Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Vilja engar brúðkaupsgjafir

http://www.visir.is/article/20071116/LIFID01/71115159

Vávh ég fékk alveg gæsahúð þegar ég las þetta.  Fólk er oft að tala um eintaklinga sem eiga endalausa peninga og talar oft illa um það, það er ekki einsog það hefur ekki haft fyrir því að eignast þá.  Ég man svo vel eftir því þegar hann Eiður Smári var valinn íþróttamaður ársins eitt árið og hann gaf verðlauna upphæðina sína til góðgerðamála sem mér fannst æðislegt enda þurfti hann ekkert á þessu að halda en hann var samt ekki skildugur að gefa þetta.  Man hvað fólk var hneykslað á honum því núna var hann að reyna fá meiri athygli og blablabla.  Hvað er málið?  Afhverju má fólk ekki láta gott af sér leiða.  Ef ég ætti trilljónir inná banka myndi ég láta gott af mér leiða, ég myndi ekki sitja sem fastast á þessum trilljónum og láta þær bara firnast í bankanum þegar ég væri dáin.  Einsog margir ríkir einstaklingar gera hér á landi þar að segja þeir eru flestir að ég held bara sem láta gott af sér leiða. 

Hann Jón Ásgeir var t.d. ekki skildugur ásamt pabba sínum og systkin að gefa Barnaspítalanum 300milljónir á sínum tíma, vávh hvað ég væri til í að geta þetta.  Hefði nú samt viljað að Bjórgólfur hefði gefið mér þessa peninga en ekki Ríkissjónvarpinu ehehe ok mér hefði dugað 10%, borgað niður allar skuldir og skreppa svo til Flórida fyrir afganginnW00t.  Draumur í dós!!

Mér langar allavega að gefa Jóni Ásgeiri og verðandi frú hans knús dagsins fyrir að afþakka allar brúðargjafir og gefa frekar til góðgerðamála.  Þið eruð með fallegt hjarta (ok þau lesa þetta ekki en það má samt senda þeim knús).  Það hefði samt verið ótrúlega fynndið ef þau hefðu gjafalista í Tékk kristal og fleiri búðum mhohoho!!

Var annars að koma úr ræktinni, æðislegt að byrja daginn á ræktinni en ætla samt ö-a aftur í kvöld í tímann "minn", vill fara sjá einhverjar breytingar komin með ógeð á sjálfri mér.GetLost

Fórum í gær í heimsókn í verðandi skólann hennar Þuríðar minnar hérna í sveitinni, hittum skólastjórann og vorum á smá fundi útaf hennar þörfum og veikindum.  Ótrúlega gott og gaman að fá þetta tækifæri að hitta skólastjórann svona vel fyrir fram, enda erum við mjög skipulagt fólk.  Við viljum horfa á framtíðina með að Þuríður mín verði heilbrigð annað en sumir í þessu kerfi sem vilja ekki hitta okkur fyrr en alveg frammá það síðasta, sem ég verð ofsalega reið að hugsa um.  Segja bara í opið geðið á manni að hún eigi ekki að vera hérna þannig þau sjá ekki ástæðu að hitta hana strax ef hún félli frá. Devil Hey hvernig lífi eigum við að lifa ef við hugsuðum svona?  Við viljum hafa plön og í þessum plönum er að sjálfsögðu hún Þuríður mín en ekki hvað?  Svo margir plebbar sem vinna í þessu kerfi og segjast vera faglærðir einstaklingar, þeir haga sér ekki svona.  Aaarghhh!!  Þuríður mín fær að heimsækja sinn verðandi skóla eftir áramót sem hún mun ö-a ekki geta beðið eftir enda er einn af hennar stærstu draumum er að byrja í skóla, hún er svo mikið að reyna skrifa stafina sem reyndar gengur frekar erfiðlega en hún er þessi týpa sem gefst ekki svo auðveldlega upp.  Hún getur, hún ætlar og hún skal.  Ótrúlega gaman að fylgjast með henni þegar hún er að reyna ákveðna hluti en getur þá samt ekki (sem er reyndar ekki gaman)en gefst samt ekki upp.  Hún er reyndar farin að átta sig á því að hún getur ekki alla hluti sem krakkarnir í leikskólanum geta sem er ofsalega leiðinlegt, stundum komum við að henni þá situr hún grátandi inní herbergi og segist ekki geta hlaupið með krökkunum.  Ótrúlega erfitt.  Við sjáum samt miklar framfarir hjá henni og þetta er allt að koma hjá henni.

Helgin framundan og það er alveg klikkað að gera, dagarnir fljúga frá mér sem er bara gott.  MArgt að hlakka til á næstu vikum og mánuði en við erum alltaf með það mottó við Skari að hafa eitthvað til að hlakka til við lifum á því.  Engar utanlandsferðir framundan þó ég hefði ekkert á móti því að skreppa í jólalandið í Koben, dreymir um að fara þangað einn daginn með stelpurnar mínar.  Öfunda suma sem eru á leiðinni þangað eheh.  Dóóhh!

Eigið góða helgi Slaugan.

 


Ótrúlega flott

Langaði að skella inn einni mynd af frændsystkunum honum Theodóri Inga mínum og litlu sætu músinni minni henni Evu Natalíu systurdóttir minni.

PB117538


Jólin snemma í ár :)

Ég er ennþá brosandi hringinn og er ekki alveg að ná mér niður enda þarf ég heldur ekkert að ná mér niður ehe!!  Þetta er svoooo mikill léttir, ég er loksins farin að sofa þessu lyf sem ég fékk alla leið frá Boston eru að gera það gott.  Well ég kalla það að vera farin að sofa þó ég vakni nokkrum sinnum yfir nóttina og get alltaf sofnað aftur heldur en að liggja andvaka alla nóttina.  Hin lyfin gerðu mig þunglynda, mjög svo, þreytt allan daginn þó ég hafi sofið um nóttina en þessi sem ég er á núna þá er ég meira vakandi og get gert meira heldur að liggja bara uppí rúmi.  Bara gott.

Jú svo fékk maður þær góðu fréttir frá henni Jóhönnu Sigurðar að hún ætlar að reyna gera betur fyrir foreldra langveikra barna.  Hverju mun það breyta fyrir okkur?  ÖLLU.  Fyrir 5 manna fjölskyldu sem er bara ein fyrirvinna og ég fæ 0kr í "laun" fyrir að eiga veikt barn breytir þetta öllu fyrir okkur.  Það er nú ekki búið að samþykkja þetta en ég trúi ekki öðru en þetta verði samþykkt, ég meina það eru 10 fjölsk. sem eru að fá greiðslur vegna langveikra barna sinna en það eiga 220 fjölsk. rétt á þessu.  Hvursu asnaleg lög eru þetta?  Fáránlegasta í heimi.  Við vorum bara svo "óheppin" að barnið okkar veiktist fyrir 1.janúar 2006 og þá eigum við engan rétt.  Ég verð eiginlega kjaftstopp að hugsa um þetta.  Það er nógu erfitt fyrir foreldra þessara barna að hugsa um barnið sitt og vera með magapínu yfir því hvernig barninu mun líða og hvernig það mun takast á við veikindin sín heldur en líka að þurfa vera með magapínu yfir því hvernig það eigi að borga reikningana sína um mánaðarmótin?  ...eða hvort þau geti haldið jólin?  Ég meina foreldrar eiga ekki að þurfa líka að hafa peningaáhyggjur hitt er barasta miklu meira en nóg.   Ég allavega hrópa húrra fyrir Jóhönnu Sigurðar og hennar fólki fyrir að taka þetta skref því þetta er stórt skref frammá við.  Knús til hennar.

Annars var önnur tían að bætast í hópinn (var í prófi á sunnudadaginn), hmmm leiðinlegt eða ekki.W00t Ótrúlegt en satt þá er ég alveg að brillera í þessu námi held að það sé bara einum of létt fyrir svona mikið brain einsog mig eheh!!  Skil ekki afhverju bankinn sé ekki búin að hafa samband við mig og bjóða mér einhverja forstjórastöðu?  Ekki það að ég gæti tekið henni en skil  það samt ekki ehe!

Púúúfffh ég hef svo mikið að segja en get bara ekki skrifað meir núna, þarf nefnilega að þjóta.  Dagarnir fljúga frá mér og það er alveg brjálað að gera, prófin að byrja.  Þó ég þurfi kanski ekkert mikið að læra fyrir þau en þá er kanski ágætt að kíkja rétt yfir bókina svo ég fái bara tíur, maður fær fullkomnaráráttu þegar maður verður svona "gamall" og sættir sig ekkert við neitt annað en 10.  Ohh boy!!

Endilega kveikið á kertum fyrir hetjurnar sem eiga erfitt núna, megið nota síðuna hennar Þuríðar minnar.  Var nefnilega að frétta af annarri hetju í gær sem á erfitt, erfitt að vera í þessa litla "samfélagi" (styrktarfélaginu) og tengjast öllu þessu fólki sem eiga veik börn.  Svoooo ósanngjarnt.  Nei þessar hetjur eru ekki með heimasíður eða kertasíður en þá er líka alveg hægt að nota okkar.

Þið eruð best og flottust, takk fyrir allt sem þið hafið gert fyrir mig og mína.

P4292176

Hérna eru stelpurnar mínar á afmælinu sínu ásamt bestu vinkonum sínum Skoppu og Skrítlu sem kíktu við í afmælið.


Ég er uppí skýjunum og ég svíf....

Ég er í orðsins fyllstu merkingu svífandi hér í sveitinni, hver sagði að maður þyrfti vængi til þess?  Ohh mæ god hvað er létt yfir manni.  Bestasta jólagjöfin sem ég gat hugsað mér og ég þarf sko ekki neina aðra jólagjöf.  Við fengum þá verstu í fyrra þegar okkur var tilkynnt að hetjan mín ætti bara nokkra mánuði ólifað en hún hefur sýnt það og sannað að kraftaverkin gerast og maður á ALDREI að hætta trúa á þau.  Þetta kraftaverk skal endast alla eilífð og Þuríður mín ætlar að sjá um okkur Skara í ellinni en ekki hvað?

Læknirinn hringdi í mig áðan en hann var að skoða myndirnar aðeins betur og það er þvílík breyting og ég held að þeir skilji bara ekkert í þessu.  Sem betur fer er ekki alltaf að marka þessi læknavísindi og þessi þarna uppi hefur ekki bara verið að bora í nefið, hann hefur verið greinlega hlustað á bænina mína og margra aðra og það væri óskandi að hann myndi gera það fyrir fleiri.  Fengum nefnilega líka slæmar fréttir í gær af annarri hetju sem er mjög veikur og mig langar að biðja ykkur að biðja fyrir honum og hans fjölskyldu. 

Læknirinn okkar í Boston (þessi sem gerði aðgerðina á henni) hefur ekkert viljað gera eða reyna vinna úr myndunum fyrr en hann fengi þessar myndir sem voru teknar í gær í hendurnar.  Þannig næsta skref okkar lækna er að senda þær út og ath hvað hann hefur að segja, það væri óskandi að það væri hægt að gera meira fyrir hana eða þeir segji bara að það er ekki hægt að gera meir því það er svo góða staða á þessu?  Bara ef ég ætti eina ósk sem myndi rætast.

Þuríður mín fór í öll tjekk fyrir myndatökurnar og þá kom í ljós að hún er búin að léttast um 1 og hálft kíló síðan í haust (og lengjast um 0,5cm)og það er ekki gott og við ekki alveg glöð með en það er í lagi einsog staðan er í dag því hún hafði smá utan á sér sem hún "mátti missa" en ekki meira en það.  Lyfin fara nefnilega ekkert svakalega vel í hana þó hún sé að taka ógleðistöflur með en ætli við bætum þá kanski ekki við þeirri þriðju á dag svo hún fari að borða almennilega.  Lystin hennar hefur nefnilega minnkað ansi mikið síðan hún byrjaði í þessari meðferð, þessi kíló hefðu alveg mátt hverfa af mér ehehe en ekki henni.  Annars á að bíða með að stækka krabbaskammtinn hennar þanga til hún er búin að venjast síðustu stækkun því þetta fer dáltið í hana og hún verður mjöööög þreytt en við viljum einsog læknirinn hennar að hún lifi sem eðlilegasta lífi og geti mætt í leikskólann en ekki liggja bara uppí rúmi og vita varla í sinn haus.

svaefing
Hérna er mynd af hetjunni minni uppá vöknun í gærdag, dáltið óskýr enda tekin á símann.

Það var mömmudagur hjá mér og hinni hetjunni minni henni Oddnýju Erlu sem hefur átt dáltið bágt enda finnur hún líka hvernig  mér hefur liðið.  Við höfum átt yndislegan dag, kíktum í þriggja og hálfs árs skoðun sem hún stóðst einsog 6 ára gamalt barn ehe nema hvað hún þarf að fara til augnlæknis og kíkja betur á augun, vona samt ekki að hún þurfi gleraugu en það er nú ekki að versta sem kemur fyrir mann.  Fórum til tannlæknis og hefði nú getað bara byrjað að starfa þarna enda stóð hún sig FRÁBÆRLEGA.  Að sjálfsögðu enduðum við daginn og kíktum í Toys'r us og þar benti hún mér á ALLA hlutina sem henni langar í jólagjöf og það var nánast hálf búðin eheh!!  Henni fannst ótrúlega gaman að skoða allt dótið og fékk að velja jólagjöf handa henni Þuríði sinni, reyndar vildi hún líka fá svoleiðis eheh en það var ekki í boði.

Er búin að lofa henni öðru svona mömmudegi og Þuríði minni líka en það verður víst ekki fyrr en eftir 3.-5.des þegar ég verð búin í prófumGrin.  Fékk mikið hrós frá hjúkkunni uppá heilsugæslu með að hafa svona mömmudag, alltaf gaman að fá hrós.

Elsku bestu lesendur takk æðislega fyrir ÖLL kommentin, þau gera svo ofsalega mikið og ég les alltaf hvert einasta komment sem ég fæ.  Endalausar þakkir, þið eruð æðisleg og þið hafið hjálpað mér mjööööög mikið í gegnum þetta veikindastríð og vonandi fariði ekki að hætta því enda er þessi brátta ekki búin þó við fengum bestustu jólagjöf ever.

Einsog Hemmi Gunn segir veriði hress, ekkert stress, bless bless.


Sjallalalala ævintýri enn gerast

Hvursu oft höfum við fengið góðar fréttir tvisvar í röð af þessum myndatökum?  Svar: ALDREI.  En ævintýrin gerast enn og hvað þá kraftaverkin.  Júmm við förum með Þuríði mína í myndatökur í morgun einsog allir vita sem lesa síðuna, vorum mætt uppá spítala kl níu og loksins fékk Þuríður mín svæfinguna kl ellevu og klukkutíma síðar vorum við komin til hennar á vöknun og það tók hana alveg rúman klukkutíma að vakna eftir það.

Hér erum við komin heim og fengum fund með læknunum degi undan áætlun, sjúbbsjúbbsjarei.  Í fyrsta sinn fengum við góðar fréttir og þá meina ég tvisvar í röð, allt að gerast.  Jebbs æxlið hefur minnkað, trallalala!!  Eintóm hamingja hér í sveitinni.  Það er ekki að þrýsta eins mikið á einsog það var að gera í júní í sumar.  Ef það er ekki stund fyrir að halda uppá eitthvað núna þá veit ég ekki hvað?  Geislarnir gætu verið ennþá að virka eða lyfin sem hún er byrjuð á að gera kraftaverk, við vitum það ekki og ekki læknarnir heldur enda gæti mér ekki verið sama.  Það hefur minnkað og Þuríði minni líður ágætlega sem er best í heimi.  Hnúturinn minnkað í maganum og næstu myndatökur ekki fyrr en í janúar en við viljum ekki fá neinar myndatökur rétt fyrir jólin eða um jólin nema eitthvað færi að breytast hjá henni.  Víííí!!  Hmmm hvernig eigum við að halda uppá þessar fréttir?  Skreppum í jólaland í Koben ehe, neinei það er ekkert svoleiðis.  Ætlum við nýtum ekki helgina í það fjölskyldan og gerum eitthvað saman, kanski komin tími til að skella sér í keiluna?

Það er allavega eintóm hamingja hér í sveitinni, allir hressir og kátir og njótum þess að vera til og saman bara gaman.

Verið hress, ekkert stress bless bless.


Myndatökur og svæfing

Þá er maður að reyna láta Þuríði hafa eitthvað að gera, förum eftir 40mín uppá spítala í ö-a einhverja bið til að komast að.  En Þuríður mín verður að vera fastandi og það er ekki það auðveldasta í heimi að halda henni frá mat ehe.  Reyndar góð í augnablikinu þar sem ég skellti á stöð 2+ og mín er bara að horfa á barnatíman og nýkomin úr baði, hrein og fín sem sagt.  Vonandi þurfum við ekki að bíða of lengi uppá spítala en það er samt betra að bíða þar en heima því þar er erfiðara fyrir hana að komast í matBlush og svo skilur hún ekkert í því afhverju hún má ekki borða.  Dóóóhh það virkaði ekki lengur en það að Þuríður mín er farin að heimta mat, aaargghhh!!  Þetta verða erfiðir ö-a tveir tímar uppá spítala.

Best að fara gera okkur reddí, fáum ö-a niðurstöður á morgun þannig við fyrsta tækifæri mun ég láta ykkur vita.

Knús til ykkar frá okkurGrin.


Ekki nema von

Það er hugarstríð,
ást og hatur alla tíð
hér í heimi, ár og síð.
Þegar myrkrið fer
eins og alda yfir sker,
þegar eitthvað út af ber.

Kannski er það von
sem fleytir ykkur yfir úfið haf.
Ekki nema von,
því hver veit nema færist þið á kaf
á morgun.
Voninn´ykkur veitir ekki af.

Það sem bjargar þér,
heldur vöku fyrir mér,
hversu lítil sem hún er,
gefur þjáðum grið,
leggur bjartsýninni lið
þegar mikið liggur við,

Kannski er það von
sem fleytir ykkur yfir úfið haf.
Ekki nema von,
því hver veit nema færist þið á kaf
á morgun.
Voninn´ykkur veitir ekki af.
Ykkur mun víst ekki veita af.

Kannski er það von
sem fleytir ykkur yfir úfið haf.
Er það nema von,
því hver veit nema færist þið á kaf.
Kannski er það von.
Á siglingunni veitir ekki af
hér að eiga von
því hver veit nema færumst við á kaf
á morgun.
Voninn´ykkur veitir ekki af.

Vonandi þið lifið þetta af.

Myndatökur á morgun

Þá er komið að þeim degi eða réttara sagt á morgun, Þuríður Arna mín fer í  myndatökur á morgun og þá kemur endalaus magapína.  Ég er orðin hrikalega stressuð og kvíður svakalega fyrir þeim kanski ekki myndatökunum sjálfum og svæfingunni en niðurstöðunum sem við fáum væntanlega á miðvikudaginn.  Æjhi þessar biðir eru svo svakalega erfiðar.

Þuríður mín er frekar þreytt þessa dagana en ég vil trúa því að það eru lyfin sem eru að gera hana svona því krabbaskammturinn var stækkaður í síðustu viku og þreytan farin að segja til sín.  Kvartaði undan hausverk í gærkveldi sofnaði mjög snemma þó hún hafi fengið svefninn sinn og það í seinna laginu, en hausverkur getur fylgt þessum lyfjum.  Alltof miklir fylgikvillar það er ekki einsog hún "kveljist" nógu mikið.  Aaaarghhh!!  Fórum í afmæli og hún var farin að biðja um að fá að fara heim eftir ekki svo langan tíma, þolir ekki mikin hávaða greyjið.

Ég fór með hana í sjúkraþjálfun áðan og þó að þreytan sagði mikið til sín og hún var ekki að nenna miklu þá stóð hún sig svakalega vel.  Hetjan mín!!  Hjólaði einsog brjálæðingur sem hún hefur aldrei gert og fór meir að segja að fara útá plan og hjólað að bílnum sem henni fannst mergjað og það skríkti alveg í henni.  Ekki alveg sú duglegasta að stjórna hjólinu, hjólar bara eheh! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það var gaman að sjá hana svona duglega að hjóla og hvað henni fannst gaman, hún hefur nefnilega aldrei hjólað svona á sínu hjóli þó hún hafi sín "hjálpartæki" á hjólinu.

Helgin hjá okkur Skara var æðisleg, fórum í leikhús á "viltu finna milljón" sem var ótrúlega finndin en samt svo vitlaus ehe!!  Hlógum mikið.  Vorum í smá dekri á laugardeginum, lovely.  Í fyrsta sinn fórum við á okkar draumaveitingastað "Humarhúsið" og það var alveg æðislegt, hef aldrei smakkað eins góðan humar.  Slurp slurp. Sváfum út og svo bara slappað af, vávh hvað ég fann að við þurftum á þessu að halda og sérstaklega fyrir stóra daginn á morgun.  Aðeins að gleyma sér og hugsa um eitthvað annað en niðurstöðurnar úr myndatökunum.  Við Skari höfum síðustu þrjú eða fjögur skipti alltaf gert helgina fyrir myndatökur sem við reyndar áttuðum okkur ekki á fyrr en um helgina ehe og þurfum greinilega að gera það alltaf.  Gleyma sér aðeins og njóta þess að vera saman.  Ég er strax farin að hlakka til 8.des en þá munum við fara á jólahlaðborð með fjölskyldunni minni og svo daginn eftir ætlum við að reyna næla okkur í miða á Bjögga Halldórs tónleikana sem yrði nú ekki verra. 

Fyrst að það er rólegt í lærdómnum þá er kanski best að taka smá til í höllinni, var í prófi í gær og kæmi nú mér á óvart ef ég fengi eitthvað lægra en tíunaJoyful.


Besti pabbi í heimi

Elsku pabbi minn á afmæli í dag, hjartanlegar hamingjuóskir með daginn.  Hlakka til að koma til ykkar mömmu á eftir í kökur og krakkarnir að gefa þér pakkann.
Hér kemur sér kveðja til þín tilefni dagsins:
http://www.youtube.com/watch?v=DMiBSt_ODN0

Kv. Slaugan og fjölskylda


Heitt, kalt, heitt, kalt, heitt, kalt

Aaaargghhh vaknaði með beinverki í nótt og er núna annaðhvort að deyja úr hita eða ligg vafin innan í sængina mína.  Þetta er alveg típískt en ég verð að vera búin að hrista þetta úr mér fyrir morgundaginn, ég og Skari eigum nefnilega að vera barnlaus ALLA helgina og ætluðum að njóta þess að vera kærustupar einsog sumir myndu segjaWink.  Þetta á að vera þvílík dekurhelgi hjá okkur, njóta þess að gera allt og ekkert.  Meira að segja erum við búin að panta okkur borð á Humarhúsinu á laugardagskvöldið, okkur hefur alltaf dreymt um að fara þangað að borða en aldrei leyft okkur það en núna var tími til komin að láta einn draum rætast.Pinch  Við ætlum líka að kíkja í leikhús annað kvöld á "viltu finna milljón", oh mæ god ég er þvílíkt spennt og búin að bíða eftir þessari helgi í margar vikur enda var þetta ákveðið fyrir ansi mörgum vikum. Verð að hrista þessi veikindi úr mér ekki seinna en NÚNA.

Ætlaði að vera þvílíkt dugleg að læra í dag en það verður því miður ekkert úr því enda ætla ég að liggja fyrir í allan dag en stalst aðeins í tölvuna, úbbss!!  Ég þarf kanski heldur ekkert að læra eheh var að fá eina tíu, vííí!!  Ég er svo mikið brain!  Afhverju hef ég aldrei nýtt þessa hæfileika mína áður?  Glitnir mun ekki sjá eftir því að hafa styrkt mig þessa önnina en ég var ein af sirka þrjú hundruð sem sóttu um skólastyrk hjá þeim síðasta sumar og var ein af tíu sem fékkTounge, kanski vegna þess þeir voru svo hrikalega ánægðir með mig sem starfsmann og vilja fá mig aftur þegar ég verð búin að læra hemmhemm!!  Þeir borguðu sem sagt skólagjöldin mín þessa önnina og skólabækurnar og sjá ö-a ekki eftir því.  Verst að það eru fleiri fyrirtæki sem sækjast eftir hæfileikum mínum og er ekkert að grínast með það enda verður það heppið fyrirtæki sem fær mig í vinnu. thíhí!!

Þuríður mín er einsog síðustu daga, frekar hress og kát.  Theodór er náttúrlega litli gaurinn á heimilinu sem lætur ekkert bögga sig nema þegar einhver fer að kúra hjá mömmslunni ehe enda mesti mömmulingur ever sem er nú ekkert svo slæmt.  Oddný mín er eitthvað óhamingjusöm, vill fá mömmudag sem hún fær í næstu viku en sem betur fer lætur hún ekkert bögga sig á leikskólanum en þegar hún kemur heim er einsog hún sé eitthvað þunglynd.  Æjhi greyjið, þetta allt saman fer ofsalega illa í hana, hún á mjög erfitt og það verður að passa mjög vel uppá hana.  Langar svo að gera eitthvað skemmtilegt fyrir hana en veit samt ekki hvað?  Veit reyndar að það dugar henni að vera með mömmu sinni í einn dag og gera ekkert en svo er hún líka að biðja um ýmsa hluti sem eru ekki alveg í boði.  Hmmm verð að leggja höfuðið í bleyti og reyna finna eitthvað skemmtilegt fyrir hana?

Púúúfffhh núna er mér hrikalega heitt, ætla að leggjast fyrir svo því ég VERÐ að vera góða fyrir morgundaginn.  Hlakka svo endalaust mikið til helgarinnar og fá að eiga kósý stundir með Skara mínum.

Setti inn samkvæmt beiðni:
"Vigdís Ellertsdóttir er einstæð móðir þriggja barna 9 , 11 og 13 ára.
Fjölskyldan býr í Njarðvík.
Fyrir nokkrum dögum greindist elsti drengurinn, Sigfinnur, með mjög slæmt krabbamein í lifur og einnig fundust meinvörp í báðum lungum þannig að ástandið er ekki gott.
Til að létta undir með Vigdísi og börnum hennar á þessum erfiðu tímum hefur verið opnaður reikningur í Landsbankanum og leitum við til ykkar sem sjáið ykkur fært að láta eitthvað af hendi rakna.

Munum bara að margt smátt gerir eitt STÓRT. Það er engin upphæð lítil.

Reikningur : 0142-05-072955 kkt: 140860-3289 Með kærri kveðju og fyriframm þökk.

VINKONUR.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Nýjustu myndböndin

Þuríður í vaskbaði :)

Hinni rokk

Jólakveðjan 2010

Stóra leyndarmálið

Það vantar ekki taktana :)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband