Bloggfærslur mánaðarins, október 2006
6.10.2006 | 12:46
Toppaði allt saman
Ég er ógeðslega pirruð að lenda í árekstri, vera í órétti sem var ekki einu sinni mér að kenna því ég var að reyna bjarga barninum mínum. Plebbar í umferðinni!!
Ég er ógeðslega þreytt, pirruð, leið útí þennan þarna uppi. Hvað höfum við gert til að verðskulda þetta allt saman? afhverju þarf hann að leggja svona mikið á okkur? Við þolum ekki endalaust mikið. Við erum sterk en ekki svona sterk.
Þuríður mín hefur ekki jafnað sig almennilega, hún er í versta þunglyndi sem til er. Hún grætur endalaust mikið er svo óhamingjusöm enda líður henni ótrúlega illa. Það á að fara minnka lyfin hennar enn eina ferðina svo bíðum við bara eftir myndatökunum í næstu viku og hnúturinn eykst endalaust mikið.
Farin nenni þessu ekki, veitiggi hvort ég nenni almennt að blogga meir. Hef alltof sjaldan að segja frá einhverju skemtilegu og góðu.
Góða helgi og hafiði það yndislega gott um helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
5.10.2006 | 11:06
Ný könnun
Takk fyrir mig!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2006 | 11:02
Meira helvítis fíflið
Þuríður mín er bara í rólegheitunum hérna heima enda vafin í bómul, bara dekrað við prinsessuna heima og henni finnst það ekki leiðinlegt. Reyndar er hún ekkert orðin góð, borðar ekkert en ég hef að troða í hana uppáhaldinu "kakómalti" sem er betra en ekkert. Þarf að reyna finna eitthvað gott að borða fyrir hana, aaargh veitiggi alveg hvað það gæti verið þar sem hún borðar ekki einu sinni uppáhaldið sitt cocopuffs né ís þannig þá er eitthvað að?
Hef lítið að segja í dag, gjörsamlega búin á því að berjast við þetta plebba lið og sjá um Þuríði mína veika uppá spítala (sem betur fer komin heim).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2006 | 12:38
Færsla nr.2 í dag, heppin þið!!
Það er alltaf svo gaman hjá okkur börnunum þegar ég keyri stelpurnar á leikskólann á morgnana, við erum nebbla alltaf með útvarp Latabæ í botni á leiðinni í leikskólanum og syngjum hátt og vel með hverju laginu sem er endalaust gaman. Theodór Ingi byrjaði að tjútta með fyrir nokkrum vikum enda mjög tónlistaglatt barn einsog hinar tvær og svo í morgun byrjaði hann að tralla líka með og það var líka ótrúlega fyndið því hann söng svo hátt. Þau eru æði þessi börn mín.
Svo um daginn vorum við reyndar EKKI að hlusta á útvarp Latabæ, var reyndar bara með bylgjuna í gangi og þá kemur eitt af mínum uppáhalds lögum í spilum og þá heyrist í Oddnýju Erlu
"mamma er þetta Stebbi Hilmars?"
Ég: "já þetta er hann"
Oddný: "já ok, hann er skemtilegur, mamma viltu hækka í útvarpinu".
Og svo byrjaði hún að syngja með laginu en þetta er hennar uppáhalds lag líka, æjhi gvuuuð hvað það er alveg dottið úr mér hvað lagið heitir en það er um strákinn hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.10.2006 | 12:01
Afhverju má ég ekki líka hjálpa?
Það er eitt sem mér finnst doltið leiðinlegt í kringum veikindin hennar Þuríðar minnar, jú allir eru tilbúnir að hjálpa okkur og alltaf að vera tilstaðar sem mér finnst nottla æðislegt enda værum við ekki búin að geta gengið í gegnum þetta allt saman nema með ykkar hjálp meðal annars. Takk fyrir það!!
Málið er að engin vill mína hjálp, skiljiði? Mér þætti líka vænt um það ef einhver bæði mig um hjálparhönd, eyra til að hlusta eða eitthvað annað en engin vill það því "ykkur" finnst við hafa nóg með okkur. Að sjálfsögðu koma mjög erfiðir kaflar hjá okkur en inni á milli eru þeir líka "góðir" en að sjálfsögðu langar mig líka að hjálpa. Vitiði það, það dreifir bara mínum huga að geta líka hjálpað ykkur ég verð líka að fá að gefa eitthvað á móti. Fólki finnst mjög erfitt að skilja það eða allavega vill aldrei bögga okkur.
Einsog sumar vinkonur mínar vilja ekki lengur leita til mín því þeim finnst ég hafa nóg með mitt, en ég hef gott eyra og finnst líka gott að hlusta á vandamál annarra og gefa ráð ekki bara láta hlusta á mig.
Ég einmitt skammaði frænku mína um daginn en hún er alltaf tilbúin að hjálpa mér við hitt og þetta en hún gat varla beðið mig um að passa börnin sín í smátíma eða réttara sagt átti mjög erfitt með það en að sjálfsögðu vildi ég passa enda finnst stelpunum ekki leiðinlegt að fá frændsystkin sín í heimsókn og fá ða djöflast með þeim.
Líka um daginn var ég að tala við þessa sömu frænku (vonandi fyrirgefur hún mér að segja frá þessuy eheh en þið vitið heldur ekkert hver hún er). En þá vorum við að tjatta saman og svo segir hún mér að yngra barnið sitt sé búið að vera svo veikt, illt í eyrunum og með mikin hita og svo í miðju samtali kemur svo alltíeinu hljóð. Þá heyrðist í henni eftir smástund "æjhi hvað er ég að kvarta, hún er ekkert jafn lasin og Þuríður". Heyhey þá stoppaði ég hana, hurru frænka sko dóttir þín getur alveg átt bágt einsog Þuríður mín og að sjálfsögðu finnum við til með börnunum okkar þótt þau séu "bara" með flensuna en þau þjáðst og finna til þótt veikindin séu ekki sömu og Þuríðar.
Auddah vill ég líka heyra kvart og kvein frá ykkur alveg sama hvursu stórt eða smátt það sé, ég er ekki ein í heiminum. ÞEtta dreifir bara mínum huga líka, ég vill líka að fólk finnist ég ómissandi einsog í denn. Skiljiði hvert ég er að fara?
Þannig ef ykkur liggur eitthvað á hjarta þá megiði alveg böggast í mér líka ekki bara ég í ykkur.
Takk fyrir það!!
Annars er Þuríður mín öll að hressast, hún má meir að segja fara heim í dag. Gildin fara hækkandi hjá henni æjhi ég er samt hrædd um að þeir eru að senda hana of snemma heim þar að segja að við verðum aftur mætt hérna á föstudaginn eða laugardag. Æjhi frekar vill ég vera einn eða tvo daga lengur, well svona er lífið henni verður bara vafið í bómul heima. Hún er allavega að hressast sem er gott, vííí!!
Ég er samt búin á því, algjörlega!! Hlakka til að komast í burtu í næstu viku með Skara mínum og hlaða aðeins batteríin sem þurfa virkilega á hleðslu á að halda, vona allavega að við komumst og Þuríður hressist meira.
Farin að gefa börnunum mínum að borða þar að segja Theodór og Þuríði en við erum bara þrjú uppá spítala, Skari þarf að sjálfsögðu að sinna sinni vinnu. Við lifum víst ekki á loftinu ehe!!
Þanga til....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2006 | 10:46
Partý-myndirnar komnar inn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2006 | 10:22
Mjög slöpp
Hún borðar ekkert né drekkur eða sama sem ekkert sem er ekki gott, reyndi meira að segja troða í hana íspinna þegar ég mætti á svæðið í morgun en það var ekkert að virka. Mar reynir allt sem manni dettur í hug en henni greinilega líður ekki vel og er eitthvað óglatt þar sem hún neitar öllu matarkyns og öllu líka sem hún elskar. Ekki gott!!
Einsog ég hef sagt þá er hún farin að sýna alltaf meiri og meiri lömun sem er verst í heimi. Andsk... djöh... helv... Höfum líka verið að ræða það EF alltaf EF þetta og EF hitt við doktorana áðan,jú að sjálfsögðu legst mar oft í það versta en vonar það besta og þá vill mar líka vita hvað þá? En við ætlum ekkert að hugsa meira um það fyrr en annað kemur í ljós, tökum einn dag í einu.
Skil ekki afhverju það þarf að leggja svona á nokkurn mann, afhverju er lífið svona ósanngjarnt. Afhverju getur hún ekki átt eðlilegt líf, leikið sér við krakkana á leikskólanum(eðlilega meina ég, hún kann nebbla ekkert þannig að leika sér), ekki verið alltaf undir svona stanslausu eftirliti, getum aldrei leyft henni að vera einni fyrir framan blokkina því hún getur fengið krampa og þá má hún ekki vera ein við þurfum að vera hjá henni til að halda í hendina hennar, hún er líka svo hvatvís vegna lyfjanna sem hún er á þannig mar veit aldrei hvað henni dettur í hug. Ohh ég er svo reið!!
Hvernig fyndist ykkur að vera í fangelsi á ykkar eigin heimili vegna nágranna ykkar? Nei ég bara spyr!! Ég er ennþá reiðari núna, grrrrrrrrrrrr!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2006 | 13:32
Myndatökur
Hún er orðin miklu slappari en hún var í morgun, er að taka sinn annan dúr og klukkan bara orðin hálftvö. ÞAnnig þið getið ímyndað ykkur hvursu slöpp hún sé allavega þeir sem þekkja hana, fékk mjög stóran krampa og er rotuð núna. Óþolandi þessir krampar!!
Hún er farin að sýna meiri og meiri lömun, Ólafur doktor var einmitt að nefna það að hann væri farinn að sjá meiri lömun í útlimum hennar og við erum líka farin að sjá lömun í munni eftir krampa. Ég vona svo heitt og innilega að það bendir ekki til breytinga í æxlinu sem gætu verið miklar líkur en hún er að fara í myndatökur 10.okt daginn áður en við ætlum að fara í foreldraorlofið okkar. Við erum líka búin að nefna við alla okkar lækna að við viljum ekki heyra neinar niðurstöður fyrr en við komum heim alveg sama hvort þær séu góðar eða slæmar. Shit hvað mér er illt í maganum orðið. Þannig við munum fara á fund með þeim á mánudeginum 16.okt og heyra allt það helsta, oh mæ god mér verður bara óglatt við þessa tilhugsun enda hvílir þetta þvílíkt á manni. Ég vildi óska þess að við værum bara að berjast við nágranna okkar en ekki þetta þá væri svo mikið í skýjunum. Díssúss mar hvað þetta hvílir á manni.
Vonandi fáum niðurstöðurnar úr lungamyndatökunum sem fyrst og ég kem með fréttirnar fyrst hingað. Vííí!!
Farin að sinna litla pung!!
pssssssss.sss ný könnun!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.10.2006 | 11:31
Í einangrun!!
Þar sem hún er svona lág í öllum gildum búumst við því að vera hérna alla vikuna, við vitum líka að Þuríður er hörku kerling þannig hún verður fljót að ná sér en ekki hvað?
Theodór er hjá okkur uppá spítala og svo á eftir kemur Oddný Erla og þar á eftir ætlar Þura tengdó að mæta á svæðið og vera hjá nöfnu sinni í nótt. Brjálað að gera hjá okkur Skara, neinei ekkert svo en alltaf gott að fá hjálp sérstaklega með tvö önnur börn þótt hinum tveimur leiðist ekkert svakalega mikið að vera hérna á spítalanum sérstaklega útaf öllu dótinu.
Mér finnst líka mjög erfitt að vera ein heima með börnin útaf ástandinu í blokkinnni annars hefði ég ö-a bara farið á Dragó og gist þar með börnin. Andskotans plebba lið!! Hef mikið verið að pæla í því að hafa samband við Björgólf og ath hvort hann ætti ekki nokkrar millur í hægri vasanum og hjálpað mér að kaupa íbúð en ætli ég geri það nokkuð þar sem ég þekki ekki manni, damn!!
Ætli ég láti þetta ekki duga í bili, er svo ógeðslega þreytt, pirruð, reið og ennþá reiðari.
Kveðja
Slauga í íbúðarhugleiðingum (Bjöggi júhú)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2006 | 21:32
Komin inná spítala :(
Meira á morgu.......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
343 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar