Færsluflokkur: Bloggar
19.7.2009 | 17:57
Flottust!!



Oddný Erla mín eyddi hálfum deginum í gær við að týna ber en hin var samt fljót að gefast upp og þið sjáið það hérna á næstu mynd hvað hún fann sér að gera hehe.

Það er margt hægt að finna í bakgarðinum hjá okkur, Þuríður farin að reyna finna fornleifar hún verður ö-a fornleifafræðingur.

Hún var líka yndislega skítug eftir þetta en í "drullunni" skemmti hún sér svakalega vel.

Við kíktum á Bryggjuhátíðina á Stokkseyri á föstudagskvöldið og þessi ungi maður hann Hinrik Örn minn var sko til í stuðið og skemmti sér svona líka vel. Alltaf kátur þessi drengur, verður samt alltaf miklu kátari ef móðirin er til staðar.


Theodóri mínum fannst heldur ekkert leiðinlegt að hlusta á Árna Johnsen og sjá brennuna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.7.2009 | 10:48
Bloggleti
Er ekki að nenna skrifa hérna er bara að njóta daganna með fjölskyldunni, e-ð sem ég þekki varla þá meina ég svona margar vikur í einu og sumarið búið að vera fullkomið.
Þuríður mín er búin að vera ótrúlega hress en samt þreytt en hver verður ekki þreyttir eftir sólríka og viðburgðaríka daga? Finnst hún kanski stundum þreytast "of snemma" á daginn en auðvidað er hún ekki með sömu orkuna og heilbrigðir krakkar og svo þreytast hin líka alveg. Hún vill mikið sitja í kerrunni þegar við förum í göngutúra en það vilja hin líka þannig það er stundum erfitt að átta sig á þessari þreytu.
Það er ofsalega gaman að fylgjast með henni þessar vikurnar því hún er að taka smá þroska og farin að sýna smá "gelgjustæla" sem er ofsalega fyndið og skemmtilegt. Sýnir stundum pirring á systkinum sínum sem við lítum bara á sem þroska og það er líka gaman að sjá hvað hún er hrifin af Hinrik Erni (alveg einsog hin tvö), spjallar mikið við hann en kanski leiðinlegast við þetta er að hún getur ekki haldið á honum. Henni langar svo að halda á honum einsog Oddný Erla en hún hefur bara ekki krafta í það en henni langar svoooo mikið, frekar leiðinlegt!! Tennurnar eru allar að losna núna, hlakka mikið til þegar hún er orðin "tannlaus".
Dagarnir hjá okkur eru búnir að vera æðislegir, reynum að nýta hvern dag enda veðrið til þess. Fórum á Bryggjuhátíðina á Stokkseyri í gær, röltum miðbæinn, búin að taka Laugardalinn, ísinn er frekar vinsæll í þessu veðri hvað þá grillið sem verður tekið út í kvöld og svo lengi mætti telja. Ætlum að gera e-ð skemmtilegt í dag í þessu frábæra veðri.
Njótið helgarinnar!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.7.2009 | 11:56
Ein af rjómabollunni minni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.7.2009 | 20:33
Lífið þessar vikurnar
Ég hef engan veginn nennt að blogga eitthvað af viti síðustu vikur enda við líka búin að vera á ferðinni um landið og haft það skemmtilegt. Allir ofsalega hressir sérstaklega má ég nefna hana Þuríði mína en hún er búin að vera einstaklega hress og það er allt svo skemmtilegt hjá henni. Hún hefur haft orku í margt sem hún hafði ekki fyrir ekki svo mörgum mánuðum og það er alveg yndislega gaman að fylgjast með þessum orkubolta. Hennar uppáhald þessa dagana er "mama mía" og á það getur hún hlustað endalaust, sungið og dansað með, alveg gargar af gleði ef það kemur í útvarpinu. Bara yndislegust!! Einn daginn munum við skella okkur á "mama mia" show eða eftir nokkur ár í London.
Eintóm hamingja hjá Þuríði minni.
Theodór minn er líka hress og hans draumur var að eignast "Silver" sem er gel í hárið sem hann Logi í handboltanum var að "framleiða" og að sjálfsögðu var honum gefið það.
Hérna er töffarinn með "silver" sitt og auðvidað búinn að skella smotterí í hárið. Þessi drengur er mikill gaur en samt með oggupínu lítið hjarta og ef hann fengi að ráða væri hann í skyrtu og bindi alla daga hehe.
Hinrik minn Örn er orðinn mikill mömmupungur og setur þennan fallega stút upp ef mamman hverfur eða e-h annar heldur á honum en ég hehhe. Hvernig ætli hann verði eftir veturinn þegar hann verður einn alltaf með mér, úúbbbbss!!
Hérna er ODdný Erla mín og Hinrik Örn minn en hún er mikil "mamma" og elskar að "tuskast" með hann og honum finnst það heldur ekkert leiðinlegt. Oddný mín er líka hress og kát og finnst alveg yndislega gaman að vera í sumarfríi og telur væntanlega í að hún fari í skóla en það ennþá ár í það.
Ég mun halda áfram í skólanum í haust en ég var búin að velta því fyrir mér hvort ég ætti að gera það vegna ýmsa ástæðna en hef komist að þeirri niðurstöðu að ég ætla vera áfram í þessu fjarnámi mínu og stefni að sjálfsögðu á útskrift að ég held næsta vor.
Það er eitt svo "skrýtið" sem tengist veikindum hetju minnar en þegar gengur frekar erfiðlega eða henni líður sem verst þá reynum við Skari að halda sem mest höfði og erum dugleg að gera eitthvað saman en þegar það gengur svona vel einsog það gerir í dag þá gleymum við okkur algjörlega og auðvidað fer maður þá að sakna tíma með hvort öðru. Það er ekki einsog við eigum erfitt með að fá pössun eða þess háttar maður bara gleymir sér. Að sjálfsögðu á það ekki að vera svoleiðis og það getur verið alveg jafn "hættulegt" og þegar henni líður sem verst. Maður hugsar að sjálfsögðu alltaf fyrst og fremst um börnin og að þeim líði sem best og reynir að gera sem mest með þeim því maður veit aldrei hvað gerist á morgun en jú við megum samt ekki gleyma okkur, hvar væru þau án okkar? Þó svo maður elski börnin sín útaf lífinu þá megum við ekki gleyma okkur hvort sem það eru foreldrar sem eru í sömu stöðu og við eða eiga heilbrigð börn.
Núna ætla ég að eyða kvöldinu með litlu rjómabollunni minni (Skari útá palli að lakka)en öll hin eru sofnuð eftir æðislegan dag, borðuðum útí garði bæði hádegis og kvöldmat, tókum langan göngutúr um Laugardalinn og svo lengi mætti telja. Hafið það yndislega gott og ekki gleyma ykkur sjálfum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.7.2009 | 21:39
Reykjavík-Ólafsfjörður-Egilsstaðir-Akureyri-Reykjavík
Við fjölskyldan vorum að koma heim úr tveggja vikna ferðalagi um landið okkar, fengum flottasta veðrið ALLAN tímann og tókum það með okkur hingað í sveitina. Sem sagt yndislegt ferðalag af baki. Ætli ég birti ekki nokkrar frá ferðinni okkar yndislegu:
Töffarinn minn og rjómabolla hann Hinrik Örn sló í gegn með þessi gleraugu og fannst hann sjálfur alveg ótrúlega fyndinn. Hann er orðinn rosalegur mömmupungur, mamman má ekki bregða sér fyrir horn þá heyrast öskur.
Hérna eru þær systur ásamt Evu Natalíu frænku sem kíkti í heimsókn til okkar á Akureyri.
Theodór töffari við pottinn sem var notaður endalaust en þar voru þau allan daginn alla dagana.
Við kíktum í jólahúsið og hérna eru þeir bræður, bara flottastir!!
Fórum að óskabrunni ófæddra barna og þar óskaði Oddný Erla mín sér að einu enn systkininu, hahaha!! Rætast nokkuð óskirnar sem eru gerðar í þessum brunni, vonandi allavega ekki allar.
Þuríður Arna mín fór í jólasveinahlutverkið.
Læt þetta duga í bili, skrifa við tækifæri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.7.2009 | 18:09
Egilsstaðir - tjékk
Við fjölskyldan fórum beint frá Ólafsfirði til Egilsstaðar í hitabylgjuna og vorum að koma þaðan, vávh hvað það var yndislega gaman og vera í svona miklum hita. Börnin bara strippandi á naríunum, kælandi sig í vaðlauginni sem við vorum með, kíktum á Atlavík, Hallormsstaði og fleira fleira. Bara gaman!!
Hérna eru nokkrar frá ferðinni okkar:
Það var sko stuð í vaðlauginni okkar og þurfti nokkrum sinnum að kæla börnin niður sem þeim fannst sko ekki leiðinlegt en hérna er hann Theodór minn í stuði.
Oddný Erla þurfti líka smá kælingu enda hitinn við 25 gráður.
Þuríður Arna var í brjáluðu stuði í lauginni enda ekki hægt annað.
Hinrik Örn var kældur niður með ís frá systkinum sínum sem honum fannst nú ekki leiðinlegt, það er nú ekki amalegt að vera dekraður af þremur eldri systkinum sem dýrka hann alveg og dá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.6.2009 | 09:37
Fyrsta tönnin farin
![P6291093 [640x480] P6291093 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6291093_640x480.jpg)
Hérna erum við að reyna taka hana ehehe.
![P6301107 [640x480] P6301107 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6301107_640x480.jpg)
Hérna er tannlausa stelpan mín, ótrúlega stollt!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
29.6.2009 | 18:07
Ólafsfjörður - tjékk
![P6250487 [640x480] P6250487 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6250487_640x480.jpg)
Rjómabollan mín hann Hinrik Örn tilbúinn í bilnum fyrir langferðina okkar.
![P6250516 [640x480] P6250516 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6250516_640x480.jpg)
Á leiðinni á Ólafsfjörðinn stoppuðum við í Skagafirðinum og fengum okkur smurðar samlokur því maður stoppar ekki lengur í sjoppum á leiðinni því þá er maður bara búin með mánaðarlaunin sín hehe. En hérna er perlan mín hún Oddný í stuði í piknikinu okkar.
![P6250525 [640x480] P6250525 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6250525_640x480.jpg)
Töffarinn minn hann Theodór fannst þetta sko ekki leiðinlegt.
![P6270640 [640x480] P6270640 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6270640_640x480.jpg)
Perlunni minni finnst ekki leiðinlegt að láta taka myndir af sér, hvað þá að láta einsog "fífl".
![P6270744 [640x480] P6270744 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6270744_640x480.jpg)
ÞEssar stúlkur verða alltaf betri og betri vinkonur, þær eru bara flottastar stelpurnar mínar.
![P6270769 [640x480] P6270769 [640x480]](/tn/300/users/dd/aslaugosk/img/p6270769_640x480.jpg)
Gellan mín hún Þuríður Arna sem er búin að vera í súper stuði alla helgina.
Sem sagt núna farin að gera EKKI NEITT eða bara ALLT sem mig langar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.6.2009 | 22:25
"Einhvernveginn" dagar
Lífið er ofsalega gott og yndislegt, dagarnir hjá okkur eru bara "einhvernveginn". Börnin fara sofa þegar þau vilja og vakna svo fyrir allar aldir samt aðallega Þuríður mín sem er einsog stillt klukka alla morgna kl SEX en þá er sko nótt hjá okkur hinum. En hún lætur sko ekki segja sér neitt og fer á fætur og er bara hress, aðeins of hress fyrir okkur hin og heimtar morgunmat ekki seinna en NÚNA. En það er samt miklu betra að hún vakni svona líka hress alla morgna þó svo það sé kl sex eða fyrr en væri uppdópuð alla daga, bara best!! Við getum líka bara sofið þegar við orðin gömul.
Sumarið byrjar líka hrikalega vel hjá okkur, búið að vera spítalalaust sem er einsog ég hef sagt áður okkar fyrsta sumar síðan hún veiktist og svona ætlum við að halda því, SPÍTALALAUSU. Reyndar þurftum við að hafa samband uppá spítala í dag en það var bara vegna þess okkur vantaði lyf sem hafa ALDREI verið svona lítil. Mikið er þetta líf yndislegt og svona ætlum við að hafa það hér eftir. Getum ekki kvartað undan neinu, lífið okkar er fullkomið þrátt fyrir erfiðleikana í þessu þjóðfélagi. Öll börnin hress og kát, komin í frí í leikskólanum, aðeins undan áætlun og fara ekki aftur fyrr en í ágúst en við erum ekki búin að ákveða hvenær?
Þetta elska þau!! Theodór, Oddný og Þuríður.
Þetta finnst þeim endalaust fyndið Kíktum í Húsdýragarðinn og að sjálfsögðu urðu þær aðeins að kíkja í spegilinn.
Annars ætla ég núna að halda áfram að hafa lífið bara "einhvernveginn" og gera það sem okkur dettur í hug.
Lífið er yndislegt, ég geri það sem ég vil......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
20.6.2009 | 15:06
"Á allra vörum"
Vill minna ykkur á "á allra vörum glossinn" sem er ennþá til sölu hjá www.skb.is og þar getiði pantað glossinn, tja og nú ef e-h eru að fara til útlanda með express þá getiði keypt hann þar líka að segja í flugvélunum. Jú ég hef verið að selja hann líka og hef farið í eitt stk Íslandsbankaútibú (útibúið sem ég var að vinna í fyrir langalöngu hehe) og leikskólann hjá krökkunum mínum og seldi þar nánast hverjum einasta starfsmanni en ekki hvað? Ef þitt fyrirtæki eða starfsmennirnir þar vilja kaupa hann þá get ég mætt á staðinn og selt ykkur hann, no problemo!!
Get komið í vikunni ef þið hafið áhuga þá getið haft samband við mig á aslaugosk@simnet.is .
Ég á ennþá nokkra kjóla eftir sem ég get selt ykkur á baby born, 1500kr stk. Hérna er eitt stk mynd. Ef þið hafið áhuga getið sent mér á aslaugosk@simnet.is
Það hafa nokkrir sent mér fyrirspurnir hvort ég sé ekki að prjóna á krakka og selja en svo er því miður ekki, maður er svo miklu lengur af því og svo er ekki mjög langt síðan að ég lærði þetta og vill þá frekar byrja að gera á mínar en ég prufaði að gera einn og hann var á Tönju systurdóttir mína en ég hafði enga aðra fyrirsætu en Hinrik Örn minn en vonandi fyrirgefur hann mér það einn daginn. Ég er með þvílíkt prjónaæði núna er byrjuð á að gera svona kjól stelpurnar mínar og svo verður Eva sæta systurdóttir mín líka heppin að fá svona kjól en ekki hvað?
Töffarinn minn en samt ekki svo mikill töffari í e-h kjól.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
160 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar