Færsluflokkur: Bloggar
23.8.2012 | 09:39
Fyrsti skóladagurinn....
Fyrsti skóladagurinn hjá Gull-drengnum mínum er í dag og hann var svona líka spenntur en líka rosalega kvíðinn, er ekki alveg sáttur við það að geta ekki verið í fótbolta allan daginn einsog hann gat í leikskólanum. Endalaust flottur þessi drengur!!
Rokkarinn minn var ekki sáttur að fá ekki að byrja í skóla líka en hann verður víst að bíða í tvö ár í viðbót.
Maístjarnan mín var rosalega spennt að byrja í skólanum í morgun, knúsaði alla sem hún hitti, hvort sem það var skólastjórinn, umsjónarkennarinn hennar nýji eða bekkjarfélagar. Blómarósin mín var heldur róleg á þessu öllu en samt sátt að byrja í skólanum aftur og hitta vinkonurnar.
Það er líka ofsalega gott að fá rútínuna aftur en ég sjálf ætla að taka eina grein í fjarnámi þar sem ég á bara tvær greinar eftir til útskriftar og vonandi bara höndla ég það "álag" líka - fínt að geta gleymt sér í einhverju sérstaklega á kvöldin þar sem ég er ekki mikið fyrir að horfa á sjónvarpið.
Svo styttist óðum í rannsóknir Maístjörnu minnar eða 18.sept og kvíðin er strax farin að gera vart við sig en maður hefur geta "gleymt" sér smá í sumar svo ég held að ég þurfi að plana eitthvað skemmtilegt næstu þrjár vikur svo ég get haldið áfram að "gleyma" mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.8.2012 | 22:50
Maístjarnan mín....
Dagarnir hjá Maístjörnunni minni eru ofsalega misjafnir en einsog miðvikudagurinn sem var hreint "helvíti" fyrir hana en hún var krampandi yfir allan daginn, sofnaði svo í lokin í fanginu hjá mér algjörlega búin á því. Á fimmtudeginum var hún hrikalega hress, ryksugandi og þurkandi af í allri íbúðinni en hún elskar að hjálpa til - jújú hún var fljót að þreytast en samt allt annar dagur og dagurinn á undan. Sem betur fer eru góðu dagarnir fleiri en þeir slæmu.
Góðar fréttir frá Greingarstöðinni. Þrátt fyrir að Maístjarnan mín greindist aftur í maí'10 og átti ROSAlega erfitt ár þá eru samt pínulitlar framfarir bæði andlega og líkamlega sem er bara FRÁbært:) Það eru mjög litlar framfarir en einsog ég hef sagt þá eru framfarir ALLTAF framfarir - þrátt fyrir að vera 10 ára gömul þá er hún ekki á við 10 ára gamalt barn í þroska vegna sinna veikinda en mér finnst samt ekki öllum koma við á hvaða þroskastigi hún er. Hún sýnir framfarir og það er nóg fyrir mig.
Hún getur þetta - hún ætlar og hún skal!!
Við höldum bara áfram uppbyggingu og vonandi í byrjun næsta mánaðar fær hún eitt "hjálpartæki" til að halda áfram að hjálpa sér að byggja sig upp en það tengist einu "verkefni" sem ég hef verið að vinna í sem þið fáið að vita í lok mánaðarins. (mjög spennandi - þá aðallega fyrir mig og auðvidað Maístjörnuna mína) Annars finnst mér að hún ætti að fá Fálkaorðuna fyrir að sýna það og sanna að ALLT er hægt ef viljinn er fyrir hendi :)
Maístjarnan mín er sem sagt búin að eyða síðustu viku í þroskamati á Greiningarstöðinni og sálfræðingurinn sem hún hitti núna og fyrir fjórum árum átti ekki til orð yfir því að þetta hefði verið sama barnið og hún tók í greiningu fyrir fjórum árum. Mér finnst líka mjög merkilegt að það var sami sálfræðingurinn sem tók hana í sömu prófin því að er sko ekki sjálfgefið í dag, það er alltaf að koma nýtt og nýtt starfsfólk en ekki þarna. Hrós fyrir það!!!
Vorum annars að koma af Þingvöllum, kíktum í berjamó og berin voru EKKI mörg þar - sem var eiginlega aukaatriði þar sem börnin elskuðu að vera úti í náttúrunni og týnandi eitt og eitt ber svo enduðum við í einni lautinni og grilluðum okkur hamborgara, bara yndislegt!!
Eigið góða helgi - við ætlum að njóta okkar í menningunni og svo má ekki gleyma KR-leiknum sem er á morgun, farin að strauja sparifötin. (KR-fötin)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.8.2012 | 19:37
"mamma ég er hrædd við krabbameinið"
Sagði Maístjarnan mín við mig einn daginn en hún var búin að vera ofsalega leið allan daginn og ég spurði hana hvað væri eiginlega að og þá var þetta svarið. Hún er greinilega að átta sig á þessum veikindum sem er "gott" því það er þroskamerki. Einsog í dag tilkynnti hún mér það að hún myndi aldrei lagast í höfðinu "væri alltaf svo illt" en ég vona svo heitt og innilega að hún hafi rangt fyrir sér þar. Einsog mömmunni þá þráum við ekkert meira en veikindalaust líf og erum alltaf að bíða eftir nýjum kafla en þessi kafli er orðin frekar langdreginn.
Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég öfundast mikið (á góðan hátt) og samgleðst að sjálfsögðu þegar ég sé börn og fullorðna klára sína meðferð og verða heilbrigð á ný, eitthvað sem við erum búin að bíða eftir í tæp átta ár. Hvenær getum við farið að fagna heilbrigðu lífi? Í staðin er maður alltaf að kynnast nýjum og nýjum veikum einstaklingum og horfir á eftir sumum sem er erfiðast í þessu veikindastríði. En ég er samt ofsalega þakklát að hafa kynnst öllu þessu flotta fólki því þau eru þau EINU sem skilja mig/okkur BEST og hvað við erum að ganga í gegnum. Ofsalega gott að geta talað við fólk sem skilur mann.....
Sumarið hjá Maístjörnunni minni er búið að vera alltílagi eða samt eiginlega í betri kantinum, jújú hún er búin að vera ofsalega þreytt, rosalega hress eða þetta er bara svona rússíbani sem fer hratt upp og hratt niður. En hún er búin að njóta sín og fer inn ef hún er ekki að þola hitan eða sólina, leggur sig ef henni finnst hún þreytt svo hún hefur algjörlega ráðið ferðinni sjálf. Þannig við höfum alveg notið okkar. Ég fékk reyndar salmonellu fyrir 11 dögum - ekki það skemmtilegasta en er öll að koma til en við Skari skelltum okkur til Spánar 24.júlí fyrir gjafabréf sem ég vann í einum leik á netinu og höfðum það sjúúúúklega gott fyrstu fimm dagana en síðustu tvo lá ég bara fyrir að "drepast".
Hérna er ég mætt á bráðamóttökuna sama dag og ég lenti til að fá vökva og í allskonar rannsóknum.
Svo ætla ég að leyfa ykkur að sjá nokkrar frá sumrinu okkar:
Þessi bók er lesin á hverju kvöldi af Blómarósinni minni (Íslendingar á ÓL)en hérna er hún sofnuð við lesturinn en ég held að þetta sé eina kvöldið hennar í sumar sem hún sofnaði í sínu rúmi en eftir að Bjarnabófarnir kíktu í heimsókn til okkar í byrjun júní þá hefur hún alltaf að þurft að sofna annað hvort uppí hjá okkur eða á gólfinu (á dýnu inni hjá okkur)en hún getur ekki sofið inní herbergi sínu því hún er svo hræddum að þeir mæta aftur á svæðið þegar hún er sofandi.
Konan varð 35 ára 12.júlí og Sjarmatröllið mitt fékk að velja afmælisköku sem var risaeðla en þessi kaka var gerð af henni Írisi Björk bakaranema ef þið viljið sjúklega flottar kökur. En tilefni afmælis míns þá fengu krakkarnir að velja hvernig við myndum eyða deginum og það var sko draumadagur fyrir þau og okkur Skara að sjálfsögðu. Fengu köku í morgunmat, fórum í bíó á Ísöld, kíktu í skemmtigarðinn og svo endað á Fabrikkunni. Algjör drauma-afmælisdagur.
Ég ELSKA þessa mynd af Maístjörnunni minni en hérna er hún að horfa á 20 ára gömul myndbönd af mömmu sinni og henni finnst það einsog þið sjáið mega fyndið.
Gull-drengurinn minn að sjálfsögðu í fótbolta en hann veit ekkert skemmtilegra en að spila fótbolta og hann myndi gera það allan sólarhringinn ef hann gæti. Hann var einmitt að klára viku í fótboltaskólanum og ætlar að sjálfsögðu að fara aftur í næstu viku en þessi mynd var tekin af "áhugaljósmyndara" hjá Fylki, man ekki alveg hvað hann heitir. Gull-drengurinn minn er einmitt að stíga stór skref í haust og er að fara í skóla, bara gaman!!
Fjársjóðurinn minn - held að það sé ekki hægt að vera ríkari, peningar hvað???
Svo að lokum en hérna er mánaðarlyfjaskammtur Maístjörnu minnar - ekki skrýtið að hún sé komin hundleið á að taka þessi lyf sín.
Eigið góða helgi...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.7.2012 | 14:33
.....
Stundum verð ég svo leið,
og mér líður ei vel,
og mig langar að sting'af frá öllu
og hverfa og skríða inní skel.
En ég herði mig upp
og ég hugsa með mér
hvernig allt gæti verið svo margsinnis
marsinnis verr'en það er.
Æji þetta eru "þessir" dagar, Maístjarnan mín er ekki hamingjusöm, hún er ofsalega leið, nýtur sín enganveginn í neinu og kvartar dáltið undan hausverk. Það er ofsalega erfitt og sárt að horfa á hana - manni langar að gera eitthvað til að gleðja hana en hún vill helst bara vera heima, liggjandi uppí sófa. Þegar henni líður svona þá líður mér helmingi verr....
Ég er farin að kvíða dáltið fyrir næstu viku en þá fara drengirnir mínir í sumarfrí frá leikskólanum og hún má ekki vera svona þá því þá getum við ekkert gert. Það er nefnilega oft erfitt að vera systkini langveiks barns því þá veltur allt á líðan þess og oft erum við kanski byrjuð á einhverju skemmtilegu og verðum að hætta í miðjum "leik" því hún þolir ekki meir og verður að fara inn að hvíla sig og auðvidað er erfitt að sætta sig við það. "Afhverjru fær Þuríður alltaf að ráða?". Þetta er oft erfitt fyrir alla!!
Annars fékk ég ofsalegar skemmtilegar fréttir í síðustu viku, ég vann ferð fyrir tvo til Evrópu með Icelandair. Ekki leiðinlegt! Auðvidað langar öllum að fara á heimilinu en það er víst ekki í boði enda það besta í stöðunni er að við Skari förum eitthvað tvö í afslöppun að gera ekki neitt nema liggja og hvíla okkur, sleikja sólina og kanski sendi ég hann eftir einum kokteil á dag fyrir mig. Okkur langar allavega mikið til Spánar svo við erum að spá og spegulera, reyndar langar mig líka mikið á ÓL en það kostar víst hálfan handlegg og ekki möguleiki að fá miða á neina viðburði sem mig langar á einsog handboltalandsliðið og sjá meistarann og flottustu fyrirmynd ever Rögnu Ingólfsóttir badmintonkonu. Ég fer bara þegar börnin mín fara og keppa í staðin og horfi á þau en þessa bók hér fyrir neðan er Blómarósin mín að lesa - hún les hana alltaf fyrir svefninn, er hálfnuð með hana þar sem hennar draumur er að komast á ÓL, ekki seinna vænna að fara láta sig dreyma 8 ára gömul.
Maðurinn er ekki stærri en draumar hans, hugsjónir, vonir og áform. Manninn dreymir og með því að láta drauminn rætast er það draumurinn sem skapar manninn.
Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.6.2012 | 11:54
Rússíbaninn heldur áfram....
Ég er bara búin á því - erfiður dagur hjá Maístjörnunni minni á mánudag og þá bognaði ég ekki bara heldur brotnaði niður fyrir framan fjöldan manns sem ég skammast mín engaveginn fyrir.
Ætlaði að skrifa ótrúlega margt og mikið en bensínið er búið.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
20.6.2012 | 09:25
Síðasta færslan mín um Bjarnabófana......
En ég vil samt taka það framm að það kom maður hérna á föstudaginn til okkar og gaf Maístjörnunni minni nýja myndavél og honum gat ekki verið meira sama þótt við fengjum hana greidda frá tryggingafélaginu (sem við fáum augljóslega EKKI), honum langaði bara að gleðja hana sem ég er endalaust þakklát fyrir enda var hún gjörsamlega í skýjunum. Hennar myndavél var líka afmælisgjöf sem hún fékk 20.maí og tekin jafn snögglega af henni.
Svona eru tryggingafélög í dag!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
17.6.2012 | 09:31
Gleðilega þjóðhátíð...
Tilefni dagsins þá langar mig að sýna ykkar lang flottasta 6 ára strák sem ég þekki - verðandi fyrirsæti og atvinnumaður í fótbolta.
Gull-drengurinn minn var að útskrifast af leikskólanum sínum í síðustu viku og það var ofsalega falleg og skemmtileg stund, gott að geta gleymt sér í einhverju skemmtilegu.
Að sjálfsögðu fór maður í sitt fínasta enda stór dagur - minn maður að fara í skóla í haust.
Stolltur verðandi skólastrákur en mér finnst ofsalega sniðugt af leikskólanum að kveðja þau með tré sem fá að gróðursetja sjálf til minningar um þennan flotta leikskóla. Við ætlum að byrja á því að setja það í pott á pallinum okkar og svo er aldrei að vita um framtíðina.
Dagarnir eru annars búnir frekar erfiðir en sem betur fer koma svona skemmtilegir dagar til að gleyma sér í enda á ég líka fjögur fullkomin börn sem ég þarf að hugsa um og passa að þeim líði vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.6.2012 | 12:38
Skilaboð til ykkar sem brutust inn til okkar.
Ég vona að ykkur líði vel á sálinni að vera eyðileggja líf annarra en ekki bara ykkar. Hvernig haldiði að fjölskyldum ykkar líði? Ég finn til með þeim. En ég finn EKKI til með ykkur, þið hafið VAL en ekki einsog Þuríður MÍN sem hefur barist við illkynja heilaæxli 75% af ævi sinni. Við viljum glöð skipta við YKKUR og við fáum YKKAR val
Eftir að þið höfðuð farið innum herbergisgluggann MINN, labbað á MÍNU rúmi, hent lyfjum Þuríðar MINNAR útum allt, farið í alla skápana MÍNA, rótað í öllum MÍNUM eignum og tekið "allt" sem við EIGUM og allt sem börnunum MÍNUM þykir væntum þá líður mér fáránlega illa.
Ég get ekki verið heima hjá mér EIN einsog mér fannst það notalegt, ég get ekki hugsað mér ef ég verð einhverntíman ein heima að fara í sturtu einsog mér fannst það líka notalegt. Þegar ég var nýbúin að fara útað hlaupa á morgnanna og skella mér í heitt og langt bað, það get ég ekki hugsað mér að gera. Ég get ekki setið á pallinum heima hjá mér með ipodinn í eyrunum því ég er svo hræddum að þið birtist á meðan ég hef það notalegt, ég gæti ekki hugsað mér að leggja mig á morgnanna ef ég væri ein heima. Ég er alltaf hræddum að þið birtist hérna heima hjá MÉR þar sem mér á að líða VEL en þið hafið tekið þetta ALLT frá mér. Allt mitt ÖRYGGI þar sem mér á að líða BEST. Ég vona að ykkur líði vel með það.
Ég get ekki sofnað á kvöldin því ég er svo hrædd við að loka augunum þar sem ég sé íbúðina mína bara í rúst eða einsog ég kom að henni og ef ég sofna þá fæ ég martraðir. Þegar ég kem á daginn ég verð ég að byrja á því að kíkja innum gluggann á útidyrahurðinni því ég er svo hræddum að þið séuð þarna inni. Mér líður illa að fara í fataskápinn MINN þar sem þið rótuðuð í honum, mér líður illa í fötunum MÍNUM, mér líður illa að sitja í sófanum MÍNUM því kanski voru þið í honum. Ég veit að þið fóruð í ísskápinn MINN og við það líður mér illa, ég veit líka að þið fóruð í hnífaparaskúffuna MÍNA þar tóku þið hnífa sem þið notuðuð við að brjóta upp bauk barnanna MINNA og taka pening sem ÞAU voru búin að vera safna sér inn.
Þið fóruð uppí skáp og tókuð veski stelpnanna minna, pening sem ÞÆR voru búnar að safna sér inn og voru ótrúlega montnar með það því þær ÆTLUÐU að kaupa sér eitthvað sem ÞEIM langaði í. Þið tókuð myndavélina hennar Þuríðar minnar sem var hennar HENNAR draumagjöf og hún skilur enganveginn í því afhverju hún fær hana ekki tilbaka, þið megið alveg skila okkur myndunum sem hún tók en okkur gæti ekki verið meira sama um myndavélina sjálfa.
Þið eruð gjörsamlega búnir að RÚSTA sálinni minni, einsog ég sagði hér að ofan þá gat ekki sofnað á kvöldin en með hjálp lækna stelpu minnar þá fékk ég lyf til að hjálpar mér til þess og það tókst í gærkveldi en hvursu lengi mun það endast, veit ég ekki???
Mér finnst þið vera allsstaðar, mér finnst þið vera fylgjast með okkur einsog þið voruð væntanlega að gera þegar við fórum útur húsi á föstudaginn.
Þið eruð búnir að rústa sálum stelpnanna minna, eldri stelpan mín sá að það var opið útá pall í gær "mamma afhverju er opið?". Ég spurði hana að sjálfsögðu hvort það mætti ekki vera opið, "nei" það mátti ekki og hún lokaði og læsti hurðinni því hún er svo hrædd að þið komið aftur. Við komum heim áðan og hún lokaði hurðininni og tók nokkrum sinnum í hurðahúninn "já mamma það er vel læst núna". Ég vona að ykkur líði vel með þetta.
Yngri stelpan mín (8ára) sem hefur þurft að þola margt í gegnum veikindi stóru systur, fer ekki ein út að hjóla því hún er svo hrædd að þið komið til hennar, hún þorði ekki í bekkjarafmæli í gær, hún þorir ekki uppá næstu hæð í blokkinni okkar, hún sefur ekki ein, ég þarf helst að halda í hendinna hennar þegar hún fer að sofa og sefur á milli okkar. Hún passar að allt sé vel lokað og læst og ég vona að þið séuð stolltir af ykkur, þið hafið eyðilagt öryggi dætra minna.
Við fjölskyldan vorum nýbyrjuð að bera út Moggann því okkur langaði svo að hafa eitthvað til að hlakka til og safna okkur fyrir utanlandsferð sem við gætum kanski farið næsta sumar, þetta á að vera OKKAR. En nei þið hafið tekið það af okkur - ég get ekki hugsað mér að vera "ein" á ferli kl fimm á morgnanna. Takk fyrir það!!
Já ég vona svo sannarlega að þið séuð stolltir af gjörðum ykkar, gjörsamlega trampa á okkur og eyðileggja svo margt fyrir okkur og ekki bara okkur heldur öllum hinum sem þið hafið brotist inn til. Ég hef heyrt í mörgum sem hafa verið í sömu stöðu og við og ein af þeim sem ég hef hitt en það eru 12 ár síðan það var brotist inn hennar og henni er ekki enþá farið að líða vel en hún flutti strax útur íbúðinni sinni og það hafa margir gert sem hafa lent í sama og við. Ég ætla EKKI að leyfa ykkur að hrekja mig útaf OKKAR heimili, ég ÆTLA að láta mér líða vel, ég ÆTLA mér að láta börnunum líða vel og finna öryggið sitt aftur. Það mun taka tíma en okkur MUN takast það.
Ég vona að ykkur líði vel með þetta, ég vona að ykkur líði vel hvað þið hafið eyðilagt mikið fyrir OKKUR.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.6.2012 | 08:19
Þetta er virkilega SKÍTT!!
Sumarið sem átti að vera það besta hingað til breyttist í martröð. Við höfum fengið eitt súper gott sumar síðan Maístjarnan mín veiktist'04 og þetta átti að vera sumarið númerið tvö, við ætluðum svo að njóta þess í botn að vera saman. Vávh hvað ég ætlaði "bara" að njóta þess að vera heima með þau hérna í sveitinni okkar en ég get það ekki lengur, mér líður ekki lengur vel HEIMA hjá mér.
Ég get ekki verið ein heima, ég hefði átt að vera ein heima eftir hádegi í gær en gat það ekki, ég gat ekki hugsað mér að fara heim og stinga lyklinum í skráargatið - ég var svo hræddum að þessi sama sjón myndi birtast mér einsog á föstudag. Jú ég veit að það eru litlar líkur á því en ég er samt hrædd, þessi sjón fer ekki úr huga mínum. Sjá að einhver hefði labbað í rúminu mínu, rótað í lyfjum Maístjörnu minnar, sturtað úr þeim yfir allt eldhús og stofu, rótað í öllum skápum, tekið bauk barnanna minna og brotið hann upp (ég er búin að henda tveimur hnífum sem þeir notuðu við það), hent öllu um koll í svefnherberginu mínu, farið inní ísskápinn minn, farið inní "brúðkaups"skápinn okkar og tekið þar hluti sem mér eru mikilvægir. Þetta hryllir mig!
Maístjarnan mín skilur enganveginn afhverju hún er ekki búin að fá myndavélina sína sem var henni svo kær - allar myndirnar sem hún var búin að taka eru farnar - "mamma hvar er ipodinn minn?". Nei hún skilur þetta enganveginn, hvað þá hvar eru peningarnir sem ég var búin að safna og ég ætlaði að kaupa mér fyrir en það var síðasta sem hún spurði mig um í morgun. .....ég varð að plata hana og segja henni að það væri á kortinu mínu en auðvidað eru þeir ekki þar, sagði henni bara að við yrðum að nota það þegar hún ætlaði að kaupa sér eitthvað fyrir þá en hún er ekki sátt.
Þeir stálu ÖLLU, þeim er ekkert heilagt en jú við erum búin að fá hluta þýfsins en einsog ég hef sagt áður þá gæti mér ekki verið meira sama um það allt saman nema myndavél Maístjörnu minnar þar sem allar hennar flottu myndir sem hún var búin að taka og mig langar bara að hætta að vera með þetta kramda hjarta, mig langar að öðlast öryggið mitt aftur, mig langar að líða vel á mínu EIGIN heimili þar sem ég elskaði að vera, fannst oft notalegt að vera ein heima en það er enganveginn í boði á næstunni. Mig langar að henda ÖLLU út og byrja uppá nýtt.
Blómarósinni minni (8ára) líður hörmulega, hún hangir utan í mér, þorir ekki að vera ein en hún var farin að þora að vera ein heima á meðan ég skrapp útí búð en þeir eru gjörsamlega búnir að brjóta hana líka niður. Hún sofnar uppí hjá okkur á kvöldin en ég verð að vera hjá henni þanga til hún sofnar, við ætlum bara að taka einn dag í einu í þeim málum. Hún verður ekki pínd til neins og ekki ég heldur.
Maístjarnan (10 ára) mín skilur ekki afhverju hún fær ekki dótið sitt einsog ég sagði hér að ofan og er eitthvað að átta sig á þessu öllu en hún á við mikla þroskahömlun vegna sinna veikinda bæði andlega og líkamlega. Þegar hún var t.d. að fara sofa á laugardagskvöldið þá mátti hún ekki heyra þrusk frammi þá byrjaði hún að "ofanda" og var virkilega hrædd en ég sé hana ekki oft hrædda eða smeyka.
Já þetta er SKÍTT og hrikalega erfitt!!
Við hittum prestinn okkar uppá spítala hann Vigfús Bjarna sem hefur hjálpað okkur mikið í veikindum Maístjörnu minnar og mikið ofsalega var það gott. Yndislega gott að tala við þennan mann. Blómarósin mín hafði virkilega gott af því og ég veit að það hjálpaði henni, það hjálpaði mér. Ég VEIT að við komumst í gegnum þetta á endanum - þó svo ég viti líka að það mun taka tíma og ég ætla heldur ekki að pína mig í einhverja hluti sem ég er hrædd við.
Það hefur verið grátið mikið á mínu heimili síðustu daga og núna ætla ég mér að gráta ekki fyrirframan börnin mín - nota bara Skara-fang. Þau verða að finna öryggið sitt aftur en strákarnir mínir (3 og 6 ára) taka þessu ekki alveg jafn illa og systurnar. Þeim verður að líða vel á OKKAR heimili, þeir mega ekki skemma okkar líf líka.
Ég skil bara enganveginn í því "afhverju er alltaf eitthvað slæmt að henda okkur?" Hvað höfum við gert? Nei ég þoli EKKI meir! Þetta er komið gott!
GETA - ÆTLA - SKAL!!
Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar sem þið hafið sent mér - bæði hérna á síðunni minni - tölvupósti og símtölum. Jú þau gera ofsalega mikið!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
9.6.2012 | 14:10
Og heimurinn hrundi en eina ferðina.....
Það er föstudagur 8.júní, mamma er í fríi svo við mæðgurnar ætluðum aðeins að "dúllast" saman. Ég fór útur húsi ca 10:15 og náði í mömmu en við ætluðum að skreppa í Bónus og Rúmfatalagerinn sem er kanski ekki frásögufærandi en við keyptum okkur smá mat fyrir hádegið og ætluðum að borða saman. Þar sem mamma og pabbi eiga heima hérna í sveitinni líka ákvað ég að henda henni út ásamt stelpunum mínum (og dætrum systir minnar)heima hjá henni þar sem ég þurfti að hoppa við heima og taka úr þvottavélinni.
Þegar ég keyri frá mömmu (rúmum klukkutíma eftir að ég fór útur húsi)sé ég löggur hlaupandi um sveitina mína og nokkra löggubíla þannig ég ákvað að slá þráðinn til mömmu og segja henni að það væri svaka "action" í hverfinu og svo hoppa ég útur bílnum heima. Þegar ég kem að hurðinni heima hjá mér þá sé ég að gardínan á herbergisglugganum okkar Skara er ekki einsog hún á að vera þrátt fyrir að ég hef alltaf litla rifu á glugganum þá fíkur gardínan ekki svona upp. Ég varð smá stressuð en ok ég opna íbúðina og við blasir ekki einsog ég skyldi hana við, ég labbaði ekki innum andyrið þar sem ég sá að það hafði einhver komið þangað inn. Ég hringi grátandi í SKara minn sem skilur væntanlega ekki orð sem ég segi og við það kemur löggan í innkeyrsluna hjá mér leitandi af einhverjum, ég bendi honum á íbúðina mína þar sem ég kom ekki upp orði enda í áfalli. Hann hleypur inn til að ath hvort einhver var inni en svo var ekki svo ég fór inn á eftir honum, jú íbúðin okkar var í rúst þá meina ég það virkilega. Það hafði verið brotist inn til okkar, lyfin hennar Þuríðar minnar voru útum allt, herbergið okkar Skara var hrikalegt, búið að fara inní alla skápa, henda öllu útum allt og stela ÖLLU sem hægt var að stela nema sjónvarpinu þar sem það var væntanlega of þungt fyrir þá.
Aðkoman í íbúðina mína var hrikaleg, ég gat ekki verið inní henni og bíð útí garði eftir Skara mínum og sé þá löggurnar útum allt hverfi þar sem þeir voru búnir að brjóstast inní fleiri íbúðir í sveitinni.
Fyrirutan daginn sem mér tilkynnt að Þuríður mín ætti bara nokkra mánuði ólifaða þá hefur mér aldrei liðið jafn illa en sem betur fer var ég búin að keyra stelpurnar mínar til mömmu og sem betur fer voru þær ekki einar heima einsog stundum gerist ef ég skrepp útí búð en verður ekki gert framvegis (allavega ekki strax). Ég gat heldur ekki verið lengi í íbúðinni minni þar sem mér leið fáránlega illa enda eitthvað pakk búið að rústa íbúðinni minni, koma inní hana óboðnir og taka ALLT sem börnunum mínum þykir vænst um. Sárast fannst Þuríði minni að missa skólatöskuna sína og ferðaspilarann sinn sem hún elskar að liggja yfir ein inní herberginu sínu. Þeir rótuðu í dóti barnanna minna, löbbuðu í rúminu mínu, hentu öllu um koll, þeir rústuðu sálinni minni sem er öll í molum núna. Ég get ekki sofið því þá dreymir mig innbrot, ég þori ekki að labba ein að útidyrahurðinni okkar til að opna því ég er svo hrædd við sjónina sem birtast því ég sé íbúðina mína bara í rústi.
Við erum líka heppin að eiga góða að, systir mömmu og maðurinn hennar komu og hjálpuðu Skara mínum að taka til í íbúðinni minni þar sem ég gat ekki verið inní henni og á erfitt með það. Börnin fengu ekki að koma heim fyrr en hún var orðin hrein en Oddnýju minni líður fáránlega illa hérna, hún víkur ekki frá mér, verður að sofa í fanginu mínu og svo grátum við bara saman. Hún er svo hræddum að þeir komi aftur, það er hryllilegt að lenda í svona. Það er ekki nóg með að þessi plebbar eyðileggja líf sitt, þeir þurfa líka að eyðileggja líf annarra. Þeir rústuðu svæðinu þar sem mér hefur liðið sem best - okkar einkasvæðið og komu þangað inn óboðnir og tóku allt sem okkur er kærast.
Hvernig er hægt að laga sálina við svona aðkomu? Mér líður fáránlega illa, ég er með stóran stein í maganum sem ég sé engan veginn frammá sé að fara. ´
Við fjölskyldan vorum nýfarin að bera út Morgunblaðið og það átti að vera "okkar" peningur, okkur langaði svo að safna okkur í sjóð fyrir næsta sumar og fara eitthvað saman, hafa eitthvað til að hlakka til. Ég sé enganveginn frammá að ég þori að vera ein úti á næstunni, þeir hafa rústað "öllu". Ég gat enginn veginn sett mig í spor hjá fólki þegar ég hef lesið í fréttunum að það hefði verið brotist inn í einhverjar íbúðir en því miður get ég það núna og hef heyrt sögur af fólki sem hefur ekki viljað búað lengur í íbúðinni sinni vegna innbrotsins sem ég skil mjög vel.
Hvernig er hægt að vera svona - hafa engar tilfinningar og vera slétt sama um alla í kringum sig, hugsa bara um hvernig það eigi að redda næsta "spítti"?? Ég mun aldrei skilja þetta og ég finn til með fjölskyldum þessara manna, jú þjófarnir þeir náðust og eitthvað af þýfinu en við vitum ekki ennþá hvað við eigum af því. Mér gæti ekki verið meira sama um dótið mitt nema dót barnanna minna - mig langar bara að mér líði vel á sálinni og Oddnýju minni sem líður jafn illa og mér. En við ætlum að hitta prestinn okkar uppá spítala á mánudaginn og vonandi mun það hjálpa eitthvað, það hjálpar mér pínulítið að skrifa þetta hérna. Smá útrás!!
Einsog okkur var farið að líða vel - einsog allt var farið að ganga vel en svo kemur þessi sprengja sem eyðileggur ALLT.
Rannsóknarlögreglan er búin að standa sig ótrúlega vel í þessu öllu - erum búin að vera í beinu sambandi við hana og búin að ráðleggja okkur mikið. Vil bara þakka þeim fyrir velunnin störf þótt dótið okkar allt finnist ekki en þjófarnir náðust sem verða reyndar fljótlega lausir og halda áfram þessum störfum en ég vona svo sannarlega að fleiri eigi ekki eftir að lenda í þessu þar sem þetta er hreint HELVÍTI.
Áslaug sem líður einsog í helvíti og með sál í milljón molum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Eldri færslur
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
31 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar