyfa okkur það fyrst að þetta á að vera okkar síðasta barn þanga til annað kemur í ljós hehe eða árið 2010 og svo styttist óðum í skírnardaginn hjá hnoðra mínum en samt ekki búin að finna nafn á drenginn. Hvað er málið? Við erum búin að hafa ansi langan tíma að ákveða nafnið en finnum samt ekkert, dóóhh!! Well verðum að vera búin að finna það fyrir 17.jan þegar Séra Pálmi ætlar að skíra hann og litlu músina hennar Oddnýjar systir.
Best að halda áfram að gera ekki neitt og kanski við börnin kíkjum útí göngutúr með hnoðra litla sem fékk að sitja í Dorrit fangi á Styrktartónleikunum, ekki amalegt að geta sagt honum það þegar hann eldist.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.12.2008 | 14:49
Fyrsti jólin hennar Þuríðar minnar....
....sem hún hefur getað notið í botn en samt er stúlkan sex og hálfs árs gömul. Hún hefur sýnt allt sem öll börn sýna á þessum hátíðardögum sem er í fyrsta sinn á hennar ævi, hún er búin að vera hrikalega spennt, naut sín í botn að opna gjafir sínar og það var alveg sama hvað var í pökkunum þá kættist hún yfir því öllu. Mamman á heimilinu var glöðust yfir því hvað börnin fengu mikið af fötum þessi jólin enda að vaxa uppúr þeim öllum og þá þarf að versla minna af þeim á útsölunum, jíííhhaaaa!! Þuríður mín var samt spenntust yfir pakkanum sem hún gaf foreldrum sínum eða það sem hún föndraði í skólanum sínum, hún hélt fast utan um pakkan allan þann tíma sem við borðuðum og svo var hún alltaf að reyna laumast að opna hann hehe. Var svo stollt af gjöfinni sinni sem var bara gaman að sjá og við líka ótrúlega hamingjusöm með gjöfina hennar eða þeirra allra og það sem hin gerðu í leikskólanum.
Það er alveg ótrúlegt hvað það gefur manni mikið að horfa á börnin sín opna gjafir sínar,ég þarf sko engar gjafir það er nóg að sjá börnin sín glöð. Ég fékk samt nokkrar og get farið í mollið eftir áramót og keypt mér föt fyrir gjafabréfin mín, reyndar ætla ég ekki að gera það fyrr en ég er orðin ánægðari með sjálfan mig eftir meðgönguna.
Annars er bara náttfatadagur hjá okkur fjölskyldunni í dag, Oddný Erla mín er reyndar að máta öll fötin sín sem hún fékk í jólagjöf, hin tvö eru bara að leika saman og hnoðrinn minn liggur í mömmukoti sem er bara yndislegast. Á morgun eru það styrktartónleikarnir sem við Skari ætlum að sjálfsögðu að mæta á ásamt hnoðranum mínum sem verður bara með velvarin eyru. Hlakka mikið til. Svo fer alveg að líða að uppáhalds degi Þuríðar minnar sem eru áramótin sem ég er reyndar líka spennt fyrir.
Ætla halda áfram að horfa á möndluvinninginn minn sem er Ladda-dvd, fyrsta sinn sem ég vinn þá gjöf. Jabbadabbadú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
23.12.2008 | 11:04
Gleðileg jól!!
Kæru lesendur.
Við fjölskyldan viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Takk fyrir stuðninginn sem þið hafið veitt okkur í gegnum bloggið. Ég trúi ekki öðru en árið mun byrja jafn vel hjá okkur og það stefnir í að enda en hetjan mín mun byrja árið að fara í myndatökurnar sínar.
Hérna eru gullmolarnir mínir, ég er þokkalega ríkust!!
Vill minna ykkur á, að það eru ennþá til nokkrir miðar á styrktartónleikana í Háskólabíó 27.des. Styrkið gott málefni, hnoðrinn minn ætlar sko að mæta á svæðið.
Allir orðnir spenntir á heimilinu fyrir morgundeginum, lofaði perlunni minni að ná í þau systkin snemma í leikskólann í dag og hún er ö-a að telja niður mínúturnar þanga til ég kem hehe. Er að reyna mana mig að skreppa aðeins í kringluna með Þuríði og hnoðrann áður en ég næ í hin, verst að það er ekki hægt að skreppa þangað á þessum tíma. Dóóhh!! Held að ég nái ekki að mana mig í þetta, bwaaahh!! Einsog mig langar að eyða gjafabréfinu mínu sem ég á og kaupa mér rauða kjólinn sem ég var búin að sjá, úffhhh það er bara klikkun þarna.
Vávh mér líður einsog litlu barni að bíða eftir jólunum, hlakka svo mikið til því börnin mín eru svo spennt að opna pakka og svona ekki það að ég fái marga pakka hehe en þá lifir maður sig inní börnin sín í staðin.
Vonandi eigi þið yndisleg jól, við ætlum allavega að njóta þeirra hérna í sveitinni. Loksins ALLIR hressir og kátir!!
Knús í hús!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
22.12.2008 | 10:34
Skoppa, Skrítla og Lúsí
Óskar skrifar.
Í gær fékk ég þann heiður að fara með börnin mín á sérstaka hátíðarsýningu á nýrri bíómynd um þær vinkonur Skoppu og Skrítlu. Ég verð að viðurkenna að ég var smá kvíðinn þar sem ég var að fara einn með þrjú börn 6 ára og yngri og hafa þau blessuð ekki alltaf verið þekkt fyrir að láta segja sér mikið fyrir verkum.
En allavegana þá vorum við komin í bíóið og þar tóku þær á móti gestum Skoppa og Skrítla og einnig var með þeim hún Lúsí en að þessu sinni er að það Vigdís nokkur Gunnarsdóttir sem fer með hlutverk hinnar sísofandi Lúsí. Fyrir þá sem ekki vita þá er Vigdís þessi þekktust fyrir það á mínu heimili fyrir að fara með hlutverk Höllu Hrekkjusvín í Latabæ. Sem slík er hún ein af allra bestu vinkonum Þuríðar og hefur oftar en ekki komið í heimsókn til okkar og eru þær (hún og Þuríður) einstakar vinkonur.
En þær voru þarna semsagt og móttökurnar voru náttúrulega bara frábærar. Þessar konur eru hreinlega einstakar og sína börnum okkar svo mikla hlýju og það sem meira og merkilegra er þær sýna þeim einstaka virðingu. Þuríður, Oddný og Theodór voru virkilega glöð að sjá þessi idol sín og það var mikið knúsast.
En því næst var komið að því að kaupa sígildar bíóveigar og bað ég börnin um að koma á eftir mér í röðina svo við gætum gengið frá því máli. Frá þeirri stundu og allt þar til heim var komið að sýningu lokinni var eins og um einhver önnur börn en mín eigin væri að ræða. Ég ákvað að gefa þeim séns á að sýna hvað þau gætu verið góð og þau nýttu það svo sannarlega til fulls. Ég þurfti engan að leiða og ég þurfti ekki að reka á eftir neinum, þau gengu í beinni röð á eftir mér, krókaleiðir inn í bíósalinn, biðu svo fyrir aftan mig á meðan ég gerði sætin klár fyrir þau, sátu svo stjörf á meðan á myndinni sjálfri stóð og gengu svo í fallegri röð á eftir mér út úr bíóinu og alla leið út í bíl. Ég verð að viðurkenna að ég var hálf klökkur yfir því hvað þessi yndi stóðu sig vel en þó fyrst og fremst stoltur af því hvað þau voru ólýsanlega góð og auðveld. Það var einhvernvegin eins og þau hafi fundið að ég væri að gefa þeim alvöru séns og að þetta yrði kannski bara ekkert skemmtileg ef eitthvert þeirra yrði með vesen þau ákváðu bara sjálf að þetta ætti að vera auðvelt og skemmtilegt og var frammistaða þeirra einfaldlega einstök.
Skoppa og Skrítla fá stóra rós í hnappagatið fyrir frábæra mynd. Börnin sátu stjörf yfir henni frá upphafi til enda og nutu hverrar mínútur, alltaf eitthvað fjör eða áhugavert í gangi. Lúsí fær svo að sjálfsögðu prik í kladdann.
Að endingu sendi ég þeim Lindu, Hrefnu og Vigdísi bestu kveðjur fyrir að vera alltaf til staðar fyrir börnin mín. Þið eigið heiður skilinn fyrir að búa til frábært skemmtiefni fyrir börn.
Kær kveðja
21.12.2008 | 17:20
Stefnir í góð jól :)
Ég er búin að hugsa mikið um síðustu jól eða hvernig þau hafa verið hjá okkur síðustu fjögur árin eða síðan hetjan mín veiktist og ég myndi ljúga því ef ég myndi segja að þau hafa verið auðveld.
Jólin árið 2004 voru frekar erfið jól en það voru jólin sem hetjan mín veiktist, hún var uppdópuð af lyfjum öll jólin og krampaði endalaust mikið. Við vorum heima yfir aðfangadag en mig minnir að það hafi verið annan í jólum sem það þurfti að leggja hana inn með sterk lyf í æð því hún hætti ekki að krampa þessi elska og fengum svo að fara aftur heim á gamlárs. Þá var líka ákveðið að kaupa gommu af flugeldum handa hetjunni minni enda eeeeeelskar hún flugelda, hefur aldrei verið hrædd við þessi ljós og læti. Gamlárs er ö-a skemmtilegasti dagur hennar á árinu.
Jólin 2005 vorum við nýkomin frá Boston en þar fór hetjan mín aðgerð sem gerði því miður ekki mikið fyrir hana, kramparnir versnuðu tífalt og voru ca 10-50 á dag og í framhaldinu átti hún að fara í lyfjameðferð á nýju ári. Það var frekar erfitt að horfa uppá hana þessi jól, á aðfangadag voru kramparnir mjög slæmir og nutum að sjálfsögðu ekki dagsins þannig séð. En þegar við fórum að opna gjafirnar var ofsalega skrýtið þá hætti stúlkan að krampari og byrjaði svo aftur þegar þeirri törn lauk.
Jólin 2006 vorum við nýbúin að fá þær fréttir að hetjan mín væri komin með illkynja heilaæxli og ætti nokkra mánuði ólifaða. Hún var rosalega veik þessi jólin, að sjálfsögðu síkrampandi, algjörlega lömuð hægra megin á líkamanum og kláraði fyrri geislameðferð sína á Þorlák.
Jólin 2007 var reyndar hetjan mín hætt að krampa, búin að ljúka tveimur geislameðferðum því æxlið var búið að stækka svo mikið. Var byrjuð í svokallaðri töflumeðferð en var látin hætta í henni í janúar þar sem hún var með stanslausan hita frá lok nóv til byrjun febrúar. Hún var hætt að nærast á þessum tíma og farin að líta út einsog anorexíusjúklingur.
Jólin 2008 sem eru að skella á er hún ótrúlega hress og kát. Þið myndið ekki trúa því ef þið hefðuð séð hana fyrir ca ári síðan að þetta væri sama stúlkan. Þroskinn sem hún hefur tekið er alveg hreint út ótrúlegur, ég er svakalega stollt af þessari stelpu. Það sem sagt stefnir í frábær jól hjá Þuríði minni þetta árið sem er fyrsta sinn síðan hún veiktist og ég get ekki beðið eftir þeim. Það er líka alveg yndislega gaman að við erum orðin sex manna fjölskylda þessi jólin þannig það verða engin rólegheit hjá okkur sem verður ennþá skemmtilegra. Oh mæ god hvað ég verð bara spenntari og spenntari, það er svoooo stutt í þetta allt saman. Get heldur ekki beðið eftir áramótunum og að sjálfsögðu ætti maður að kaupa gommu af flugeldum þetta árið til að fagna heilsu hetju minnar og gleðja hana en hin tvö (sem hafa orðið vit fyrir þessu eheh) eru alveg skíthrædd við lætin.
Hérna eru þær systur, krökkunum í Styrktarfélaginu var boðið á Eldsmiðjuna í gær (slurp ótrúlega góðar pizzur) og svo var jólaball fyrir krakkana á eftir sem þau skemmtu sér alveg frábærlega vel á.
Smá hræðslu svipur á Theodóri mínum enda alveg skíthræddur við Sveinka þannig það kom okkur mikið á óvart að drengurinn vildi setjast hjá honum einsog hann er mikill nagli fyrir.
Hnoðrinn minn á leiðinni á jólaballið hjá SKB
Vitiði það ef við værum ekki búin að "lenda" í þessu með Þurðíði mína, að horfa uppá hana berjast fyrir lífi sínu það væri maður ö-a grenjandi meira yfir ástandinu í þessu þjóðfélagi. Heilsan er það sem skiptir mestu máli og við ættum að vera þakklát fyrir okkar heilsu hitt er "aukaatriði".
Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.12.2008 | 09:47
Ég á mér uppáhalds flík
Uppáhalds flíkin mín er kápan mín sem ég fékk frá Skara mínum í jólagjöf fyrir nokkrum árum en það er einn "galli" með hana eða kanski mig hehe en ég get eiginlega aldrei notað hana almennilega því ég er "alltaf" ólétt eða með barn á brjóst. Sko málið er núna þegar ég var ólétt af hnoðra mínum þá gekk ég í kápunni minni sem er ekki frásögufærandi en þá gat ég bara hneppt henni yfir brjóstinn en ekki yfir bumbuna sem er náttúrlega ekkert skrýtið. Núna Þegar ég er búin að eiga hnoðrann minn þá get ég hneppt yfir magann en ekki brjóstinn því ég lít út einsog Dolly Parton mhohoho!! Þannig kápan mín fær aldrei að njóta sín þannig séð og mér er alltaf kalt einhversstaðar á líkamanum því aldrei get ég hneppt henni almennilega. Dóóhh!!
Spurning hvort ég get kanski notað hana næsta haust og hneppt ÖLLUM tölum?
Það er brjálað að gera hjá okkur fjölskyldunni, ég myndi ekki bjóða í það ef ég hefði átt að kaupa allar jólagjafirnar í des því þá þyrfti ég ansi marga auka tíma í sólarhringinn, sem betur fer er ég ALLTAF það skipulögð að ég dreifi jólagjafakaupunum yfir árið því einsog ástandið er í dag veit ég ekki hvort ég hefði meikað það? Ég er bara snillingur, fór meir að segja á Toys'rus útsöluna áður en allt hækkaði þar um 100% og keypti handa krökkunum mínum, ohh það er svoooo gott að vera ég.
Við krakkarnir sendum Skara í að kaupa jólatréð í gærkveldi sem er kanski ekki frásögufærandi en fyrir nokkrum árum sendi ég líka hann einan og hann kom með stærsta tréð sem var til í búðinni og þá hét ég því að ekki senda hann einan aftur en núna var ekkert annað í boði. Viti menn Skari kom AFTUR með stærsta tréð í búðinni hahaha!! Well spurning hvort jólaskrautið okkar dugi á tréð, oh boy!! Reyndar elska ég stór tré en stofan okkar er nú ekkert hægt að hrópa húrra fyrir en hverjum er ekki sama, jólin eru bara 1x á ári og við ELSKUM jólin en verst að pakkarnir munu týnast undir trénu. Eins gott að mamma og pabbi komi með marga pakka með sér en þau verða með okkur, bara gaman!! Oh god hvað ég er orðin spennt að sjá börnin mín yfir hátíðirnar, þau eru líka svoooo spennt.
Krakkarnir eru búin að fara á tvö jólaböll en það þriðja er á morgun hjá Styrktarfélaginu, litli naglinn minn hann Theodór er alveg skíthræddur við sveinka einsog hann getur verið mikill gaur og mikill töffari en þegar það kemur að sveinka þá snappast hann. Greyjið litli!! Við fórum einmitt á jólaball í skólanum hjá Þuríði minni í gær og það var svo gaman að fylgjast með henni en hún þekkir hálfan skólann, heilsaði og knúsaði aðra hverja manneskju sem labbaði framhjá okkur. Hún var svo glöð að hitta alla og náttúrlega allir glaðir að hitta hana en ekki hvað? Það er ekki annað hægt en að vera glöð innan hetjuna mína, lífið er svo skemmtilegt hjá henni að hálfa væri miklu meir en nóg. Bara gott og gaman!!
Útskrift í dag, oh mæ god!! Loksins komið að henni og að sjálfsögðu fór ég annað sinn á þessu ári og verslaði mér eina flík fyrir hana (ok tvær). Ég bara varð ástfangin um leið og ég sá flíkina, mjög flott fyrir konur sem líta út einsog Dolly Parton. Þuríður mín er líka komin í jólafrí og finnst ekki leiðinlegt að tjilla bara ein með mömmu sinni og hnoðra litla sem hún dýrkar og elskar að sýna fólki hann sem ég geri að sjálfsögðu líka enda bara flottastur.
Well hnoðrinn minn farin að kalla á Dollyjarnar, eigið góða helgi. Mín mun pottþétt verða góð og mjög upptekin ALLA helgina sem er bara gott. Knús í hús!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
98 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar