15.5.2007 | 21:35
Lífshamingja
Lifðu í núinu. Fjöldi fólks frestar hamingjunni. Það puðar og puðar og lifir skítalífi í þeirri von að þegar einhverju marki sé náð og þetta eða þetta gerist verði það hamingjusamt. En hvað um daginn í dag, núið? Við vitum aldrei hvað við fáum langan tíma í þessu lífi. Hví þá að lifa eins og við séum á einhverri leikæfingu í stað þess að njóta sjálfs leiksins, hvers augnabliks lífsins? Líttu á hvern dag sem heilt líf í sjálfu sér. Lifnaðu við að morgni og kveddu síðan að kvöldi. Það sem er þarna á milli á að skipuleggja sem afmarkaða heild og lifa eftir því. Núið er allt sem þú átt. Fortíðin er liðin og framtíðin ókomin. Hvað sem þú ert að fást við ættirðu alltaf að reyna að njóta út í æsar hvers augnabliks.
Hláturinn lengir lífið. Fólk hefur jafnvel sigrast á sjúkdómum með því aðallega að hlæja. Það er enginn vafi að hlátur hjálpar þér að losna við neikvæðar tilfinningar. Lærðu að horfast með kímni í augu við vandamálin. Slíkt getur auðgað líf þitt. Horfðu á gamanmyndir, og lestu fyndnar bækur. Hafðu augu og eyru opin fyrir öllu því skemmtilega í kringum þig. Snúðu þér af fullri alvöru að gamanseminni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.5.2007 | 19:20
Gott veður
Þegar það er svona gott veður þá ekki búast við bloggið frá mér, ég og krakkarnir erum búin að leika okkur á pallinum frá því ég náði í stelpurnar á leikskólann en að sjálfsögðu næ ég í þær fyrr þegar við getum leikið okkur á pallinum og sólað okkur þar. Þuríður mín er líka gjörsamlega rotuð uppí rúmi og klukkan rétt sjö, Theodór minn er á útopnu því hann er svo þreyttur eftir daginn en sá drengur má ekki fara sofa fyrr en eftir átta svo hann verði ekki vaknaður kl fimm í fyrramáli en þó hún Oddný Erla sé súper þreytt fer hún sko ekki að sofa fyrr en foreldrar hennar leggjast uppí rúm ehe. Stundum heldur hún að hún sé orðin fullorðinn og nennir sko ekki að eyða tímanum í að sofa þegar hún getur verið að leika inní herbergi í lego, playmo eða með Kristín Amelíu sína (það er dúkkan hennar).
Annars er Theodór minn farinn að segja ansi mörg orð, hermir eftir öðru hverju orði sem ég segi thíhí!! Hann er ennþá sami mömmukarlinn ég má ekki skreppa inní herbergi þá verður hann alveg trítilóður, mikið verður gott fyrir hann að komast á leikskólann í haust eða nánartiltekið 16.ágúst en þá byrjar drengurinn í aðlögun. Bara gaman!!
Í næstu viku fer Þuríður mín Arna í tjekk hjá Doktor Ólafi og sá verður hissa hvað hún er spúper hress, oh mæ god!! Þessi stúlka hafði ekki svona mikla orku í að leika sér allan daginn án þess að fá sér smá blund yfir daginn fyrir áramót, ohhh neih!! Hún hefði þurft ða leggja tvisvar yfir daginn og kanski náð að leika sér í klukkutíma þvílíkur munur á hetjunni minni og vonandi endist þetta endalaust lengi núna er hún allavega næstum því einsog fimm ára barn í orku, hibbhibbhúrrey!!
Einsog ég sagði þegar það er svona gott veður þá nennir mín sko ekki að hanga mikið í tölvunni, þá verður það sko pallurinn sem kallar. Ótrúlega spennt fyrir sumrinu og fá að spóka mig í sólinni með körkkunum, nennti ekki einu sinni að fara í ræktina í dag (dóhh) langaði bara að vera úti að leika með krökkunum.
Bæjó en í bili þó....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.5.2007 | 18:02
Breytingar á síðunni
Var að bæta við upplýsingum á síðuna þar að segja ef þið klikkið á mynda af mér og Theodóri hér til hliðar getiði lesið allt um veikindi hetjunnar minnar Þuríðar og ég reyni að uppfæra þær upplýsingar nokkra mánaða fresti. (hef verið frekar löt við það síðustu mánuði.)
Helgin annars búin að vera æði, óvissuferð gæranna í gær sem ég var að sjálfsögðu að skipuleggja ásamt Viggu vinkonu. Við fórum í gömlu Viðeyjarferjuna og ætluðum að "rúnta" á henni um sundin og veiða en þar sem það var ömurlegt í sjóinn og frekar skerí á tíma ákváðum við á síðustu stundu bara að skreppa yfir í Viðey, rölta um, borða nesti, kíkja í kirkjuna og sitja og tjatta sem var æði. Keyrðum svo yfir í eina sólbaðsstofu bæjarins og skelltum okkur í pottinn og höfðum það notó þar og enduðum svo í eurovisionpartýi hér í sveitinni og farið í Sing star og sumir voru óðari í mígrafóninn en aðrir eheh!! Ég fór ekki í bæinn með stelpunum lok kvölds, svona er að verða þrídug ehe nei nei ég fékk svo heiftarlega magapínu þannig mín var bara róleg þannig það ekki leiðinlegt að hlæja að hinum ehhehe!! Bara gaman og takk fyrir daginn stelpur hlakka til næstu óvissuferðar eftir ár.
Það hafa ofsalega margir verið að spurja mig hvort ég ætla í nám í haust eða hvað ég ætli að gera, jú ég er búin að skrá mig í nám og "borga" þannig það er staðfest en ég mun samt "bara" fara í fjarnám því þá hef ég líka möguleika að vinna kanski með ef það verður í boði í haust. Ég hefði heldur ekki getað skráð mig í dagnám þar sem það kemur ekki á hreint strax hvort það verði samþykkt að Þuríður mín fái aðstoð í átta tíma á leikskólanum en hún er með sex tíma. Ofsalega asnalegt kerfi að geta ekki samþykkt að börn fái ekki aðstoð einsog þau þurfa en svona er þetta bara það er alltaf sparnaður í kerfinu og ég veit að þetta á bara eftir að versna þegar Þuríður mín fer í skóla. Ég hreinlega bara skil þetta ekki? Ég veit að þetta eru ekki leikskólanum að kenna enda gera þau allt sem þau geta til að láta þetta vera samþykkt en sparnaðurinn er ofarlega í öllu svona og svo er líka erfitt að fá starfsfólk í stöður á leikskóla. Such is life!!
Svo held ég líka að ég þurfi að gefa Þuríði minni smá séns með veikindin sín áður en ég fer að ákveða eitthvað stórtækt allavega frammað áramótum, veit aldrei hvernig veikindin hennar þróast. Þó hún sé mjög góða þessa mánuðina þá veit ég aldrei hvernig hún verður á morgun? Má ekki flýta mér of hratt en hef allavega ákveðið að fara í fjarnám sem ég er svakalega spennt fyrir og fæ alveg fiðring í magan að hugsa um það, loksins að fara gera eitthvað BARA fyrir mig. Víííí!!
Læt þetta duga í bili börnin kalla, Skari í brjálaðri vinnu útí garði að gera fínt fyrir okkur .
Þanga til næst......
Bloggar | Breytt 14.5.2007 kl. 08:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.5.2007 | 19:39
Fékk þetta frá Geir H Haarde
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.5.2007 | 14:32
Eiki bleiki
Í hverju einasta bloggi sem ég hef farið inná í dag hefur BARA verið blogga eurovision pjúrovision, við Íslendingar fáum ekki nóg af því að velta þessari keppni fyrir okkur og afhverju komumst við ekki áfram og blablabla en ég nenni því nú ekki. Ég veit allavega það verður ö-a ekki mikið horft á eurovision-partýinu á morgun þannig Sing star verður dregið upp og við stelpurnar munum æra alla grannana mína eheh, greyjið þeir!! Held samt að ég muni láta mér duga að hlæja að stelpunum en læt þær ekki hlæja að mér eheh!! Hlakka endalaust til morgundagsins og mér er alveg sama þó Eiki bleiki hafi ekki komist áfram þá verður líka hundleiðinlegt að fylgjast með keppninni. Allt prump lög!!
Helgin alveg pakkfull af skemmtun t.d. að kjósa sem mér finnst reyndar alveg hundleiðinlegt því mér gæti ekki verið meira sama um pólitík, engin stendur við neitt sem þeir segja þannig þá er líka bara best að skila auðu. Ég er ekki alveg að nenna fara kjósa en ég er neydd til þess og þá verður líka blaðið mitt autt en einu flokkarnir sem vilja gera eitthvað fyrir langveik börn sem stendur mér næst eru Vinstri grænir og Samfylking en hinir segja bara "jájá" við öllum spurningunum sínum í einni könnun sem var gerð fyrir þá og Sjálfstæðismenn sem ég hélt að væru "mínir" menn hafa bara allt á "hold" með langveik börn að gera eða allt í biðstöðu. .....eða þeir eru svakalega ánægðir með nýju lögin sem þeir settu 1.janúar 2006 sem ég gæti ælt yfir, þessu lög gerðu ekkert fyrir mína fjölskyldu þar sem við vorum svo "óheppin" að okkar barn veiktist rúmu ári of snemma og þá eigum við ekki þessi réttindi og eigum þá bara að lifa á loftinu eða góða fólkinu í kringum okkar. Aaaargghh!! Mig langar að öskra yfir þessa karla/konur, eins gott að Siv Friðleifs mætti ekki hingað með rós og það var Skari sem tók á móti Merði Árnasyni. Allavega ég ætla á morgun og skila auðu, takk fyrir það!!
Jú ég er að fara í óvissuferð á morgun, grilla með gærunum, kanski djamma smá veitiggi? ...og svo fer sunnudagurinn í barnaæfmli og hvíla sig framað hádegi.
Engin meiri til að skrifa þar sem við erum á leiðinni á opið hús á leikskólann
Góða helgi kæru vinir og gangið hægt um gleðinnar dyr.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2007 | 08:58
Farin að kvarta :(
Þuríður mín hefur kvartað doltið þessa vikuna undan hausverk sem er ótrúlega erfitt að heyra hana kvarta yfir því þá verð ég líka svo hrædd við að það sé eitthvað að gerast þarna hjá henni. Jú henni líður "vel" (annars veit ég ekkert hvernig henni líður en hún sýnir allavega ekki að hún sé að þjást eitthvað) og maður reynir að horfa bara í það en þegar hún fer að kvarta er ekki annað hægt en að fá hnút í magan.
Reyndar sýndi hún mjög skemtilegan hlut í gær en einsog flestir vita þá hefur ekki mikla krafta í líkamanum og hefur ekki getað neitt sem tekur á t.d. að fara uppí efri koju þeirra systra. Alltaf hef ég þurft að ýta undir rassinn hennar eða lyfta henni upp þegar henni langar að vera hjá systir sinni í efri koju og hjálpa henni svo niður því hún hefur aldrei haft neina krafta í þetta en svo gerðist skemtilegt kraftaverk í gær. Alltíeinu byrjar Oddný Erla að öskra "mamma Þuríður komst alveg sjálf uppí koju" hún var sjálf ótrúlega hissa enda veit hún alveg hvað Þuríður hefur getað gert. Ég að sjálfsögðu hljóp inní herbergi því ég trúði þessu eiginlega ekki en svo var mín bara komin í þá efri og ótrúlega stollt af sjálfri sér og það var ég svo innilega líka. Oh mæ god hvað það var gaman að sjá þetta en það eru þessi "smáatriði" sem eru reyndar ekkert smá hjá okkur sem hjálpar manni að halda sensi þó hún sé farin að kvarta og að sjá fimm ára gamalt barnið sitt hjóla í fyrsta sinn er þvílíkur draumur í dós þó að börn séu löngu farin að hjóla fyrir þann aldur ef þau eru heilbrigð þá er það bara yndislegast.
Hún er allt önnur manneskja en hún var fyrir áramót og ég vona svo sannarlega að hetjan mín fái að fara í seinni geislameðferðina sína í des. Ég einmitt spurði læknana okkar hvort hún gæti einhverntíman aftur farið aftur í lyfjameðferð sem hún var búin að vera í þrjá mánuði þegar hún þurfti að hætta en þá eru þeir ekki bjartsýnir á það en þeir útiloka samt ekkert. Vona svo sannarlega að hún geti farið í meiri meðferðir og stærsti draumurinn að hún gæti fengið að fara í aðra aðgerð sem er reyndar það ólíklegasta en ég vona það samt.
Annars er skemtileg helgi framundan er búin að vera undirbúa óvissuferðir fyrir "gærurnar" sem eru stelpurnar úr badmintoninu í "old days" ehe en í hana ætlum við að fara í laugardaginn og enda svo í grilli hérna í sveitinni og horfa á eurovision sem verður ekki leiðinlegt þannig það er eiginlega eins gott að Eiki rauðhaus komist áfram annars verður þetta ekki eins skemtilegt. Well þá verður bara sing star tekið upp og við förum að æra grannana mína eheh, bara gaman!! Hlakka bara til!!
Verð víst að fara finna mig til, er á leiðinni í mollið með Oddnýju syst. Stúlkan var að klára prófin í gær og ætlar að ath hvort hún finni ekki einhverjar tuskur á sig og kanski ég ath hvort ég finni líka eitthvað á mig? Er ekki sú duglegast á svæðinu að kaupa mér föt, finn aldrei neitt sem ég fíla eða fíla mig í.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.5.2007 | 08:56
Gjöfin
Ég fékk þetta mail sem ég ætla að birta frá einni "net-vinkonu minni", gjörið svo vel:
Áfallið er þungt en i því felst gjöf. Ég veit að ég tek sterkt til orða, jafnvel harkalega, en sannleikurinn er sá að aðeins vitundin um dauðann gerir okkur ljóst hvað lífið er í raun og sann. Þegar þú stendur á brúninni og hugleiðir stórfengleika þess þá veistu í raun hvert gildi það hefur fyrir þig. Og aðeins af brúninni færðu séð það allt þarna blasir það við, jafn skelfilegt og það er fagurt.
Sum okkar koma að brúninni snemma, önnur seint; sum okkar munu koma alveg fram á brúnina og hörfa margsinnis til baka, en á endanum er það ekki okkar að velja. Á endanum verður hvert og eitt okkar að taka flugið.
Ég hef lært að nema staðar af og til og íhuga hvað mér þætti um líf mitt ef ég ætti að deyja á morgun. Það kann að hljóma undarlega en mér finnst það gott vegna þess að það heldur mér í snertingu við einhvers konar sannleika. Það hefur kennt mér að það sem ég sé eftir er það sem ég lét ógert orð sem ég sagði ekki og tækifæri sem ég lét ganga mér úr greipum. Að sjá brúninni bregða fyrir er áminning um þann fjársjóð sem lífið er.
Það er erfitt að fara alveg niður á botn gjárinnar, vegna þess að þú getur í rauninni aðeins farið þangað einsömul. En ef þú neyddist ekki til að fara myndirðu aldrei komast að því hversu mun bjartar stjörnurnar skína þar niðri, hversu mun nær þær virðast þegar myrkrið er algjört. Haltu fast í sýn þína á stjörnurnar. Það er gjöf. Gráttu eins mikið og þú þarft, talaðu við fólk eins mikið og þú þarft og vertu hljóð og róleg þegar þér líður þannig. Láttu engan segja þér að þú skulir örvænta eða örvænta ekki. Þú getur ekki brugðist við á rangan hátt. Mundu bara eftir stjörnunum. Þær eru þínar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.5.2007 | 09:09
Vera á launaskrá hjá Morgunblaðinu :)
Ég held að ég þurfi að sækja um að vera á launaskrá hjá Morgunblaðinu og gerast blaðamaður hjá þeim ehe, ég er nefnilega með næstum því vikulegan pistil af blogginu mínu í Morgunblaðinu. Haldiði það sé!! Ég er alltaf innan þessa alþingis-, blaða-,sjónvarpsmenn og svo lengi mætti telja og svo kemur einhver Áslaug Ósk Hinriksdóttir sem mér finnst frekar fyndið, thíhí!! Verst að ég er svo léleg í íslenskunni þannig ég gæti aldrei orðið blaðamaður dóóhh en það er víst samt eitthvað sem heillar þá að birta svona oft bloggið mitt? Ég hlýt að vera svona falleg því það birtist alltaf mynd af mér og Theodóri með blogginu mínu, hmmm kanski er þetta bara myndin af Theodóri mínum sem er nú ekki verra enda með fallegustu karlmönnum sem ég hef kynnst. Bara fyndið!!
Fór annars á Spiderman í gær, Erla vinkona gaf mér og Skara frímiða í bíó og að sjálfsögðu nýttum við þá og fórum einsog ég sagði á Spiderman. Æjhi ég veit eiginlega ekki hvernig mér fannst hún, var búin að sjá eitt og tvö sem mér fannst góðar en þegar þeir eru farnir að gera svona margar framhaldsmyndir þá verða þær svo óraunverulegar og klikkaðar. Ég hefði reyndar ekkert viljað missa af henni þó ég fari aldrei í bíó en þá hefði ég ö-a tekið hana á video. En ofsalega var leiðinlegt fólk í bíó eða er ég orðin svona gömul? (kastandi poppi í mann og gargandi einsog einhver börn) Ég er nottla að nálgast þriðja tuginn sem mér finnst hræðilegast, oh mæ god!! Var einmitt í samband við einn kennara í gær útaf námi sem mig langar að læra og þá var ég að segja henni hvað ég væri gömul, ég var farin að skrifa þrjátíu en ég gat það ekki ehehe og skrifaði bara tuttugu og níu thíhí!! Haldiði það sé!! Hræðilegt að eldast svona hratt þó ég sé ekki svona gömul í anda, ég sem ætlaði að vera búin að eignast öll börnin mín fyrir þrídugt en nei ég verð ekki búin af því , því ég er ekki hætt. Eitt í viðbót, well reyndar sagði ég fyrir framan alþjóð þegar við Skari vorum í Brúðkaupsþættinum Já að við ætluðum að eignast fimm börn. Hmmm!!
Best að fara gera eitthvað, veit ekki hvað kanski að halda áfram að velta þessu námi fyrir mér eða næsta hausti? Veitiggi neitt? Kanski verður bara bæði nám og vinna? Finnst svo hrikalega erfitt að reyna ákveða eitthvað fram í tíman, reyni bara að hugsa um daginn í dag. Tímar breytast þegar maður eignast veikt barn og þá fer maður að hugsa öðruvísi og pæla allt allt öðruvísi í hlutunum.
Munið knúsin.....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.5.2007 | 10:02
Færsla tvö
Bleble veit ekki hvort ég nenni að fara skrifa eitthvað mikið núna, þoli ekki þegar það koma bilanir í kerfin og allt dettur út sem ég var búin að skrifa (og loksins ætlaði ég að koma með langa færslu) og mér finnst alltof mikil vinna þó það sé ekki að skrifa fyrst í word og setja það svo inn. Bara eintóm leti, jájá ég get sjálfri mér um það kennt að ég nenni ekki að save-a, bleble!!
Reyndar kemur þessi færsla ekkert við þessari sem ég skrifaði í gær talaði um allt annað en allavega ég hef talað um það áður þegar fólk kemur að tali við mig um veikindin hennar Þuríðar minnar. Jú einsog ég hef oft sagt áður þá finnst mér alls ekki óþægilegt að tala um veikindin hennar það bara hjálpar mér einsog þessi síða, reyndar eru margir mjög feimnir við að spurja mig um hana en þið þurfið þess ALLS EKKI þá bara segi ég það við ykkur ef ég væri ekki í stuði að svara einsog á djömmum.
Reyndar varð ég ofsalega reið við eina manneskju (hafði aldrei séð hana áður) þegar við vorum stödd útí Koben á Sálinni (vorum stödd á ballinu) þá kom ég að henni vera ræða um veikindin hennar Þuríðar minnar við Skara og ég hef aldrei verið jafn reið áður. Ég veit ekkert hvort þessi manneskja les síðuna mína en þarna sagði ég bara stop og hættu nú og strunsaði í burtu, sagði henni smá til syndana að fólk gæti ekki skilið afhverju við færum svona útá lífið reyndum að hafa það gaman og reyna "gleyma" sem getur verið mjög erfitt en þá þurfa alltaf að birtast svona ein og ein manneskja og skemma allt. Grrrrr!! Já ég varð reið og sem betur fer strunsaði ég bara í burtu þegar ég var búin að tjá mig um þessi fáu orð. Aaaaargh ég verð svo reið og pirruð!!
Líka er svo skrýtið þegar fólk er að spurja mig um Þuríði þá þarf það alltaf að telja upp alla sem hafa dáið úr þessum sjúkdómi, er það eitthvað sem mig langar að vita? "já það eru doltið margir ættingjar eða vinir tengdir fjölskyldunni minni sem hafa dáið úr þessu" haaaaaaalllllóóó er ekki alltílagi? Einsog um daginn hitti ég eða Skari (skiptir ekki máli hvort okkar) eina manneskju og að sjálfsögðu barst talið um Þuríði mína og það var verið að spurja hvernig henni liði og svona og okkur finnst alveg svakalega gaman að tala um hvað henni líður vel í dag (samt ekki á djamminu takk pent fyrir það) en þá fór þessi ákveðni maður að segja að hann ætti frænku sem greindist með slæmt krabbamein og voru gefnir nokkrir mánuðir en það gerðist kraftaverk. Ok frábært hugsaði maður með sér (eða Skari eheh) og þetta kraftaverk entist fyrir mánuði síðan en þá dó þessi ákveðna manneskja, döööööö!! Hún lifði í fjögur ár (minnir mig) eftir að hún hafði greinst en haaaallllóóó þetta er ekki heldur sem manni langar að heyra.
Jú ég veit um eitt kraftaverk sem átti bara að lifa í nokkra mánuði en í dag er þetta kraftaverk níu ára og það er það sem manni langar að heyra. Heldur það virkilega að manni langar að heyra um hina og þessa sem deyja akkurat þegar barnið manns er að berjast við sinn sjúkdóm og ekki gefið mörg ár? Henni líður vel í dag en við vitum ekki hvernig morgundagurinn hennar verður, við lifum bara fyrir daginn í dag, hún gæti farið að krampa á morgun? Við vitum ekkert en að sjálfsögðu vonum við það besta enda algjört kraftaverk hún Þuríður mín. Flottust!!
Mig langar í lokin að minnast á að núna eru næstum því þrír mánuðir síðan Þuríður mín fékk síðast krampa reyndar þori ég mjög sjaldan að grobba mig á einhverjum hlutum sem tengist Þuríði minni en ég ætla að gera það núna. Það eru tvö ár síðan henni leið svona vel síðast en þá var æxlið hennar ekki orðið illkynja, fyrir tveimur árum var hún krampalaus í þrjá mánuði en svo byrjaði það að versna hægt og rólega. Það eru sem sagt yndislegir tímar hjá henni og maður sér hvað hún þroskast hægt og rólega með hverjum deginum sem líður, það hefur t.d. aldrei gerst að við þurfum eiginlega að hætta láta hana sofa á daginn. Trallalalala!! Draumur í dós!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.5.2007 | 18:11
ands......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
93 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar