Leita í fréttum mbl.is

Niðurstöður í dag

Erum núna uppá spítala, Þuríður mín nýbúin í myndatökum og sefur vært núna.  Tókst glimrandi vel að taka myndir þó stúlkan hafi verið milli svefns og vöku en einsog alltaf eru hún mesta hetjan mín, fyrsta skipti heyrðist ekki í þegar hún var sprautuð þar að segja beint í handlegg en ekki í lyfjabrunninn.  Það er nefnilega ekki hægt að láta hana vera með nál í lyfjabrunninum í myndatökunu, æjhi flókið að útskýra þannig ég sleppi því.

Allavega við fáum væntanlega niðurstöður í dag þannig núna er bara stress í gangi, vonandi heyrið í mér sem fyrst eða seinni partinn.


Fullkomið kvöld

Gærkveldið var æðislegt, hef ekki skemmt mér svona vel lengi.  Einsog Óskar minn sagði við mig þá hefur hann ekki séð mig svona glaða í mörg ár eða réttara sagt tvö og hálft ár síðan Þuríður mín veiktist.  Ég er ekki heldur vön að njóta mín þegar ég fer á djammið útaf öllu fólkinu sem er að "ráðast" á mig en í gærkveldi var ótrúlega gaman, stuð og stemmarinn alveg þvílíkur.  Síðasta fólkið var að tínast heim að verða fjögur og það er nú bara heimsmet hjá okkur Skara að skemmta okkur svona lengi höfum oftast þol til miðnættis eheh erum orðin svo gömul mhoho!!  Þetta var líka allt fólkið mitt sem mér fannst æðislega gaman að vera innan um, takk æðislega fyrir mig kæru vinir og ættingjar þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér fannst gaman að fá ykkur til mín og hvað mér þótti rosalega vænt um að vera innan um ykkur.

P6032682
Ég og Vigga vinkona í stuði

P6022674
Á smá flippi með Garðari bróðir og 500kallinum sem mætti og hélt uppi stuði með gítari og söng, geðveikt gaman að fá hann í heimsókn.

P6022665
Þemað í afmælinu var "flipp" ehe en þarna eru Sammi mágur, Oddný systir og að sjálfsögðu ég.

P6032704
Nokkrir búnir að stilla sér upp með 500kallinum, en hvar var ég?

Læt þessar myndir duga handa ykkur, takk kærlega fyrir mig enn og aftur og mikið hlakka ég til að fara í Smáralindina og Kringluna til að eyða öllum gjafabréfunum mínum sem ég fékk frá ykkur.Wink


Tímaritið Ísafold

Ef þið hafið áhuga þá er viðtal við mig í nýjasta tölublaði hjá Ísafold nokkrar myndir líka ehe!!

Þuríður mín fer í myndatökurnar á mánudag en ekki þriðjudag en ég held samt að við fáum engar niðurstöður fyrr en á miðvikudag þannig það breytir ekki miklu þannig séð, læknirinn okkar nefnilega vinnur ekki uppá Barnaspítala á þriðjudögum en maður veit aldrei nema einhver annar tekur að sér að útskýra niðurstöður fyrir okkur?  Það eru nú nokkrir læknar í teaminu fyrir Þuríði mína þannig það gæti verið?  Ég er ótrúlega kvíðin fyrir niðurstöðum að sjálfsögðu, vonast ég eftir enn meiri minnkun en er hrædd við að það sé ekki.  Vona að þessi þreyta sem er að segja til sín sé "bara" útaf krömpum sem við sjáum ekki sem gæti verið en að sjálfsögðu væri best ef þetta væru bara þessir dagar.  Úfffhh ótrúlega erfitt að bíða eftir þessu og maginn verður alveg á hvolfi þanga til en þá er líka gott að vera með nóg fyrir stafni svo maður reynir að "gleyma" sér.

Ég er að fara niðrí Glitni í dag á smá "athöfn" tralllalala!!  Fyrir nokkrum vikum ákvað ég að sækja um námsstyrk hjá þeim vegna námsins sem ég ætla að fara í haust sem verður reyndar í fjarnámi en allavega ég er að fara í nám, vííí!!  Námið er frekar dýrt allavega fyrir "atvinnulausa" manneskju eða það kostar 70.000kr og svo bækur bara frammað áramótum og mín ákvað að sækja um þennan styrk þegar ég sá hann auglýstan meira svona í ganni því ég bjóst aldrei við að fá hann en viti menn Glitnir ætlar að styrkja mig í námið eina önn, trallalala!!  Ótrúlega stollt af bankanum "mínum", ekki leiðinlegt!  Þannig mín er að fara þangað í dag og taka á móti þessum frábæra styrk þá verður ekki aftur snúið að sleppa því að fara í námið eheh!!  Get ekkert sagt núna að ég hef ekki efni á þessu eða þess háttar því bankinn borgar.

Í lokin langar mig að óska ykkur góðra helgar, mín er að fara halda uppá afmælið sitt á morgun (þrítugs) ef það var farið frammhjá ykkur eheh!!  Hlakka mikið til að vera innan um mitt fólk þannig það er best að fara gera eitthvað af viti, kanski þrífa?
Knús til ykkar allra og munið að knúsa hvort annað, endilega kaupa ÍsafoldWink.


Þuríður Arna

Þú ert ljósið sem skærast skín
í mínu lífi, elsku stelpan mín
og ég þakka fyrir þig á hverjum degi
og vona, að lengi enn ég njóta þín megi.

Þú ert lítill engill sem mér var sendur
Þú ert ljósið sem skærast skín
í mínu lífi, elsku stelpan mín
og ég þakka fyrir þig á hverjum degi
og vona, að lengi enn ég njóta þín megi.

Þú ert lítill engill sem mér var sendur
svo fullkomin, að mér fallast hendur
Og ég skal gera mitt besta til að sýna þér
að alltaf þú eigir vísan stað í hjarta mér.

Og hjartað slær núna hraðar í mér
Þakka þér Faðir, sem allt sér
Af lotningu ég fyllist er ég lít hana á
stúlkuna sem Hann, lét mig fá.

Og alltaf er ég lít á þig, svo sæt og fín
þá get ég alltaf undrast, að þú ert dóttir mín
Og þú mátt vita, ef vökva tárin kinn
Að alltaf sé opinn faðmur minn.

Ég man ekki alveg eftir hvern þetta ljóð er en mig minnir að það sé eftir systir vinkonu systir minnar, doltið lang sótt en fallegt er það og mér finnst það eiga svo við fallegustu hetjuna mína.


Myndatökur

Það var ákveðið á fundinum í morgun með læknunum að Þuríður mín fer í næstu myndatökur á þriðjudaginn sem er tveim mánuðum en áætlað var.  Það þarf bara að ganga í skugga afhverju henni hefur liðið svona einsog henni hefur liðið síðustu vikur, því ekki er lömunin að aukast og kramparnir ekki sjáanlegir.  Enn það gæti verið að henni hefur liðið svona er því hún gæti verið að fá krampa sem við sjáum ekki, hún er ekki að fá kippi með þeim eða hrinur niður og liggur alveg.  Hún hefur nefnilega verið að detta mikið og það getur verið að það séu krampar sem hún er að fá og að sjálfsögðu verður hún gjörsamlega búin á því eftir það.  Það gæti verið ágæt ástæða og ég vona að það sé "bara" það en ekki meiri stækkun í gangi, ef það sjást engar breytingar í myndatökunum þá fer hún í heilalínurit til að ath hvort það gæti verið ástæðan.

Annars fór hún ekkert á leikskólan í morgun, fórum uppá spítala, var smá þreytt eftir það þannig ég ákvað bara að leyfa henni að dúllast með mömmu sinni og fór með hana í klippingu.  Henni finnst ekki leiðinlegt að fá að dúllast svona heima með mömmu og að sjálfsögðu honum Theodóri því þá fær hún líka með meiri athygli en venjulega, bara tvö mömmubörn heima í staðin fyrir þrjú eheh!!


Knús til Skoppu og Skrítlu

Krökkunum mínum langar að senda stóóóórt knús og endalaus marga kossa til uppáhalds vina sinna Skoppu og Skrítlu en þær voru svo elskulegar að senda nýjasta geisladiskinn sinn til krakkana.  Þið hefðuð átt að sjá Theodór minn þegar hann sá þær utan á disknum eheh, mikið uppáhald hjá honum einsog hjá systrunumGrin .  Þannig núna er Skoppa og Skrítla í græjunum að æra nágrannana því það má sko ekki vera lágt eheh. 
Enn og aftur stórt knús til ykkar Skoppa og Skrítla og ég mæli eindregið með því að þið kaupið þennan disk handa börnunum ykkar, börnin mín allavega dýrka þær. 

Slöpp :(

Vorum að koma úr vorferð með leikskólanum, fórum í Heiðmörk og þar fengu krakkarnir að njóta sín.  Verst að Þuríður mín var ekki alveg í stuði að hlaupa um og vera með læti einsog hinir, hún er frekar slöpp núna og er sofandi.  Hún var ekki að njóta sín og lá frekar mikið í fanginu hjá okkur og vildi láta halda á sér en venjulega er hún ekki mikið fyrir það.  Það er ofsalega sárt að horfa á hana í þessu ástandi þannig við hringdum í doktorana og við eigum að koma á fund í fyrramálið og þá verður ákveðið með myndatökur.  Við viljum nefnilega fá myndatökur sem fyrst vegna þess hvernig henni hefur liði síðustu tvær vikur, eitthvað farin að slappast.  Mig langar helst að hætta þessum áhyggjum og líða svona illa og fá gott úr þessum niðurstöðum eða það er hætta á því að mér mun líða hundrað sinnum verr?

Nenni eiginlega ekki að vera hérna inni þannig ég er farin út að leika við hin tvö.


:)

Ég fékk góðar fréttir áðan sem ég er í skýjunum yfir en ætla ekkert að segja ykkur þær fyrr en fyrsta lagi á föstudaginn þegar það eru búið að ganga frá þeim.  Trallala!!  Þær tengjast ekkert Þuríði minni bara sjálfri mér, æjhi ég er svo glöð að hálfa væri miklu meir en nóg. Nei ég er ekki ólétt eheh!

Jú svo var ég að ganga frá leynigestinum "fræga" sem á að koma í afmælið mitt á laugardaginn en þeir fá bara að njóta hans sem koma í stuðið seinna um kvöldið eða eftir hálf níu, oh mæ god!!  Það verður sko stuð!  Reyndar mikil forföll en maður mátti nú búast við því þar sem sumarið er að koma og allir að þeysast um landið en það verður samt stuuuuuð ég lofa því. 

Svo er víst að koma smá viðtal við mig í einu tímariti landsins en þið verðið bara að fylgjast með öllum tímaritum svo þið missið ekki af mér, neinei ég mun láta ykkur vita þegar af því kemur.  Lofa! Annaðhvort verður það í júní eða júlí var ekki alveg komið á hreint.   Reyndar er ég mjög smeyk við að láta taka viðtal við mig þegar það tengist Þuríði minni og það gerði þetta viðtal meðal annars, en ég veit að þetta viðtal er mjög gott þannig ég þarf ekki að hafa áhyggjur.  Oftast eru það fyrirsagnirnar sem ég er smeykust við því það er sölumennskan hjá þessum blöðum sem er að reyna draga fólkið að sér.  Það situr nefnilega enn í mér hvað ritstjórinn hjá DV vildi hafa sem fyrirsögn þegar viðtalið kom við okkur Skara í desember síðastliðin, viðtalið var rosalega flott enda treystum við blaðamanninum 150% enda vandaði hún sig mjög vel með viðtalið.  Enn svo koma þessir plebbar sem ráða öllu og vilja selja og það var einsog þessi ritstjóri sé ekki með hjarta og eigi ekki börn.  Ég hef aldrei verið jafn reið á ævinni og ég ætla bara að láta það flakka hvaða fyrirsögn hann vildi hafa "síðustu jól Þuríðar" já haldiði það sé?  Þessi maður er bara aumingi! 

Jú Þuríður mín er með illvígan sjúkdóm en við verðum að geta haldið í vonina og trúað á kraftaverk, þó að læknarnir hafi ekki gefið henni langan tíma í viðbót þegar það var greint illkynja æxlið hennar þá viljum við ekki trúað því fyrr en annað kemur í ljós, öðruvísi getum við ekki haldið höfði.  Þannig mér fannst þetta frekar illt af ritstjóranum að detta þetta í hug og detta það í hug að við myndum samþykkja þessa fyrirsögn.  Döööö!!

Farin útá pall að mála....


Smá fréttir

Langaði bara að segja ykkur það en Þuríður mín var súper hress á laugardaginn, jíha!!  Við vorum úti að leika ALLAN daginn og stúlkan rotaðist kl átta en yfir daginn lék hún sér einsog ekkert væri, bara gaman!!  Ok hallaði sér aðeins á pallinum undir teppi en það tók bara nokkrar mínútur og dagurinn í gær var þokkalegur, kanski ekki alveg jafn góður en sæmilegur.

Við Skari fórum með börnin í gær uppá Skaga í dekur og við kíktum aðeins í afmæli og fórum útað borða og sváfum út í morgun, ahhh!!  Lovely!!  Ok að sofa út hjá okkur er til kl níu eheh en við erum út sofin.  Ótrúlega nice að skreppa svona aðeins út bara tvö og fara sofa þegar mig langar að fara sofa og vakna þegar ég er orðin útsofin, ekki leiðinlegt!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband